Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1981.
Amllát
Veðrið
8páð er hwgviðd um aUt iand, lumi j
stafler smáskúrir á Suðurlandi sfð-1
degis. Annara verður bjert veður, ðr-
iftið hlýrre eð deglnum en keh í nótt.
Kkikken 6 ver suðeueten 1, látt-
skýjað og 3 stíg í Reykjavfc, logn,
láttskýjeð og 3 stíg á Qufuekáium,
logn, láttskýjeð og 3 stig á Qaharvhe,
suflausten 2, alskýjeð og 4 stig á
Akureyri, vestsuðvesten 3, helðskfrt
og 2 stig á Raufarhðfn, sunnen 1, látt-
skýjað og 1 stig á Daietange, k>gn,
skýjað og 3 stig á Hðfn og suðsuð-
austan 4, úrkome og 6 stig á 8tór-
hðfðe.
I Þórshðfn var skýjað og 4 stig, al
skýjeð og 15 stig Í Kaupmennehðfn,
skýjeð og 13 stig f OsM, skýjað og 16
stig ( 8tokkhóbni, Mttskýjað og 10
stig í London, skýjeð og 16 stig í
Hamborg, heiðrfct og 11 stig í Peris,
Mttskýjeð og 16 stig í Madrid, Mtt-
skýjað og 14 stig í LUsebon og skýjað
og 22 stig í New Yoric.
Jónfna Gróa Pétursdóttlr, sem lézt 27.
mai sl., fæddist 16. nóvember 1895 á
Hlaöhamri i Hrútafirði. Foreldrar
hennar voru Pétur Jónsson og Val-
gerður Jónsdóttir. Jónína bjó á
Borðeyrarbæ allt til ársins 1938 ásamt
systur sinni, en þá fluttust þær að
Kjörseyri til fjöðurbróður síns. Síðustu
árin dvaldist Jónina á sjúkrahúsinu á
Hvammstanga.
Magnús Hannesson rafvirkjameistari
sem lézt 30. mai sl. fæddist 2. desember
1905 að Stóru-Sandvík í Flóa. For-
eidrar hans voru Hannes Magnússon
og Sigríður Kristín Jóhannsdóttir.
Magnús nam rafvirkjaiðn hjá Eiríki
Ormssyni og stofnaði siöan ásamt
öðrum Rafvélaverkstæðið Segul.
Hætti hann þeim rekstri en stofnaði
annað rafvélaverkstæði, Rafvélaverk-i
stæðiö Volta árið 1945 ásamt bróður
sinum. Ráku þeir verkstæðiö í samein-;
ingu þar til bróðir Magnúsar iézt. Siðan
u-f"' Magnús rekið það einn en sl. tvö
ásamt syni sínum. Magnús var
tvæntur Guðrúnu Margréti Þorsteins-
dóttur og áttu þau 3 börn.
Einar E. Guðmundsson bifreiðarstjóri,
Rauðalæk 38. lézt 5. júní.
Jón Sigurösson, sem lézt að Sólvangi
Hafnarfirði mánudaginn 1. júní,
verður jarösunginn ' frá Prestbakka-
kirkju á Síöu i dag, 10. júní, kl. 14.
Magnea G. Jónsdóttir, Torfufelli 24,
iézt i Borgarspitalanum 8. júní.
Bjami P. Sigurðsson, Uppsalavegi 3
Sandgerði, lézt 6. júni í Landspitalan-
um.
Guðrún Briem Varvin lézt i Osló 5.
júni.
Oddur Jónasson forstjóri, Reynimei
35, iézt i Landspítalanum 6. júni.
BJarney BJarnadóttir, Ránargötu 9a ,
lézt 8. júni.
Aibert B.J. Aalen frá Eskifirði lézt i
Borgarspítalanum 5. júni.
Eyvindur Bjaml Ólafsson frá Keldudal
i Mýrdal lézt að Hrafnistu 8. júni.
Guðrún Jónasdóttlr, Þóristúni 5 Sel-
fossi, lézt i Vífilsstaðaspltala 8. júni.
Ruth Ófeigsdóttir, Hólabraut 22 Akur-
eyri, sem lézt 4. júni verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 11.
júni kl. 13.30.
Alfred Nordgulen lézt á heimiii sinu 5.
júni. Jarðarförin fer fram frá Hafnar-
fjaröarkirkju föstudaginn 12. júni kl.
14.
Ólafur Guðmundsson birgðavörður,
Laugateigi 12, er látinn.
Þorvaldur Helgl Kolbeins, Ingóifs-
stræti 21 c, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju fiinmtudaginn 11. júní
kl. 15.
Steinunn Áraadóttir frá Svarfhóli,
Laxárdal, lézt 30. mai.
Hjaltl Friðgeirsson frá Raufarhöfn
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
i dag, miðvikudaginn 10. júní.
Jensina Ingveldur Helgadóttir frá Þor-
kelsgerði, Selvogi, verður jarðsungin
frá Strandarkirkju 11. júni kl. 14.
Ingimundur Vigfús Sigurjónsson,
Suðurgötu 77 Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Fríkirkjunni i Hafnarfirði
fimmtudaginn 11. júni kl. 13.30.
Þóra Stefánsdóttir, Hjalteyri, verður
jarðsungin frá Möðruvöllum i Hörgár-
dal laugardaginn 13. júnikl. 14.
Helga Jónsdóttlr, Grenimel 15 Reykja-
vík, veröur jarösungin frá Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 11. júni kl.
13.30.
Fjóla Jónsdóttlr, Freyjugötu 18 Sauö-
árkróki, verður jarðsungin frá Sauðár-
krókskirkju laugardaginn 13. júni kl.
14. Kveðjuathöfn fer fram í Dómkirkj-
unni i Reykjavik fimmtudaginn 11.
júni kl. 15.
Páll Lúthersson kristniboði, sem lézt
25. mai, verður jarðsunginn frá kirkju
Filadelfiusafnaöarins í Reykjavík f dag,
lO.júní, kl. 13.30.
Kristin Maria Sæmundsdóttir, Austur-
brún 4, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 11. júní kl.
10.30.
Lelklist
w
I
GÆRKVÖLDI
Hættulegt sjónvarp og
plöggur á f leygif erð
Þegnskylduvinna er sjaldnast
skemmtileg og það að þurfa að horfa
eða hlýða á dagskrá-ríkisfjölmiðl-
anna eina kvöldstund vekur ekki
neina gleöi i brjósti mér. Ekki svo aö
skilja að ég hefði ekki setiö við
skjáinn allt gærkvöldið, þótt ég heföi
ekki þurft þess. En að þurfa er eitt og
geta annað. Úr því sem komið var var
ekki önnur leið fær en harka þetta af
sér, glápa og hlusta eins og vitlaus
maöur allt kvöldið. Og satt bezt að
segja var þetta ekki sú kvöl sem ég
átti von á, dvöl hjá tannlækninum er
alla vega enn þá efst á lista mínum
yfir pfningaraðferðir.
Strax upp úr sjö léttist á mér
brúnin og tilefnið var þátturinn Á
vettvangi. Ólafur Ragnarsson hefur
tekið við hlutverki Sigmars B.
Haukssonar og stóð sig með prýði,
svo sem hans var von og visa. Sér-
staklega fannst mér fengur i pistlin-
um um hæfileika mannsheilans til aö
muna eitt og annaö. Aðferðin til að
muna hvað ætti að kaupa inn var
alveg til fyrirmyndar. Ráðiö er að
tengja vaminginn við einhverja hluti,
raða vörunum upp í rétta röö i
heilanum og ganga siöan hom úr
horni og tina vörurnar i innkaupa-
körfuna. Mjólkurfernuna hef ég i
sófanum, jógúrtina i baðskápnum,
franskbrauöið undir stóra lampa-
skerminum og þorskflökin i fata-
henginu. Leiðin sem ég geng er þá
þessi'.hengi frakkann upp i fataheng-
inu, sezt i sófann og kveiki á
lampanum og bregð mér siðan á bað-
herbergiö. Stórgott. Siðan er bara að
muna hvaða vara er á hverjum stað
og röðina og þá kaupi ég örugglega
allt og gleymi engu.
Áfangar þótti mér eitt sinn bita-
stæðasti þátur hljóðvarpsins og þykir
enn mikið i hann varið. En ég fórnaði
Áföngum fyrir sjónvarpsfréttirnar og1
sá mikið eftir þeim skiptum. Helzt
var þaö að fréttin um hina miklu
orkueign okkar tslendinga gleddi
hug og hjarta. Ekki verður amaiegt
þegar innlendir orkugjafar hafa meö
öllu tekið við hlutverki hinna
erlendu. Bara ef stjórnvöld gætu nú
ákveðið hvar næst á að virkja.
Bjarni Felixsön fær oft skammir
fyrir einhæft sjónvarpsefni, en miðað
við efni og aðstæður er iþróttaþáttur
hans býsna góður. Alltaf er jafn-
gaman að horfa á tuðruna þenja út
netið og góðir gæðingar eru ætiö
augnayndi. fshokki er einnig ágætis-
fþrótt, á köflum er að visu hraðinn á
plögginum æði mikiil, svo mikill að
hann verður vart greindur þótt
myndin sé sýnd hægt. Óskaplega
hljóta markverðirnir að vera fráneyg-
ir að geta fylgt plögginum eftir langt
utan af velli.
Óvænt endalok voru með betra
móti og sýndu og sönnuðu að vara-
samt getur verið að gera við sjónvarp
sem er i gangi. Einkanleg er hættulegt
að vera biautur á höndunum.
Umræðuþátturinn í dagskrárlok
um útvarp og sjónvarp lofaði góðu,
en fljótt tók að siga á ógæfuhliðina.
•Frjálst útvarp er göfugt markmið og
að margra mati jafnnauðsynlegt og
frjáls dagblöð. En meðan mál-
flutningur forsvarsmanna þess er
ekki betri en Magnúsar Axelssonar
var í gærkvöldi er ekki útlit fyrir að
mál þetta komist í örugga höfn. Það
var þeim Eiði Guðnasyni, Vilhjálmi
Hjálmarssyni og Guðmundi Jónas-
syni þvi létt verk að hrekja rök
Magnúsar. Umræðan um sjónvarpiö
var mun skárri en óenitanlega virðist
langt í þann draum að við Frónbúar
getum horft á beina lýsingu frá
útlöndum af kappleikjum og öðru
spennandiefni. -SA.
Fáar sýningar eftir
á „Gusti"
I kvöld, miövikudaginn 10. júni, hefjast sýnignar
aftur á söngleiknum Gusti, en sýningar hafa legiö
niöri um nokkurt skeið meöan óperan La Bohéme
var œfö upp á nýtt. Gustur var frumsýndur i
siöasta mánuöi og fékk glimrandi góöa gagnrýni og
ágætar viötökur. Þaö er Bessi Bjarnason sem leikur
gæöinginn Gust, enaöriri aöalhlutverkum eru Amar
Jónsson, Ámi Tryggvason, Róbert Arnfinnsson,
Gunnar Eyjólfsson, Siguröur Skúlason, Sigríöur
Þorvaldsdóttir og Flosi ólafsson. Leikstjóri er Þór-
hildur Þorlcifsdóttir, en leikmynd og búninga geröi
Messiana Tómasd., og Ámi Baldvinsson sér uml
lýsinguna. Ámi Bergmann þýddi leikinn úr rúss-
nesku, en verkiö er sem kunnugt er byggt á vinsælli
sögu eftir stórskáldiö Leo Tolstoj.
Fólki skal bent á aö nú em aöeins örfáar sýningar
eftir á Gusti, þvi leikári Þjóöleikhússins fer senn aö.
ljúka.
Tilkynningar
Ráflgjafarþjónusta
vifl fslendinga
í Kaupmannahöf n
Á siöastliðnum árum hefur fariö fram umræða
innan íslendingafélaganna i Kaupmannahöfn um
bætta félagslega þjónustu og nýtingu Húss Jóns
Sigurðssonar i þágu íslendinga á Kaupmanna-
hafnarsvæöinu. Liðin eru 10 ár siðan Hús Jóns
Sigurössonar tók til starfa og reynsla þess tima hefur
sýnt aö húsiö hefur sívaxandi félagslegu hlutverki að
gegna meðal Islendinga i borginni. í Ijós þessa hafa
félög íslendinga lagt drög aö framtiöarskipulagi
hússins og þeirrar starfsemi sem þar fer fram. í þeim
drögum er m.a. gert ráð fyrir skipulegri ráðgjafar-
þjónustu viö Islendinga á Kaupmannahafnar-
svæöinu.
Til stuönings þessu fólki i málum sem upp kunna
að koma, er það dvelst í þjóöfélagi sem er þvi fram-
andi á ýmsan hátt, álita fél. nauðsynlegt aö til sé
aðili sem greitt getur götu þess. Hér má nefna sem
dæmi leiöbeiningar til fólks, er kemur til Kaup-
mannahafnar i fyrsta sinn hvaö varöar danska
félagsmála-, atvinnu- og skattalöggjöf. Einnig
persónulegan stuöning viö cinstaklinga sem einan-
gazt hafa félagslega eöa eiga slikt á hættu, af t.d.
tungumálaástæðum eða vegna breyttrar atvinnu-
stöðu, annaöhvort vegna atvinnuleysis eða eftir-
launa. Þá væri æskilegt aö útbúa upplýsingaefni,
sem geröi fólki er hyggst fara utan kleift aö gera sér
raunsæja grein fyrir aðstæðum ytra.
Ráögjafarþjónustan tók til starfa 2. júní og er
stefnt að samfelldum starfstíma til septemberloka.
Starfsemin fer fram i Húsi Jóns Sigurössonar
(Islands Kulturhus), 0ster Voldgade 12, 1350
Kebenhavn K, siml (01) 14 60 35, opnunartimi
þrlðjudaga og miðvikudaga kl. 12:00 — 14:00 og
fimmtudaga kl. 16:00 — 18:00
Aflalfundur
Fálags íslenzkra
símamanna
Aðaifundur Félags íslenzkra símamanna var haldinn
14. mai sl. Formaður félagsins, Ágúst Geirsson,
flutti skýrslu framkvæmdastjórnar fyrir starfsáriö.
Veigamestu þættir í félagsstarfinu voru launa- og
kjaramál en gengið var frá sérkjarasamningi
félagsins i kjölfar aöalkjarasamnings BSRB og fjár-
málaráöherra. Þá fór talsvert fyrir sumarbúða-
málum og einnig erlendu samstarfi en félagiö er aöili
bæöi aö norrænu og alþjóðlegu sambandi síma-
manna.
Mikil umræöa fór fram innan félagsins um
frjálsan innflutning á simabúnaöi en félagiö er
eindregiö á móti slikum hugmyndum.
Þá lagöi félagiö mikla áherzlu á menntunar- og
skólamál simamanna og var m.a. unniö aö þvi aö
komið veröi á fót sérstakri námsbraut viö Póst- og
simaskóiann fyrir símaafgreiöslu- og skrifstofu-
menn.
Gjaldkeri F.I.S., Bjami Ólafsson, skýröi reikn-
inga félagsins og er fjárhagur þess góöur.
Aöalfundir eru haldnir árlega en stjórnarkjör fer i
fram annaö hvert ár og verður ný stjóm kjörin næst
áriö 1982.
Gisting í
Steinsstaflaskóla
Ákveðiö hefur veriö að reka gistiaöstöðu þ.e. svefn-
pokagistingu i Steinsstaöaskóla I 2 mánuöi á þessu
sumri frá 15. júni kl. 15. ágúst og verður einnig hægt
aö fá eldhúsafnot eða kaupa veitingar. Skólinn er á
jaröhitasvæði i Lýtingsstaðahreppi í Skagafiröi, 10
km fyrir framan Varmahlíð, og er þar þéttbýlis-
kjarni sveitarinnar, sem heitir Steinsstaöabyggð. I
skólahúsinu em 3 kennslustofur og4 minni herbergi,
rúmgóö borðstofa og eldhús ásamt snyrtiher-
bergjum. Ný sundlaug hefur verið sett upp við
félagsheimiliö Árgarð þar á svæöinu ásamt setlaug
en baöklefar em í félagsheimilinu. Hægt er aö fá
lánaöan iþróttasal i Árgaröi og þar er ágæt aöstaöa
til fundahalda. Nálægt er góð grasflöt sem notuö er
sem iþróttavöllur. Tjaldstæði eru fyrir hendi á
svæöinu og er umhverfið kyrrlátt. Kjörinn staöur
fyrir fjölskyldur og hópa er njóta vilja sveita-
kyrrðarinnar á friðsælum stað. Upplýsingar gefur
Sigríður Jónsdóttir, Lækjarbakka 9, Steinsstaöa-
byggð, sími um Sauðárkrók.
Aðalfundur
Fólags
pípulagningameistara
fyrir áriö 1981 var haldinn föstudaginn 8. maí sl.
Formaður félagsins Axel Bender setti fundinn og
skipaöi Sigurð Grétar Guömundsson og Stefán
Jónsson fundarstjóra. Formaður flutti siöan skýrslu,
stjórnar og bar hún með sér mikið starf á sl. ári.
Á vegum stjórnarinnar hefur verið starfandi
Menningar- og fræöslunefnd undir fomstu Stefáns
Jónssonar og hefur hún séð um kynningarferöir í ná-
grenni Reykjavikur og fræöslufundi þar sem fjöl-
hæfir menn hafa flutt erindi um ýmsa þætti pipu-
lagna, svo og önnur áhugaverð málefni.
Stjóm félagsins var endurkosin, en hana skipa:
Axel Bender formaður, Bjarni Guöbrandsson vara-
formaöur, Tryggvi Gislason ritari, Elvar Bjarnason
gjaldkeri og Einar Guömundsson meöstjórn.
Skrifstofa félagsins aö Skipholti 70 er opin á mið-
vikudögum frá kl. 17—18 fyrir almenning og er
stjómin þar til viðtals fyrir þá sem þess óska. Slmi
félagsinser 36744.
Any Trouble
kveðja á
Borginni
íkvöld
Lokatónleikar brezku hljómsveitarinn-
ar Any Trouble ásamt með íslenzku
hljómsveitinni Start verða á Hótel Borg
i kvöld klukkan 21, en þá opnar húsið.
Verð aðgöngumiða er 75 krónur. Selt
við innganginn. Any Trouble hefur
fengið góðar viðtökur og þykir standa
sig vel.
Bæjaiiögmaðurinn í Hafnarfirdi:
HÆSTIRÉTTUR STAÐFESTI
r r ,
EFNISLEGA D0M HERAÐSD0MS
Hæstiréttur telur að fyrirvaralaus
frávikning Ingvars Björnssonar,
fyrrum bæjarlögmanns i Hafnarfirði,
hafi verið óheimil. Er að þvi leyti efnis-
lega staðfestur dómur undirréttar í
máli því sem Ingvar höfðaði gegn
Hafnarfjarðarkaupstað vegna upp-
sagnar úr starfi bæjarlögmanns.
Arið 1975 knúði Ingvar Björnsson
bæjarlögmaður fram nauðungarsölu á
húseign í Hafnarfirði til fullnustu á
kröfum bæjarsjóðs. Var honum
sjálfum slegin eignin fyrir miklu minni
fjárhæð en nam verðmæti eignarinnar.
Bæjarráð vildi ekki una við þau
vinnubrögð. Var lögmanninum vikið
úr starfi fyrirvaralaust. Höfðaði hann
mál vegna uppsagnarinnar. Voru
honum dæmdar bætur kr. 1 milljón
gamlar i undirrétti. Hæstiréttur dæmdi
honum 8 þús. nýkr. og kr. 4.500 í máls-
kostnað samtals i héraði og Hæstarétti.
-BS.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna-
Nr. 106-9. Júnl 1981 gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarlkjadollar 7,322 7,342 8,076
1 Sterlingspund 14,300 14,339 16,773
1 Kanadadollar 6,079 6,096 6,706
1 Dönsk króna 0,9771 0,9797 1,0777
1 Norsk króna 1,2272 1,2306 1,3537
1 Saanskkróna 1,4392 1,4431 1JI74
1 Hnnsktmark U246 1,6290 1,8919
1 Franskur franki 1,2964 1,2989 1,4288
1 Belg. franki 0,1879 0,1884 0,2077
1 Svissn. franki 3,4743 3,4837 3^321
1 Holienzk florina 2,7694 2,7669 3,0436
1 V.-þýzkt mark 3,0766 3,0849 34934
1 Itötak Ifra 0,00612 0,00613 0,00674
1 Austurr. Sch. 0,4340 0,4362 0,4767
1 Portug. Escudo 0,1156 0,1169 0,1276
1 Spánskur peseti 0,0769 0,0771 0,0848
1 Japansktyen 0,03223 0,03232 0,03866
1 Irakt Dund 11,179 11,209 12433
SOR taáratök drittarréttindil 8/1 8,4616 8,4846
Simsvari vegna gengisskróningar 22190.