Dagblaðið - 19.08.1981, Síða 14

Dagblaðið - 19.08.1981, Síða 14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981 | fþróttir iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþrótti Vígslumót á Jaðarsvelli — til minningarum Ingimund Árnason Vlgslumót til minningar um Inglmund Árnason verður haldið á Jaðars-golfvellinum & Akureyri um næstu helgi. Þar verður vigður nýr 18 holu golf- völlur — niu holum bætt við gamla völlinn. Leiknar verða 36 holur I keppnlnni, með og án forgjafar. Kaupfélag Eyfirðinga, en Ingimundur Árnason var starfsmaður þess, gefur eignarverðlaun til keppninnar. Þetta er opið mót og hefst Id. 10 á laugardag. Keppendur eru beðnir að láta skrá sig fyrir hádegi á föstudag. Lið USA íheims- bikarinn valið Bandarikjamenn völdu i gær landsllð sitt i frjáls- um iþróttum sem tekur þátt i heimsbikarkeppninni i Róm i næsta mánuði. í siðustu keppni, 1979, unnu Bandarikjamenn og i liði þeirra nú eru þrir fyrrver- andi ólympiuverðlaunahafar. Edwin Moses hleypur i 400 metra grindahlaupinu, en hann á heimsmetið i þeirri grein, 47,13 sek., sett i Milanó i fyrra. Moses sigraði i grindahlaupinu á ólympiuleikunum 1976, en hann hleypur einnig i 4x 100 metra boðhlaupssveit Bandarikjamanna nú. Madeline Manning sigraði i 800 metra hlaupi kvenna i Mexikó 1968 og John Powell varð þriðji i kringlukastlnu 1976. Upphaflega átti Ben Plucknett að keppa fyrir Bandaríkin i kringiukastinu en hann er f banni vegna brots á alþjóðlegri lyfjareglugerð. Evelyn Ashford hleypur i 100 og 200 metra hlaupum og 4 x 100 m boðhlaupl, en hún sigraði i spretthlaupunum i siðustu heimsbikarkeppni. í 100 metra hlaupi karla hleypur Carl Lewis, en hann stekkur einnig fyrir Bandarikin i langstökki. Sydney Maree frá Suður-Afriku kepplr fyrir Bandarikln i 1500 metra hlaupi karla og Alberto Salazar, sem fæddur er á Kúbu, keppir i 10.000 metrunum. Alberto sigraði i New York maraþon- hlaupinu i fyrra. Gömlu kempurnar James Robinson og Greg Foster keppa i 800 metra hlaupi og 110 metra grinda- hlaupi og Billy Olsen keppir i stangarstökki. Mikið knattspyrnuefni á ferð íEyjum: Elías þykir minna á sjálfan Beckenbauer Að loknum úrslitaleik Þórs, Vestmannaeyjum, og Fram i 4. flokki Íslandsmótsins i knattspyrnu um sfðustu helgi var Elias Friðriksson, „sweeperlnn” f liði Þórs, valinn maður leiksins. Fékk hann bikar i viðurkenningu, en það er mál manna að Elfas sé eitt- hvert mesta efnl sem fram hafi komið í islenzkri knattspyrnu i langan tima. Hefur Eliasi verið likt við annan pilt úr Eyjum, Ásgeir Sigurvinsson, og aðrir fullyrða að hann hafi alla burði til að verða jafn góður og „kelsarinn” sjálfur, Franz Beckenbauer. Leik Þórs og Fram lauk með jafntefli, 1—1, og skoraði Elías mark Uðs sins úr vltaspyrnu eftlr að honum hafði verið brugðið Inni i vftateig Fram. Liðin verða þvf að reyna með sér að nýju. - SA / DB-mynd Ragnar Sigurjónsson. í grein sinnl um vestur-þýzku knatt- spyrnuna hér i DB sl. mánudag skýrði Viggó Sigurðsson frá þvf, að sænski landsliðsmarkvörðurinn, Ronnie Hell- ström, sem leikur með Kalserslautern, vær) illa meiddur. Margir telja að hann muni ekki leika knattspyrnu framar en Hellström, sem um langt árabil hefur verið einn bezti markvörður heims og kjörinn sá bezti eftir HM 15174, er á annarri skoðun. Hann ætlar sér i markið aftur. Eftir HM 1974 gerðist hann atvinnumaður hjá þýzka llðinu og hefur leikið 231 Bundesliguleik með þvi. 79 landsleiki fyrir Sviþjóð. Myndin að ofan er af Hellström á sjúkrahúsi. Stórleikur í 1. deildinni í kvöld: VIKINGUR AKRANES Það verður mikið um að vera i Laugardalnum i kvöld. Þá mætast tvö þelrra liða, sem enn eru f baráttunni um íslandsmeistaratltilinn i knattspyrn- unni, Vfkingur og Akranes. Með þessum leik hefst 16. umferðin i 1. deild. Fjórir leikir verða annað kvöld f Kópavogi, Reykjavik, Akureyri og i Vestmannaeyjum. Ekki þarf að efa að hart verður barizt í leik Víkings og Akraness — heimaleikur Víkings — i Laugardaln- um í kvöld. Bæði lið hafa að miklu að keppa. Víkingur efstur á mótinu með 21 stig, Akranes I öðru sæti ásamt tveimur öðrum liðum með 18 stig. Bæði lið unnu góða sigra i deildinni á sunnudag gegn Akureyrarliðunum KA og Þór og verða með sömu liðsskipan og þá. Leikurinn hefst kl. 19.00. Fjórir leikir i umferðinni verða á morgun. Stórleikur í Kópavogi, þar sem Breiðablik leikur heimaleik sinn við Val á Akureyri verður mjög þýðing- armikill leikur í fallbaráttunni, Þór og KR. í Vestmannaeyjum leika heima- menn við KA. Allir leikirnir hefjast kl. 19.00. Eftir þessa leiki verður gert hlé á keppninni í 1. deild vegna landsleikj- anna við Nigeríu og Danmörku. Sautjánda umferðin verður leikin 2. og Sandgerðingur fékk strangasta agadóminn — Sigurjón Sveinsson var dæmdur í 3ja leikja bann vegna f ramkomu við dómara Aganefnd Knattspyrnusambands íslands kom saman til fundar i gær. 36 mál komu fyrir nefndina og sjö leik- menn voru dæmdir i leikbann. Sand- gerðingurlnn Sigurjón Sveinsson, sem leikur með Reyni i 2. deild.fékk strang- asta agadóm sumarsins. Var dæmdur f þriggja leikja bann vegna framkomu við dómara. Málflutningur f máll hans var munnlegur — Sandgerðingar fengu tækifæri til að flytja mál Slgurjóns fyrir aganefndinni. Einn leikmaður úr 1. deild, Ragnar Gislason, bakvörður úr Víking, fékk eins leiks bann. Var kominn með 10 refsistig. Bannið kemur til fram- kvæmda eftir hádegi nk. laugardag og Ragnar missir því leik Vikings í Vest- mannaeyjum, 2. september. Þór Valdimarsson, Selfossi, fékk tveggja leikja bann, þar sem hann var kominn með 15 refsistig, en eins leiks bann fengu Olgeir Sigurðsson,. Völsungi, Jón Ragnarsson, Skalla- grími, Pétur Róbertsson, Selfossi, fyrir brottrekstur af leikvelli og Ólafur Gislason, Tindastól, fyrir brottrekstur. Hinir vegna 10 refsistiga. -hsim. 3. september og lokaumferð mótsins 12. og 13. september. Héraðsmót íKópavogi Héraðsmót UMSK veröur haldið kl. 14 laugardaginn og sunnudaginn 22. og 23. ágúst á Kópavogsvelli. Keppt verður i eftirtöidum greinum: Konur: 100 m grind, 100 m, 400 m„ 1500 m„ 4x100 m„ langstökk, há- stökk, kúla, spjót, kringlukast. Karlar: 100 m„ 400 m„ 1500 m„ 3000 m„ 4x100 m„ langstökk, þristökk, hástökk, stangarstökk, kúla, spjót, kringla. Sigurbjörg Sigurðardóttlr, sfmi 66115, Karl Stefánsson, simi 40261, og Gunnar Snorrason, simi 75395, taka á móti þátttökutilkynningum. íþróttir ERFIÐ STAÐA SELFYSSINGA —eftir tap gegn Fylki í 2. deild i gærkvöld Mark Ómars Égilssonar á sfðustu mfnútu lelksins tryggðl Fylkl slgur gegn Seifoss er liðln mættust á Laugardals- velll i gær. Jafntefll hefðl e.t.v. gefið réttari mynd af leiknum, en Fylkls- menn voru þó allan timann heldur sterkari aðilinn. Eftir þetta tap er staða Selfoss orðin býsna erfið 12. deildini. Liðið er 1 næstneðsta sæti deildarinnar með niu stig, stigi á eftir Þrótti N. og tveim stigum á eftir Skallagrími þegar fjórar umferðir eru eftir. Selfoss á eftir heimaleiki gegn Haukum og Skalla- grimi en erfiða útileiki gegn Keflavik og Þrótti. Fylkir siglir hins vegar lygnan sjó eftir sigurinn i gær. 13 stig hefur liðið halað inn og er þvi ekki lengur í fallbaráttu. Fyrri hálfleikur var tiðindalitill i gær, en Fylkir var betra liðið. f þieim siðari jafnaðist leikurinn en lokakafi- ann sótti Fylkir nokkuð siift. Ámundi Sigmundsson átti bezta færi Selfyssinga í leiknum er hann skallaði dauðafrir að marki á 57. minútu. Færið hefur varla verið meira en nokkrir metrar en skalU hans var mátt- laus og beint á ögmund markvörð. Fylkir fékk hins vegar í þrigang góð færi siðustu 10 minútur leiksins. Fyrst fór markvörður Selfoss, Anton Hart- mannsson i skógarferð út fyrir vítateig, mistókst að koma knettinum almennilega frá markinu en Fylkis- menn brenndu af. Þá komst Hörður Antonsson einn í gegnum vörn Selfoss en skaut í stórutá Antons og loks á 90 mín. kom markið. Hörður Antons- son tók þá hornspyrnu og Ómari Egils- syni tókst að þröngva knettinum yfir marklinuna með viðkomu í hnéi eins varnarmanns Selfoss. Úrslit 1—0 og Fylkismenn höfðu ástæðu til að kætast ileikslok. -SA. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981. 15 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Hvenær ætlar Ellert að láta útlendinga hætta að troða á rétti KSÍ? „Við getum svipt Lars Bastrup leik- leyfi hjá Hamburger SV og fáum vlð hann ekki lausan i landslelkinn við ísland getum við dæmt Hamburger SV f 150 þúsund króna sekt (danskar). Það sama getura við gert i sambandi við þá þrjá landsleiki, sem Danmörk á eftir að leika á árinu,” segir Simon Rasmussen hjá danska knattspyrnusambandinu f samtali við Ekstrablaðið. Þýzka knattspyrnufélagið hefur ekki viljað gefa Lars Bastrup leyfi til þátt- töku i landsleik Danmerkur og ísiands f Idretsparken 26. ágúst, þvi sama kvöld á Hamburger SV lelk i vestur-þýzku bundesligunni f Nurnberg. Stjórn Hamburger er ekkl á þvf að láta hinn danska leikmann sinn leika vináttuleik við ísland og hefur þvf neitað ósk DBU, danska knattspyrnusambands- ins, að gefa hann lausan 26. ágúst. Ekki er þó alveg víst, að DBU fylgi málinu eftir af hörku hvað snertir Bastrup og landsleikinn við ísland. Hins vegar hefur DBU sent telexskeyti til UEFA — Evrópusambandsins — til þýzka knattspyrnusambandsins og Hamburger SV vegna málsins. Vonar að málið leysist f þessari viku. Reyndar hefur DBU þegar gefið aðeins eftir f máii Bastrup. Það gaf Hamburger SV leyfi til að nota hann i leikinn við Kaiserslautern f Bundeslfgunni sl. laugardag. Það stafar nokkuð af þvf, að misskilnings gætti i samningi þeim, sem DBU sendi Hamburger SV til undirskriftar. Þar var atriði að ieik- maðurinn ætti að fá fri frá Ham- borgar-liðlnu f sex daga i sambandi við landsleik. „t venjulega vináttuleiki er ekki nauðsyniegt að leikmaðurinn fái frí nema f tvo daga. Hins vegar á þetta ákvæði við i þýðingarmikla leiki eins og i heimsmeistarakeppni. Þar höldum við ákveðið fram þeira rétti okkar að fá ieikmanninn helm sex dögum fyrir HM-Ieik,” sagði Slmon Rasmussen ennfremur i viðtaiinu. Lars Bastrup, til hægri, hefur leikið á markvörö Braunschweig, Bernt Franke, og bakvörðinn Franz Merkhoffer og skorar fyrir Hamburger SV i fýrstu umferð Bundeslfgunnar fyrir tíu dögum. Mikið væri gaman að þeir hjá Knatt- spyrnusambandi ísiands sýndu ein- hvern tfma fram á að þeir hafa bein i nefinu gagnvart þeim félögum erlendis, sem islenzkir knattspyrnumenn leika með. Þeir hafa látið erlendu knatt- spyrnufélögin troða á sjáifsögðum rétti KSÍ til að fá leikmenn i HM-leiki og Evrópuieiki. Vonandi kemur ekki til þess framar og Ellert B. Schram og stjórnarmenn hans f KSÍ ættu að taka DBU sér tii fyrlrmyndar, einnig hvað varðar vináttuleiki. Það er anzi hart að fá ekki leikmenn i leikinn við Dani, sém eru varamenn f liðum sinum erlendis, og varla elnu sinni það. Okkur veitir ekld af að tjalda þvi sem til er gegn Dönum. Þeir unnu sinn fimmta lands- liðssigur f röð gegn Finnum á dögunum. Að lokum má geta þess, að Ajax hefur gengið að öllum kröfum danska knattspyrnusambandsins og undir- skrifað samning vegna Jesper Olsen og Sten Ziegler, sem ieika með Ajax i Hollandi, einnlg belgísku félögin Anderlecht vegna Per Frimann, Molen- beek vegna Steen Thychosen og Mechelen vegna Michael Jensen. -hsfm. Örn tilbúinn íDanaleikinn Örn Óskarsson, sem leikur með Ör- gryte i 1. deildinni i Sviþjóið, hefur til- kynnt landsliðsnefnd að hann geti tekið þátt f landsleiknum við Dani i Kaup- mannahöfn 26. ágúst. Örn er byrjaður að leika á ný með liði sinu, sem sigraði AIK 3—2 um helgina. Hörður Hilmarsson, sem leikur með AIK, hefur enn ekki getað gefið ákveðið svar. Forest keypti Justin Fashanu Nottingham Forest keypti i gær Justin Fashanu frá Norwich City á eina milljón sterlingspunda. Fashanu er þriðji maðurinn sem Forest kaupir á milljón pund, Trevor Francis og Ian Wallace voru keyptir fyrir sama pening. Búizt er við að annar hvor þeirra verðl nú seldur frá Forest, senni- lega Wallace. Fashanu hefur leikið með landsliði Englands undir 21 árs og hefur verið skærasta stjarna Norwich að undan- förnu. Eftir er hjá Norwich bróðir Justin, John, en þeir bræður eru af nígerísku bergi brotnir. John Fashanu lék með landsliði Nigeríu í riðlakeppn- inni fyrir HM á Spáni næsta sumar. Hann lék þó ekki með Nígeríu gegn Noregi fyrr i mánuðinum, en sem kunnugt er leika fsland og Nigería landsleik i knattspyrnu um næstu helgi. Landsliðið gegn Ní- geríu tilkynnt í dag —Veröur mjög svipað þvíliði sem lék gegn Manch. City Skipan islenzka landsliðsins f knatt- spyrnu, sem lelkur landsleikinn vlð Nigeriu á Laugardalsvelli á laugardag, verður tilkynnt á fundi stjórnar Knatt- spyrnusambands Isiands nú um há- degið. Ef að líkum lætur mun Guðni Kjartansson, landsliðsþjálfari, að mestu halda sig við þá leikmenn, sem léku gegn Manch. City á Laugardals- velli sl. fimmtudag en einhverjar breytingar verða þó gerðar á liðinu. Spá DB um landsliðið er þannig: Þorsteinn Bjamason, Keflavík, Viðar Halldórsson, FH, Trausti Haraldsson, Fram, Marteinn Geirsson, Fram, Sævar Jónsson, Val, Ómar Torfason, Viking, Árni Sveinsson, Akranes, Pétur Ormslev, Fram, Lárus Guðmundsson, Víking, Sigurlás Þor- leifsson, Vestmannaeyjum, Ragnar Margeirsson, Keflavfk eða Sigurður Lámsson, Akranesi. Nigeriumenn léku nýlega landsleik við Norðmenn i Osló. Jafntefli varð 2—2 og eftir leikinn sögðu norsku blöðin. „Ætlar okkur aldrei að takast I komu talsvert á óvart meðnettum leik. aö sigra í landsleik.” Nígeríumenn |. -hsim. Pal Jacobsen skorar fyrir Norömenn gegn Nígeriu — Tom Lund fyrra markið. Odwolabi og Ogunlana fyrir Nigeríu og þeir leika hér á laugardag. Vorum að fá nýja sendingu af orginal myndefni fyrir Leigjum einnig úrt PAL kemð vídeótæki með VHS kerfi Ath. opið frá kl.18.00-22.00 alla virka daga nema laugardaga frá kl. 14.00-20.00 og sunnudaga kl.14.00-16.00 VÍDEÓ MARKAÐURINN Digranesvegur 72 Kópavogi Sími 40161

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.