Dagblaðið - 22.08.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1981.
Skemmtistaösr
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir verður á
staðnum, eins og fyrr leikin lög við allra hæfi. í
Disco-sal er ferðadiskótekið Rocky.
HOLLYWOOD: Villi mættur í diskótekið.
HÓTEL BORG: Diskótekið Dísa.
HÓTEL SAGA: Sögunætur í Súlnasal.
KLÓBBURINN: Hljómsveitin Frílyst og diskótek.
OÐAL: Halldór Ámi situr enn í diskótekinu.
SIGTÚN: Hljómsveitin Demó gefur frá sér góða
tóna.
SNEKKJAN: Dansað í diskótekinu.
ÞÓRSCAFfe: Diskótek á fyrstu hæð, en
hljómsveitin Pónik á annarri hæð.
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótekið
„Rocky”.
HOLLYWOOD: Bögglauppboð frá Karnabæ,
plötukynning og spurningakeppni samfara þeirri
kynningu, einnig verður lesið upp skeyti frá Ibisa.
Villi lætur sig ekki vanta í diskótekið.
HÓTELBORG: Gömlu dansarnir.
HÓTEL SAGA: Skemmtikvöld með Jack Elton á
faraldsfæti.
ÓÐAL: Halldór Árni í diskótekinu kynnir plötu
með hljómsveitinni UB-40.
Ferðafélag íslands
Helgarferðir 21.-23. égúst:
1. Álftavatn á Fjallabaksleið syðri. Síðasta ferðin á
sumrinu. Gist í húsi.
2. Hveravellir-Þjófadalir. Gist i húsi.
3. Landmannalaugar-Eldgjá. Gist i húsi.
4. Þórsmörk. Gist í húsi.
Farmiðasala og upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
Dagsferðir sunnudaginn 23. ágúst:
1. kl. 10 Hrómundartindur-Grafningur. Verð kr.
70.-
2. kl. 13 Sandfell í Grafningi og nágrenni. Verð kr.
50.-
Farið frá Umferðarmiðstööinni, austanmegin.
Farmiðar v/bil.
Dags- og t oldferðir
23. ágúst
kl. 10 Hrómundartin uur — Grafningur.
kl. 13 Sandfell i Grafuingi og nágrenni.
Iþróttir
Opnir kappleikri G.S.Í
21. -23. ágúst
Golfklúbbur Suðurnesja: lcelandic open.
22. ágúst.
Golfkl. Reykjavíkur, Chrysler open, forgj. 12 og
hærri.
22.-23. ágúst
Golfklúbbur Akureyrar: Minningarmót Ingim.
Árnas., 36 holur. Opnun 18 holu vallar.
22.-23. ágúst.
Golfkl. Reykjavikur: Kvennakeppni 12 h
m/ánforgj., 12 holur leiknar hvorn dag. Fannar-
bikar.
Chrysler-Open
Hin árlega Chrysler-keppni, sem er opið mót fyrir
kylfinga með 13 og hærra í forgjöf, fer fram í Graf-
arholti laugardaginn 22. þ.m. og hefst kl. 11.00.
Þátttöku ber að tilkynna í síma 84735 og þátt-
tökugjald verður kr. 50.-
Video VI
Nk. sunnudag þ. 23. þ.m. kl. 13.00 verður 6.
Videómótið haldið í Grafarholti. Sem kunnugt er þá
eru mótin haldin til kaupa á videótækjum. Er nú
svo komið að búið er að kaupa tækið en þá vantar
peninga fyrir sjónvarpstæki. Væntir nefndin þess
að kylfingar fjölmenni í þetta Videomót en 1.
verðlaun í því verða golfpoki frá Dunlop.
Badmintonfélag
Hafnarfjarðar
Æfingar hefjast 1. sept. og verður æft á þriðjud.,
föstud. og laugard. Skráning á velli fer fram í
íþróttahúsinu við Strandgötu föstud. 21. ágúst kl.
19.00 til 20.30 og laugard. 22. ágúst kl. 13.00 til
14.30.
Golf
Laugardaginn 22. ágúst 1981 heldur G.P. Þormar
ökukennari sina árlegu keppni á Golfvellinum Keili
á Hvaleyrarvelli fyrir unglinga lóáraogyngri.
Leiknar verða 18 holur meðog án forgjafar. Auk
þeirra glæsilegu verðlauna, sem myndin sýnir, eru
sérstök verölaun fyrir þann sem verður næst holu á
5. flöt, og rúsínan i pylsuendanum fyrir holu i höggi
á7. flöter bilpróf.
Golfmótið og verðlaunaafhendingin verða
mynduð á videó, en þá hlið málsins tók FACO aö sér
að framkvæma.
Knattspyrnumót
Reykjavík
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST
Árbæjarvöllur
Rm. 5. fl. A Fylkir-Fram kl. 13.
Árbæjarvöllur
Rm. 5. fl. B Fylkir-Fram kl. 14.
KR-völlur
Rm. 5.fi. AKR-ÍRkl. 13.
KR-völlur
Rm. 5. fl. B KR-ÍR kl. 13.
Þrótlarvöllur
Rm. 5 fl. A Þróttur-Valur, kl. 13.
Þróttarvöllui'
Rm. 5. fl. B. Þróttur-Valur kl. 14.
Framvöllur
Rm. 4. fi. A. Fram-Fylkir kl. 13.
Framvöllur
Rm. 4. fl. B Fram-Fylkir kl. 14.15.
Breiðholtsvöllur
Rm. 4 fl. A ÍR-KRkl. 13.
Breiðholtsvöllur
Rm. 4. fl. B ÍR-KR kl. 14.45.
Valsvöllur
Rm. 4. fi. A Valur-Þróttur kl. 13.
Vikingsvöllur
Rm. 4. fi. A Víkingur-Ármann kl. 13.
Ármannsvöllur
Rm. 5. fi. A Ármann-Víkingur kl. 13.
ísafjarðarvöllur
2. deild-ÍBÍ-Völsungur kl. 14.
Laugardalsvöllur
2. deild-Þróttur R.^-Skallgrímur kl. 16.
Sandgerflisvöllur
2. deild-Reynir-Fylkir kl. 14.
Selfossvöllur
2. deild — Selfoss-Haukar kl. 14.00.
Sunnudagur 23.ágúst
2. flokkur Úrslit
3. fiokkur Úrslit.
KR-dagurinn
verður sunnudaginn 23. ágúst 1981. Þann dag
tileinkum við gamla, góða KR. í tilefni dagsins
verða félagssvæöið og mannvirkin við Frostaskjól
öllum opin. Efnt verður til keppni og leiks í flestum
þeim íþróttagreinum, sem félagið hefur á stefnuskrá
sinni. KR-konur sjá um kaffi- og veitingasölu. Á
boðstólum verða því veitingar í bezta gæðaflokki.
Dagskrá á félagssvæflinu:
Knattspyma:
Grasvöllur I:
Mót: 6. fl. A
kl. 13.00 KR-Leiknir
13.30 Víkingur-Þróttur
14.00 KR-Víkingur
14.30 Leiknir-Þróttur
15.00 KR-Þróttur
15.30 Leiknir-Víkingur
16.00 4. fi. B KR-Fram
Grasvöllur II
kl. 13.00 6. fl. B KR-Þróttur
kl. 13.30 5. fl.AKR-Fylkir
kl. 14.30 5. fl.BKR-Fylkir
15.304. fl. A KR-Fram
Grasvöllur III
13.00 3. fi. AKR-Breiðab.
14.00 3. fl. B KR-FH
14.30 Heiðursgestir kynntir
KR-Valeringen 1951-1981
KR (Old Boys) Úrval Herm. Gunn.
16.00 Mfl. kv., KR-Víkingur
í stærri íþróttasal:
Handknattleikur:
14.00 5. fl.karla
14.30 3. fl. kvenna
15.00 3. fl. karla.
Í minni íþróttasal:
13.30 Karfa
14.00 Badminton
15.00 Fimleikar
15.20 Borðtennis
Kvikmyndir
KYNNINGÁ
GRAFISKRI
KVIKMYNDALIST
Graf(skum kvikmynda-
dögum lýkur um helgina
Lokadagur Grafiskra kvikmyndadaga er á
sunnudaginn. Þá verður haldin yfirlitssýning á Kjar-
valsstöðum. Hún hefst klukkan 20.00. Þar verða
sýndar grafiskar kvikmyndir sem hver um sig er
dæmi um mismunandi form listgreinarinnar. Þá
vonast aðstandendur kvikmyndadaganna til þess að
hægt verði að sýna eitthvað af þeim verkum sem
unnin hafa verið á námskeiðunum í Myndlistar-
skólanum. Námskeiðin hafa verið haldin með kvik-
myndakynningum og almennum sýningum.
Eftirtaldar kvikmyndir veröa sýndar á
sunnudagskvöldið:
Circle Near the Intersection of Two Llnes: Mynd í
háðskum tón um algildi.
MINDSCAPE: Frábærlega vel útfærð mynd sem
glímir við hinar flóknu spurningar um skynjun og
veruleika.
REDBALL EXPRESS: Spennandi lestarferð í
gegnum grafiska geiminn. Myndin er unnin við
tónUst hins þekkta lags Orange Blossom Special.
7362: Óhlutbundin athugun á tvíhliða samræmum
og Utameðferð, byggð á myndmáli sem upprunnið er
úr lifandi myndum.
The Thieving Magpie: Einstaklega vel myndskreytt
saga, byggð á munnmæla sögninni um hinn þekkta
þjóf Skaðann. Myndin er eftir ítalska kvikmynda-
geröarmanninn og teiknarann Emanuel Luzzati.
Binari Bit Patterns: Myndmál gert með tölvu og
yfirfært í nýstárlegar myndraðir sem minna á vefnað
ogmosíak.
A Child’s Introduction to the Cosmos: GáskafuU
goðsögn um eðli og hegðan alheimsins, unnin með
prentletri og táknmyndum alheimsins.
MOTHER GOOSE: Kaldhæðnisleg útgáfa á
þremur versum úr hinu þekkta bamakvæði þar sem
höfundur beitir raunsæi í stað rómantikur.
Street Musique: Tilraunamynd sem notar óvenjuleg
stílbrögð í túlkun og fjallar um hið sígilda þema;
glataðaást.
Le Merle: Myndskreyting á frönsk-kanadísku
þjóðlagi unnin úr tilklipptum pappír.
Rhinosceros: Hugvitssamleg útgáfa á hinu þekkta
leikriti Ionesco. Myndin er unnin úr tUklipptum
pappír af Pólverjanum Jan Lenica.
Perspectrum: Óhlutbundin geómetrísk mynd þar
sem rúm og form eru mynduð með mismunandi Ijós-
verðabrigöum.
The Great Walled City of Xan: Nemendamynd sem
lýsir upphafi og endalokum gleðiborgar í heimi
goðsagna.
AA-samtökin
í dag, laugardag, veröa fundir á vegum AA-samtak
’ anna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010),
græna húsiö, kl. 14 og 16 (sporafundur)Tjarnargata
3 (91-16373), rauða húsið, kl. 21, Langholtskirkji
kl. 13, ölduselsskóli Breiðholti kl. 16.
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kvennadeild, kl.
14.00
Akureyri (96-22373) Geislagata 39, kl. 16.00.
Höfn Hornafirði, Miðtún 21, kl. 17.00.
Staðarfell Dalasýslu (93-4290), Staðarfell, kl. 19.00.
Tálknafjörður, Þinghóll, kl. 13.00.
Vestmannaeyjar (98-1140), Heimagata 24, opinn, kl.
17.00.
Á morgun, sunnudag, verða fundir sem hér segir:
Tjarnargata 5, græna húsið, kl. 11, 14, 16 (spora-
fundur) og 21 (framsögumaður). Tjarnargata 3,
rauða húsið, kl. 21.
Akureyri (96-22373), Geislagata 39, kl. 11.00.
ísafjörður, Gúttó við Sólgötu, kl. 14.00.
Kefiavík (92-1800), Klapparsíg 7, kl. 11.00.
Keflavík, ensk spor, kl. 21.00.
Grindavík, barnaskólinn, kl. 14.00.
Grundarfjörður, safnaðarheimili, kl. 17.00.
Egilsstaöir, Furuvellir 10, kl. 17.00.
Fáskrúðsfjörður, félagsheimilið Skrúöur, kl. 11.00.
Reyðarfjöröur, kaupfélagshúsið, kl. 11.00.
Selfoss (99-1787), Selfossvegur 9, kl.,11.00.
Staðarfell, Dalasýsla (93-4290), Staðarfell, kl. 21.00.
Vopnafjörður, Heimabyggð4,.kl. 16.00.
Keppnin um
Fannarsbikarinn
sem er opin kvennakeppni, mun fara fram í Grafar-
holti 22.-23. og 29.-30. ágúst. Leiknar verða 48
holur með „eclectic” fyrirkomulagi, þ.e. 12 holur á
dag, en aðeins 24 holur telja. Leikiö er með 5/6 for-
gjöf. Dæmi: Ef einhver konan fer 1. holuna á 6
höggum á 1. degi, þá reynir hún að leika hana
færri höggum á 2. degi til að lækka heildarekor sína.
Sama gildir um 3. og 4. dag, að konumar eiga að
reyna að bæta skor 3. dags á síðasta degi. 1. og 2.
dag verða holur 1—10 og 17—18 leiknar en á 3.-4.
degi holur 1—3 og 10—18.
Verölaun verða einstaklega glæsileg, eða sem hér
segir:
1. verðlaun:
a) Skargripur frá Hönnu og Vali Fannar.
b) Tannlæknaþjónustu að upphæð kr. 1.000.- frá
Halldóri Fannar.
c) Verðlaunapeningur.
2. verðlaun:
a) Skartgripur fráHönnuog Vali Fannar.
b) Vöruúttekt frá verzl. Strætinu eða Þór Fannar að
upphæð kr. 1.000.-
c) Verðlaunapeningur.
3. verðlaun:
a) SkartgripurfráHönnuogValiFannar
b) Verðlaunapeningur.
Þátttöku ber aö tilkynna í Grafarholti i síma
84735. Þátttökugjald er kr. 70,- Ræsing hefst
tímanlega hvern dag kl. 9.00.
Bangsimon týndur
Bangsimon tapaðist í Hlíðunum fyrir viku síöan,
þegar hann var þar í pössun. Bangsimon á heima í
vesturbænum, hann er með annaö eyrað klofið.
Finnandi vinsamlega hringi I síma 28754.
Sigling um
Karabiska hafið
Amerísk hjón frá Florida, Mr. and Mrs. Jonathan
Harris, 30 ára gömul, bjóða tveimur íslenzkum
stúlkum á aldrinum 18—33 ára í 6 mánaða siglingu
um Karabíska hafið frá nóvember til apríl nk.
Viðkomandi stúlkur þurfa að tala góða ensku, hafa
áhuga á siglingum og/eða kunna til þeirra hluta,
auk þess er ætlazt til að hjálpað sé við eldamennsku
um borð.
Skútan sem siglt er á er 47 feta löng (um 15 m).
Farið verðurtil Ðahama, Virgin Islands, Antiqua,
Martinique og víðar.
Allar nánari upplýsingar veitir Jonathan Harris
að Hótel Heklu í síma 28866.
Reykjavíkurvika
LAÚGARDAGUR 22. ÁGÚST
13.30 Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
leikur viö Slökkvistöðina. Stjórnandi: ólafur
L. Kristjánsson.
14.00 Fræðslusýning á Slökkvistöðinni.
14.00 Fjölskylduferð í Saltvík frá Árseli. Hestaleiga
— útigrill — fjöruferðir o. fi.
15.00 Útihátíð þroskaheftra við Þróttheima.
13.00—17.00 Siglingar í Nauthólsvík.
15.00 Kynning á Strætisvögnum Reykjavíkur á
Kirkjusandi. Nákvæmnisakstur bif-
reiðastjóra SVR á Kirkjusandi.
16.00 Tónleikar í Tónabæ: Bara-flokkurinn.
16.00 Þjóðdansafélag Reykjavíkur sýnir þjóðdansa
á Miklatúni.
SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST
ÁKjarvalsstöðum:
15.00 Ljóðalestur: Herdis Þorvaldsdóttir og
Gunnar Eyjólfsson. Magnús Pétursson
leikur Reykjavikurlög á píanó.
15.30 Erindi um endurbyggingu og viðhald gamalla
húsa á vegum Reykjavíkurborgar: Leifur
Blumenstein.
16.00 Tónleikar: Vísnavinir.
16.45 Sigfús Halldórsson tónskáld og Friðbjöm
Jónsson söngvari skemmta.
17.15 Valtýr Pétursson segir frá kynnum sínum af
Kjarval og Þóra Kristjánsdóttir sýnir verk
hans. (Túlkun á táknmáli).
21.00 Tónleikar á Miklatúni: Messoforte og
Haukur Morthens.
Hreiðrið stœkkar
Húsgagnaverzlunin Hreiörið hefur stækkaö
verzlunina að Smiðjuvegi 10 Kópavogi. Er það gert í
þeim tilgangi að auka úrvalið af þeim húsgögnum
sem verzlunin hefur á boðstólum, en það eru aðal-
lega rúm, einstaklings- og hjónarúm, ásamt ýmsu
öðru, svo sem vegghillusamstæðum, speglasettum,
kommóðum, skrifborðum, stereobekkjum, o. fi.
Stækkun verzlunarinnar nemur um 62 fermetrum
og er þá heildarflötur hennar um 250 fermetrar.
Eigandi Hreiðursins er Finnur Magnússon.
Myndin sýnir hluta stækkunarinnar. Á myndini er
starfsstúlka fyrirtækisins Jóna Lúðvíksdóttir.
Námskeið í skyndihjálp
Rauða-krossdeild Kópavogs gefur bæjarbúum og
öðrum sem hafa áhuga kost á námkeiði I almennri
skyndihjálp.
Námskeiðið verður í Víghólaskóla og hefst
mánudaginn 24. ágúst kl. 20.00. Það verður 5 kvöld,
samtals 12 tímar. Þátttaka tilkynnist I síma 41382 kl.
15—18 þann 23. ágúst.
Á námskeiðinu verður reynt að veita sem mesta
verklega þjálfun með raunhæfum verkefnum.
Einnig verða sýndar kvikmyndir um almenna
skyndihjálp og blástursaðferðina.
Iceland Road Guide
— vegahandbók á ensku.
Bókaútgáfan örn og örlygur hf. hefur nú sent
frá sér bókina: Iceland road guide og er þar um að
ræða ensku útgáfu hinnar vinsælu Vegahandbókar,
en ný útgáfa þeirrar bókar kom út á íslandi fyrir
nokkrum vikum.
í ensku útgáfunni er að finna kort af öllu
vegakerfi landsins ásamt upplýsingum um leiðir og
merkisstaði. Þá eru einnig í bókinni kaflar þar sem
einstökum stöðum er lýst ítarlega, auk þess sem í
bókinni eru gatnakort af öllum kaupstöðum
landsins.
Ristjóri Iceland Road Guide er örlygur Hálf-
dánarson en höfundur texta er Steindór Steindórs-
son frá Hlöðum. Umsjón með kortavinnslu í bókina
haföi Jakob Hálfdánarson en þýðing texta á ensku
er eftir þá Einar Guðjohnsen og Pétur Kidson
Karlson.
Iceland Road Guide er sett, prentuö og bundin í
Pretsmiðjunni Odda.
Staðarfellskirkja
Á þessu ári eru liðin 90 ár frá því að Staðarfells-
kirkja á Fellsströnd í Dalasýslu var vígð en vigsla
hennar fór fram síðla árs 1891.
Afmælisins verður minnzt með hátíðar-
guðsþjónutu í kirkjunni sunnudaginn 23. ágúst
nk. kl. 2 e.h. Þar mun biskupinn, hr. Sigurbjörn
Einarsson, prédika og sóknarpresturinn, sr. Ingiberg
J. Hannesson, prófastur á Hvoli, þjóna fyrir altari.
Að guðsþjónustu lokinni verða veitingar fram
bomar í samkomuhúsinu á Staðarfelli í boði
sóknamefndar. Þar mun Einar G. Pétursson cand.
mag. segja sögu kirkjunnar.
Er vonazt til þess að sóknarfólk fjölmenni við
þessa athöfn og að brottfluttir Fellsstrendingar og
aðrir velunnarar kirkjunnar sjái sér fært að koma og
eiga góða stund i sinni gömlu og kæm kirkju.
í tilefni afmælisins hefur veriö gefinn út
veggskjöldur með mynd af kirkjunni i 400
tölusettum eintökum og verður hægt að fá hann
keyptan þennan dag — og framvegis meðan birgðir
endast.
Allmiklar umbætur hafa að undanförnu farið
fram á kirkjunni og umhverfi hennar og er þess
vænzt að þeim verði senn lokið.
Biblíuhátíð
á Kjarvalsstöðum í tilefni nýrrar biblíuútgáfu kl. 14
laugardaginn 22. ágúst 1981.
DAGSKRÁ
1. Ungt fólk leikur nokkur lög frá ýmsum tímum.
2. Biskup flytur ávarp og afhendir forseta íslands
eintak hinnar nýju Bibiiu.
3. Marta Guðrún Halldórsdóttir, Hildigunnur
Halldórsdóttir og Hildigunnur Rúnarsdóttir syngja
nokkur lög.
4. Kirkjumálaráðherra fiytur ávarp.
5. Hannes Pétursson les stutta kafla úr Bibliunni.
6. Úr Ðibliuljóðum (Davíðssálmar) eftir Dvorak.
Flytjendur: Halldór Vilhelmsson og Gústaf
Jóhannesson.
7. Hermann Þorsteinsson flytur lokaorð.
8. Almennur söngur:
Þitt orð er, Guð, vort erfflafé,
þann arf vér beztan fengum.
Oss liflnum veil til lofs þafl sé,
afl Ijós vifl þess vérgengum.
Það hreystir hug í neyfl,
þafl huggar sál í deyfl.
Lát börn vor eftir oss
þafl erfa blessað hnoss.
Ó, gef það glatist engum. (Sb. 300).
Úr bókasafni Bibliufélagsins verða til sýnis á
Kjarvalsstöðum allar 10 frumútgáfur íslenzku
Biblíunnar. Á sérstökum bókavögnum verður
Biblían 1981 til sýnis og sölu í 7 tilbrigðum lita og
bands.
Fiskiskipaflotinn
í Vestmannaeyjum
Frá 22.—30. ágúst stendur yfir ljósmyndasýning við
Túngötu. Þar eru 300—350 myndir af vélbátum og
skipum allt frá upphafi útgerðar í Vestmannaeyjum.
Myndirnar tók Jón Bjömsson Vestmannaeyingur og
er sýningin opin um helgar frá kl. 14—22, en virka
daga frá kl. 18—22.
Til sýnis gömul hús
Nýlega hlaut húsið Tjamargata 33 viðurkenningu
umhverfismálaráðs Reykjavíkur fyrir vel gerðar
endurbætur á gömlu húsi. Eiga borgarbúar kost á að
skoða það ásamt tveimur öðrum húsum sem gert
hefur verið við á vegum Reykjavikurborgar, þ.e.
húsin Tjarnargötu 20 og ,,Líkn” í Arbæjarsafni,
áður Kirkustræti 12.
Húsin í Tjarnargötu verða opin sunnudaginn 23.
ágúst frá kl. 13—15. Leifur Blumenstein byggingar-
fræðingur flytur erindi um viðgerðir og endurbygg-
ingu gamalla húsa í eigu Reykjavíkurborgar á Kjar-
valsstöðum kl. 15.30. Húsið „LUcn” verður opið á
sunnudaginn á sama tima og safnið frá kl. 13.30 til
kl. 18.00.
Laugardaginn 18.4.1981 voru gefin
saman í hjónaband Þorsteinn Högna-
son og Helga Siguröardóttir. Þau
voru gefin saman af sera Þóri
Stephensen í Dómkirkjunni.
Laugardaginn 16. maí voru gefin
,saman í hjónaband John Johnson og
Katrin Gunnarsdóttir. Þau voru gefin
saman af séra Ólafi Skúlasyni í
Bústaðakirkju. Heimili ungu hjónanna
er í Los Angeles, Calif. USA.
Ljósmynd MATS.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
Susan Black og Hafsteinn Linnet.
Þau voru efin saman af séra Bernharði
Guðmundssyni í Fríkirkjunni í Hafnar-
firði. Heimiii ungu hjónanna er að
Hjallabraut 25 Hafnarfirði.
Ljósmynd MATS.
GENGIÐ
GENGISSKRÁIMING Ferflamanna-
NR.1S6-20. ÁGÚST1981 gjaldeyrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,501 7,521 8,273
1 Sterlingspund 13,899 13,936 15,330
1 Kanadadollar 6,208 6,223 6,845
1 Dönsk króna 0,9J26 0,9652 1,062
1 Norsk króna U199 1,2232 1,345
1 Sœnsk króna 1,4263 1,4301 1,573
1 Finnsktmark 1,6374 1,6418 1,806
1 Franskur franki 1,2671 1,2704 U97
1 Belg. franki 0,1860 0,1865 0,205
1 Svissn. franki 3,4734 3,4836 3,832
1 Hollanzk florina 2,7244 2,7317 3,0048
1 V.-þýzkt mark 3,0237 3,0317 3,3348
1 ítölsk líra 0,00606 0,00608 0,0066
1 Austurr. Sch. 0,4310 0,4321 0,4753
1 Portug. Escudo 0,1137 0,1140 0,1254
1 Spánskur peseti 0,0753 0,0755 0,083
1 Japanskt yon 0,03268 0,03277 0,036
1 frsktDund 11,045 11,075 12,184
SDR (sórstök dróttarróttindi) 8/1 8,4855 8,5080
Simsvari vagna gengisskróningar 22190.