Dagblaðið - 19.08.1981, Side 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981.
Leyft verði að stof na skoðanahópa innan Alþýðuf lokksins sem síðan kysu sér
fulltrúa á flokksþing:
„Lyktar af stjómleysi
en það er ekki alvont"
— segir Vilmundur Gylfason um tillögur að uppstokkun skipulags
Alþýðuf lokksins — lagt til að flokksformaðurinn verði kosinn af
öllum félagsbundnum krötum
Formaður Alþýðuflokksins verði
kosinn beinni kosningu allra flokks-
manna.
Fulltrúum á flokksþingi verði
fjölgað um helming.
Framkvaemdastjóm fiokksins
veröi öll kosin á flokksþingi og póli-
tískt hlutverk hennar aukið.
Heimilt verði að stofna fleiri en eitt
flokksfélag f sama sveitarfélagi.
Hér eru nefnd fáein aðalatriði í
tillögum til breytinga á lögum
Alþýðuflokksins sem lagðar verða
fyrir aukaflokksþing 24. og 25. októ-
ber í haust. Sérstök milliþinganefnd,
undir forsaeti Vilmundar Gylfasonar,
vann tillögurnar. Framkvaemda-
stjórn Alþýðuflokksins prentaði þær
síðan og sendi félðgum til skoðunar.
„Gundvallarhugmyndin er að
opna Alþýðuflokkinn, draga úr mið-
stýringunni og styrkja hann,” sagði
Bjarni P. Magnússon formaður
framkvaemdastjórnar við Dag-
blaðið. Hann sagði ef tillögumar
yrðu samþykktar myndu lagabreyt-
ingar taka gildi strax. Þannig myndi
naesti formaður Alþýðuflokksins
verða kjörinn af öllum Alþýðu-
flokksmönnum fyrir upphaf næsta
aöalþings, árið 1982.
„Hér er talað um fjöldreift vald og
lýðræði. Þetta lyktar af stjórnleysi en
stjórnleysi er ekki alvont. Það yrði til
óendanlegs gagns fyrir Alþýðuflokk-
irin ef tillögumar yrðu samþykktar,”
sagði Vilmundur Gylfason við Dag-
blaðið í gær.
„Meiningin er að dreifa valdinu
frá flokkseigendunum. Um tillög-
urnar eiga því eftir að heyrast sömu
mótrök flokkseigenda og mið-
stýringarmanna og um prófkjörin
forðum.”
Vilmundur var beðinn að skýra
hvað fælist í hugmyndum um „fleiri
en eitt flokksfélag í sama sveitar-
félagi”:
„Alþýðuflokkurinn var stofnaður
árið 1916. Þá var rikjandi viðhorflð
að míðstýringin væri fyrir öllu. Það
viðhorf var þýzkt að uppruna en flutt
meðal annars til Rússlands, þar sem
Lenín stýrði byltingunni árið eftir
stofnun Alþýðuflokksins og einnig
hingað til íslands. Miðstýringar-
kerfið er í dag einfaldlega úrelt og
ónothæft. í tillögunum er bent á
nýjar leiðir til valddreifingar.
Við getum hugsað okkur að hópur
t Rvík stofnaði flokksfélag frjáls-
iyndra jafnaöarmanna, annar hóp
marxískra jafnaðarmanna. Enn
annar kysi að setja frjálst útvarp á
oddinn. Þessir skoðanahópar kysu
síðan fulltrúa á flokksþing í
samræmi við fjölmennið. Valdið
þeirra yrði fólkið i áhrifum á flokks-
þingum. Þar yrði vitanlega tekist á en
er nokkuð nema gott um það að
segja?! Þetta er hliðstæð hugmynd
um valddreifingu og Mitterrand
beitti sér fyrir innan franska
jafnaðarmannaflokksins.”
-ARH.
Allt sjónvarp í kapal í f ramtíðinni
Einfalt og ódýrt að taka á móti gervihnattasendingum
Víðs vegar um land er nú verið að
leggja svokölluð kapalhverfi fyrir sjón-
varp og eru menn nokkuð sammála um
að þetta fyrirkomulag gefist mun betur
en gamla þráðlausa kerfið, sem þó
flestir landsmanna búa við í dag.
Helzti kostur kapalkerfisins er sá að
aðeins þarf eitt loftnet og góðan magn-
ara fyrir t.d. stórt einbýlishúsakerfi og
ef vel er að þessum málum staðið verða
móttökuskilyrði mun betri en gengur
og gerist um hið hefðbundna loftneta-
kerfi. Þá þykir það og kostur að flestir
ef ekki alUr nota tækifærið um leið og
kerfið er lagt og tengja myndsegul-
bandstæki við kerfið og fá þannig
ódýrt lokað sjónvarpskerfi svo að segja
í kaupbæti. Auk þess hugsa menn til
framtíðarinnar, en með slíku kerfi er
auðvelt að taka við sendingum frá
gervihnöttum án þess að ieggja þurfi i
mikinn kostnað. Einn slíkur hnöttur
mun væntanlega stafa geislum yfir
ísland innan tveggja ára og hugsa þeir
sem kapalsjónvarp hafa sér því gott til
glóðarinnar.
-ESE.
„MIKILL ÁHUGIÁ KAPAL-
SJÓNVARPIHÉRLENDIS”
— segir Örlygur Jónatansson hjá Heimilistækjum hf.
— Við höfum fengið mjög margar
fyrirspurnir upp á síðkastið og það er
greinilegt að fólk hefur mikinn áhuga á
að koma sér upp kapalsjónvarpi og
tryggja sér um leið lokað sjónvarps-
kerfi, sagði örlygur Jónatansson hjá
Heimilistækjum hf. í samtali við DB en
fyrirtækið hefur að undanförnu séð um
að leggja allmörg slik kerfi.
örlygur sagði að algengast væri að
um 30—40 einbýlishúsaeigendur tækju
sig saman um að leggja kapalsjónvarp
og væri kostnaðurinn þá um 2000
krónur á hvert hús. Þess væru einnig
dæmi að allt upp í 100 einbýlishús
hefðu verið tengd við eitt og sama
kerfið og væri kostnaðurinn þá ekki
nema um 1000 krónur á hús. í þessu
verði er innifalið myndsegulbandstæki,
kaplar og annað efni og öll tengivinna,
auk loftnets og magnara. Húseigend-
urnir sæju sjálfir um að grafa fyrir
köplum og lækkuðu þannig kostnaðinn
mikið.
Nú er verið að undirbúa lagningu á
milli 10 og 15 kapalkerfa á vegum
Heimilistækja, en slik kerfi hafa þegar
verið lögð viðs vegar á höfuðborgar-
svæðinu á vegum fyrirtækisins, auk
þess sem tveim kerfum hefur verið
komið upp í Stykkishólmi og á Hvols-
velli. Fyrirhugað er að ráðast í fram-
kvæmdir á Akureyri, Siglufirði og
Hornafirði, en auk þess eru fram-
kvæmdir vel á veg komnar í Vest-
mannaeyjum og f Borgarnesi.
örlygur sagði að þeir hefðu kynnt sér
þessi kerfi mjög vel en þau væru sniðin
eftir danskri fyrirmynd. Slík kerfi væru
mjög algeng í Danmörku en þar væri
hægðarleikur aö ná fjölda erlenda
sjónvarpsstöðva með góðu loftneti.
Jarðstöflin Skyggnlr — Um iramótln
verður hægt að taka á móti sendlngum
fri gervihnöttum í gegnum jarðstöðina
og innan tveggja ira er von til afl hægt
verði afl taka i móti sjónvarpsmyndum
fri brezkum gervihnetti.
DB-mynd: RagnarTh.
— Það er ljóst að þegar hægt verður
að taka við sjónvarpssendingum frá
gervihnöttum hérlendis þá verður öllu
sjónvarpsefni dreift í gegnum kapla og
þvi ekki seinna vænna að fara að hugsa
þessi mál, sagði örlygur Jónatansson.
-ESE.
Dæmi um hvernig hægt er aö leggja kapalsjónvarpskerfi í einbýlishúsahverfi.
Breiðdalsvík
Umboðsmaður óskast á Breiðdalsvtk.
Uppl. hjá umboðsmanni, sími 97-5677 eða
91-27022.
MMiBIAOID
TÁLKNAFJÖRÐUR
Dagblaðið óskar eftir umboðsmanni á
Tálknafirði.
Uppl. hjá umboðsmanni, sími 94-2565 eða
91-27022.
mmiABiÐ
Merkasta
reióhjólanýjung
eftir
bremsuna
Eilifðarslangan
sem aldrei
springur
• Engar viðgerðir
• Aldrei að pumpa
• Minnkar dekkjaslit
• Engir vendar
• 10 ðra ðbyrgð!
HJÓL&
VAGNAR
Háteigsvegi 3 -
105 Reykjavík
"St 21511
SKÓLAVÖRDUSTÍG 41 - SÍMI2023S.
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinna
er 2-46-66
PUCAN0R
Stærðir 32—47
Hjólaskautar
Laugavegl3
Sími13508