Dagblaðið - 10.06.1981, Qupperneq 27
27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ1981.
{ Útvarp
DALLAS—sjónvarp kl. 21,20:
Sue Ellen reynir að
vinna hylli Jocks
Sjónvarp
I
—afbrýðisemin lætur ekki að sér
hæða íþættinum í kvöld sem
er fyrsti í 24 þátta f ramhaldi
Vert er að geta örlítiö um Dallas hér
á síðunni, þar sem okkur er tjáð að nú
fari alvaran fyrst að hefjast. Fyrstu
fimm þættimir, sem nú hafa verið
sýndir, vom nokkurs konar kynning á
fjölskyldunni en þátturinn i kvöld er
fyrsti þátturinn af 24 sem verða I beinu
framhaldi hver af öðmm. Þannig
tengist þátturinn f kvöld sfðasta þætti
þar sem minnzt er á fósturmissi
Pamelu.
Heilmargt gerist hjá Ewing fjðlskyld-
unni i kvöld eins og búast má við i slík-
um þætti. Sue Ellen, eiginkona J.R.,
hefur ekki gleymt þungun Pamelu og
afbrýðisemin brýzt í henni. Auk þess
telur hún Jock, tengdaföður sinn, vera
hlýlegri og betri við Bobby og Pam en
þau J.R.
1 þættinum i kvöld reynir hún því allt
hvað hún getur til að ná hylli tengda-
pabba. Meðal annars veröur Jock
gamla þaö á að láta skammaryrði fjúka
um Digger, föður Pamelu. Þau orð
reita Bobby til reiði og Sue Ellen gerir
hvað hún getur til að ýta undir sundur-
lyndið milli þeirra.
Ekki er ráðlegt að segja mikið frá
þættinum en óhætt er fyrir þá sem
fylgjast með þættinum að vænta heil-
mikillar spennu og óvæntra endaloka.
Þýðandi Dallas er Kristmann Eiðsson.
-ELA.
JÚGÓSLAVÍA EFTIR FRÁFALL TÍTÓS - sjónvarp kl. 22,10:
JUGOSLAVIA AN
EINRÆÐISHERRA
skýrt frá nútíma þ jóðlífi í landinu í stuttri f réttamynd
Titó Júgóslaviuforseti á meðan hann var á llfi. Hvernig hefur þróunin orðið i landinu
síðan hann féll frá? Þvi lýsir fréttamynd í sjónvarpinu í kvöld að einhverju leyti.
Júgóslavia eftir fráfall Títós nefnist
stutt fréttamynd sem sjónvarpið sýnir i
kvöld kl. 22.10 eða á eftir mynda-
fiokknum Dallas. Eins og nafn
myndarinnar gefur til kynna er i henni
sagt frá jveim breytingum sem orðið
hafa i Júgóslaviu eftir lát Títós.
Sagt er frá forsætisnefndinni svo-
kölluðu sem tók við störfum Títós en
eins og kunnugt er er ekki lengur
einræðisstjórn í landinu. Nefndin
reynir aö halda goðsögninni um hinn
látna einræðisherra lifandi og fylgir
stefnu hans í utanríkismálum — hinni
óháðu stefnu.
Skýrt er frá nútima þjóðlífi, stjórn-
skipan, verkalýðsfélögum og þátttöku
verkamanna i atvinnulífinu. Myndin er
um tiu mlnútna löng og þýðandi og
þulur er Þórhallur Guttormsson. -ELA.
Þau skötuhjú Suc Ellcn og J. R. koma mikið við sögu i Dallas i kvöld og þá scrstak
lcga vegna afbrýðiscmi Suc Ellcn í garð Bobby og Pamdu.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
FILMUR QG VÉLAR S.F.
Góð varahlutaþjónusta
Jón Þ. Þór þýddl og les Keisara sjávarins.
A undan timanum
í 100 ár.
fyrir
1 steinsteypu.
Léttir
meðfærilegir
viðhaldslitlir.
Ávallt fyririiggjandi.
'Armúla 16 sími 38640
Önnumst kaup og sölu allra almennra
veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla.
Getum ávallt bœtt við kaupendum á við-
skiptaskrá okkar.
Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin.
Venlliréfa -
Alarlaifliiriiui
Nýja húsinu
v/Lækjartorg.
12222
KEISARISJÁVARINS—útvarp kl. 22,35:
AFRÍSKT ÆVINTÝRI
—smásaga eftir Nígenumanninn Obi B. Egbuna
Keisari sjávarins er smásaga eftir
Nígeríumanninn Obi B. Egbuna.
Þýðandinn, Jón Þ. Þór, les fyrri hluta
sögunnar i kvöld en siðari hlutinn
verður á dagskrá útvarpsins kl. 21.30 á
föstudagskvöldið.
Jón Þ. Þór kvaðst hafa reldzt á þessa
mögnuðu sögu i smásagnasafni eftir
afriska höfunda en sagðist vita litil deili
'á Egbuna. Hann væri vist maður um
fertugt, skrifaði á ensku og hefði verið 1
skóla i Englandi og Bandarikjunum, aö
Jón hélt. Brezka útvarpsstöðin BBC
mun hafa flutt eitthvað af verkum
Egbuna sem einkum sækir efnivið sinn
i afriskar sögur og sagnir.
í Keisara sjávarins tekur Egbuna upp
gamalt ævintýri og lætur aldna konu
segja söguna á dánarbeði. Jón sagöist
álita aö þetta væri ádeila á valdamenn i
Afrlku, náunga eins og Idi Amin,
Bokassa og fleiri af sama sauöahúsi.
-FG.