Dagblaðið - 27.08.1981, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Gaddafi leiðtogi Libýumanna heilsar Zaid Bin Sultan forseta arabisku fursta-
dæmanna. Af fundi hans hélt Gaddafi til Sýrlands.
Gaddafi og Assad
ræða um „hættuna
af Camp David”
Gaddafi leiðtogi Líbýumanna og
Hafez A1 Assad forseti Sýrlands
höfuðandstæðingar Camp David-
samkomulags Ísraels og Egyptalands,
komu saman til fundar í Damaskus i
gaer.
Fundur þeirra er haldinn á sama
tíma og fundur þeirra Begins og
Sadats í Alexandríu um sjálfstjórnar-
mál Palestínumanna.
Gaddafi og Assad ræddu um
hvernig bregðast ætti við því sem
talsmaður Sýrlandsforseta kaUaði
„hættuna af áætlunum Camp David
samkomulagsins”.
Frelsissamtök Palestínuaraba,
PLO, ítrekuðu í gær þau myndu ekki
eiga aðild að sjálfstjórnarviðræðun-
um og talsmaður samtakanna í Beirút
sagðist gera sér vonir um að enginn
Palestinumaður tæki þátt í
viðræðunum.
RÓMANTÍK OG
STUTTBUXUR
Koss á hönd kvenna og Bermúda-
buxur eru nú efst á blaöi í heimi tízk-
unnar. Það fyrmefnda má þakka KarU
Bretaprinsi, það síðarnefnda nýbak-
aðri eiginkonu hans, Díönu, en hún
sást klædd slíkum buxum á brúðkaups-
ferð þeirra hjóna um Miðjarðarhafið.
Fatnaður prinsessunnar hefur hleypt
nýju lifi í brezkan fataiðnað og hafa
verksmiðjur vart undan að framleiða
eftirlíkingar. Sjálf kveðst hún harð-
ánægð með Ufið en þau hjón eyða nú
leyfisdögum í Balmoralkastala í Skot-
landi.
Enn á ný ágreiningur í Póllandi:
Læt ekki stöðva
fjölmiðlana á ný
—segir Kania formaður pólska Kommúnistaflokksins
Prentarar í Olsztyn sem verið hafa
í verkfaUi í rúma viku tUkynntu í gær
að starfsbræður þeirra víða um land
myndu fara í samúðarverkfaU ef ekki
yrði gengið að kröfum prentaranna í
Olsztyn. ' Stjóm Einingar hefur
skorað á prentarana að snúa aftur til
vinnu en þeir hafa lýst því að þeir
muni ekki sinna þeim óskum.
Lech Walesa leiðtogi Einingar
kvartaði enn á ný undan áróðursher-
ferð stjórnvalda á hendur Einingu.
Hin opinbera fréttastofa PAP
svaraði því tU að Eining virtist ekki
gera sér grein fyrir því að Eining
hefði sjálf hafið áróðursstríð gegn
stjómvöldum.
—Ðning hótar nýju prentaraverkfalli
Enn á ný stefnir í átök Einingar,
samtaka hinna óháðu verkalýðs-
félaga, og stjórnvalda í Póllandi.
Viðræðum þessara aðila verður
haldið áfram í dag en þær snúast um
þá kröfu Einingar að fá aukinn
aðgang að fjölmiðlum.
Eining hefur hótað að boða til nýs
prentaraverkfaUs til að leggja áherzlu
ákröfur sínar.
Kania formaður pólska Kommún-
istaflokksins virðist hins vegar stað-
ráðinn í þvi að láta sUkt verkfaU ekki
endurtaka sig. Hann sagði í ræðu
sem útvarpað var í gær að hann
myndi ekki láta það viðgangast að
þaggað yrði niður í fjölmiðlunum.
Hann varaði einnig við afleiðingum
mótmælagangna og sagði að þær
myndu leiða tU sprengingar.
Kania formaður.
Alls hafa nú tfu fangar litizt af völdum mótmælasveltis I Maze-fangelsinu á Norður-írlandi og ekki er enn nein lausn I sjón-
máli á deilum þeirra við brezk stjórnvöld. Fangarnir hafa sem kunnugt er krafizt mjög bætts aðbúnaðar i fangelsinu en brezk
yfirvöld hafa itrekað lýst þvi yfir að þau geti ekki fallizt á kröfur fanganna. Þeir séu ekki pólitfskir fangar heldur glæpamenn.
Myndin var tekin f Belfast er fréttist um dauða Michael Devines á dögunum. Hann var tiundi fanginn sem lét Iffið f Maze og
eins og jafnan áður kom til mikilla óeirða á Norður-írlandi eftir að fréttist um dauða hans og eldar loguðu vfða.
Viðræðum Egypta og ísraelsmanna haldið áf ram:
Mikill ágreining-
ur viðræðuaðila
Egyptar og tsraelsmenn hafa
ákveðið aö halda áfram umræðum
um að ísraelsmenn yfirgefi Sinai-
skaga þrátt fyrir mikinn ágreining á
milli aðila. Þetta fylgir i kjölfar
ákvarðanar þeirra Anwars Sadats
forseta Egyptalands og Menachem
Begins forsætisráðherra ísrael um að
taka aftur upp samningaviðræður
um sjálfstjórn Palestínumanna, en
slikar viðræður hafa legið niðri síðan
í maí. Israelsmenn hafa þegar gefið
eftir tvo þriðju hluta Sinaískagans
sem þeir hertóku 1967. Áætlað er að
fela afganginn Egyptum til eftirlits
við samningalok i apríl.
. Þær viðræður sem nú halda áfram
undir stjórn Kamal Hassan Ali utan-
ríkisráðherra Egypta og Ariel Sharon
vamarmálaráðherra ísrael ganga þó
stirðlega. Egyptar hafa neitað boði
ísraelsmanna um búðir alþjóðlegra
friðargæzluhluta á norður og suður-
hluta skagans og ísraelsmenn ásaka
Egypta fyrir hálfvelgju i afstöðu
sinni til menningar- og viðskipta-
mála.
SKOLARITVÉLAR
SKRIFSTOFUTÆKNI HF
ÁRMÚLA 38.105 RE'fKJAVIK. ICELAND.
SÍMI85455. RO. BOX 272.