Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 10.06.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1981 I Erlent Erlent Erlent Erlent S> Fœturnir tryggöir fyrir 100 milljónir kr. Eru fastur nokkurrar konu 100 milljón króna virði? Þvi héldu að minnsta kosti eigendur Warner Brothers kvikmyndafyrirtækisins fram, þegar þeir ákváðu að tryggja fætur leikkonunnar Catherine Bach fyrir þá upphæð. Catherine fer meó aðalhlutverkið í nýjum og geysivinsæl- um sjónvarpsmyndaflokki sem ber nafnið Dukes ofHazzard. Þetta er hæsta tryggingaupphæð allar götur frá þvl Betty Grable lét tryggja fætur sinar fyrir nær 40 árum. Að vísu var sú upphæð aðeins ein millj- ón króna, eða fimm milljónir á verð- gildi dagsins i dag. Og það fyndist þeim í Warner Brothers eflaust aðeins skipti- Catherlne Bach skartar fögrum og vel tryggðum fótleggjum. Fílana þarf líka aö þvo Það eru ekki aðeins bUar, sem þarf fóru að barma sér yfir þurrki, var að þvo endrum og eins. Filar þarfnast brugðizt snarlega við þvi. Af stað var einnig sömu meðferðar. Svo þegar haldið og ekki numið staðar fyrr en við þessir tveir filar, sem eiga heima i fjöl- bUaþvottahús nokkurt og þar fengu fU- leikahúsi i Rio de Janeiro i Brasiliu, arnir langþráð kalt bað. Geðbrigði Karls Bretaprins voru nokkuð önnur eftir að hann hafði drukkið skál Úkrainubúanna cn hans er vcnja við opinberar athafnir. Vodkað hvatti Kari til dáða Flokkur dansara frá Úkrafnu vodka. Karl þáði boðið og var þá rétt Viðstaddir hermdu að fyrst hefði heimsóti borgina Derby i Englandi glas eitt, eigi alllltið. Innihaidið rann Bretaprins stigið diskódans og þar á fyrir skömmu og sýndi Ustir sfnar. ljúflega ofan i prinsinn og við það eftir kósakkadans. Var gerður góöur Meðal gesta var Karl Bretaprins og var eins og öll konungleg feimni rómur að dansi prinsins þótt að úkrainskum sið buðu dansaramir rynni af Karli því hann sté næst út á mönnum væri ekki örgrannt um að prinsinum upp á sinn þjóðardrykk, dansgólfið með Úkrainubúunum. vodkað hefði hvatt hann til dáða. Marley vottuð hinzta virðing Sorgmædd en virðuleg mjakast lík- vottuðu tónUstarsnillingnum hinztu fylgd reggae-stjörnunnar Bob Marley virðingu, en síðar var flogið með lik inn á þjóðarleikvöUinn i Kingston á hans til heimabæjar hans á norður- Jamaica. Þar lá lik Marley á viðhafnar- strönd eyjarinnar. Þar var Marley börum í nokkra daga áður en það var grafinn. kistuiagt. Tugir þúsunda komu og Verðimir átu tertu fangans Fangaverðirnir við österfangelsið i Akersberga i Svíþjóð liggja nú undir sterkum grun um að stela mat sem fangarnir fá að heiman. Meðal annars eru þeir grunaðir um að hafa borðað tertu sem einum fanganna var send. Fangaverði nokkrum varð svo mikið um þennan orðróm að hann hafði þegar 1 stað samband við glæpadeild lögreglunnar og kærði félaga sina fyrir stuldi. En hinir fangaverðirnir teljamál þetta allt orðum aukið. „Við gefum föngunum oft af okkar mat,” sagði einn þeirra, Vivi Thorsell. „Bæði okkar matur og þeirra er geymdur í sama ísskápnum, svo vel getur verið að einhver misskilningur hafi orðið um hver ætti hvað.” Þvi miður fylgir það ekki sögunni hvort nokkur þjöl hafi verið i tertunni. LÍFSHLA UP VÆNDISKONU KVIKMYNDAÐ Sú hin glaðbeitta kona sem sést hér á myndinni heitir Ulla og er frönsk vændiskona. Ulla varð fræg heims- hornanna á miili fyri>- bók sfna Þegar ég er ein. Hún varframarlega! flokki er vændiskonur í Frakklandi gerðu hávaða mikinn 1975. Þá lögðu konurnar undir sig nokkrar kirkjur og afhentu stjórnvöldum langan kröfu- lista. Nú ætlar Ulla að gera kvikmynd um sfna stormasönft ævi og að sjáifsögðu hyggst hún sjálf fara með aðalhlut- verkið. Þó það nú væri. Reykingamenn geta svœlt að vild: Lungnakrabbi greind- ur strax í byrjun — á einfaldan og fljótlegan hátt Væri ekki munur fyrir reykingamenn ef þeir gætu haldið áfram að reykja án þess að eiga það á hættu að fá lungna- krabbamein? Sá möguleiki kann að vera í augsýn, að þvi er kanadiskur lungnasérfræðingur, dr. Norman Delarue, heldur fram. Með þvf að taka hrákasýni úr lungum reykingamanna á þriggja mánaða fresti er hægt að sjá hvort við- komandi séu komnir með fyrstu ein- kenni krabbameins eða ekki Sýnin, sem fengin eru með góðum hósta, gefa til kynna hvort einhverjar breytingar til hins verra hafi orðið á lungnafrumum. Ef í Ijós kemur að viðkomandi er með ——i'ír2 Smurbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 byrjunareinkenni krabbameins verður hann að hætta að reykja og þá læknast meiniðafsjálfusér. Delarue bendir á, máli sfnu til stuðn- ings, að þessi aðferð hafi verið reynd á sjö reykingamönnum sem allir fengu krabbamein. Þeir hættu að reykja og krabbameinseinkennin hurfu brátt. Siðan eru liðin fimm ár og krabbamein hefur ekki gert vart við sig í neinum þeirra hingað til. Um 80% allra lungnakrabbameins- sjúklinga eru reykingamenn og því gæti þessi aðferð dugaö þeim. En þessi aðferð gagnar því miður litt ef orsakir krabbameinsins eru aörar en reykingar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.