Dagblaðið - 19.08.1981, Síða 20

Dagblaðið - 19.08.1981, Síða 20
20 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1981. Þar var keppt, sungið og dansað: Gufustrókinn lagði úr tjaldinu af sveittum dansköppunum — jjör á héraðsmóti Ungmennasambands Dalamanna Ungmennasamband Dalamanna hélt dagana 8. og 9. ágúst héraðsmót í frjálsum íþróttum. Mótið sótti margt manna og fór það mjög vel fram. Menn styttu sér stundir með ýmsum uppátækjum fyrir utan að taka þátt eða horfa á keppnina sjálfa.Farið var í leiki, horft á kvik- myndasýningar í samkomutjaldi, sundlaugin var óspart notuð svo ekki sé minnzt á fjörugan dansleik að degi loknum. Hljómsveitin Fellsstrandarkarlar sá um fjörið ásamt diskótekinu Dísu. Tugir manna skelltu sér í dansinn og var aðsóknin mun meiri en húsrúm leyfði þar sem var 40 fermetra tjald. En það mun hafa skolfið af tónlist, söng og danssveiflum. Sögðust menn varla hafa séð svo mikinn gufustrók en hann barst úr tjaldinu frá sveittum dönsurum. Fyrir utan tjaldið sat Sveinn bóndi á Staðarfelli og seldi þyrstu og svöngu fólki brauðsneiðar, gos- drykki og heitt kaffi úr hitabrúsa. Söluturn Sveins var gamall og góður hestvagn. í matartímanum var kveikt upp í 5 metra löngu útigrilli þar sem Skúli Jóhanns og kona hans Guðrún Björnsdóttir aðstoðuðu fólk við að grilla bitana sína. En erfiðlega gekk að halda hitanum í skefjum og hvað sem tautaði þá fór grillbotninn að loga. Þá var tekið til þess ráðs að setjast undir grillið með plastkút og Smíðaði sér Mercedes Benz á fimm vikum „Ég ætla nú ekki að taka þennan út nema þegar sólin skín og halda mig algjörlega frá malarvegunum,” sagði Sveinbjörn Ragnarsson þegar blaða- maður DB hitti hann að máli í Mosfellssveitinni. Sveinbjörn hafði þá stuttu áður látið skrá nýjan bíl sinn i Bifreiðaeftirlitinu. Nýjan? Ef marka má myndina lítur Mercedes Benz Sveinbjörns ekki út fyrir að vera nýr. Enda voru bílar með þessu lagi framleiddir árið 1929 hjá Daimler-Benz undir tegundar- heitinu Mercedes Benz SSK. Ekki er þó bíll Sveinbjörns svo gamall, heldur er hér um eftirlíkingu úr plasti að ræða. Slíkir bílar eru enn sem komið er fátíðir hér á landi en óhætt mun að spá því að ýmsir hugsi sér til hreifings eftir að þeir hafa litið Benz Sveinbjörns augum. ,,Ég keypti bílinn í Bandaríkjunum1 að því undanskildu að ég nota ýmsa hluti úr Ford Pinto svo sem stýrisvél og hásingu, þá keypti ég einnig Benz vél í hann,” sagði Sveinbjörn. , ,Það fóru fimm vikur i að setja bílinn saman og ég vann við hann að meðaltali um tólf klukkutíma á dag. Sjálfsagt yrðu vanir menn öllu fljót- ari að setja saman bil sem þennan. Sjálfur hef ég ekki fengizt ýkja mikið við bilasmíðar og viðgerðir umfram það sem gengur og gerist.” Benzinn er dæmigerður gamall sportbíll. Hann er snjóhvítur að lit og með svarta blæju. Stýri og mælaborð eru úr tré, sætin með þykku leður- áklæði og nóg er af krómi á honum. Mercedes Benz SSK 1929 af upprunalegri gerð mun kosta þrjátíu þúsund dollara í Bandaríkjunum, — svo framarlega sem enginn þekktur maður hefur átt hann. Þá hækkar verðið upp úr öllu valdi. Hingað kominn mundi slíkur vagn kosta um 600 þúsund krónur. Sveinbjörn var að lokum spurður hvað hans bíll hefði kostað: „Allt í allt gæti ég trúað því að hann hafi kostað mig um níu milljónir gamlar,” svaraði hann. „En þá reikna ég ekki vinnuna með viðaðsetjahannsaman.” -ÁT- Blaðsölustrákur sœkir mynd sína ,,Ég man alveg hvenær myndin var tekin. Þessi maður kom til mín og stillti mér þarna upp. Ég skildi hann nú eiginlega ekkert,” sagði Þor- bergur Grétar Helgason, 9 ára gamall blaðsöludrengur. Þorbergur hefur selt Dagblaðið í sumar til að safna sér fyrir hjóli sem hann hefur þegar keypt sér. Það var einmitt einn góðan dag í sumar sem útlendingur vatt sér að honum og fékk að smella mynd. Þessi mynd kom síðan hingað til okkar frá Frakkanum, L. Bourgun frá Strasbourg með beiðni um að drengurinn fengi myndina. „Amma mín sá myndina og lét mömmu vita. Við vorum í ferðalagi þannig að við vissum ekki af þessu strax,” sagði Þorbergur. Myndin er sem sagt komin til eiganda og Þor- bergur var ekki svo litið hrifinn að fá hana. -ELA. Ánægðir moO myndhta sína. DB-mynd: Elnar Ólason, Sveinbjörn Ragnarsson viö Benzinn góðe. Hann var fimm vikur að setja biiinn saman með tóif tíma vinnu é dag. DB-mynd Einar Ólason. En allt i einu fór grrihð að loga og þa var ekki annað að gera en skvetta vatni á arit dótaríið. -m - - ' m Útígrillið var fimm metrar og þar griiiuðu gestír brtana sína undir stjórn Skúla Jóhanns. Sveinn bóndi á Staðarfelli seldi brauð, gosdrykki og kaffi úr hrtabrúsa úr gamla hestvagninum sínum og líkaði fólki vel. sinalcoflösku og ausa á eldinn vatni. Það starf tók að sér Guðrún, kona Skúla yfirgrillara. Mótinu lauk síðla sunnudags og þótti fólki svo vel hafa tekizt, að beðið er eftir því næsta. Það eina sem setti skugga á mótið var þegar einn keppandi meiddist á öxl, í síðasta atriði mótsins, öldungaknattspyrnu. ELA/Anna Flosad., Búðardal. FÓLK

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.