Dagblaðið - 21.08.1981, Blaðsíða 14
22
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1981.
Gart ar ráfl fyrir norflan átt og látt-
akýjuflu á Sufiur- 09 Vaaturtandl,
rigning fram aftlr dagl á norðaustan-
varðu landinu. an dragur úr hann)
sifldagls.
Kl. 6 var f Raykjavfk norflan 3, hálf-
skýjafl og 7 sdg, á Gufuskálum
norflaustan 4, alakýjað og 8 stig, á
Galtarvlta norðaustan 3, hálfskýjafl
og 6 stig, á Akurayri norflan 2, rigning
og 8 stig, á Raufarhöfn austan 3,
jxikumófla og 7 stig, á Dalatanga
austan 3, rlgnlng og 7 stig, á Hðfn
norflan 4, skýjafl og 8 stig, á
Stórhflffla norðvsstan 8, láttskýjað
og 8 stlg.
I Þórshöfn súld og 8 stig, I
Kaupmannahöfn alskýjafl og 1B, (
Osló skýjafl og 12 stig, I Stokkhólml
rigning og 12, I Hamborg skúr og 12
stlg, I London láttskýjafl og 9, i Paris
skýjafl og 13,1 Madrid halflrlkt og 16,
I Llssabon skýjafl og 17, f Naw York
halðrikt og 20 stiga hHI.
Þorbjörn Sigurhansson var fæddur að
Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum þann 7.
febrúar 1896. Foreldrar hans voru
Sigurhans Ólafsson og Dórótea Sveins-
dóttir. Eignuðust þau 11 börn, eina
dóttur og 10 syni. Þorbjörn var fimmti
í aldursröð sona þeirra, næstur honum
er sá eini sem eftir lifir af þeim systkin-
um, Karl Sigurhansson. Þorbjörn
kvæntist Málfríði Helgadóttur, eign-
uðust þau tvö börn, Sigurhans og Petu
Ásu. Þorbjörn verður jarðsunginn frá
Neskirkju í dag, 21. ágúst, kl. 13.30.
Hann verður jarðsettur í kirkjugarðin-
um í Innri-Njarðvík.
Ingveldur Björnsdóttir frá Grænu-
mýrartungu andaðist 9. ágúst í Reykja-
vík. Hún fæddist á Óspaksstöðum í
Hrútafirði, næstelzt 12 systkina. For-
eldrar hennar voru Ingibjörg Pálsdóttir
og Björn Björnsson. 19. október 1916
giftist Ingveldur Gunnari V. Þórðar-
syni. Þau eignuðust tvær dætur, Sigríði
og Steinunni. Tvo fóstursyni tóku þau,
Þórð Guðmundsson; pg Björn Svau-
bergsson. Ingveldur verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Sigurður Bjarnason frá Vestmannaeyj-
um verður jarðsunginn frá Landa-
kirkju 22. ágúst kl. 14.
Karl Eyjólfsson verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju 22. ágúst kl. 14.
Jónina Kristin Benediktsdóttir, Friðar-
stöðum Hveragerði, andaðist 19. þ.m.
Óskar Bjarni Brynjólfsson, Bergþóru-
götu 45, lézt í gjörgæzludeild Borgar-
spítalans 19. ágúst.
Ásbjörn Bergsteinsson, Þúfubarði 14,
lézt 19. ágúst.
Sigurbjörg Jónsdóttir frá Vest-
mannaeyjum, Lambhaga 20 Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju 22.
ágúst kl. 14.
Margrét Danielsdóttir, Hópi Grinda-
vík, verður jarðsungin frá Grinda-
víkurkirkju 22. ágúst kl. 13.30.
Kristensda Valdis Jónsdóttir lézt í
Sjúkrahúsinu í Stykkishólmi L ágúst.
Hún verður jarðsungin frá Stykkis-
hólmskirkju 22. ágúst kl. 14.
Ferðafólag íslands
Helgarferðir 21.-23. ágúst:
1. Álftavatn á Fjallabaksleiö syðri. Siöasta feröin á
sumrinu. Gist í húsi.
2. Hveravellir-Þjófadalir. Gist í húsi.
3. Landmannaiaugar-Eldgjá. Gist í húsi.
4. Þórsmörk. Gist í húsi.
Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
Dagsferðir sunnudaginn 23. ágúst:
1. kl. 10 Hrómundartindur-Grafningur. Verö kr.
70.-
2. kl. 13 Sandfell í Grafningi og nágrenni. Verö kr.
50.-
Farið frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Farmiðar v/bil.
Dags- og vköldferöir
23. ágúst
kl. 10 Hrómundartin dur — Grafningur.
kl. 13 Sandfell í Grafningi og nágrenni.
Skemmtisfaðir
k______________
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir leikur glæsilega
tónlist fyrir dansgesti og ferðadiskótekið Rocky
verður í Disco-sal 74 með hressileg lög fyrir þá sem
eru léttir á sér.
HOLLYWOOD: Diskótek VUli velur það bezta úr
plötusafninu.
HÓTEL BORG: Diskótekið Disa sér um dansinn.
HÓTEL SAGA: Sögunætur í Súlnasal.
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Frílyst heldur
fjörinu uppi, diskótek fyrir þá sem það vilja.
ÓÐAL: Halldór Árni lætur plöturnar snúast í
diskótekinu.
SIGTÚN: Hljómsveitin Demó drífur fólk í.dansinn.
SENKKJAN: Diskótek, hvað annað.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Pónik sér um
snúninginn, á neðri hæð er diskótek.
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir verður á
staðnum, eins og fyrr leikin lög við allra hæfi. í
Disco-sal er ferðadiskótekið Rocky.
HOLLYWOOD: VUli mættur í diskótekið.
HÓTEL BORG: Diskótekiö Dísa.
HÓTELSAGA: Sögunætur í Súlnasal.
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Frílyst og diskótek.
ÓÐAL: Halldór Ámi situr enn í diskótekinu.
SIGTÚN: Hljómsveitin Demó gefur frá sér góða
tóna.
SNEKKJAN: Dansað í diskótekinu.
ÞÓRSCAFÉ: Diskótek á fyrstu hæð, en
hljómsveitin Pónik á annarri hæð.
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótekið
„Rocky”.
HOLLYWOOD: Bögglauppboð frá Karnabæ,
plötukynning og spurningakeppni samfara þeirri
kynningu, einnig verður lesið upp skeyti frá Ibisa.
Villi lætur sig ekki vanta í diskótekið.
HÓTELBORG: Gömlu dansamir.
HÓTEL SAGA: Skemmtikvöld með Jack Elton á
faraldsfæti.
ÓÐAL: Halldór Árni í diskótekinu kynnir plötu
með hljómsveitinni UB-40.
Kvikmyndir '
^_ __________
KYNNING Á
GRAFISKRI ) V ^
KVIKMYNDALIST' A
Kvikmyndakynning IV í kvöld, föstud. 21. ágúst, kl.
20.00—22.00 að Kjarvalsstöðum. „Áróður / upp-
lýsingar”.
Grafíska kvikmyndin sem upplýsinga- og áróðurs-
miðill. Sýnd verða dæmi um upplýsingamiðlun á
ýmsum sviðum, áhrifamátt auglýsingakvikmyndar-
innar og pólitiskar áróðurskvikmyndir.
Intercellular Communication: Sérstæð grafisk kvik-
mynd sem unnin er með sérhæfðan áhorfendahóp í
huga.
Clock Talk: Kennslumynd fyrir börn, sem yfirfærir
samþjappaðar upplýsingar i heillandi myndmál sem
heldur athyglinni vakandi og hefur myndræna við-
miðun.
Kurtz Reel ^ Auglýsingamyndir: Vinsælar og snjallar
auglýsingamyndir þar sem megináherzlan er lögð á
sölugildi vörunnar. Frá einu þekktasta auglýsinga-
fyrirtæki í Hollywood.
AbefReel / auglýsingar og áróður: Frumlegar graf-
ískar kvikmyndir sem miöast við að skapa eldmóð i
hvaða samhengi sem er. Frá þekktu auglýsingafyrir-
tæki í Hollywood.
The Further Adventures of Uncel Sam: Almenn
ádeila á stjórnmálastefnu og lífsskoðanir Banda-
ríkjamanna.
Chapter 21: Nútíma útgáfa á sýnum og reynslu Jóns
Dýrlings í Opinberunarbókinni og lýsing á himna-
sælunni. Umræður á eftir.
Grafískum kvikmynda-
dögum lýkur um helgina
Lokadagur Grafískra kvikmyndadaga er á
sunnudaginn. Þá verður haldin yfirlitssýning á Kjar-
valsstöðum. Hún hefst klukkan 20.00. Þar verða
sýndar grafískar kvikmyndir sem hver um sig er
dæmi um mismunandi form listgreinarinnar. Þá
vonast aðstandendur kvikmyndadaganna til þéss að
hægt verði að sýna eitthvað af þeim verkuiii sem
unnin hafa verið á námskeiðunum í Myndlistar-
skólanum. Námskeiðin hafa verið haldin með kvik-
myndakynningum og almennum sýningum.
Eftirtaldar kvikmyndir verða sýndar á
sunnudagskvöldiö:
Circle Near the Intersection of Two Lines: Mynd í
háðskum tón um algildi.
MINDSCAPE: Frábærlega vel útfærö mynd sem
glímir við hinar flóknu spurningar um skynjun og
veruleika.
REDBALL EXPRESS: Spennandi lestarferð í
gegnum grafiska geiminn. Myndin er unnin við
tónlist hins þekkta lags Orange Blossom Special.
7362: óhlutbundin athugun á tvihliða samræmum
og litameðferð, byggð á myndmáli sem upprunnið er
úr lifandi myndum.
The Thieving Magpie: Einstaklega vel myndskreytt
saga, byggð á munnmæla sögninni um hinn þekkta
þjóf Skaðann. Myndin er eftir ítalska kvikmynda-
gerðarmanninn og teiknarann Emanuel Luzzati.
Tilviljanir og kaldhæðni
Sagt er að hver þjóð hljóti þá;
stjórn sem hún á skilið. Yfirlýsingin
sneiðir nokkuð frjálslega hjá smáat-
riðum enda er henni einkum ætlað að
túlka það sjónarmið að þjóðfélags-
hættir, ástand og viðhorf endurspegl-j
ist í stjómarfari hvérju sinni.
f fréttum fjölmiðla,. mun heims-
myndin samt endurspeglast betur en
á nokkrum öðrum vettvangi og ekki
er hún falleg myndin af okkur. Það
er kaldhæðnislegt að hún skuli vera
einmitt svona, þar eð okkur er svo
ágætlega kunnugt um þá eiginleika
þjóðfélaga og menninga er leiða til
hnignunar og falls, sbr. Rómaveldi,
en við gætum þess ætíð bezt að læra
aldrei af reynslunni.
Einn ötulasti keppinautur frétt-
anna gengur réttilega undir safnheiti,
þ.e. Tilkynningar. Tilkynningar og
fréttir minna mig ætíð á tákn leikhús-
anna; grímurnar tvær; harmleikinn
og skopleikinn. Þær eru hlið við hlið,
ofurlítið aðskildar en falla þó hvor
yfir aðra að hluta. Við skulum fyrst
velta vöngum yfir tilkynningunum i
gærkvöldi — mest vegna þess að það
ersvotil aldreigert.
Eros tilkynnti útsölu. Ef maður
vissi nú ekki nákvæmlega hvers
konar fyrirtæki þetta er, þá gæti
þetta misskilizt á þessum síðustu og
verstu tímum frjálsræðis í kynferðis-
málum. Jafnframt var auglýsing frá
SS. Við vitum að það merkir Slátur-
félag Suðurlands, en kaldhæðnislegt
er það engu að síður — ekki sízt
vegna þess að þarna á sláturfélag í
hlut. í því sambandi er einnig kald-
hæðnislegt að merki Eimskipafélags-
ins skuli vera það sama og swaztika
nasistanna, þótt þau snúi raunar sitt í
hvora áttina.
Okkur var bent á hvar við gætum
fengið glös og drykkjarkönnur. Og
Stjórnleysingi ferst af slysförum
hvert kvöldið á fætur öðru. Síðan var
tilkynnt um bingó og það í Templara-
höllinni. Landlæknir boðaði komu
augnlæknis á einhvern stað 23. ágúst
1981. í því sambandi er ég alveg viss
um að ekkert okkar hefði haldið að
hann ætti við eitthvert annað ár, þótt
ártalinu hefði verið sleppt, en það er
annar handleggur.
Kirkja Betel í Vestmannaeyjum lét
frá sér heyra. Það er kaldhæðnislegt
að betel skuli einnig vera nafn fíkni-
lyfs, betelhnetunnar.
Síðan er fólk enn að deyja „fyrir
hönd vandamanna” ýmiss konar (því
þannig hljóma oft sumar dánartil-
kynningarnar), og hlýtur það að
flokkast undir sérstaka tillitssemi.
Það minnir mig á að samkvæmt
minningargreinum deyja aldrei ann-
að en drengskaparmenn og öðlingar á
íslandi — hvað verður um hina?
Þegar upp var staðið voru tilkynn-
ingarnar fréttirnar, þjóðfélagið og
umheimurinn í hnotskurn.
Þökk fyrir Daglegt mál; Helga J.
Halldórsson og Þorstein ö. Stephen-
sen. Og til hamingju með leikritið,
Björn Bjarman, boðskapur þinn var
réttur og vel fram settur.
-FG
Binari Bit Patterns: Myndmál gert með tölvu og
yfirfært í nýstárlegar myndraðir sem minna á vefnað
og mosíak.
A Child’s Introduction to the Cosmos: Gáskafull
goðsögn um eðli og hegðan alheimsins, unnin með
prentletri og táknmyndum alheimsins.
MOTHER GOOSE: Kaldhæðnisleg útgáfa á
þremur versum úr hinu þekkta bamakvæði þar sem
höfundur beitir raunsæi í stað rómantíkur.
Street Musique: Tilraunamynd sem notar óvenjuleg
stílbrögð í túlkun og fjaliar um hið sigilda þema;
glataða ást.
Le Merle: Myndskreyting á frönsk-kanadísku
þjóðlagi unnin úr tilkUpptum pappír.
Rhinosceros: Hugvitssamleg útgáfa á hinu þekkta
leikriti Ionesco. Myndin er unnin úr tilklipptum
pappir af Pólverjanum Jan Lenica.
Perspectrum: Óhlutbundin geómetrísk mynd þar
sem rúm og form eru mynduð með mismunandi ljós-
verðabrigðum.
The Great Walled City of Xan: Nemendamynd sem
lýsir upphafi og endalokum gleðiborgar í heimi
goðsagna.
KR-dagurinn
verður sunnudaginn 23. ágúst 1981. Þann dag
tileinkum við gamla, góða KR. í tilefni dagsins
verða félagssvæðið og mannvirkin við Frostaskjól
öllum opin. Efnt verður til keppni og leiks í flestum
þeim iþróttagreinum, sem félagið hefur á stefnuskrá
sinni. KR-konur sjá um kaffi- og veitingasölu. Á
boðstólum verða því veitingar í bezta gæðaflokki.
Dagskrá á félagssvæðlnu:
Knattspyma:
Grasvöllur I:
Mót: 6. fl. A
kl. 13.00 KR-Leiknir
13.30 Vikingur-Þróttur
14.00 KR-Víkingur
14.30 Leiknir-Þróttur
15.00 KR-Þróttur
15.30 Leiknir-Víkingur
16.00 4. fl. B KR-Fram
Grasvöllur II
kl. 13.00 6. fl. B KR-Þróttur
kl. 13.30 5.fi. AKR-Fylkir
kl. 14.30 5. fl.BKR-Fylkir
15.304. fl. A KR-Fram
Grasvöllur III
13.00 3. fl. A KR-Breiðab.
14.00 3. fl. B KR-FH
14.30 Heiðursgestir kynntir
KR-Valeringen 1951-1981
KR (Old Boys) Úrval Herm. Gunn.
16.00 Mfl. kv., KR-Víkingur
í stærri íþróttasal:
Handknattleikur:
14.00 5. fl. karla
14.30 3. fl. kvenna
15.00 3. fl. karla.
í minni iþróttasal:
13.30 Karfa
14.00 Badminton
15.00 Fimleikar
15.20 Borðtennis
Reykjavíkurvika
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST
14.00—15.30 Kynning á Bæjarútgerð Reykjavíkur:
Togari við Bakkaskemmu.
14.00—18.30 Kynning á slökkviliðinu:
Slökkvistöðinni við öskjuhlíð.
10.00—18.00 Fiskmarkaður á Lækjartorgi (BÚR)
17.00 Magnús Jónsson óperusöngvari og Skúli
Halldórsson skemmta á Hlemmtorgi.
Kl. 18.00 Félagsmiðstöðin Tónabær opnuð.
21.00—01,00 Unglingadansleikir í Fellahelli,
Bústöðum og Þróttheimum.
21.00 Tónleikar í Árseli: Bara-flokkurinn.
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST
13.30 Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
leikur við Slökkvistöðina. Stjómandi: Ólafur
L. Kristjánsson.
14.00 Fræðslusýning á Slökkvistöðinni.
14.00 Fjölskylduferð í Saltvik frá Árseli. Hestaleiga
— útigrill — fjöruferðir o. fl.
15.00 Útihátíð þroskaheftra við Þróttheima.
13.00—17.00 Siglingar í Nauthólsvik.
15.00 Kynning á Strætisvögnum Reykjavikur á
Kirkjusandi. Nákvæmnisakstur bif-
reiöastjóra SVR á Kirkjusandi.
16.00 Tónleikar í Tónabæ: Bara-flokkurinn.
16.00 Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir þjóðdansa
á Miklatúni.
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST
ÁKjarvalsstöðum:
15.00 Ljóðalestur: Herdís Þorvaldsdóttir og
Gunnar Eyjólfsson. Magnús Pétursson
leikur Reykjavíkurlög á píanó.
15.30 Eríndi um endurbyggingu og viðhald gamalla
húsa á vegum Reykjavíkurborgar: Leifur
Blumenstein.
16.00 Tónleikar: Vísnavinir.
16.45 Sigfús Halldórsson tónskáld og Friðbjöm
Jónsson söngvari skemmta.
17.15 Valtýr Pétursson segir frá kynnum sínum af
Kjarval og Þóra Kristjánsdóttir sýnir verk
hans. (Túlkun á táknmáli).
21.00 Tónleikar á Miklatúni: Messoforte og
Haukur Morthens.
Tónabær opnaöur í dag
Tónabær, hin nýja félagsmiðstöö Reyk-
vikinga.verður opnuð formlega í dag kl. 18. Á
morgun verða tónleikar Baraflokksins í Tónabæ kl.
16. Fulltrúi í Æskulýðsráði er Margrét Bjömsdóttir.
Æskulýðsráð hefur nýlega lagt til við borgaryfirvöld
að næst verði byggð félagsmiðstöð í Breiðholti.
Tónabær verður aðallega nýttur fyrir unglinga-
skólana í kring, fyrir leiksýningar, fyrir kvikmynda-
sýningar, fundi og dansleiki.
AA-samtökin
í dag, föstudag, verða fundir á vegum AA-
samtakanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (91—
12010) græna húsiö kl. 14 21 (opinn
fjölskyldufundur) og lokaður uppi á sama tima.
Tjarnargata 3 rauða húsiö kl. 12 og 21. Hallgríms-
kirkja, byrjendafundur kl. 18. Neskirkja 2. deild kl.
18, Neskirkja kl. 21. Akureyri (96-22373),Geislagata
39, kl. 12. Hellissandur, Hellisbraut 18, kl. 21.
Húsavik, Höfðabrekka 11, kl. 20.30.
Neskaupstaður, Egilsbúð kl. 20. Selfoss (99-1787),
Selfossvegi 9, Sporafund, kl. kl. 20.
í hádeginu á morgun, laugardag, verða fundir
sem hér segir: Tjarnargata5 græna húsið kl. 14 og
11. Akurevri, Gcislagata 39 kl. 11, Keflavík,1
Klapparstíg7 klll, Fáskrúðsfjörður, félagsheimilið
Skrúður kl. 11, Reyðarfjörður, kaupfélagshúsinu,
kl. 11, Selfoss, Selfossvegur 9, kl. 11.
IMýt land
í gær, 20. ágúst, kom út nýtt blað undir nafninu
Nýtt land. Blaöið er 40 síður, heldur minna en
dagbiöðin og kostar það 10 krónur.
60 ára er i dag Pétur Pétursson. Hann
er fæddur 21. ágúst 1921 að Mýrdal í
Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadals-
sýslu, sonur Péturs Péturssonar og
Ólafíu Eyjólfsdóttur. Eiginkona hans
er Hrefna Guðmundsdóttir og er
heimili þeirra að Víðilund 11 Kópa-
vogi.
Bragi og Bjarni ráðnir ritstjórar:
Nýtt kratablað í Reykjavík
— gefið út af fulltrúaráði Alþýðuflokksfélaga
íborginni
Bjarni Guðnason prófessor og Bragi
Jósepsson námsráðgjafi hafa verið
ráðnir ritstjórar nýs blaðs sem fulltrúa-
ráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykavík
ætlar að gefa út. Fyrsta blaðið kemur
út í sept. en óákveðið er um
útgáfutíðni. í blaðinu verður komið á
framfæri efni sem miðast við Reykja-
víkurkjördæmi. Ætlunin er að láta
auglýsingar borga kostnaðinn við
blaðaútgáfuna. Blaðinu verður dreift
ókeypisíhúsíborginni. -ARH.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING NR. 156 - 20. ÁGÚST1981 Ferðamanna- gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadollar 7,601 7,521 8,273
1 Sterlingspund 13,899 13,936 15,330
1 Kanadadollar 6,206 6,223 6,845
1 Dönskkróna 0,9626 0,9652 1,062
1 Norskkróna U199 1,2232 1,345
1 Sœnskkróna 1,4263 1,4301 1J73
1 Finnskt mark 1,6374 1,6418 1,806
1 Franskur franki U871 1,2704 1,397
1 Belg. franki 0,1860 0,1865 0,205
1 Svissn. f ranki 3,4734 3,4836 3,832
1 Hollenzk florina 2,7244 2,7317 3,0048
1 V.-þýzkt mark 3,0237 3,0317 3,3348
1 ftölsk líra 0,00606 0,00608 0,0066
1 Austurr. Sch. 0,4310 0,4321 0,4763
1 Portug. Escudo 0,1137 0,1140 0,1254
1 Spánskur peseti 0,0753 0,0755 0,083
1 Japansktyen 0,03268 0,03277 0,036
1 IrsktDund SDR (sórstök dráttarréttindi) 8/1 11,045 8,4855 11,075 8,5080 12,184
Simsvari vegna gengisskráningar 22190.
s