Dagblaðið - 12.08.1981, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981.
Fólk einangrað á Grænlandi í sex vikur:
Þurfa fíugleidir að
hætta við 50 ferðir?
—vegna verkfalls
loftskeytamanna
á Grænlandi
Fjöldi manns er nú einangraður í
byggðarlögunum á Austur-Grænlandi
vegna þeirrar ákvörðunar dönsku flug-
málastjórnarinnar að banna allt sjón-
flug til Kulusuk og Meistaravikur.
Vegna verkfalls loftskeytamanna hefur
ekki verið hægt aö fljúga til þessara
staða síðan f lok júní og m.a. hafa
Flugleiðir orðið að fella niður fyrir-
hugaðar ferðir.
— Það voru fyrirhugaðar 50 ferðir
til Grænlands með ferðamenn á vegum
Flugleiða i sumar en vegna verkfalls
loftskeytamanna á austurströnd
Grænlands hefur ekkert verið flogið
síðan 1. júlí, sagði Sveinn Sæmunds-
son, blaðafulltrúi Flugleiða, í samtali
við DB. Sveinn sagði að búið hefði
verið að bóka í margar þessara ferða og
því hefði verkfallið komið sér mjög
illa. Ekki sagðist Sveinn kunna neinar
skýringar á þeirri ákvörðun að banna
sjónflug til Kulusuk og Meistaravíkur.
Til allra annarra staða á Grænlandi má
fljúga sjónflug samkvæmt alþjóðalög-
um.
— Það er einn maður sem lokar
flugvellinum í Kulusuk, sagði Helgi
Jónsson, sem haldiö hefur uppi flugi til
Grænlands undanfarin ár, er DB ræddi
við hann. Sagðist Helgi ekki halda að
það væru dönsk stjórnvöld sem sett
hefðu bann við sjónflugi, heldur hefði
hann staðið i þeirri trú að þeim sem
gefið hefur flugvélum upplýsingar um
veður og vinda á flugvellinum í Kulu-
suk hefði verið bannað að ganga inn í
LAUS STAÐA
Kennarastaða i stærðfræði er laus til umsóknar við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir
20. ágúst nk.
Umsóknareyðublöð f ráðuneytinu.
Menntamálaróðuneytið, 10. ógúst 1981.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — lími 15105
' ............—........ 1 1 *
Bílamá/arar
Óskum eftir góðum sprautara, aðstoðarmanni
eða nema. Gott kaup í boði.
Áferð hf.,
Funahöfða 8 — Sími 8S930.
Tilboð óskast í tannlæknatæki og búnað til kennslu í tann-
læknadeild Háskóla íslands.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 500 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 16. okt. 1981
kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
AUGLÝSING
samkvæmt 1. mgr. 98. gr. laga nr. 40 18. maí 1978 um
tekjuskatt og eignarskatt með síðari breytingum, um að
álagningu opinberra gjalda á árinu 1981 sé lokið á þá menn
sem skattskyldir eru hér á landi samkvæmt 1. gr. greindra
laga, þó ekki 2. tl. þeirrar greinar, og á börn sem skattlögð
eru samkvæmt 6. gr.
Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna þau opinberu gjöld
sem skattstjóra ber að leggja á á árinu 1981 á þessa skattað-
ila hafa verið póstlagðar.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, að sóknar-
gjöldum undanskildum, sem þessum skattaðilum hefur
verið tilkynnt um með álagningarseðli 1981 þurfa að hafa
borist skattstjóra eða umboðsmanni hans innan 30 daga
frá og með dagsetningu þessarar auglýsingar.
12. ágúst 1981
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi,
Hálfdán Guðmundsson.
störf loftskeytamanna. Helgi kvað það á austurströnd Grænlands vegna verk- niður 15—20 ferðir til Scoresbysunds,
rétt að ófremdarástand væri að skapast fallsinsoghefðihannallsorðiðaðfella en eitthvað færri til Kulusuk. -ESE
Óf remdarástandið á Grænlandi:
Frystiskip sett
í farþegaflutningana
—fer þrjár ferðir á milli Grænlands og Reykjavíkur
Dönsk stjórnvöld hafa nú ákveðið að
bæta úr samgönguleysinu við Austur-
Grænland og verður skip sent til að
flytja strandaglópa á Grænlandi til
Reykjavfkur. Verða farþegarnir síðan
sendir áfram til Kaupmannahafnar
með flugi, en skipið mun halda aftur til
Grænlands með fólk sem þurft hefur
að bíða eftir fari í Kaupmannahöfn í
umsex vikur.
— Þetta er ófremdarástand og til
skammar fyrir dönsk stjórnvöld, sagði
Sigurður Oddgeirsson, sem búsettur er
í Kulusuk, í samtali við DB. Sigurður
sagði að fólk í Kulusuk og víðar á
Austur-Grænlandi hefði nú verið ein-
angrað frá umheiminum, hátt á annan
mánuð, að því undanskildu að það
hefði getað talað i síma. Margir hefðu
verið í sumarleyfi á Grænlandi eða i
Danmörku er verkfall loftskeytamanna
skall á og hefðu viðkomandi þvi orðið
innlyksa þar sem þeir hefðu verið
staddir.
— Ég er nú á leiðinni til Kaup-
mannahafnar, til þess að útvega mér
far til Grænlands, en ég býst fastlega
við því að mér verði sagt að fara með
flugi til íslands til að taka skipið til
Grænlands, sagði Sigurður.
Skipið sem hér um ræðir heitir
Nanok, sem þýðir ísbjörninn og er það
u.þ.b. 3000 tonn á stærð. Skipið, sem
er frystiskip, mun fara þrjár ferðir til
og frá Grænlandi og veröur það í
Reykjavík, fyrst 17. ágúst og síðan 21.
og25. ágúst.
-ESE
j on Ásgeir við störf á Vikunni. „Fyrst var farið að tala um samtök áhugamanna um fjölmiðlarannsóknir haustið 1979.”
DB-mynd Gunnar örn.
|u/ v i
Jón Ásgeir Sigurðsson um nýstofnuð samtök um fjölmiðlarannsóknir:
FYRSTA VERKEFNK) VERÐ-
UR AÐ FÁ ERLENDA 0G
INNLENDA FYRIRLESARA
— séra Bemharður Guðmundsson kosinn formaður samtakanna
„Umræða um þetta félag byrjaði
fyrst haustið 1979 en þá var verið að
undirbúa ráðstefnu fyrir Norræna
fjölmiðlafræðinga. Ráðstefnur af því
tagi eru haldnar á tveggja ára fresti
og sú næsta verður hér á landi í byrj-
un næstu viku,” sagði Jón Ásgeir
Sigurösson, blaðamaður á Vikunni, í
samtah
Á mánudaginn var haldinn stofn-
fundur samtaka áhugamanna um
fjölmiðlarannsóknir. Jón Ásgeir er
meðal þeirra áhugamanna, en hann
ásamt Þorbirni Broddasyni og Sigur-
björgu Aðalsteinsdóttur voru helztu
áhugamenn að gera þessi samtök að
veruleika hér á landi. Um langt skeið
hefur slíkt félag verið starfandi á
Norðurlöndum. Svo og alþjóðlegt
félag.
Komum saman í júlí
,,í júli hittumst við, 10 manns, á
Hótel Borg og ákváðum að láta verða
af stofnfundi sem síðan var haldinn á
mánudag,” segir Jón Ásgeir enn-
fremur. ,,Um undirbúning fundarins
sáu Þorbjörn, ég og Sigriður H.
Jónsdóttir en hún er fjölmiðla-
fræðingur frá Berlín.
Á fundinn mættu 12 manns og var
það svipað og við áttum von á. Þar
sem fundarmenn voru jafnmargir
postulunum var samþykkt einróma
að kjósa prest formann félagsins og
var það séra Bernharður Guðmunds-
son. Þetta var flest fólk sem stundað
hefur nám i fjölmiðlun og félags-
fræði. Blaöamenn voru þarna í
minnihluta en við vonum aö samtök-
in geti haft samstarf við Blaða-
mannafélag íslands,” sagði Jón Ás-
geir.
Tilgangurinn
er fjórþœttur
„Samtökin eru opin öllum þeim
sem áhuga hafa á fjölmiðlun. Næstu
tvær vikurnar verða notaðar til að
ýta á eftir fólki að gerast félagar.”
— En hvert er markmið samtak-
anna?
„Tilgangurinn er fjórþættur. 1
fyrsta lagi að standa að eflingu ís-
lenzkrar fjölmiðlarannsókna og
kynningu þeirra meðal almennings. í
öðru lagi að vekja umræðu um mark-
verðar erlendar rannsóknir og ný-
mæli í fjölmiðlun. í þriðja lagi að
stuðla að menntun á sviði fjölmiðla
og fjölmiðlunar. Og í fjórða lagi að
efla tengsl við sambærÚeg samtök í
öðrum löndum. Þar kemur tvennt til,
norrænu samtökin og svo alþjóðlegu
samtökin.
Útgáfa tfmarits
og margt f leira
Á fundinum urðu miklar umræður
almennt um fjölmiðlun. Vlsindalegar
vinnubreytingar f skoðanakönnunum
urðu einnig mikið umtalsefni og al-
menn rannsóknarstörf. Samtökin
ætla aö stuðla að ýmislegu á næst-
unni, s.s. útgáfu á tímariti, eða
fréttabréfi, hafa sérstök bókarkvöld
og lögð verður áherzla á að fá erlenda
fyrirlesara og innlenda til að fjalla
um rannsóknir sem gerðar hafa verið
á fjölmiðlum. Á ég von á að það
verði eitt fyrsta verkefni samtakanna.
Þá er einnig áhugi á að halda nám-
skeið í fjölmiðlun og verður slíkt
væntanlega rætt að lokinni norrænu
ráðstefnunni, sem verður í næstu
viku,” sagði Jón Ásgeir Sigurðsson.
-ELA