Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 10

Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 10
10 DAOBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR ÍO.JCINÍ 1981. LAUSSTAÐA Staða deildarstjóra / kennara í byggingadeild Tækniskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 3. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 3. júní 1981. Tónmenntakennarar Tónmenntakennara vantar við Grunnskóla Pat- reksfjarðar. Æskilegt að sami aðili geti verið skólastjóri Tónskóla Patreksfjarðar. Upplýsingar gefa Gunnar R. Pétursson í síma 94-1367 og Gísli Viktorsson í síma 94-1340. LAUSSTAÐA Staða lektors (50%) i sýklafræði í tannlæknadeild Háskóla tslands er laus til umsóknar. Staðan verður veitt til tveggja ára. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf sin, ritsmiðar og rannsóknir svo og námsferil sinn og störf. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6. 101 Reykjavik, fyrir 3. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 3. júní 1981. Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti Kennarastöður eru lausar til umsóknar við Fjölbrautaskól- ann í Breiðholti í eftirtöldum greinum: Eðlis- og efnafræði, heilbrigðisfræðum og stærðfræði. Umsóknarfreshir er til 22. júní nk. Skólameistari verður til viðtals í skólanum dagana 10.— 12. júní frá miðvikudegi til föstudags kl. 10— 12 og 14—16 að veita frekari upplýsingar. Skólameistari. Skattskrá Reykjavíkur árið 1980 Skattskrá Reykjavíkur árið 1980 vegna álagningar á tekjur og eignir ársins 1979 liggur frammi á Skattstofu Reykjavíkur, Tryggvagötu 19, frá 10. júní til 24. júní n.k. að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga nema laugar daga, frá kl. 10.00—16.00. Að gefnu tilefni skal athygli vakin á því, að þessari birt- ingu — álagðra opinberra gjalda í skattskrá 1980 vegna tekna og eigna ársins 1979 — fylgir ekki sjálfstæð kæru- heimild. Reykjavík 9. júni 1981 Skattstjórinn í Reykjavík Gestur Steinþórsson. OSAMKEPPNI UM GERÐ VEGGMYNDAR VIÐ STÖÐVARHÚS SIGÖLDUVIRKJUNAR Landsvlrkjun býður til samkeppni um gerð veggmyndar við stöðvarhús Sigölduvirkjunar. Allir íslenskir listamenn hafa heimild til þátttöku. Heildarverðlaunaupphæð er allt að kr. 50.000,00. Þar af nema 1. verðlaun kr. 20.000,00. Keppnisgögn eru afhent af trúnaðarmanni dómnefndar, Ólafi Jenssyni, framkvæmdastjóra Byggingaþjónustunnar, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, gegn skilatryggingu að fjár- hæðkr. 100,00. Skila skal tillögum til trúnaðarmanns eigi síðar en 15. sept. 1981. t dómnefnd eru dr. Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, Guðmundur Kr. Kristinsson arkitekt og Hörður Ágústsson listmálari. Reykjavík, 11. júní 1981 Landsvirkjun Kuldatíðin á Norður- og Austurlandi: Snjór í fjöllum, skaflar á túnum —og lambfé yf irleitt enn heima á túnum ,,Hér hefur engin framför sézt á gróðri í hálfan mánuð til þrjár vikur, enda við frostmark á nóttunni og jafn- vel éljagangur. Eitthvað er um kal í Múiasýslum en þó ekki i stþrum stíl svo vitað sé,” sagði Páll Sigurbjörnsson ráðunautur Búnaðarsambands Austur- lands i samtali við Dagblaðið um gróðurfarið í kuldatiðinni undanfarið. „Vetur settist að fyrstu dagana i október i fyrra og okkur þykir orðið nóg um hvað hann endist lengi. Bændur eru litið farnir að sleppa fé enda ekkert að hafa i sumarbeitUönd- unum.” Ævar Hjartarson ráðunautur Búnaðarsambands Eyjafjarðar hafði sömu sögu að segja og koUegi hans á EgUsstöðum. „Ástandið er ískyggilegt þó enn sé of snemmt að slá föstu neinu endanlegu um kaiskemmdir i túnum i Eyjafirði. Sakir stöðugs kulda grær ekkert og út- litið er verra vegna þess. Mest er kaUð i túnum út með firði; á Árskógsströnd, í Grýtubakkahreppi og i Svarfaðardal. Eins er kal innst f Eyjafirði, annars eru mörg tún slæm um aUt svæðið.” Ævar sagði að yflrleitt væri reglan sú að bændur hafi fé enn á túnum. Snjór væri í fjöUum og skaflar viða niðri i byggð. • ARH MITTÁMILU ALLS SEM ER Sigurður örlygsson hefur í myndUst sinni unnið óvenju mark- visst að hugðarefnum sínum. Upp- haflega kompóneraði hann með miklum viðáttum lita en síðan hefur hann fundið sér samastað einhvers staðar mitt á mUU óhlutbundinnar veraldar litanna og hlutveruleika hvunndagsins. Þannig er i einu og sama verkinu að finna stóra, bjarta litfleti andspænis eða i samfloti með öðrum flötum sem geta verið stækk- aðir bútar af einhverri maskinu, mublu eða öðru því sem Ustamaður- inn hefur hrifist af. Stundum hefur Sigurður ekki einu sinni fyrir þvf að dulbúa þessi föng eða endurgera, heldur fellir hann þau beint inn i sam- hengi myndanna, sjaldnast út frá eiginlegri merkingu þessara hiuta heldur með tiUiti til formlegra kosta þeirra, hvernig þeir lita út i samheng- inu. A0 kjarna málsins Nú þarf málarinn ekki lengur að vera þræU pensla sinna því alls kyns ljósmynda- og prenttækni hefur gert honum kleift að yfirfæra myndefni beint á striga. Sigurður stundaöi um hríð að fella aðfengið efni inn i myndir sinar með hjálp lims, skæra og heftara en i seinni tiö hefur hann tekið ljós- myndatæknina i þjónustu sina f æ rikara mæli, ásamt öðrum þeim sem stunda svipaöa myndgerð. En tæknin hefur engan veginn yfir- tekið myndverk Sigurðar, gert þau steríl eða staglkennd, heldur hjálpað honum að komast að kjarna málsins i hverju verki, stytt honum leiöina. Með öUum þessum innviðum er svo sett i gang mikU togstreita i myndum listamannsins, mUli hreinUtu flatanna og lfnanna og hinna þriviðu hluta sem þarna er vitnað tU, mUU víðáttu og þrengsla i myndinni, reglustikunn- ar og lifrænna fyrirbrigða. Form og ekki form Þegar vel er á spöðum haldið, iöa myndir af þessu tagi af innra lifi. Hins vegar er ég ekki alltaf sáttur viö þá afstöðu sem Sigurður og aörir á svipaðri bylgjulengd hafa til aðfeng- inna hluta, eða mynda af hlutum, i verkum sinum. Þeir Uta á þá sem hrein og klár form, burtséð frá nota- gildi þeirra, merldngu og menningar- legu hlutverki. Sjálfur get ég ómögu- lega horft á stól og séð aöeins „form” stólsins, svona eins og Platon sá það, heldur verður mér einnig hugsað til þess aö stóU er til aö sitja á, hann er lagaöur eftir þörfum mannslíkamans o.s.frv. Þegar Sigurður & Co. hafa gert upp hug sinn gagnvart heUdarmerk- ingu aðskotahluta sinna, þá skal ég endurskoða afstöðu mina tU þeirra. Myndir Sigurðar Örlygssonar dag (10. júni). HeUsteypt er sýningin m.a. vegna þess að iistamaöurinn hefur leyft sér að sýna einvörðungu tUbrigði um eitt og sama viðfangs- efnið, lyftuhjól og trossur sem hann sá úti i Kaupmannahöfn. Þetta efni verður Sigurði tUefni mikiUa og skemmtUegra leikja, bæði i málverki og máluðum mónótýpum. Lyftuhjól- in eru alvöru hjól, þau geta iika verið hringlaga form, sldfa með litrófinu, sólarminni o.m.fl. Stundum eru þessi hjói að tosa upp alvöru lóðum eða þá að lóðin breytast f ljósmynd af lóðum sem hanga i alvörukrókum. Þarna, mitt á miUi alls sem er, virðist Sigurður una sér best. Og gera sín bestu verk. - AI Myndlist Sigurður Örlygsson — Tvö málverk. (DB-myndir Sig. Porri). Alvöru hjól Nú heldur Sigurður litla en heU- steypta sýningu i Djúpinu sem lýkur i Siguröur Urlygsson — Mynd, máluð og þrykkt mónótýpa.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.