Dagblaðið - 12.08.1981, Síða 11

Dagblaðið - 12.08.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981. II Enn er ekki búið að skipa í„myndsegulbandanefndina” —tilnefningu vantar f rá Neytendasamtökunum — Ég býst við þvl að við tökum ákvörðun um þetta mjög fljótlega. Ef það kemur í ljós að fulltrúi Neyt- endasamtakanna eigi eitthvert erindi í þessa nefnd, þá munum við tilnefna fulltrúa undireins, sagði Jóhannes Gunnarsson, varaformaður Neyt- endasamtakanna, er hann var spurður hvað liði tilnefningu samtak- anna á fulltrúa í nefnd þá sem á að kanna „myndsegulbandamálið”. Knútur Hallsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, sagði í samtali við DB að það eina sem stæði í vegi fyrir því að „myndsegulbanda- nefndin” yrði skipuð væri að til- nefningu Neytendasamtakanna vantaði. Ekki sagðist Knútur vita hvenær nefndin gæti komið saman til fyrsta fundar, en nefndinni er ætlað að kanna tæknileg og lagaleg atriði varðandi „myndsegulbandamáliö”. Menntamálaráöherra skipar nefnd- ina. — Það eina sem hefur vafizt fyrir okkur er hvaöa hlutverk þessari nefnd er ætlað og hvernig hún á að taka á þessu máli, sagði Jóhannes Gunnarsson. — Ef það kemur í ljós að nefndinni sé aðeins ætlað að fjalla um höfundarréttarraál og þess háttar, þá er hæpið að Neytendasam- tökin eigi eitthvert erindi í nefndina. Ef ætlunin er hins vegar sú að fjalla einnig um hagsmuni almennings þá mun ekki standa á okkur að skipa fulltrúa, sagði Jóhannes Gunnars- son. - ESE Talsverðar skemmdir urðu á bilum sem stóðu undir veggnum og eins og sjá má á innfelldu myndinni var stör skella á veggnum á eftir. DB-myndir Bjarnleifur. Pússning hnmdi á bfía Þrír bílar skemmdust allnokkuð er pússning hrundi utan af húsi Jóns Loftssonar hf. við Hringbraut um tvö- leytið í gær. Voru bilarnir kyrrstæðir á bUastæði við húsið er pússningin hrundi en engin meiðsli urðu á mönn- um. Þórarinn Jónsson hjá Jóni Loftssyni hf. sagði í samtali við DB að ekki væri vitað af hverju pússningin hefði hrunið og trúlega hefðu engir verið sjónar- vottar að atvikinu. Sem fyrr segir skemmdust bílarnir allnokkuð, m.a. brotnuðu framrúður þeirra og bretti og vélarhlífar beygluðust. Mun ábyrgðartrygging hússins bæta tjónið að fullu. -ESE Var handtaka forstöðumanns Skúlagarðs ólögleg? „Handtökumálið” tek- ið fyrir á mánudag Kæra Þórarins Björnssonar, for- stöðumanns í Skúlagarði á hendur yfir- lögregluþjóninum á Raufarhöfn fyrir meinta ólöglega handtöku í siðasta mánuði, verðurtekin fyrir í næstu viku. Hjörtur O. Aðalsteinsson, sem skipaður hefur verið umboðsdómari í málinu, heldur norður á mánudag og er búizt við þvi að rannsókn taki tvo til þrjá daga. Hjörtur sagði í samtali við DB að hann væri ekki alveg búinn að ákveða hvar haim ynni að rannsókn málsins, en likast til yrði það á Húsavík. Sagði Hjörtur að hann myndi taka skýrslur af öllum málsaðilum á staðnum, en trú- Vondir vegir fyrir austan Vegir um Suðurland til Austfjarða hafa verið með eindæmum slæmir undanfarið. Má segja að vegurinn frá því að bundið slitlag endar og vegurinn austur um að Höfn séu nánast óöku- færir. Þykir mönnum fyrir sunnan og austan þetta undarlegt þegar vega- gerðin lýsti þvf yfir fyrir verzlunar- mannahelgi að vegir væru í bezta hugsanlegu ástandi. Menn þykjast hins vegar aldrei hafa séð eins lélegt ástand vegaognú. -DS/Júlía, Höfn. lega yrði hann einnig að taka sér ferð á hendur til Seyðisfjarðar og ræða við vitni. Er þar um að ræða liðsmenn hljómsveitarinnar Lólu sem urðu vitni að handtökunni. Að rannsókn lokinni verður málið sent ríkissaksóknara til ákvörðunar. VIÐ BRÝR OG BLINDHÆÐIR . . ÞARF ALLTAF AÐ DRAGA ÚR FERÐ Ef allir tileinka sérþáreglu g mun margt ||ráÐ betur fara. IFERÐAR Gosdrykkjastríðið ruglar mótaskrá Golfsambandsins: Pepsi bauð betur en Kók — og þess vegna heitir Opna Coca Cola-mótið nú Opna Pepsi Cola mótið Auglýsingastríðið á milli framleið- enda gosdrykkja hérlendis hefur varla farið fram hjá neinum. Það nýjasta I þeim málum snertir keppni golfmanna sem fram fer um næstu helgi. Opna Pepsi Cola-golfmótið nefnist sú keppni og leysir hún af hólmi opna Coca Cola-mótið sem verið hefur við lýði allt frá árinu 1961 og alltaf farið fram á golfvellinum við Grafarholt sem Golfklúbbur Reykjavíkur hefur til umráða. Coca Cola-mótið hefur undanfarin ár verið eitt stærsta mót sinnar tegundar hérlendis og gefið stig til landsliðs. í mótaskrá fyrir árið 1981 er þess getið að helgina 15.—16. ágúst eigi Coca Cola-mótið að fara þannig fram að ákvörðun um að breyta nafni keppninnar hefur verið tekin eftir að sú skrá var gefin út. Dagblaðið leitaði til þeirra aðila Pétur Björnsson, forstjóri Kók, spilar golf: „Tökum ekki þátt i þvi sem samrýmist ekki eðlilegum við- skiptaháttum.” sem málið snýr að og reýndi að afla skýringa á því sem gerzt hafði. „Það var ákveðið í stjórn Golf- klúbbsins í vetur að þeir sem halda mótin borgi eitthvað fyrir að halda þau, ekki aðeins verðlaun heldur einnig peninga,” sagði Svan Frið- geirsson, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur í samtali við DB. Svan sagði að forráðamenn Pepsi Cola hefðu haft samband strax í vor og boðizt til að halda mót og borga fyrir þaö. Coca Cola hefði hins vegar ekki sýnt mótshaldi áhuga. „Það hefur öllum staðið til boða að halda mót, ef þeir á annað borð borga fyrir það. Okkur vantar penigna til að reka klúbbinn. Við erum alls ekki að blanda okkur inn í gosstríð á milli Coca Cola og Pepsi Cola,” sagði Svan Friðgeirsson. Pétur Björnsson, framkvæmda- stjóri Coca Cola-umboðsins, sagði það afar einkennilegt að fyrsta og elzta opna golfmót landsins, Coca Cola-keppnin, skyldi verða fellt út. „Ég fékk uplýsingar hjá einum stjórnarmanna Golfklúbbs Reykja- víkur að Pepsi Cola hefði gert kaup- samning við klúbbinn. Þeta er líkt ýmsum öðrum samningum sem gerðir hafa verið af Pepsi. Við viljum hins vegar ekki taka þátt í svona löguðu þar sem þetta samrýmist ekki eðlilegum viðskiptaháttum,” sagði Pétur. Forstjóri Sanitas, Ragnar Birgis- son, hafði þetta að segja: „Golfklúbburinn náði ekki samn- ingum við Kók og leitaði því til okk- ar. Samningar náðust og ákveðið var aö við yfirtækjum þetta mót.” Ragnar var spurður hvað Sanitas hefði þurft að greiða fyrir að mótið yrði kennt við Pepsi. Því vildi hann ekki svara. Samkvæmt öðrum heim- ildum DB nam greiðslan 10 þúsund krónum. Auk þess útvegar og borgar Pepsi öll verðlaun i mótinu. -KMU GÓDUR 0G MIKILL HUMAR Á HÖFN Humarvertíð lauk í gær á Höfn í Hornafirði. Hefur afli 1 ár verið bæði betri og meiri en i fyrra. Þannig voru komin á land á föstudaginn 259 tonn af slitnum humri frá því 26. ágúst. Um mánaðamótin júli og ágúst í fyrra höfðu hins vegar veiözt 195 tonn. Fimmtán bátar stunduðu humar- veiðarnar. Þeir hafa fengið mikið af fiski með humrinum og hafa verið sett á land 930 tonn af öllum mögulegum fisktegundum eftir að vetrarvertíð lauk. Þykir Hafnarbúum súrt í broti að á meðan svo er fæst sjaldan nýr fiskur í búðum og þá sjaldan það er fæst einungis ýsa, aldrei neinar nýjar og spennandi tegundir. Að lokinni humarvertíð taka bátarnir að búast á síldveiðar. Síld- veiðin hefst 20. ágúst. - DS / Júlía, Höfn.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.