Dagblaðið - 12.08.1981, Síða 27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1981.
ft
Útvarp
27
Sjónvarp
D
SUMARVAKA - útvarp kl. 20.00:
Fjölbreytt
efni í vökunni
—forspár og fy rirboðar, vísur,
frásöguþættir, söngur og
Magnúsríki
Sumarvakan byrjar með einsöng
Maríu Markan og syngur hún nokkur
íslenzk lög. Næst á eftir les Rósberg
G. Snasdal rithöfundur úr bók sinni
sem kom út fyrir nokkrum árum
„Sveinn frá Elivógum og aðrir
þættir”. Tekur þá Rósberg kafla úr
því siðarnefnda eða „aðrir þættir”.
Þar segir frá hjónum, Guðmundi
Arnljótssyni og Elínu Arnljótsdóttur,
en þau bjuggu fyrst á Brún i Svartár'
dal og siðan á Guðlaugsstöðum í
Blöndudal. Þau bjuggu þar frá
miðri siðustu öld og höfðu margt að
segja um forspár og fyrirboða.
Verður t.d. sagt frá draumi sem hana
dreymdi þegar hún gekk með sitt
annað barn. En gestur á bænum réð
drauminn og sagði hvernig færi fyrir
barninu sem hún gekk með.
Næsti liöur á dagskránni heitir
„Blátt áfram” og er það nafn á
vísnakveri sem Guðmundur A. Finn-
bogason í Innri-Njarðvík gaf út í
fyrra. Guðmundur fer þá með nálægt
fjörutfu visur úr bók sinni. Rósa
Gísladóttir frá Krossgeröi les siðan úr
frásöguþætti eftir Eirík Sigurðsson
rithöfund. Hann skrifaði Austfirskar
sagnir, „Undir Búlandstindi” sem er
einn veglegasti tindur við Berufjörð.
En þessi frásöguþáttur er um Magnús
rika á Bragðavöílum inn af Hamars-
firði. Magnús riki var bóndi á
nítjándu öld og var einn af fjárflestu
bændum sinnar samtíðar. Bragða-
vellir eru nú einn af þremur bæjum
sem eru í byggð i Hamarsfirði.
Síðast á dagskrá Sumarvöku
syngur Karlakór Reykjavikur íslensk
þjóðlög undir stjórn Páls P. Páls-
sonar. Baldur Pálmason hefur
umsjón með vökunni.
-LKM.
Umsjónarmaður Sumarvökunnar er
Baidur Pálmason fyrrum dagskrár-
stjóri útvarpsins.
Rósberg G. Snædal rlthöfundur les
um forspár og fyrlrboöa I Sumarvök-
unnl.
DALLAS—sjónvarp kl. 20.50:
PAMELA BERST FYRIR
B0B6Y MED KJAFTI0G KLÓM
—J.RL bruggar sín launráð
Sagt er að hinn vinsæli Dallas þáttur
verði því meira spennandi sem á söguna
líður. í kvöld verður áttundi Dailas
þátturinn og eflaust fáir bílar á götunni
um það leyti.
Hinn hatrammi J. R. kemur mikið
við sögu i þessum þætti, að sjálfsögðu
undirförull sem áður. Áhugamál hans
er sem fyrr, að stía þeim Bobby og
Pamelu í sundur og að þessu sinni
notar hann til þess unga konu sem
hafði verið vinkona Bobby’s, áður en
Pamela kom til sögunnar.
4
Þau eru saklaus, brúnu, skæru augun
hans J. R. Og alltaf þykist hann hvergi
nærri koma Ulkvittnislegum verkum
sinum. í áttunda þætti Dallas bruggar
J. R. undirförul ráö tll að stia Pamelu
og Bobby i sundur.
Þessi gamla kærasta hafði farið út í
hið ljúfa líf eftir skilnaðinn við Bobby
og heldur við giftan mann. Eiginkona
mannsins kemur aö þeim upp í
rúmi og hótar þá manni sínum, öllu iilu
ef hann bæti ekki ráð sitt. En meinið er
að maðurinn er vel þekktur í mikilli
áhrifastöðu. Manninum gengur þá illa
við að losa sig við viðhaldið og fer til J.
R. og biður hann um hjálp.
Ekki hefði hann getað sótt betri
mann heim, því J. R. sá sér góðan leik
áborði til að losa sig við Pamelu. Kom
hann þvi þannig fyrir, að Böbby og
gamla kærastan hittust af „tilviljun”.
Við endurfundi iifnar ástin á ný og
reynir konan allt til að krækja aftur i
Bobby. Segist hún vera illa stödd, en
vilji byrja nýtt og gott líf með barni
sínu. Þá lætui hím, með hjálp J. R., í
það skína að Bóbby eigi barnið. Bobby
hinr, saklausi dregst þar af leiðandi að
henni og útvepar henni vinnu og íbúð.
Á meðan verður Pamela náttúrlega
mjög miður sin og leið á öllu. En þá
tekur tengdamamman, Elly, af skarið
og gefur henni þau ráð að berjast fyrir
honum með kjafti og klóm.
-LKM.
Tommi og Jenni koma hvor öðrum á óvart klukkan 20.351 sjónvarpinu.
Crip'0
geríð
góð
kaup
Smáauglýsihgar
MEBIABSINS
Þverholti11 sfmi 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöid
V.