Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1981. 2 r SOMU LAUNINNAN SOMU STETTAR Hugi Hraunfjörð svarar þjáningabróður Hugl Hraunfjörð skrifar: Kœri þjáningabróöir i skattyrðing- um lifsins, (Baralæknir) Sveinn Rúnar Hauksson. Ég þakka þér innilega fyrir fræðsluerindið þitt i DB 1/6. Það má heita aö þú hafir hitt naglann á höfuðið með þessari svargrein þinni- til min. Þú rakst bara ekki naglann á réttan stað, þvi ég er ekki andstæð- ingur þinn i kjarabaráttunni. Min meining er sú aö þaö sé orðin landlæg villa i öllum vinnudeilum að heimta hærra kaup og láta annað sitja á hak- anum. Þú ert að tala um of langan vinnutima og vissulega er hann skammarlega langur. En af hverju er hann of langur? Læknar eru of fáir og nota sama trixið og iðnaöarmenn. Þaö má ekki hleypa of mörgum mönnum inn í stéttina. Það er ábyrgðarleysi af ríkisvaldinu að leyfa ekki mönnum að læra það sem þeir vilja og taka kúgunaraðgerðir félag- anna til greina. Og það nær engri átt að gera LÍN svo úr garði að sjóður- inn verði námsmönnum fjötur um fót að námi loknu. Ég held, Baralæknir minn, að hvað sem mínum skoðunum líður muni þjóðin ekki sjá eftir því að greiöa ykkur læknum það kaup sem um semst, en hinu mun enginn gleyma að þið eruð of fáir i stéttinni. Ég er ekki jafnlaunasinni að öðru leyti en þvi að ég vil að menn innan sömu stéttar hafi sömu laun. { Dags- brún voru t.d. einu sinni niu launa- flokkar enda ríður fávizkan ekki við einteyming i félagsmálum á íslandi. Sveinn Rúnar minn, kannski geta læknishendur þínar borið smyrsl á sárin. Stuðningur minn við lækna- stéttina byggist ekki á því að ég hafi fallið frá fyrri skoðun, heldur hinu að við lækna veröur að semja þótt aðrir fái hungurlaun sem aldrei hækka. Með baráttukveðju. „Píslarganga” íbúðareiganda: Frá fógeta til fasteignamats —og allt í erindisleysu 7882—3771 hrlngdi: — Ég er að kaupa mína fyrstu íbúð og var því að vonum feginn þegar ég fékk afsaliö af íbúðinni i gær. í einfeldni minni hélt ég að það eina sem ég þyrfti að gera væri aö fara til borgarfógeta og láta þinglýsa afsalinu. Ekki var það nú svo auövelt. Ég lagði af stað snemma morguns og var kominn til fógeta rétt um tíuleytiö. Þar var mér sagt að ég fengi ekki afsalinu þinglýst fyrr en ég væri búinn að fara til lóðarskrárritara sem hefur aðsetur i Skúlatúni. Ég hélt þvi þangað, en þá var mér sagt að fara fyrst inn í Fasteignamat rikisins, sem ég og gerði.Þegar þangað var komið var mér sagt að allt erfiði mitt þennan morguninn væri unnið fyrir gýg því ég haföi gleymt að hafa sölusamning- inn með mér. Mér finnst nú anzi hart að stika svona bæinn þveran og endilangan og fara svo erindisleysu og verst þykir mér að enginn, hvorki hjá fógeta né lóðarskrárritara, skyldi segja mér frá þvi að ég þyrfti að hafa sölusamning- inn með. BIAÐIÐ & nKur FYRIRTÆKI ATVINNU- REKENDUR DAGBLAÐIÐ og VIKAN munu gefa út neytendabækl- inginn „Heimilisbókhaldið þitt” í lok júní og senda ókeypis með Dagblaðinu til áskrifenda, svo og með hverju eintaki Vikunnar. — Áætluð dreifíng 40 þús. eintök. Auk þess verður bæklingurinn til sölu á öllum útsölu- stöðum þessara blaða. Einkunnarorð bæklingsins verða: „meira fyrir mánaðarlaunin” og verður neyt- endum gert kleift að fylgjast með vikuútgjöldum heimilisins með því að færa inn hina ýmsu útgjaldaliði á auðveldan og hentugan hátt, í þar til gerða dálka. Hægri síða á hverri opnu er ætluð fyrirtækjum til auglýsinga. — Auglýsing yðar verður því við hlið heimilis- bókhaldsins eina viku í senn. 104 S'ffiUR AUGLYSING YÐAR HRINGIÐ OG LEITIÐ UPPL. t SÍMA 85320 eða 27022 Vill stofna klúbb fyrir einmana Elnmana hríngdl: — Ég var að lesa um þessa hug- mynd sem 6787—1510 varpaöi fram í DB i síðustu viku. Ég hef oft verið að hugsa um þetta mál og gæti vel hugsað mér að smala saman fólki sem er einmana til að ræða þessi mál. Ef áhugi er fyrir hendi þá má stofna eins konar klúbb, eins og 6787—1510 bendir á, sem hefði það að markmiði að rjúfa einangrun einmana fólks. Áhugamenn um klúbbstofnun geta snúið sér til DB í síma 27022 alla virka daga á milli kl. 13 og 15.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.