Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 13
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981. Dæma þrjá leiki á erlendri grund Guðmundur Haraldsson knattspyrnudómari mun dæma landsleik Dana og Skota þann 13. október næstkomandi. Liðin eigast þá við f UEFA keppni landsliða undir 21 árs. Þá dæma tvö íslenzk dómaratríó leiki f fyrstu um- ferð Evrópukeppnanna í knattspyrnu. Annað þi irra dæmir fyrri leik VálerengcnogLegia Varsjá f Noregi og hitt dæmir seinni leik Liverpool og OPS Oulu á Anfield Road í Liverpool. Ekki er enn búið að ákveða hvaða dómarar dæma þá leiki. Valur-ÍBV4.sept Leikur Vals og ÍBV sem frestað var í 15. umferð verður að öllum lfkindum leikinn föstudaginn 4. september. Sem kunnugt er komust Eyjamenn ekki upp á land er leikurinn skyldi leikinn og vegna lands- leikja við Nígeriu og Danmörku og úrslitaleiks bikarkeppninnar reyndist ekki unnt að setja leikinn fyrrá. - SA Úrslit í 2. flokki Úrslitakeppni 2. flokks i knattspyrnu hefst um helgina en leikið verður í Kópavogi. Fyrsti leikurinn er á sunnudag en þá mætast Fram og ÍBK. Önnur liö í úrslitakeppninni eru KR og Þróttur N. eða Einherji en ekki liggur Ijóst fyrir hvort þeirra kemst úr Aust- fjarðariðlinum i úrslitin. Unglingalandsliðið leikur gegn Belgum íslendingar og Belgar leika tvo unglingalandsleiki í október, en þessi tvö liö eru saman í undanriðli fyrir úrslitakeppni landsliða 16—18 ára leikmanna. Liðið sem sigrar kemst áfram i úrslitin. Fyrri leikur liðanna verður hér heima annaðhvort 9. eða 10. október en síðari leikurinn í Belgíu 28. sama mánaðar. í næstu viku heldur íslenzka lands- liðið í æfinga- og keppnisferð til Færeyja og leikur þar við þarlenda jafnaldra sína. Fannarsbikar í Grafarholti Keppnin um Fannarsbikarinn, sem er opin kvennakeppni, verður í Grafarholti dagana 22.—23. og 29.—30. þessa mánaðar. Leiknar verða 48 holur, en einungis 24 telja með 5/6 forgjöf. Ræsing hefst kl. 9 hvern dag, en þátttöku ber að tilkynna i sima 84735. Þátttökugjald er 70 kr. en glæsileg verðlaun eru i boði. Dómaranámskeið íbadminton hefst í TBR-húsinu í kvöld kl. 18.30. Leiðbeinandi verður formaður danska dómarafélagsins í badrnin- ton, Poul Frimuth. Þátttakendur eru beðnir að mæta stundvislega. Minningarleikur um Jakob Jakobsson verður háður á Akureyri í kvöld kl. 19.00. Árlegur leikur til minningar um Jakob, sem var einn bezti knattspyrnumaður Akureyriuga op landsliðsmaður. Að þessu sinni leikur stjörnulit Hemma Gunn við leikmenn ÍBA frá þvi um 1970. Jafntefli Keppnin i belgfsku knattspyrnunni hófst á miðvikudag. Antwerpen og Anderlecht gerðu jafntefli 1—1 en Pétur Pétursson er nú leikmaður hjá Anderlecht. Það er belgfskur meistari. Stapleton til Man.Utd. ídag Irski landsliðsmiðherjlnn Frank Stapleton mun skrifa undir samning hjá Man. Utd. i dag. Söluverð 1,1 milljón sterlingspunda. Arsenal vildi fá tvær milljónir punda fyrir leikmann- inn. Man. Utd. skaut þá málinu til enska knattspyrnusambandsins. Sér- stök nefnd ákvað i gær 900 þúsund punda kaupverö á Stapleton og 200 þúsund fara i skatta, þannig að Man. Utd. greiðir Arsenal 1,1 milijón. Hætta við mark Vals, f eitt af mörgum skiptum i leiknum, en f þetta sinn náði Hilmar Sighvatsson að skalla knöttinn frá marki. DB-mynd Bjarnieifur FRÍSKIR BUKAR MÖL- UÐU MEISTARANA 5-1 — Breiðablik enn með í toppbaráttunni eftir stórsigur á Val Breiðablik á enh góða möguleika á íslandsmeistaratitlinum eftir stórsigur á Val, 5—1, á Kópavogsvelli í gær- kvöldi. Valsmenn áttu aldrei möguleika gegn frískum og snöggum Blikum, sem kaffærðu íslandsmeistara í siðari hálfleik eftir að hafa leitt 1—0 i þeim fyrri. Þessi sigur bætti mjög markatölu Breiðabliks, sem nú hefur níu mörk i plús. Vonir Vals um að endurheimta titilinn cru hins vegar fyrir bí. Eina markið fyrir hlé kom eftir aðeins sjö mínútur eftir hrikaleg varnarmistök hjá Val. Sævar Jónsson skallaði knöttinn aftur fyrir sig beint á tærnar á Sigurði Grétarssyni og hann sendi knöttinn rakleitt í netið, 1 —0. Valsmenn pressuðu stíft eftir þetta, án þess þó að opna vörn Blikanna svo heitið gæti. Matthías Hallgrímsson og Hilmar Sighvatsson áttu báðir skot að marki Breiðabliks. sem ágætur mark- vörður, Guðmundur Ásgeirsson, varði „Ragnheiður Ólafsdóttir, FH, hljóp mjög vel i undanrás 1500 m hlaupsins, varð önnur i sínum riðli og náði þriðja bezta tímanum. Hún keppir því til úr- slita i 1500 m hlaupinu á laugardag. Við erum mjög ánægðir með árangur hennar,” sagði Ólafur Unnsteinsson, fararstjóri og þjálfari fsl. keppendanna á Evrópumeistaramóti unglinga 1 frjálsum iþróttum, sem náðist á mótinu ígær. Að sögn Ólafs var mótið sett með mikilli viðhöfn, þátttakendur 28 þjóða gengu inn ávöllinn.ísland nr. 15 og var fagnað vel. Undanrásir i 1500 m voru fyrr um daginn. Keppt í tveimur riðlum. í fyrri riðlinum urðu úrslit þessi: 1. Kr. Voldnes, Noregi, 4:25,32 2. Ragnheiður Ólafsdóttir 4:25,39 örugglega. Leikurinn jafnaðist síðan og Sigurður Grétarsson og Helgi Bentsson áttu báðir möguleika á að auka við for- skot Blikanna og svo á 44. mínútu fékk Matthías upplagt tækifæri til að jafna metin fyrir Val. Hann fékk sannkallað dauðafæri inn í vítateig Breiðabliks, en í stað þess að skalla á markið skallaði hann knöttinn pent niður og Guðmundur markvörður átti ekki í neinum vandræðum með að handsama knöttinn. Fyrri hálfleikur einkenndist af moði og leikmenn léku meira af kappi en for- sjá. En eftir hlé gerbreyttist leikurinn og Blikarnir tóku öll völd í sínar hendur. Strax á 51. mínútu bæta þeir við öðru marki. Sigurður Grétarsson átti þá hörkuskot á Valsmarkið beint úr aukaspyrnu. Sigurður varði en missti knöttinn frá sér og Sigurjón Kristjáns- son fylgdi vel á eftir og skoraði, 2—0. 3. Malukina, Sovét, 4:25,43 4. Valin, Svíþjóð, 4:25,96 í siðari riðlinum sigraði Betty VanSteen Broik, Belgíu, á 4:24,61 mín. Persoom, Hollandi, varð önnur á 4:25,96 mín. Tólf stúlkur keppa til úr- slita á laugadag. í dag keppir Iris Grönfeldt í úrslitum spjótkastsins. Nýi heimsmethafinn, Todorov, Búlgaríu, 71,88 m er meðal keppenda. Helga Haraldsdóttir keppir í undanúrslitum í 100 m grindahlaupi, Kristján Harðars- son í undankeppni í langstökki og þarf að stökkva yfir 7,40 til að komast í úr- slit. Þá keppir Egill Eiðsson í undanúr- slitum í 400 m hlaupi. Ragnheiður á fjórða bezta timann í 1500 m unglinga í Evrópu í ár, íris 12. bezta árangur í spjótkasti, Helga 10. í 100 m grinda- hlaupi og Egill 17. í 400 m hlaupi. Valur minnkar muninn Aðeins þremur mínútum síðar minnkaði Valur muninn. Hilmar Sig- hvatsson lék laglega á varnarmenn Breiðabliks og inn í vítateiginn, þar sem hann var felldur. Vítaspyrna og Hilmar skoraði sjálfur úr spyrnunni. Valsmenn hresstust nokkuð við markið en Blikarnir voru ekki á því að gefa sinn hlut og á 58. mínútu juku þeir aftur forskot sitt í tvö mörk. Helgi Bentsson sólaði varnarmennina upp úr skónum og sendi knöttinn síðan á Sigurð Grétarsson sem var einn og óvaldaður inni í teig. Hann lagði knött- inn fyrir sig og skoraði, en litlu munaði að Valsmönnum tækist að bjarga á línu, 3 — 1. Litlu síðar brenndi Sigurjón af fyrir opnu marki eftir að Sigurður hafði misst knöttinn frá sér og á 65. mínútu spiluðu Valsmenn út trompi sínu. Her- Frábær árangur náðist á mótinu í gær. Keppt til úrslita í nokkrum greinum og úrslit urðu þessi: Langstökk stúlkna 1. HeikeDaute, A-Þýzkal. 7,02 2. Elena Lygovaya, Sovét, 6,43 100 m hlaup pilta 1. Thomas Schröder, A-Þýzkal. 10,14 2. Rolf Kristner, V-Þýzkal. 10,33 3. Francesco Pavoni, Ítalíu, 10,39 4. Kimmo Saaristö, Finnl. 10,42 100 m hlaup stúlkna 1. Katrin Böhme, A-Þýzkal. 11,33 2. Shirley Thomas, Bretl. 11,43 3. Carola Beuster, A-Þýzkal. 11,50 Kringlukast pilta 1. Kamen Dimitrov, Búlgaría, 56,62 2. Thomas Christel, A-Þýzkal. 56,12 3. Erik de Bruin, Hollandi, 55,88 -hsím. mann Gunnarsson, hinn síungi fram- herji, kom inn á fyrir Val Valsson. Vignir skorar Innáskiptingin breytti litlu.fyrir Val, yfirburðir Breiðabliks voru algjörir og þeir bættu enn við mörkum. Sigurður Grétarsson átti hörkuskot í þverslá af vítateigslínunni og Vignir Baldursson sendi knöttinn í netið er hann hrökk út aftur, 4—1. Það var á 72. mínútu og 12 mínútum síðar var Vignir aftur á ferðinni er hann skoraði 5—1 með langskoti af 20—25 metra færi. Varnarmenn Vals hikuðu og vonuðu að hann gengi i rangstöðu- gildruna en Vignir lét þá skyndilega skot ríða af. í netinu hafnaði knöttur- inn en Sigurður markvörður átti að verja þetta skot. En hann hefur eflaust verið jafnhissa og hinir leikmenn Vals. Valsmenn áttu aðeins eitt gott færi í síðari hálfleik, er Valur Valsson skaut í stöngina og út af á 65. mínútu eftir að Guðmundur Ásgeirsson hafði misst fyrirgjöf Hilmars Harðarsonar frá sér. Blikarnir léku skínandi góða knatt- spyrnu í síðari hálfleik og hinir fótfráu og lipru framherjar liðsins nutu sín svo sannarlega á hálu grasinu. Sigurður Grétarsson var geysilega ógnandi og þeir Helgi Bentsson og Sigurjón Krist- jánsson áttu einnig góðan leik. Vignir var á við tvo á miðjunni og Ólafur Björnsson og Valdimar Valdimarsson voru sem klettar í vöminni. Valsmenn áttu dapran dag. Hilmar Harðarson, sem kom inn á í hálfleik, var þeirra beztur en sókn liðsins var ákaflega bitlaus. Guðmundur Þor- björnsson, primus motor miðju Vals, var eitthvað miður sín og vörnin var ákaflega óörugg. Aðstæðurnar áttu ekki beint við drekana I vörninni sem voru oftast skildir eftir er Blikarnir fóru í sókn. Óli Olsen dæmdi leikinn og gerði það prýðilega. Leyfði leiknum að halda áfram og kom þannig í veg fyrir að brotlegi aðilinn hagnaðist á brotinu. Sannarlega mikil stakkaskipti frá því í leik KR og Fram fyrr í vikunni. Um 1150 áhorfendur létu sig hafa það að horfa á leikinn í ausandi rigningu og undu hag sínum hið bezta. - SA EM unglinga ífrjálsum íþróffum: Ragnheiður hljóp á 3ja bezta tímanum — í1500 metra hlaupinu og keppir til úrslita á laugardag DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981. 21 Fram vann ekki stór- sigurinn sem þurfti — og möguleikar liðsins á íslandsmeistaratitlinum minnkuðu raunverulega f gær þrátt fyrir sigur á FH, 3-1 Þrátt fyrir sigur í gærkvöld á FH minnkuðu raunverulega möguleikar Fram á að hljóta islandsmeistaratitil- inn í knattspyrnunni. Fram tókst ekki að vinna botnliðið með nema tveggja marka mun, 3—1, og slök markatala Fram lagaðist litið við þann sigur. Aðeins fimm mörk i plús — og til að halda möguleikum sínum virkilega opnum hefði Fram þurft að vinna stór- sigur á FH. Að vísu er Fram aðeins einu stigi á eftir efsta liðinu, Viking, og hefur 20 stig eins og Akranes og Breiðablik. Fleiri en þessi fjögur lið koma varla til greina lengur í keppninni um íslandsmeistaratitilinn. Vonir Vals- manna og Vestmannaeyinga mjög veikar. Markamunur Fram er hins vegar mun lakari en Akurnesinga og Breiðabliks og á jafnri stigatölu bafa þeir litla möguleika gegn þessum félögum. Vikingur er hins vegar eina liðið, sem getur sigrað í mótinu án aðstoðar. Getur enn komizt í 25 stig, Akranes, Breiðablik og Fram mest 24. Valur og Vestmannaeyingar í 23 stig. íslandsmótið hefur þó aldrei verið eins tvísýnt og nú. Hver einasti leikur efstu liðanna sem eftir er er raunveru- lega úrslitaleikur. Víkingur á eftir leik í Vestmannaeyjum og við KR — Akra- nes á KR eftir í Reykjavík, FH uppi á Skaga. Breiðablik á KA eftir fyrir norðan, Vestmannaeyjar í Kópavogi. Fram á eftir Val og KA í Laugardal. Opinn leikur Úrhellisrigningu gerði fyrir leik Fram og FH á Laugardalsvelli í gærkvöld. Völlur rennblautur og háll. Sigur Fram verðskuldaður og það voru skemmti- legir sóknarsprettir í leiknum. Mýmörg marktækifæri. Varnarleikurinn afar slakur og Framvörnin hefur varla átt slakari leik í sumar en í þessum leik. FH fékk sex opin færi fyrir utan það, sem skorað var úr. Fram enn fleiri færi, svo það jafnaðist nokkuð upp. Guðgeir Leifsson lék sinn fyrsta leik með FH. Hefur fengið áhugamanna- réttindi sín á ný og þrátt fyrir litla sem enga æfingu var hann meðal betri manna FH-liðsins. Baráttan er ekki aðall liða FH-inga. Fallið niður í 2. deild verður varla umflúið. Pálmi Jónsson, miðherji FH, fékk tvö mjög góð tækifæri til að ná forustu fyrir lið sitt — misnotaði bæði — áður en Fram skoraði sitt fyrsta mark í leiknum. Það kom á 33. mín. eftir að nokkrum sekúndum áður hafði Pálmi fengið sitt síðara tækifæri. Ágúst Hauksson átti góða sendingu fram á Viðar Þorkelsson og framherjinn ungi lék á varnarmann, spyrnti síðan á markið. Af varnarmanni fór knöttur- inn í netið. Næstum endurtekning átti sér stað sjö mín. síðar. Á 40. mín. fékk Pálmi knöttinn óvaldaður á markteigslínu Fram. Tókst að skalla yfir mark, þegar léttara var að skora. Framarar tóku markspyrnuna, Pétur Ormslev fékk knöttinn. Brunaði í gegnum vörn FH áður en hann lagði knöttinn fyrir Hall- dór Arason, sem var frír innan vítateigs FH. Halldór skoraði 2—0. í byrjun síðari hálfleiks tókst Inga Birni Albertssyni að skalla framhjá marki Fram innan markteigs — endur- tók það einnig síðar i leiknum — og Fram komst síðan í 3—0. Hreggviður Ágústsson varði fast skot Marteins Geirssonar í hom. Pétur tók horn- spyrnuna og Sverrir Einarsson skoraði með fallegu skoti. Fyrsta mark Sverris í 1. deild. Hann skoraði þar ekki meðan hann lék með Þrótti. Það virtist stefna í stórsigur Fram en liðinu tókst ekki að skora fleiri mörk þrátt fyrir góð marktækifæri. Furðu- legast var, þegar Halldóri tókst að spyrna framhjá marki FH frír innan markteigs. Hreggviður varði glæsilega frá Guðmundi Torfasyni, sem kom i stað Péturs Ormslev. Þjálfari Fram, Hólmbert Friðjónsson, tók líka Ágúst Hauksson út af. Þessir leikmenn þoldu ekki bókun — og úrslitaleikurinn við Vestmannaeyinga í bikarnum framundan. Annan sunnudag. Rétt í Keflvfkingar nær gulitryggðu sér sæti f 1. deild að ári er þeir sigruðu Þrótt á Neskaupstað með einu marki gegn engu. Nú þurfa þeir einungis tvö stig i viðbót til að vera alveg öruggir með að komast upp. Eina mark þeirra gegn Þrótti kom beint úr hornspyrnu nokkrum lokin brást rangstöðutaktík Fram og Guðmundur Hilmarsson komst frír að markinu ásamt öðrum framherja FH. Guðmundur skoraði auðveldlega og ekki munaði miklu að FH skoraði annað mark rétt í lokin. FH-ingar fengu vissulega færin. Magnúsi Teits- syni tókst til dæmis að spyrna framhjá markinu, þegar hann komst einn inn fyrir vörn Fram. Þetta var enginn stórleikur þó stundum sæjust skemmtilegir sóknar- kaflar. Pétur, Hafþór Sveinjónsson og Trausti Haraldsson beztir Framara. Viðar Halldórsson og Guðmundur Kjartansson beztir FH-inga. Guðmundur meiddist þó og þá fór Ingi Björn aftur sem miðvörður. Var sterkur þar. Dómari Sævar Sigurðsson. - hsim. Staðan íl.deild Úrslit i 16. umferð i 1. deildinni. Vikingur— Akranes 2—6 Fram—FH 3—1 Breiðablik- —Valur 5—1 Þór—KR 2—1 ÍBV—KA frestað Staðan er nú þannig: Víkingur 16 9 3 4 26—22 21 Akranes 16 7 6 3 25—14 20 Breiðablik 16 6 8 2 26—17 20 Fram 16 6 8 2 22—17 20 Valur 15 7 3 5 28—21 17 KA 15 6 4 5 19—15 16 ÍBV 14 6 3 5 25—18 15 KR 16 2 6 8 11—22 10 Þór 16 2 6 8 14—33 10 FH 16 2 3 11 19—36 7 mfnútum fyrir ieikhlé. Skúli Rósants- son tók spyrnuna og skrúfaði knöttinn upp f hornið nær. Keflvíkingar voru mestalian tímann betra liðið en mark þeirra komst þó i mikla hættu síðustu minútur leiksins og þá brenndi Eirikur Magnússon af góðu færi fyrir Þrótt. - SA KEFLAVIK ÞREPI FRÁ1. DEILDINNI Spenna á fallbaratt- unni eftir sigur Þórs — Þór sigraði KR 2-1 á Akureyri. FH svo gott sem fallið Þórsarar nældu sér i tvö dýrmæt stig i fallbaráttunni er þeir sigruðu KR-inga 2—1 á Akureyri í gærkvöldi. Með sigrinum hefur Þór þvi náð KR að stigum, bæði liðin hafa 10 stig en FH hefur sjö og er f neðsta sæti. Þórsarar hófu leikinn af miklum Köln sigraði íBarcelona Vestur-þýzka liðið Köln sigraði á móti í Barcelona. Sigraði Barcelona 4—0 f úrslitaleiknum og var leikurinn háður á hinum fræga leikvelli spánska liðsins. Vasco de Gama, Brazilfu, sigraði Ipswich 2—1. Þá sigraði Atletico Madrid Liverpool 2—1 í Madrid. Tony Woodcock, enski landsliðs- maðurinn, lék með Köln í Barcelona. Átti góða leiki og forráðamenn Kölnar eru nú að fá hann til að hætta við að fara til Leeds. Sagt er þó að Woodcock vilji aftur til Englands og nú hefur Liverpool áhuga á leikmanninum, að sögn Martin Wilkinson, aðstoðar- framkvæmdastjóra Leeds. Hann fer til Hollands á sunnudag til að líta á Dirk Nanninga, iandsliðsmiðherja Hol- lands. krafti og strax á 4. mínútu náðu þeir forystu. Jónas Róbertsson lék þá skemmtilega á tvo KR-inga á miðjum vellinum og sendi knöttinn inn á Jón Lárusson sem kom á fleygiferð inn í vítateiginn. Jón hafði betur í kapp- hlaupi við Stefán markvörð og renndi knettinum á Guðmund Skarphéðinsson sem skoraði. Við markið tvíefldust Þórsarar og þeir náðu góðum tökum á miðjunni. Á 13. mínútu fékk Jón Lárusson stungu- bolta inn fyrir vörn KR og hljóp vamarmennina af sér. Stefán kom hlaupandi út úr markinu á móti honum og felldi Jón, en Guðmundur Sigur- bjömsson dómari færði brotið út fyrir vítateig. Guðjón Guðmundsson tók aukaspyrnuna, en skaut beint í varnar- vegg KR. Hann fékk þó knöttinn aftur og sendi hann þá í mark KR, 2—0. Stefán markvörður kom engum vörn- um við enda algjörlega blindaður af eigin varnarmönnum. Þórsarar voru mun sterkari aðilinn fyrir hlé, en í síðari hálfleik snerist dæmið við og KR sótti mun meira. Elías Guðmundsson átti skalla að marki Þórs, en Árni Stefánsson náði að hreinsa frá á síðustu stundu. Þar lék Árni sama leik og í fyrri hálfleik en Óskar Ingimundarson skallaði að marki Þórs. Mark KR kom loks á 81. minútu. Þá myndaðist mikil þvaga í vítateig Þórs og Elías Guðmundsson skoraði en Eiríkur markvörður sá ekki knöttinn fyrr en í netinu. Lokakaflann sótti KR stíft og Eirikur meiddist I þeim atgangi og varð að yfirgefa völlinn. En vörn Þórs stóð fyrir sínu og KRtókst ekki að jafna. Beztu menn Þórs voru Guðjón Guð- mundsson, Jónas Róbertsson og Bjarni Sveinbjörnsson, sem lék stöðu bak- varðar, en hann er framherji. Aðrir voru jafnir. Elías, Jósteinn Einarsson og Börkur Ingvarsson voru beztir KR- inga. Dómari var Guðmundur Sigur- björnsson og átti slakan dag. Áhorfendur voru rúmlega 700. 4 leikir í 3. flokki Úrslitakeppni 3. flokks hófst á Akureyri í gær. í A-riðli sigraði Valur ÍK 2—1 ogÞór, AK. vannTý Ve. 5—1. í B-riðU sigraði ÍA-Fylki 2—0 og Þróttur R. sigraði Hött 4—0. Atvikið ógeðslega íBremen Ógeðslegt atvik átti sér stað i bundeslígu-leik Werder Bremen og Armenia Bielefeld sl. iaugardag, þar sem sóknarmaður Bielefeld, Edwald Lienen, slasaðist. Viggó Sigurðsson skrifaði um atvikið i grein sinni um þýzku knattspyrnuna sl. mánudag f DB og sagði þá meðal annars. „Varnar- maðurnn Norbert Siegman sparkaði i Lienen (keyptur frá Mönchengladbach í vor) og leikmaðurinn féll i völlinn. 30 sentimetra skurður á læri hans og sást inn í bein. Það ógeðslegasta, sem ég hef séð í knattspyrnuleik. Lienen hefur kært Siegmann og þjálfara Bremen, Otto Rehhagel og segist hafa heyrt þjálfarann hrópa til Siegmann — „gakktu nú frá honum”. Þetta sagði Viggó i grein sinni og ennfremur að þetta hefði veriö leikurinn, sem allir töluðu um í Þýzka- landi. Atvikið sýnt i sjónvarpinu i lit og þótti hroðalegt eins og myndirnar að ofan sýna vel þótt f svarthvítu séu. Á þeirri efri fær Siegmann aðeins að sjá gula spjaldið hjá dómaranum. Á iitlu myndinni steytir Lienen hnefann i átt til þjálfara Bremen. -hsfm. -G.Sv.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.