Dagblaðið - 19.08.1981, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981.
Breiðafjarðareyjar:
Ævintýraheimur
náttúrunnar
Silfurgarflurinn — hin gamla innsigling í Flatey. Garflurinn dregur nafn sitt af þvi afl þoím sem við hann unnu var
fyrstum manna borgufl laun i hreinu silfri. Eins og sjá má hefur verifl vandafl vel til garflsins og hefur hann þvi
staflizt tímons tönn og allar árásir Ægisdsatra.
Horflur Gunnarsson og Johannes Þórflarson hamfletta lundann. Eins og
sjá má á myndinni er lundanum snúifl þannig afl bringan snýr upp, en
mefl því helst fuglinn eins kaldur og kostur er.
Matarkista Breiðafjarðar,
eins og Breiðafjarðareyjar
voru kallaðar fyrr á öldum,
hefur alltaf verið iðandi af lífi
Þó að maðurinn setji ekki
lengur jafn mikinn svip á lífið í
eyjunum og áður, hefur fugl-
inn, selurinn og jafnvel fiskur-
inn í sjónum, haldið sínum
hlut og það er ógleymanlegt
ævintýr að koma til eyjanna
og kynnast íbúum þeirra.
Nú til dags er auðvelt að
heimsækja „perlu Breiðafjarð-
ar” Flatey með flóabátnum
Baldri, en þessi forna menn-
ingar- og framfaramiðstöð
íslands er nú ört vaxandi
ferðamannastaður. Heima-
menn eru að visu ekkert alltoj
hrifnir af túristunum, en eng-
inn fer þó bónleiður úr eynni.
Gestrisni eyjarskeggja er við-
brugðið og þeir höfðingjar
heim að sækja. Ef menn eru
heppnirfá þeir að fljóta með út
í eyjar, en það er ferð sem
aldrei gleymist. Gunnar Örn
Gunnarsson Ijósmyndari átti
þess kost að dvelja í Flatey á
dögunum og að fylgjast með
störfum heimamanna.
Árangur þeirrar ferðar gefur
að líta í meðfylgjandi mynda-
frásögn. -ESE.
Skarfurinn var ekkert yfir sig hrifinn af Ijósmyndara DB og lái honum þafl
hver sem vill.
Lagt af stafl í lundaveifli. Ingibjörg Sverrisdóttir, Hreinn Guðmundsson
og Jóhannes Þórflarson, eigandi bátsins, gera klárt áflur en lagt er upp
frá Flatey.
DB-myndir: Gunnar öm.
Jóhannes Þórflarson mundar háfinn í Skjaldmeyjareyjum og skömmu
siflar er lundinn allur.