Dagblaðið - 14.09.1981, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
2
Umbréf Lárusar:
„Þetta segir hann
nú bara af eintómri
öfundsýki”
Garri skrifar frá Noregi:
Mánudaginn þann 17. ágúst kom
lesendabréf eftir Lárus nokkurn.
Lárus sagðist vera lítið hrifinn af hve
blaðamenn DB skrifuðu lítið um
hljómsveitina Þey. Ennfremur sagði
Lárus þessi að litið vit væri i músík-
skrifum DB yfirleitt.
Þarna er nokkuð stórt til orða
tekið, fmnst mér, því poppfréttir DB
eru eins og gengur og gerist hjá
öðrum blöðum.
í Dagblaðinu koma nú oft fréttir af
strákunum úr Þey, en ef Lárus og
hans likar fengju að ráða þá ætti
blaðið að vera yfirfullt af efni um
Þey og Killing Joke. Hins vegar eru
nú til fleiri tónlistarmenn og öllum
þarf að gera til hæfis.
Lárus segir einnig að Þeyr sé bezta
hljómsveitin, tæknilega og músíklega
séð, sem við íslendingar höfum
eignazt. Það er örugglega mikið til i
því (sjálfur er ég aðdáandi grúppunn-
ar), en mér leiðist þegar strákamir
eru að berjast við að vera frumlegri
en aðrar grúppur.
Ef það er rétt, sem SSv. skrifaði um
hljómleika Þeys í Háskólabíói, að
hljómsveitin væri orðin allt of keim-
lik Killing Joke, þá fmnst mér mesti
frumleikinn vera runninn af þeim,
þótt þeir hafi skipað sér sess í hópi
virtra hljómsveita.
Mér finnst að Þeyr ætti að halda
sig á svipaðri línu eins og á plötu
sinni, Þagað í hel, þótt auðvitað sé
ekki þar með sagt að þeir eigi að
staðna.
Einnig kallar Lárus meðlimi
Purrks Pillnikks kjaftagleiða og segir
að þeir hafi fengið stórt viðtal í DB.
Þetta segir hann nú bara af eintómri
öfundsýki. og hefði þagað ef Þeyr
hefði átt hlut að máli.
Láms spyr líka, greinilega í mikilli
örvpentingu, hvert hljómsveitin Þeyr
stefni. Af hverju setur hann sig ekki
bara í samband við einhvern meölima
Þeys? Þá fengi hann örugglega svar.
Lárus spyr hvað þið ætlið að gera,
þegar næsta sólóplata Bubba
Morthens verði gefin út, „gefa út
helgarblað”? Lárusi finnst Bubbi og
félagar fá meira pláss í DB en Þeyr.
Ætlast hann til þess að Þeyr fái alla
athygli?
Lárus segir að sér finnist hljómsveitin Þeyr eiga að „halda sig á svipaðri Unu eins
og á plötu sinni, Þagað i hel”.
DB-mynd Sig. Þorri.
Tannlæknar:
Orsökuðu vinnu-
svik tanneitrun?
v
Daihatsu Charmant station árg. ’79.
Litur blásanseraður. Ekinn 27 þús.
km. (Jtvarp. Verð: kr. 72. þús.
Bí/amarkaðurínn
-18-Sími25252
rl2ÍK m
Range Rover árg. ’78. Drapplitaður,
fallegur biU, ekinn 40 þús. km. Verð:
kr. 220 þús. Skipti möguleg á ódýrari
bil.
VW Passat árg. *74, hvitur, nýleg vél.
Góður bfll. Verð: kr. 35 þús.
Lada Sport árg. ’79, grænn, ekinn
aðeins 26 þús. km. Verð: kr. 78 þús.
Wagoneer Custom árg. ’76, grænn, 8
cyl., m/öllu, (Kvadratrack o.fl.).
Styrktur. Verð: kr. 100 þús.
Peugeot 504 station árg. ’78, grænn,
ekinn 72 þús. km. Sæti fyrir 7 manns.
Verð: kr. 90 þús.
Honda Civic árg. ’81, brúnsanseraður
5 dyra, ekinn 7 þús. km, sjálfskiptur.
Verð. kr. 92þús.
ar
KS
levrolet Camaro coupé árg. ’75,
irtur, 8 cyl., m/öllu, ný vél o.fl.
Jleeur bill. Verð: kr. 88 þús.
Mazda 323 (1300) 1978, silfurgrár, 5
dyra, ekinn aðeins 42 þús. km. Vel
með farinn bill. Verð kr. 65 þús.
Buick Skylark Sedan árg. ’80, siifur-
grár, ekinn aðeins 3 þús. km, 6 cyl.,
beinsk. (4ra gira). Verð: kr. 185 þús.
Dodge Aspen station árg. ’76, gul-
brúnn, ekinn 44 þús. km, 6 cyl.,
sjálfsk., aflstýri, útvarp. Góður bill.
Verð: 80 þús. kr.
Blazer dísil árg. ’74, gulur, Bedford 6
cyl., (ekinn 20 þús. km,), 4ra gíra,
beinsk., aflstýri og -bremsur. Verð: kr.
90þús.
Wlllys Golden Eagle árg. ’74, Litur,
brúnsanseraður, Ekinn 67 þús. km.
Vél 306 8 cyl. Útvarp, segulband,
breið dekk, rafmagnsspil, splittað drif
framan og aftan. Verð: 85 þús. Skipti
Ath.
Cherokee Jeep árg. ’74, orunsans-
eraður, sjálfsk., 8 cyl., aflstýri, útvarp,
álfelgur. Ekinn: 53 þús. km. Verð: kr.
65 þús.
Ford Cortina 1300 árg. ’79, hvftur,
ekinn aðeins 24 þús. km. Verð: kr. 85
þús. Ýmis sldpti möguleg.
BMW 518 árg. 77. Litun vlnrauður.
Ekinn 77 þús. km. Þaklúga, útvarp,
segulband. Verð: kr.95þús.
ibaru station 4X4 árg. 77. Litur
uður. Ekinn 82 þús. km. Verð kr. 54
Bronco 74. Litur grænn, vél: 8 cyl„
sjálfsk., m/öllu. Verð: kr. 75 þús.
Chevrolet Malibu Classic árg. 78.
Litur brúnn. Ekinn 24 þús. km. 8 cyl.,
sjáifsk., aflstýri, útvarp. Verð: kr. 120
þús
Volvo 244 G.L. árg. ’81, brúnsanser-
aður, beinsk., m/vökvastýri, ekinn 14
þús. km. Verð: kr. 150 þús.
Mazda 626 1600 árg. ’80, bronz-
brúnn, ekinn 12 þús. km, útvarp. Verö:
85 þús. kr.
\ — þjóðfélagið „hefur
ekki ef ni á að líða
svona vinnubrögð”
Ó.S.S. skrifar frá Bandarikjunum:
Ég var að lesa Dagblaðið frá 4.
ágúst og rakst á greinar um tann-
lækna. Ég ætla að bæta gráu ofan á
svart. Það á að gera tannlækna
ábyrga gerða sinna.
Fyrir 16—20 mánuðum lét ég yfir-
fara og gera við allar tennur tveggja
barná minna heima á íslandi. Fyrir
þetta greiddu tryggingarnar yfir
300.000 gkr. Hélt ég nú að börnin
þyrftu ekki að fara til tannlæknis á
næstunni.
Raunin varð samt önnur því hálfu
ári síðar datt fylling cg önnur fylgdi í
kjölfarið skömmu á eftir. Lét ég gera
við þetta strax. Ekki er sögunni lokið
enn því ári síðar fékk annað barnið
tanneitrun og var mesta mildi að það
missti ekki l/4af tönnunum.
Það var sagt stafa af vinnubrögð-
um fyrri tannlæknis; lélegar fyllingar
og illa hreinsað áður en þær voru
settar í. Sem sagt vinnusvik.
Það hefur þegar kostað okkur yfir
600$ að lagfæra þetta, eða um það
bii 5000 nýjar krónur, og er þessu
samtekkilokiðenn.
Svari óska ég ekki eftir þvi það
yrði lagað eftir aðstæðum eins og
þessi stétt temur sér, en ég skrifa
þetta öðrum til aðvörunar. Ef nú er
verið að vinna að nýjum samningum
milli Tryggingastofnunar og þessara
manna þá er ástæða til þess að sjá um
að þeir verði gerðir ábyrgir gerða eins
ogþeirra erégheflýst.
Okkar litla þjóðfélag hefur ekki
efni á að líða svona vinnubrögð.
Raddir
lesenda