Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981.
Laus er til umsóknar
staða ritara
í Stýrimannaskölanum
í Reykjavík. Umsækjendur þurfa að hafa góða færni í
vélritun og meðferð skrifstofuvéla. Um er að ræða hálft
starf og hugsanlega kennslu í vélritun að auki.
Umsóknir sendist skólastjóra fyrir 1. september nk. og
veitir hann nánari upplýsingar.
Menntamálaráðuneytið.
||| LAUSAR STÖÐUR
Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík
óskar eftir að ráða tvo starfsmenn til almennra skrif-
stofustarfa. Góð kunnátta í íslenzku og vélritun ásamt
hæfni til að starfa sjálfstætt áskilin.
Launakjör skv. samningi Reykjavíkurborgar og starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfs-
reynslu sendist skrifstofustjóra borgarverkfræðings, fyrir
28. ágúst nk.
Skrifstofur borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2,
Reykjavik. Sími 18000.
Volvo 244 DL árg. ’78. Drapplitur, sér
ekki á lakki, ekinn 59 þ. km., útvarp,
segulband, aukafelgur. Til sýnis á
staðnum.
Toyota Cressida
rauður, duglegur
staðnum.
árg. ’78, fallega
mölina. Til sýnis á
Subaru 1600 árg. ’78, 4ra dyra,
„ • . . , ...... . framhjóladrifinn, fallega brúnn, með
Honda Accord árg. 79, sjálfskiptur, lakkl Skipti koma tíl greina á
fallegur e.nkabíll. T.l sýms á staðnum. mil|igjö{^aðgreidd.
BILAKAUFf
. SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030
LANDSPÍTALALÓÐ
BYGGING 7
Tilboð óskast í innanhússfrágang á 2. og 3. hæð ásamt
hluta 1. hæðar í miðhluta byggingar 7 á lóð Landspítalans í
Reykjavík. Þessir húshlutar eru um 2070 m2.
Verktaki skal leggja rafmagns-, skolp-, vatns-, loftræsi-,
loft- og gaslagnir í húshlutann. Hann skal setja upp veggi
og hangandi loft, mála og leggja gólfefni og smíða hluta
af innréttingum og setja upp sérsmíðaðar innréttingar.
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 1982.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7,
Reykjavík gegn 3000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. september
1981, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Mátti „láta
sig hafa það
að standa eins
og afbrota-
maðurframmi
fyrir öllum”
—farþega frá Amsterdam sárnaði
aðf erðir tollgæzlumanna
Farþegi skrifar:
Nýlega kom ég heim með flugi frá
Amsterdam. Eins og gengur og gerist
fór ég í gegnum tollskoðun og síðan
fram á gang, þar sem fólk beið mín.
Þá kom tollvörður í humátt fram
á eftir mér og sagði mér að koma inn
aftur. Það var gert í þessum dúr: „Þú
þarna, þú átt að koma inn aftur.”
Ég spurði hvað væri um að vera en
fékk engin svör.
Þarna inni í toUskoðuninni beið
ég síðan eins og illa gerður hlutur, þó
nokkuð lengi, á meðan smalað var i
röðina, og enn fékk ég engin svör.
Hins vegar heyrði ég pískrað aUt í
kringum mig að við, sem þarna
stóðum, ættum að gangast undir
eiturlyfjarannsókn, því þetta átti sér
stað fyrir framan alla.
Þarna mátti maður, sem sagt, láta
sig hafa það að standa eins og af-
brotamaður frammi fyrir öllum, á
meðan hasshundurinn vappaði aUt í
kring en virti mig ekki viðlits, svo
varla voru líkurnar miklar á að
eiturlyf fyndust á mér. Um síðir
kom tollvörður og spurði: „Ætlarðu
að koma með mér?”
Ég játaði því og við fórum inn í
lítið herbergi, þar sem ég afklæddist,
samkvæmt beiðni — eða er slíkt ekki
raunar fyrirskipun? Þarna mátti ég
standa aUsber með fætur í sundur og
láta þukla mig í bak og fyrir. Óþarft
er að geta þess að hver einasti
saumur á fötunum mínum var vand-
lega athugaður.
Vitanlega fannst ekkert. Ég vil
láta þess getið, í þessu sambandi, að
ég hef aldrei neytt eiturlyfja, hvað þá
haft þau í fórum mínum og er
fylgjandi auknu eftirliti og gæzlu.
Hins vegar er óþolandi hvernig staðið
tollskoðun
(I iÍTLENDINGAEFTIRLITIC
„Ég stórcfast um að þessar aðfarir
séu með öllu lögmætar og ætti
tollgæzlan að athuga sinn gang,”
segir farþegi, er kom heim með flugi
frá Amsterdam. DB-mynd: H.V.
er að þessu.
Mér finnst að einskorða mætti sig
við það fólk, sem hasshundurinn
sýnir einhvern áhuga, og einnig þá er
reynast hafa eiturlyf í farangri sinum.
Hvað á það að þýða að bjóða
sakiausu fólki svona meðferð? í
þessu landi á maður að heita saklaus
þar til sekt sannast, en ltér er þvi lög-
máli freklega snúið við og ber öll
meðferðvott umþað.
Sá farþegi, sem þarf að þola þessa
framkomu og niðurlægingu, er
samtímis stimplaður í augum þeirra,
sem vitni eru að öllu saman, en fá
ekki neinar skýringar fram yfir, að
það eigi að fara fram eiturlyfja-
skoðun — og er það nú til þess að
slá hamarshöggið á verkið.
Ég stórefast um að þessar aðferðir
séu með öllu lögmætar og ætti
tollgæzlan að athuga sinn gang.
V
DRUKKNIR 0G 0FST0PA-
FULLIR ERU
VANDMEÐFARNIR
Ólafur Laufdal, forstjóri og eigandi
Hollywood, svarar:
„Ég vil byrja á að vísa algjörlega á
bug þeirri fullyrðingu bréfritara að
ógerlegt hafi verið að ná sambandi
við mig síðustu daga. Helzt er ég
þeirrar skoðunar að hann hafi ein-
mitt síður viljað ræða við mig málið.
Það sannast í dag, miðvikudag, er
bréfritari afboðaði komu sina á fund
til viðræðna við mig, en til þess
fundar boðaði ég hann símleiðis.
Hins vegar á hann auðvelt með að tjá
sig um málið á lesendasíðum Dag-
blaðsins.
Mér er kunnugt um átökin, sem
áttu sér stað sl. föstudagskvöld og
málið snýst um. Ég var sjálfur á
staðnum og fékk strax upplýsingar
um það hvað gengi á.
Það sem gerðist var það að
umræddur aðili beið þess ásamt fjöl-
mörgum öðrum að hleypt yrði inn í
Hollywood en þá stundina var stuttur
stanz gerður á móttöku gesta.
Umræddur var ókyrr mjög enda vel
við skál. Þegar svo verið var að
hleypa út fólki eitt sinn ruddist hann
á móti hópnum í þeirri viðleitni að
brjóta sér leið inn. Við þetta vildu
dyraverðirnir eðlilega ekki sætta sig
og stöðvuðu manninn, sem leiddi til
átakaþeirraámilli.
Lögreglan var til.kvödd og fjar-
lægði hún manninn. Hann var látinn
laus síðar um kvöldið og var hann þá
ekki verr á sig kominn en það að
hann stormaði beint upp í Hollywood
aftur og hélt áfram að gera tilraunir
til að komast inn. Hafði hann úthald
í þá baráttu allt fram undir að dans-
leik var að ljúka klukkan þrjú —
þrátt fyrir þá „áverka”, sem hann
vill halda fram að hann hafi hlotið í
viðureigninni fyrr um kvöldið.
Alltof oft er til þess ætlazt af dyra-
vörðum danshúsanna að þeir geti af-
greitt ölvað og ofstopafullt fólk með
bros á vör og silkihanzka á höndum.
Dyraverðir eru ekki öfundsverðir af
starfi sínu. Ég er ekki að segja að
þeim takist ætíð að leysa sem skyldi
úr þeim ósköpum sem á þeim dynja á
annasömustu kvöldum vikunnar en
það veit ég að þeim eru alltof oft
ætlaðir verri hlutir en þeir eiga. En
það er bara svo ósköp auðvelt að
henda í þá ónotum í lesendadálkum
dagblaðanna.
Eitt af því sem alltaf vekur furðu
mína í slíkum skrifum er sú undrun
sem ritarar slíkra bréfa sýna á því að
það skuli ekki vera viðhöfð reglan
„maður á mann”. Segjast hissa á þvi
að sjá tvo og jafnvel þrjá dyraverði
glíma við einn gest (og oftast eru
dyraverðirnir sagðir fíiefldir krafta-
jötnar). En þá vil ég vekja athygli á
því að einmitt þannig er helzt hægt að
stöðva óróaseggi án þess að slys verði
á mönnum.
p-v ' “'D-'y —v k/í —
Það er eins og lögreglumaður einn
orðaði það: Það er nógu erfitt fyrir
einn mann að lyfta fullorðnum, mátt-
lausum manni, hvað þá að eiga við
hann spriklandi út öllum öngum, bít-
andi og berjandi.
Er hægt að ætlast til þess af nokkr-
um manni.dyraverði eða lögreglu-
þjóni, að hann leiði einsamall slíkan
mann snyrtilega af vettvangi?
Hvað snertir bréfið um aldurstak-
markið sem birtist fyrr í vikunni vil
ég aðeins segja það að allt frá því að
Hollywood opnaði hefur verið 20 ára
aldurstakmark að staðnum, þó okkur
sé heimilt að hleypa inn 18 og 19 ára.
Fölsuð skírteini eru alltaf einhver í
gangi og erfitt fyrir dyraverði að sjá
ætíð við slíku þó þeir leggi sig alla
fram í starfi sínu.
Raddir
lesenda
FRANZISCA
GUNNARSDÓTTIR
^^iin * *
tutt og skýr bréf
Enn cinu sinni minna lcscníladálkar DB alla þá. cr
hynnjost scnda þtcttinunt llnu. at) láta fylgja' fullt na/n.
heimiUsfang. símanámcr (efum þaó cr að rtvða) tty
nafnnámcr. Þetta cr litil fyrirhöfn fyrir brtfrilara ttkkar
oft til mikilla þœyindafyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir á at) hrcf ciya at)
vcru stutt ttf> skýr. Askilinn crfuUur réttur til aó '
stytta hrcfttf! umorða til að spara rám oy koma
cfni bctur til skila. Bréf ccttu helzt ekki að vcra
lcnpri cn 200—300 orð.
Simatimi lcsendadálka DB cr milli kl.
13 tifi'15 frá mánudöfium tilföstudaya.
4 •—• -i A