Dagblaðið - 12.08.1981, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 12.08.1981, Blaðsíða 12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981. KfSBIABW frfálst, úháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjórí: Sveinn R. Eyjóifsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Aðstoóarrítstjórí: Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson. Skrífstofustjórí ritstjómar Jóhannes Reykdal. iþróttir: Hallur Símonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aðstoðarfréttastjórí: Jónas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karísson. v Blaðamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson. &/agi S.g- urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elin Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Hui'' Hákonardótt >, Krístján Már Unnarsson, Sigurður Sverrísson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sk .urður Porri Sigurðsson og Sveinn Pormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkerí: Práinn ÞorleKsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Hal>- dórsson. Dreifingorstjóri: Valgeröur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Siðumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur: Pverholti 11. Aðalsimi blaðsins er 27022 (10 Unur). Setning og umbrot Dagblaðið hf., Siöumúla 12. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Siðumúia 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Aikrfftarvarð á mánuflf lir. 80,00. Varfl f lausasfltu lir. G,00. Einkarétturínn erbrostinn Myndsnældumenn og hið opinbera starfa saman á Grænlandi. Grænlenzka sjónvarpið lætur klúbba áhugamanna sjá um að dreifa efni þess á bezta út- sendingartíma og leyfir þeim á móti að nota annan tíma fyrir sig sjálfa. Sigurður Oddgeirsson, kennari í Kulusuk, lýsti þessu í Dagblaðinu fyrir nokkrum dögum. í öllum helztu bæjum Grænlands hefur verið komið á fót kapalsjón- varpi, reknu af frjálsum klúbbum, sem ekki starfa í ágóðaskyni. Sjónvarpsmál Kulusuk eru komin svo langt fram úr íslandi, að þar er stundum sent á þremur rásum sam- tímis. Þar er flutt efni úr sjónvarpsdagskrám margra landa auk kvikmynda og annars efnis af myndsnæld- um. Fyllilega er orðið tímabært, að íslenzk stjórnvöld og sjónvarpið átti sig á þróun tækninnar og reyni að not- færa sér hana í stað þess að standa eins og álfar út úr hól, bannandi þetta og setjandi einkarétt á hitt. Yfirvöld þurfa að sleppa krampakenndu taki sínu á einkarétti og hliðvörzlu. Þau þurfa að átta sig á, að al- menningur hefur nú náð tökum á leiðum til að sjá í sjónvarpi hvaða efni, sem honum þóknast að sjá. Úrelt er orðin hugsun finnsku bókavarðanna, sem ákváðu að taka Andrés önd úr söfnunum, svo að hann spillti ekki börnunum. Úrelt er orðið, að góðviljaðir menningarvitar ákveði, hvað við fáum að sjá í sjón- varpi. Úrelt er orðið, að menningarlegir velferðarmenn eigi að sitja og skammta til okkar efni frá hugsanlegum Nordsat-sjónvarpshnetti, svo að við fáum ekki of mikið af enskum reyfurum og nógu mikið af norræn- um vandamálum. Tæknin er að fara í kringum þessa elskulegu hlið- vörzlu mannanna, sem vilja einokun til að geta gert á okkur góðverk. Eftir nokkur ár fara að koma á loft aðrir sjónvarpshnettir, sem við getum náð beint í tækin okkar. Og myndsnældurnar hafa þegar veitt forskot á sæl- una. í flestum fjölbýlishúsum hefur verið tekið upp samstarf um sýningar. Og einbýlishúsafólk vill óðfúst leggja kapla milli húsa. Yfirvöld geta streitzt við, en hljóta að gefast upp. Einokun sjónvarpsins er brostin. Stjórnvöld eiga að viðurkenna þetta og breyta lögum um einkarétt Ríkis- útvarpsins og Pósts og síma. Fólk fær sér innanhúss- kerfi og kapla, hvort sem er. Það horfir á hvaða efni, sem það vill. í stað þess að streitast við, eiga stjórnvöld að beina kröftum sínum að því að skapa hinni nýju tækni heil- brigðan ramma og gæta þess, að nauðsynlegustu lög séu haldin, en önnur séu felld niður til einföldunar. Gæta þarf höfundaréttar af myndsnældum eins og af öðru efni. Finna þarf einfalt greiðslukerfi, sem full- nægir brýnustu þörfum höfunda og framleiðenda og hindrar á virkan hátt það sjórán, sem nú er stundað í sumri snælduleigu. Einnig þurfa stjórnvöld menntamála að reyna að finna leiðir til að fá myndsnælduefni textað til verndar íslenzkri tungu. Ekki er þó víst, að slíkar leiðir séu færar, þegar gervihnattasjónvarpið er komið hingað. Grænlendingar hafa gert okkur skömm til og einnig vísað okkur veginn. Þeir hafa notfært sér tæknina, enda hafa þeir skilið, að framhjá henni verður ekki gengið. Nú er komið að okkar yfírvöldum að skilja líka. KJARNA- LEIÐSLA TIL KÍNA? „í bili eru Sovétríkin í hlutfallslegri sókn og þvi líklegri upphafsaðili styrjaldar. Bandaríkjamenn hyggjast nú snúa taflinu Um nokkurt skeið hef ég skrifað fáeina dálkmetra um íslensk öryggis- mál í blöðin. Viðbrögðin hafa verið ærið misjöfn (þau óopinberu) en um leið lítil (þau opinberu) — nema helst gróusögur, sem ekki eru blaðaefni. Reyndar eyddi Björn Bjarnason (MBI.) á mig einni grein eða svo og Árni rljartarson (Dagfara) nokkrum dálksentimetrum. Mig hefur lengi undrað hve fá orð ég fæ í eyra frá öllum þeim sem eru herstöðvaandstæðingar eins og ég. Sú hreyfing er alls ekki sammála um allar hliðar hermálsins og öllum fyrir bestu að ágreiningur, gagnrýni, til- lögur og nýmæli séu rædd í alvöru. En því miður gildir um hermálaum- ræðuna eins og aðra þjóðmálaum- ræðu á landinu, að hún er ýmist mik- il að vöxtum og full af skætingi, lítils- virðingu og rökleysum eða mörkuð þögninni einni. Fólk hefur oft orð á þessu og segist vera leitt á karpinu. Byrja mætti á þvi að taka mark á fólki. Svo ekkert fari milli mála Dálkmetra mína má draga saman í fáein atriði. Full þörf er á að stað- hæfa þau: r N0RDURLÖND, NAT0 — 0GÍSLAND Allt bendir til þess, að brátt verði lögð mun meiri áherzla á gleggri skiptingu áhrifasvæða heims- og risa- veldanna, Bandaríkjanna og Sovét- ríkjanna, heldur en hingað til hefur verið raunin. Kemur þar tvennt til. Annars vegar þörf Sovétríkjanna á yfírráðum orkuríkra landsvæða, ekki sizt þar sem olíu er að finna, þar sem orku- skortur gerir nú mjög vart við sig í Sovétríkjunum. Hins vegar kemur til sú stað- reynd, að Bandaríkin taka meira og minna á sig ein þær kvaðir, sem fylgja því að vera í forsvari fyrir hinu vestræna varnarbandalagi, Atlants- hafsbandalaginu, ásamt því að bera hitann og þungann af vörnum hins frjálsa heims í Austurlöndum, fjær og nær. Það þjónar því hagsmunum bæði Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, að nokkur uppstokkun fari fram á því, hvað sé hvers og hver sé hver, þegar á reynir. Sovótrfkin þreifa f yrir sór Segja má, að með innrás Sovét- manna í Afghanistan hafi þeir fyrir Kjallarinn Geir Andersen sitt leyti hafið þreifingar á því, hvernig viðbrögð Vesturveldanna yrðu við þeim aðferðum, sem beitt var til þess að auka olnbogarými sitt á svæði, sem stóð þeim nálægt land- fræðilega, án þess að vera hernaðar- lega viðkvæmt fyrir Vesturveldin. Auk þess var yfirtaka Afghanistan, ef vel til tækist, nokkurt skref í þá átt að afla aðfanga á korni og öðrum landbúnaðarafurðum, svo og málma, svo sem kopars, blýs, járns og magnesíum svo og kola. Þessi hráefni má finna í talsverðum mæli í Afghan- istan. Og í landinu eru viða frjósamir dalir, þar sem akuryrkja skilar upp- skeru í drjúgum mæli. Eins og kunnugt er heppnaðist inn- rás Sovétmanna ekki sem bezt í Afghanistan. Svo illa sem landsmenn létu að stjóm þeirra valdhafa sem fyrir voru, þá brugðust þeir enn verr við, þegar þeir sáu bryndreka Rússa flæða inn í landið og hermenn þeirra setjast um helztu staði og forðabúr landsins. — Þreifingar Rússa um meira olnbogarými hafa orðið þeim dýrar og erfiðar í Afghanistan. En þreifingar halda áfram. Þó eru það Norðurlöndin Segja má, að allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar hafi Sovétmenn litið hýru auga til Norðurlandanna

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.