Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 28
„Lögleg en siðlaus” skipan í embætti forstjóra Brunabótaf élagsins: „Legg til fordæmingu á gerðum ráðherrans” —segir Magnús H. Magnússon, formaður framkvæmdastjómar „Ég mun leggja til aö fram- kvæmdastjórnin fordæmi gerðir ráð- herrans enda eru þær andstæðar eindregnum vilja stjórnarmanna,” sagði Magnús H. Magnússon, for- maður framkvæmdastjórnar Bruna- bótafélags íslands, i morgun. Stjórnin kemur saman á fund f dag (auk Magnúsar H. sitja i henni Friðjón Þórðarson ráðherra og Stefán Reykjalin byggingameistari á Akureyri). Fjallað verður m.a. um þá ákvörðun Svavars Gestssonar heil- brigðis- og tryggingaráðherra að skipa Inga R. Helgason hæstaréttar- lögmann forstjóra Brunabóta- félagsins frá 1. júU að telja. „Rikissjóður á ekkert í félaginu og ber enga ábyrgð á skuldbindingum þess. Félagið er alfarið i eign og á ábyrgð sveitarfélaganna, að undan- skUinni Reykjavikurborg og fáeinum hreppum,” sagði Magnús H. „Ákvæði um að ráðherra skipi forstjóra Brunabótafélagsins hefur staðið óbreytt í lögum þess frá 1917. Það eru einu afskipti rikisins af stjóm félagsins og með öllu óeðlileg. Ég get tekið undir að strangt tU tekið sé ákvörðun ráðherrans lögleg en siðlaus.” Ásgeir Ólafsson, forstjóri Bruna- bótafélagsins, sagði upp störfum sin- um en framkvæmdastjórnin fór þess á leit að hann gegndi þeim áfram til ársloka 1982. Á það féUst Áseir, að sögn Magnúsar H. Magnússonar, þó með þvi skilyrði að ráðherra féUist á það einnig. Magnús taldi ráðherrann hafa gefið vilyrði fyrir því að for- stjóri yrði ekki skipaður nema í sam- ráði við framkvæmdastjórnina. Það hafi hann ekki gert i reynd. Þess má svo til gamans geta að Ingi R. Helgason, nýskipaður Brunabóta- félagsforstjóri, og Hallgrímur Sigurðsson, forstjóri Samvinnutrygg- inga, eru samstúdentar frá MR 1945. Þeir bekkjarbræðurnir munu stýra þeim tveimur félögum sem eru einna stærst á vettvangi trygging- anna og takast á um hlutdeUd í markaðnum. -ARH. V ✓ Nefnd gaum- gæfirrétt- mæti f lug- skýrslunnar Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra hefur skipað nefnd til þess aö gaumgæfa skýrslu þá sem bandarískt ráðgjafarfyrirtæki gerði um Norður-Atlantshafsflug Flug- leiða hf. í nefndinni eru þessir menn: Agnar Kofoed-Hansen flugmálastjóri, Birg- ir Guðjónsson, deildarstjóri í sam- gönguráðuneytinu, Kári Einarsson stjórnarmaður í Flugleiöum, til- nefndur af ríkinu, Martin Petersen, fyrrum framkvæmdastjóri markaðs- sviðs Flugleiða, og Rúnar Bj. Jóhannsson, stjómarmaður í Flug- leiðum, tilnefndur af ríkinu. Er lagt fyrir nefndina að hraða störfum svo sem verða má. Meðal annars metur nefndin hverja kosti áðurnefnd skýrsla bendir á i rekstri Atlantshafsflugsins, þar með talið að sjálfsögðu ekki sízt Luxemburgar- flugið. Gert er ráö fyrir að afstaða aðila til þess, þar með talið rikja Luxemburg og Islands, verði ljós fyrirlokjúiímánaðarnæstkomandi. , Nefndin metur hvaða hagsmuni ríkið hefur að gæta í sambandi við áðurgreindan rekstur og kannar öU atriði skýrslunnar, hvort hún teiji hana rétta i öllum atriðum. Metur nefndin hvort ástæða sé til að athuga sérstaklega einhver atriði hennar, ekki sizt með tilliti tU hagsmuna rikis- ins. „Hvað sem líður beinum hags- munum rikisins verður ekki gengið fram hjá gífurlegum hagsmunum allra þeirra sem við þetta starfa,” sagði Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra, er DB spurði hann um málið. Leikarar og félagar i Sinfóníuhljómsveitínni brugðu á leik i Austurstrætinu og á Lækjar- torgínu i gær. THefnið var miðasala á miðnæt- urskemmtun þessara aðila á fimmtudag og föstudag en sfysasjóður þeirra stendur fyrir skemmtununum. Á myndinni má sjá Sigriði Þorvaldsdóttur með bangsabörn. Ijii DB-mynd Gunnar Örn. wpSSöNft* Pálmi í Hagkaup skattakóngurmn 1980—efstu sætin ríðlast: „SKATTSKRAIN VERBUR KANNSKIALDRB RETT” —segir skattstjórinn í Reykjavík—skráin miðuð við 1. marz endanlega óaf greidd hiá ríkisskattanef nd Pálmi Jónsson í Hagkaup er skattakóngur ársins 1980 og það ekki í fyrsta sinn. Hann er efstur á lista yfir einstaklinga sem greiða hæstu gjöldin samkvæmt skattskránni 1980, fékk endanlegan reikning upp á tæplega 169milljónir gkróna. Næstir Pálma i Hagkaup voru: Þorvaldur { Sild og fisk, 86,8 millj.gkr., Ásgeir Bragi Ólafsson, 56,5 miUj., Ingólfur Guðbrandsson i Útsýn 46,3 mUlj. Samkvæmt skatt- skrá er þriðji skatthæsti einstakl- ingurinn Gunnar Þór Ólafsson, út- gerðarmaður og stjórnarformaður i Andra h.f. Hann segir að skattskráin sé röng miðað við stöðu mála i dag. „Min kæra var ekki endanlega afgreidd þegar þessi skrá var búin til. Minir skattar voru i aUt um tíu miUjónir gamlar, en ekki 69,2 mUljónir eins og segir i skránni,” sagði hann i morgun. Gestur Steinþórsson sagði það rétt . i morgun að skráin sem lögð var fram í gær væri ekki endanleg: „Hún miðast við 1. marz en i rauninni má segja að skattskráin geti kannski aldrei orðið endanleg. Þetta er skrá yfir öU mál sem við höfðum afgreitt frá okkur 1. marz en eftir það hafa mörg verið kærö tU rikisskatta- nefndar.” mörgmál Sambandiö var gjaldhæst félaga 1980, borgar rfflega mUljarð gkróna. Eimskip kemur næst með 420 mUljónir, þá Flugleiðir, siðan Slátur- félag Suðurlands og Hans Petersen hf., öll með yfir 200 miUjón gkrónur. Áfengis- og tóbaksverzlunin greiðir rúmlega 800 miUjónir i lands- útsvar gjaldárið 1980. Næst koma olíufélögin. -ÓV/ARH. frjálst, úháð dagblað MIÐVIKUDAGUR10. JÚNÍ 1981. Læknadeildan: Ákvörðunum tilboð íkvöld Á fundi Læknafélags íslands f kvöld verður tekin ákvörðun um hvort gengið verður að því tilboði sem fuUtrúar rfkisvaldsins lögðu fram á samninga- fundi í gærkvöldi. I þeim samningsdrögum sem lögð voru fram er ekkert rætt um grunn- kaupshækkanir tU lækna en áherzla lögð á ýmisleg félagsleg atriði, s.s. Uf- eyrissjóðsmál og fyrirframgreiðslu á launum, eins og tfðkast hjá rikisstarfs- mönnum. FuHtrúar lækna, þeir Þorvaldur Veigar Guðmundsson, formaður Ll, og Páll Þórðarson, framkvæmdastjóri félagsins, vUdu i morgun ekki tjá sig um tilboð ríkisvaldsins en Þröstur Ólafsson, aöstoðarmaður fjármálaráð- herra, kvaðst vera bjartsýnn á að deilan leystist í kvöld. -ESE. Bflatryggingar hækka Hækkun á iðgjöldum bifreiða- trygginga var heimiluð í gær og voru hækkanirnar (samræmi við það sem Tryggingaeftirlitið hafði lagt til. Ið- gjöld ábyrgðartrygginga hækka um 30% en höfðu áður á árinu hækkað um 29,5%. Iðgjöld kaskótrygginga hækkuðu mun meira eða um 52%. Vátryggingafjárhæðir hækkuðu um 50% og eru nú um 2.7 milljónir króna fyrir fólksbUa. Iðgjald fyrir minni fólksbil í Reykjavík er þvi 2200 krónur og fyrir stærri fólksbUa 3050 1 krónur. Sjálfsábyrgð er 570 krónur. -ELA. í VIKU HVERRI Vinningur vikunnar: Tíu gíra reiðhjól frá Fálkanum hf. Vinningur í þessari viku er 10 gíra DBS eða Raleigh reiðhjól frá Fálkanum, Suðurlandsbraut 8 í Reykjavik. í vikunni verður birt, á þessum stað I blaðinu, spurning tengd smáauglýsingum Dagblaðs- ins. Nafn heppins áskrifanda verður slðan birt daginn eftir I smá- auglýsingunum og gefst honum tœkifœri á að svara spurningunni. Fylgizt vel með, áskrifendur. Fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glcesilegu reiðhjóli rikari. c ískalt Seven up. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.