Dagblaðið - 19.08.1981, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 19.08.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981. I Erlent Erlent Erlent Erlent I Pólverjar í Alþjóða gjaldeyris- sjóðinn? Hans-Dietrich Genscher, utanrikis- ráöherra Vestur-Þýzkalands, hvatti Pólverja í gær til að gerast aðilar að Alþjóða gjaldeyrissjóðnum til þess að auðvelda pólsku þjóðinni að greiða úr hinni miklu skuldasöfnun hennar erlendis. Genscher setti þessa tillögu fram á fundi sinum með Jozef Czyrek, utanríkisráðherra Póllands, í gær. Genscher sagði að aðild Pólverja að gjaldeyrissjóðnum myndi ,,auka verulega vilja annarra þjóða til að veita aðstoð.” Czyrek lýsti þvi yfir að aðild Pólverja að sjóðnum væri mjög flókið mál en hann gaf til kynna að ákvörðun yrði tekin fljótlega. Fundur OPEC-ríkjanna: Ágreiningur um olíuverð Oliumálaráðherrum OPEC-rikjanna mistókst á fundi sínum í Genf í gær- kvöldi að komast að samkomulagi um nýtt, sameiginlegt olíuverð. Erfiðast hefur reynzt að sætta sjónarmið Venezuela og Saudi-Arabiu í þessu máli og vill Venezuela ákveða mun hærra olíuverð en Saudi-Arabar sem löngum hafa verið hófsamastir olíuút- flutningsríkja í þeim efnum. Geðrannsókn Hinckleys er nú lokið John Hinckley, sem sakaður er um tilraun til að ráða Reagan Bandaríkja- forseta af dögum, var í gær fluttur undir strangri öryggisgæzlu frá fangelsi í Norður-Karólínu til höfuðstöðva bandariska sjóhersins í Quantico i Virginiu, að því er dómsmálaráðu- neytið skýrði frá. Hinckley, sem er 25 ára gamall, hefur gengizt undir itarlega geðrann- sókn í alríkisfangelsi í Butner í Norður- Karólinu þar sem reynt hefur verið að fá úr því skorið hvort hann er fær um að komafyrir rétt. Talsmaður dómsmálaráðuneytisins sagði að geðrannsókninni væri nú lokið og að dómstóll mundi fljótlega ákveða hvort Hinckley verður formlega ákærður fyrir að reyna að ráða forset- ann af dögum. Stanislaw Walesa látinn Stanislaw Walesa, stjúpfaðir Lech Walesa, leiðtoga hinna óháðu verka- lýðsfélaga í Póllandi, lézt úr hjartaslagi í New Jersey í Bandaríkjunum i gær, 66 ára að aldri. Sambland af manni og geit Nýverið fæddist í Accra í Ghana furðuleg skepna, sem við athugun reyndist vera sambland af manni og geit. Skepnan var látin við fæðingu. Hún hefur verið flutt á rannsóknar- stofu þar sem þetta einstaka fyrirbæri verður kannað. Skepnan hafði mannsandlit en fjóra fætur og eyru eins og geit. Algjört neyðarástand í Perú vegna verkfalla: Læknar sinna tæpast neyðarþjónustu lengur hafa þegar verið ellefu daga íverkfalli Algjört neyðarástand er nú að skapast i Perú vegna verkfalla. Hinir þrettán þúsund læknar landsins hafa þegar verið i verkfalli I eUefu daga og í gær drógu þeir enn úr neyðarþjón- ustu sinni og neituðu að undirrita fæðingar- og dánarvottorð. VerkföU hafa einnig leitt tU lokunar banka landsins og lamað alla starfsemi I eirnámum. Talsmaður rikisstjórnarinnar segir að ófriðurinn á vinnumarkaðinum eigi sér pólitískar skýringar og sé honum ætlað að grafa undan efna- hag landsins. VerkfaU námamanna kostar landið eina miUjón doUara á dag, að þvi er talsmaður stjórnarinnar sagði. Einn af embættismönnum stjórn- arinnar sagði aö óhugsandi væri að stjórnin gæti gengið að kaupkröfum verkfaUsmanna sem hljóða upp á 25 prósent launahækkun. Læknar, sem krefjast 645 dollara á mánuði i lágmarkslaun, hættu í gær að undirrita fæðingar- og dánarvott- orð og hættu neyöarþjónustu á þremur stórum sjúkrahúsum í Lima, höfuðborg landsins. í öðrum sjúkra- húsum var neyðarþjónusta í algjöru lágmarki. Sjúkrastofnanir einkaaðUa starfa þó enn. Femando Belaude, forseti landsins, sagði fréttamönnum í gær, að stjómvöld myndu grípa tU mjög harkalegra aðgerða ef læknar gripu til róttækari aðgerða. Ráðherrar hafa varað lækna við þvi að þeir ættu á hættu að verða leiddir fyrir rétt ef þeir neita að sinna sjúklingum. Mikil mótmælabylgja hefur gengið yfir Nýja-Sjáland að undanförnu vegna kynþátta- stefnu Suður-Afriku. Ástæðan er heimsókn suður-afriska „rugby”-liðsins Spring- boks til Nýja Sjálands. AUs staðar þar sem liðið hefur átt að leika hefur komið til harðra mótmæla og viða varð að aflýsa leikjunum af þeim sökum. Myndin hér að ofan var tekin er lögreglan fjarlægði mótmælendur af „rugby”-leikvcllinum f Christchurch. Mikill fjöldi fólks hafði komið sér fyrir á vellinum i þeim tilgangi að hindra að leikurinn færi fram. Það tókst ekki þvf lögreglan bar það allt af vellinum og sfðan hófst leikurinn, tfu minútum á eftir áætlun. Sjóðheitt kaffi góðan daginn! Það er notalegt að vakna á morgnana og fá gott heitt kaffi og ristað brauð. Þessi frábæra kaffivél og brauðristin valda þér ekki vonbrigðum . . . nývöknuðum. Kaffivélin er 45 sek. að hella upp á hvern bolla af frábæru heitu kaffi. Þýsk gæða framleiðsla. Margar stærðir: 12, 10, 8, 6 og 18 bolla. Einnig með innbyggðum hitabrúsa og tölvuklukku (sjálfvirk uppáhelling eftir minni). Verð frá: Verð frá 399 kr. Þessi brauðrist er með nýjum búnaði, lítilli tölvu sem tryggir að brauðið sem þú glóðar, brennur ekki. Hijóðlaus brauðrist, tvær sneiðar af brauði á 90 sek. Verð. Verð 395 kr. og ristað brauð FÁLKIN SUÐURLANDSBRAUT 8 SlMI 84670

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.