Dagblaðið - 12.08.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981.
5
Samstarfsnefnd um hundahald:
„HUNDAQGENDUM GEFINN FREST-
UR TIL AÐ LOSA SIG VID HUNDANA”
—skorað á bæjarstjóm Hafnarfjarðar að hún endurskoði afstöðu sína til hundahalds í bænum
Samstarfsnefnd um heilbrigðis-
eftirlit á höfuðborgarsvæðinu varð-
andi hundahald hefur beint þeim ein-
dregnu tilmælum til bæjarstjómar
Hafnarfjarðar að hún endurskoði af-
stöðu sina varðandi hundahald i
Hafnarfirði. Auk þess Ieyfir nefndin
sér aö vænta að lögreglu- og bæjar-
yfirvöld í Reykjavlk og Kópavogi sjái
sér fært að framfylgja gildandi banni
við hundahaldi á viðkomandi stöðum
á raunhæfan hátt.
í ályktun samstarfsnefndarinnar
segir að samþykkt bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar um rýmkun á reglum
um hundahald gangi þvert á stefnu
heilbrigðisyfirvalda i Hafnarfirði.
Það sé ennfremur skoöun nefndar-
innar að reynsla undanfarinna ára í
þeim bæjar- og sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu sem veitt hafa
undanþágu við banni við hundahaldi,
hafi sýnt að varnaðarorð gegn
hunahaldi í þéttbýli hafi fullkomlega
átt rétt á sér. Er í því sambandi vitnað
til greinargerðar nefndarinnar frá
1975, en þar segir: „Hundahald á
höfuðborgarsvæðinu stefnir óðfluga
að : ■ því að verða stórfeUt vandamál.
Að framkvæma takmarkað hunda-
hald í þéttbýii er óframkvæmanlegt
og fuUyrðingar um að það sé hægt er
einungis blekking.”.
Nefndin leggur til að hundaeig-
endum veröi veittur eins árs, til eins
og hálfs árs frestur til að losa sig við
hunda sína. „Með þeim aðgerðum
yrði ennfremur spornað gegn slysa-
og sýkingarhættu, sóöaskap og því
ónæði sem hundar tvimælalaust
valda í þéttbýli,” segir ennfremur í
ályktun nefndarinnar.
Þess má geta að í samstarfsnefnd-
inni eiga sæti, heilsugæzluiæknarnir
í Hafnarfirði og Kópavogi, fram-
kvæmdastjórar heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar, Kópavogs, og
Reykjavíkur og borgarlæknirinn i
Reykjavík.
-ESE.
Hurtdahald íþéttbýli hefiir aftur komizt í kastljósið og eru deilurnar
magnaðar — eins og áður þegar hundahald hefur komizt í hámæli.
DB-mynd Árni Páll.
g'Órökstuddar fuUyrð-
ingar og sleggjudomar”
—segir Samband dýravemdunarfélaga íslands um ályktun
samstarfsnefndarinnar
Ályktun samstarfsnefndar um heU-
brigðiseftirUt á höfuðborgarsvæðinu
varðandi hundahald hefur mælzt
mjög Ula fyrir hjá Sambandi dýra-
vemdunarfélaga íslands og Hunda-
vinafélaginu. Hefur Samband dýra-
verndunarfélaga j>egar sent frá sér
ályktun vegna málsins og búizt er við
því að fundur verði boðaður í
Hundavinafélaginu innan skamms.
í ályktun Sambands dýravernd-
unarfélag íslands segir m.a. aö allur
málflutningur samstarfsnefndarinnar
byggist á órökstuddum fullyrðingum
og sleggjudómum, sem miði að því
að réttlæta að alUr hundar á höfuð-
borgarsvæðinu verði drepnir innan
18 mánaða. Segir í ályktuninni að
samstarfsnefndin sé sjálfskipuð ein-
staklingum sem í skjóU embættis-
heitis síns villi á sér heimUdir. Bent er
á að í nefndinni séu einungis-tðilar frá
þrem af sex sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu. Sú fuUyrðing sam-
starfsnefndarinnar að reynsla sé
slæm af takmörkuðu hundahaldi í
þeim bæjarfélögum sem slíkt hafa
leyft, er í algjörri mótsögn við
reynslu þá sem fengizt hefur, segir
ennfremur í ályktun Sambands dýra-
verndunarfélaga. Þaðséskoðun sam-
bandsins að ályktun samstarfs-
nefndarinnar samrýmist hvorki dýra-
verndunar- né mannúðarsjónar-
miðum og væntir sambandið þess að
opinberir aðilar komi ekki til móts
við kröfur nefndarinnar um bann við
hundahaldi.
- ESE
TOKST ÞU
PILLUIMA í DAG ?!
interRent
rental
' 0
Bílaleiga Akureyrar
Akureyri: Tryggvabr 14 - S 21715, 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
, á bílaleigubílum erlendis ,
Ljósritum
sam -
i stundis
Vélritunar
þjónusta
FJÖLRITUN
LJÓSRITUN
VÉLRITUN
STENSILL
ÓÐINSGOTU 4 - REYKJAVÍK - SIMl 24250
SIGILD 0G VONDUÐ SOFASETT
Verð frá kr.
8950,00
OPNA PEPSI-COLA GOLFMÓTIÐ
á Grafarholtsvelli 15. og 16. ágúst 1981
1. Meistarakeppni — stigamót
2. Forgjafarkeppni 7 og uppúr (24/30 — 3/4)
Kylfingum utan af landi er bent á afsláttarfargjöld Flugleiða
— 35% — og einnig gistingu á Flugleiðahótelum.
ALLIR KYLFINGAR VELKOMNIR
Þátttökutilkynningar í síma 83745 fyrir kl. 14 á föstudag.