Dagblaðið - 27.08.1981, Side 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1981.
(«1 Erlent Erlent Ertent Erlent ■B)
■ 1
GUNNLAUGUR
A. JÚNSSON
I
REUTER
i
FærKekkonen
friðarverðlaun
Nóbels?
Finnsk blöð hafa skýrt frá því að
Tage Erlander, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, leggi til að Kekk-
onen Finnlandsforseti fái friðarverð-
laun Nóbels við næstu úthlutun. En
eins og öllum landsmönnum mun
kunnugt leitar Kekkonen einmitt síns
einkafriðar helzt við laxveiðar á íslandi
svo kannski má segja að við höfum
þannig á óbeinan hátt stuðlað að aukn-
um friði I heiminum. Fastlega er
reiknað með því að Kekkonen láti af
embætti sem forseti Finnlands alveg á
næstunni og eru þegar uppi miklar
vangaveltur í Finnlandi um hver sé lík-
legastur eftirmaður hans. Koivisto for-
sætisráðherra er einkum nefndur í því
sambandi.
Herlið Suður-Af ríku enn þá í Angóla:
Angólamenn krefjast
fundar Öryggisráðsins
—átökin hafa magnazt síðastliðinn sólarhring
Angóla hefur krafizt þess að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna verði
kallað saman þegar í stað til fundar
vegna innrásar hersveita Suður-
Afríku i Angóla.
Jose Eduardo dos Santos forseti
Angóla hefur jafnframt krafizt þess
að hersveitir Suður-Afríku verði
þegar í stað og án skilyrða á brott úr
Angóla. Að sögn angólsku fréttastof-
unnar Angop hefur ástandið versnað
mjög á síðastliðnum sólarhring og
átökin magnazt.
Stjórn Angóla segir að tvær skrið-
drekasveitir Suður-Afríku hafi ráðizt
inn yfir landamæri Namibíu (Suð-
vestur-Afríku) á mánudag og stefnt í
átt að höfuðborginni Lubango, sem
er um 300 kílómetra frá landa-
mærunum.
Stjóm Angóla hefur skipað her
sínum að berjast gegn innrásarliðinu.
P.W. Botha forsætisráðherra
Suður-Afríku viðurkenndi í gær að
hersveitir Suður-Afríku berðust nú í
Angóla en sagði jafnframt aö fréttir
af atburðum þar væru „stórlega
ýktar”.
Hann sagði þinginu að suður-
afrískar hersveitir hefðu lent í
átökum við herlið Angóla er
skæruliðasveitum SWAPO var veitt
eftirför inn í Angóla. SWAPO-hreyf-
ingin hefur þrásinnis gert árásir inn i
Namibíu frá bækistöðvum sínum í
Angóla.
í orðsendingu forseta Angóla til
Kurt Waldheims* framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna óskar hann
eftir því að gripið verði til aðgerða
sem komi í veg fyrir meiri og alvar-
legri átök.
'iaM
Suður-Afrikumenn réðust með skriðdrekum inn f Angóla og voru skriðdrekarnir
dyggilega studdir af suöur-afriskum orrustuþotum.
TVö tonn af hassi
til Noröurianda
Um síðustu helgi komust franskir
tollverðir yfir tæplega tvö tonn af hassi
að verðmæti 47 milljóna norskra
króna.
Farmurinn fannst um borð i
skemmtiferðabát sem rekið hafði af
leið. Báturinn var á leið til Norður-
Evrópu og bendir margt til þess að
Norðurlöndin hafi verið ætluð sem
markaður fyrir þetta umfangsmikla
hasssmygl, eitt það mesta í sög-
unni.
Hassið kemur frá Marokkó en hefur
verið smyglað um borð í bátinn
einhvers staðar við Miðjarðarhafið.
FerðVoyagerll:
BILUNIN HEFUR
VERIÐ LAGFÆRÐ
Vísindamenn við geimvísindastöðina
í Pasadena vonast nú til að tekizt hafi
að gera við bilun á myndavélakerfi
geimfarsins Voyager sem vart varð við
á leið þess kringum Satúrnus. Tals-
maður stöðvarinnar sagði fréttamönn-
um að líklegt væri að geimfarið hefði
rekizt á íshröngla um leið og það fór í
gegnum yztu hringi Satúrnusar. Það
tók Voyager fjögur ár að komast til
Satúmusar og áætlað er að ferð þess til
næsta áfangastaðar, Úranusar, taki ári
betur.
Kosningabaráttan f Noregi harðnar nú dag fri degi enda ekki nema rúmur hálfur
mánuður f þingkosningarnar. Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra hefur að
undanförnu ferðazt um Noreg þveran og endilangan til að reyna aö afla flokki sfnum
Verkamannaflokknum, aukins fylgis. Skoðanakannanir sýna þó að flokkur hennar á
mjög f vök að verjast fyrir Hægrí flokknum undir forystu Kare Willoch. Lfklegt þykir
að hann verði forsætisráðherra ef stjórn Verkamannaflokksins heldur ekki veíli. Á
myndinni hér að ofan stfgur Brundtland forsætisráðherra léttan dans við blaðamann
norska Dagblaðsins.
reg. 14
Stærðir 37-40
Núkr. 49,95
Teg. 610
Stærðir 36-41
Núkr. 49,95
Teg.83
Stærðir 36—
Núkr. 49,95
Teg.29t».
Stærðir 36—41
Núkr. 49,95
Teg.26
Stærðir38—41
Núkr. 49,95
Teg. 1150
Stærðir36—40
Núkr. 49,95
Teg.2800
Stærðir39,40og 4i
Núkr. 49,95
Teg. 3413
Stærðir 37-41
Núkr. 49,95
Teg.124
Loðfóðruð með
hrágúmmisóla
Stærðir 36 og 37
Núkr. 49,95
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti8 vAusturvöll — Sími 14181