Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981. Erlent Erlent Erlent Skilaboð Reagans til heimsbyggðarinnar: „Það borgar sig ekki að skjóta á okkur” — Ubýa óskar eftir umf jöllun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um átökin úti fyrirströndLíbýu Reagan Bandaríkjaforseti lagði í gær áherzlu á að Bandaríkjamenn héldu áfram að verja sig á alþjóðleg- um siglingaleiðum og í alþjóðlegri lofthelgi ef þörf krefði. Hann sagði um þann atburð sem varð úti fyrir ströndum Líbýu í fyrradag er banda- rískar herþotur skutu niður tvær líb- ýskar vélar að hann ætti að sýna um- heiminum að ,,það borgar sig ekki að skjóta á okkur.” Reagan, sem i gær dvaldi um borð í flugmóðurskipi úti fyrir strönd Kaliforníu, sagði að Bandaríkjamenn hefðu ákveðið að halda flotaæfingu úti fyrir Líbýu vegna þess að Banda- ríkjamenn gætu ekki sætt sig við að Líbýa eignaði sér landhelgi sem væri alþjóðlegt yfirráðasvæði og bryti þar með alþjóðalög. Forsetinn sagði að sér hefði fyrir nokkru verið skýrt frá fyrirhuguðum æfingum í Sidra-flóa, sem Líbýu- menn telja innan landhelgi sinnar, og hefði hann fallizt á hugmyndina. Líbýa bar í gær fram formlega umkvörtun við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna loft- orrustunnar yfir Miðjarðarhafi í fyrradag. Ekki óskuðu Líbýumenn þó eftir því að öryggisráðið gripi til sérstakra ráðstafana vegna þessa. Abdel-Ati Obeidi, utanríkis- ráðherra Libýu, sagði að Líbýustjórn áskildi sér allan rétt til að grípa til allra nauðsynlegra ráða til að verja löglega land- og lofthelgi sína. Á fundi í Jemen í Saudi-Arabíu hvatti Muammar Gaddafi, leiðtogi Líbýu, Arabaríkin til að grípa til ráðstafana gagnvart Bandaríkjunum vegna þessa atburðar. Ronald Reagan Bandarikjaforseti hefur að undanförnu dvalið á búgarði sinum I Kalilornlu 1 sumarleyti, og tekíð það rólega. Hann svaf værum svefni þegar bandarisku herþoturnar skutu niður tvær líbýskar herflugvélar á miðvikudag og var ekki vakinn fyrr en sex klukkustundum eftir að atburðurinn átti sér stað. Ariel Sharon varnarmálaráðherra ásamt Begin, forsætisráðherra ísraels. Hin nýja rfkisstjórn ísraels þykir líkleg til að fylgja mikilli harðlinustefnu i utanríkismálum. Ariel Sharon, Varnarmálaráðherra Israels: ísrael er hvorki lög- regla né málaliði íþjón- ustu Bandaríkjanna Ariel Sharon, hinn nýi og umdeildi varnarmálaráðherra ísraels, sagði i gær að ísrael væri hvorki málaliði né lögregla í þjónustu Bandaríkjanna. Sharon lýsti þessu yfir er hann ávarpaði liðsforingja í ísraelsher. Þá sagði hann: „Við erum hvorki mála- liðar né lögregluþjónar í þjónustu Bandarikjanna . . . Við stóðum aleinir á þessu svæði fyrir næstum 25 árum, frammi fyrir ógnuninni af sovézkri út- þenslustefnu.” Hann sagði að Sovítríkin stæðu ,,á bak við flestar byltingartilraunir í heiminum” og bætti því við að núver- andi stefna Bandaríkjanna fæli ekki í sér „viðeigandi svar”. Barátta skæruliða í Afganistan: Sovétmenn viður- kenna harða mót- spyrnu skæruliða Skæruliðar sem berjast gegn Sovét- Izvestia fullyrti að skæruliðarnir mönnum í Afganistan hafa enn hluta hefðu haft næstum allt héraðið á af héraöinu Herat í vesturhluta lands- valdi sínu fyrir aðeins sex mánuðum ins á valdi sínu en hafa misst land- og verða slíkar fréttir frá Sovétríkj- svæði á siðustu sex mánuðum, að því unum að teljast talsverð tíðindi því er Izvestia, málgagn sovézku þar í landi hafa ráðamenn löngum stjórnarinnar, greindi frá í gær. reynt að gera lítið úr árangri skæru- Blaðið sagði að skæruliðar hefðu liðanna. Blaðið sagði að ástandiö i orðið að láta undan síga að undan- héraðinu væri nú að mestu orðið eðli- förnu og nú væri svo komið að legt þó það viðurkenndi að enn veittu aðeins Iítill hluti héraðsins væri enn á skæruliðar harða mótspyrnu í vissum þeirravaldi. hlutum héraðsins. Portúgal: Balsemao reynir stjórnar- myndun á ný Francisco Pinto Balsemao, leiðtogi sósíaldemókrata í Portúgal, féllst í gær á að gera tilraun til að mynda nýja ríkisstjórn demókrata í landinu, að því er Angelo Correira, talsmaður fiokks- ins, sagði i gær. Pinto Balsemao, sem sagði af sér embætti forsætisráðherra 10. ágúst síðastliðinn vegna innanflokksátaka, hefur einnig boðið Diogo Freitas do Amaral, leiðtoga samstarfsflokksins (kristilegra demókrata), að verða að- stoðarforsætisráðherra í hinni nýju ríkisstjórn. Spánn undir- býraðildsína að NATO Spænska rikisstjórnin ákvað í gær að semja áætlun um að Spán- verjar gerðust aðilar að Atlants- hafsbandalaginu. Sotelo, for- sætisráðherra Spánar, hefur látið á sér skilja síðan hann varð for- sætisráðherra Spánar í febrúar, að hann vilji að Spánn gangi í Atlantshafsbandalagið þegar í haust. TOYOTA- SALURINN SÍMI44144 Nýbýlavegi 8 (bakhús) Opið laugardaga kl. 13—17 Toyota Corolla Liftback, sjálf- skiptur, árg. ’78. Ekinn 50.000. Brúnn. Verð 75000. Toyota Corolla 4ra dyra, sjélf- skiptur, árg. ’80. Ekinn 24.000. Rauður. Verð 79.000. Toyota Corolla KE 30 árg. ’77. Ekinn 70.000. Blásans. Vero 58.000. Toyota Starlet árg. ’80. Ekinn I 17.000. Blár.Verð 74.000. Toyota Corolla KE 30 árg. ’78. Ekinn 47.000. Rauður. Verð 63.000. Toyota Corolla KE 30 árg. ’79. Ekinn 30.000. Blár, sans. Verð 67.000. Toyota Starlet árg. ’78. Ekinn 32.000. Rauður. Verð 62.000. Toyota Cressida Station árg. ’80. Ekinn 6.000. Blár, sans. Verð 110.000. Toyota Cressida 4ra dyra, 5 gíra, árg. ’78. Ekinn 68.000. Grænn. Verð 79.000. TOYOTA- SALURINN SÍMI44144 Nýbýlavegi 8 (bakhús) Opið laugardaga kl. 13—17

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.