Dagblaðið - 14.09.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
9
G
D
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
REUTER
i
Málgagn Sadats Egyptalandsforseta skýrirfrá samsæri:
JÓHANNA í
Begin, forsætisráðherra ísraels, sem
að undanförnu hefur átt einkar frið-
samlegar viðræður við Reagan Banda-
ríkjaforseta 1 Washington um sam-
eiginlegar hernaðarráðstafanir til varn-
ar Miðausturlöndum, fékk heldur
óblíðar móttökur á flugvellinum í New
York.
Höfðu strangtrúaðir, amerískir gyð-
ingar safnazt þar saman til að mót-
mæla fornleifauppgreftri 1 Jerúsalem,
en eins og blaðið hefur skýrt frá standa
miklar deilur um uppgröft þennan 1
ísrael á milli vísindamanna og strang-
trúaðra, sem álíta staðinn friðhelgan.
Arabar í Jerúsalem hafa einnig mót-
mælt uppgreftrinum.
Um 1000 Gyðingar voru mættir á
flugvellinum vopnaðir hátölurum og
æptu þeir slagorð að forsætisráðherr-
anum gegn ofsóknum á hendur Zíonist-
um og hrottaskap israelskrar lögreglu.
Einnig var deilt út bæklingi þar sem
Begin var gagnrýndur harðlega.
í bæklingnum stóð m.a. að rétttrú-
aðir gyðingar vildu á þennan hátt sýna
að þeir eigi ekkert sameiginlegt með
hinni heiðnu zionistastjórn 1 ísrael og
illvirkjum hennar.
«eGWf
wsriim
7**®S OfOU!
JlCLyiN *
ST6I> zuwisr s^zJmsr
OESeCRATIOh OeseCRA r,ay
or J'iW/SH KMSH JeL, .
Begin fær óblíðar móttökur í New York:
Uppgröfturínn
óvinsæll
Kanada:
FORELDRAR
FYRIR RÉn
Foreldrar tólf ára telpu, sem bæði
tilheyra Vottum Jehóva, hafa verið
sýknuð af þeirri ákæru að hafa valdið
dauða hennar. Foreldrarnir sem búa í
Ontaríó, Kanada, neituðu læknum um
leyfi til að gefa henni blóð en telpan
þjáðist af blóðleysi.
Einnig var prestur safnaðarins sýkn-
aður af sömu ákæru.
Telpan, Sara Cyrenne, lézt í marzsl.
eftir að foreldrar hennar og presturinn
höfðu tekið hana heim af sjúkrahúsi til
að koma í veg fyrir að læknar gæfu
henni blóð en blóðgjafir brjóta í bága
við trú Votta Jehóva.
í dómnum var að vísu sagt að ákær-
andi hefði sannað skeytingarleysi for-
eldranna en hins vegar ekki sannað að
þeir hefðu með neitun sinni við blóð-
gjöf beinlínis átt sök á dauða hennar.
Karl Sviakonungur: hefur fengið nýtt
áhugamál.
Gyðingar voru mættir á flugvöllinn með hátalara og kröfuspjöld.
ALUZINK sameinar alla helstu kosti
stáls, áls og zinks. Endingin er allt að 6
föld miðað við venjulegt galvaniserað
járn og lengdir ákveður þú sjálfur.
Þetta eru miklir kostir sem minnka við-
haldið verulega.
GtCuibCi
ALUZINK fæst sem garðastál,
bárustál og sléttar plötur.
Viljir þú vita meira, hafðu þá samband
við söludeild okkar. Þar bíður þín lit-
prentaður bæklingur um Garðastál og
Aluzink.
HEÐINN
SÖLUSÍMI 52922 STÓRÁSI 4-6 GARÐABÆ
Þar er framleiðslan, þar er þjónustan
Svíþjóð:
Konungur
í skipsleit
Karl Gustaf XVI Svíkonungur hefur
fengið nýtt áhugamál, fornleifafræði.
Vísindamenn hafa fundið fiakiðaf her-
skipinu Krónunni á botni Eystrasalts,
ekki langt frá sumarhöll kóngsins,
Solliden, og liggur það á 30 metra dýpi.
Krónan lenti í óveðri undan Gotlandi
árið 1676 og sökk. Karl Gustaf, sem
sjálfur er liðsforingi í sænska sjóhern-
um, langaði mjög til að hjálpa vísinda-
mönnum við björgun þess af hafsbotni.
En ekki vildi betur til en svo að stál-
trossa, sem konungurinn hafði vafið
um eina af bronsfallbyssum skipsins
slitnaði. Eftir það hefur hann látið
vísindamennina um björgunarstarfið
en heldur sjálfur áfram sumarleyfi sínu
áSolliden.
SOVETMENN VILDU
STEYPA STJÓRNINNI
Málgagn Sadats Egyptalandsfor-
seta, Mayo, hefur skýrt frá því að
egypzku leyniþjónustunni hafi tekizt
að koma upp um samsæri Sovét-
manna gegn stjórn Sadats er leiða átti
til falls hennar.
Sagði blaðið að tengiliðurinn milli
samsærismanna og Moskvu væii
tveir sovézkir sendiráðsstarfsmenn.
Samsærið hefur gengið undir leyni-
nafninu Fenið og hafa að því staðið
sovézka leyniþjónustan KGB, fyrr-
verandi aðstoðarforsætisráðherra
Egyptalands, fyrrverandi ráðherrar,
háskólaprófessorar og blaðamenn.
Blaðið sagði að þeir átta Egyptar er
staðið hefðu að samsærinu hefðu
verið handteknir 5. september í sam-
bandi við herferð stjórnarinnar gegn
trúarofstækismönnum en blaðið
hafði þá haft þá grunaða í þrjú ár og
fylgzt með þeim allan þann tíma.
Blaðið sagði að forsprakki sam-
særisins væri Abdel Salam El-Zayy-
at, fyrrverandi aðstoðarforsætisráð-
herra og hefði hann sem slíkur átt
fundi við starfsmenn sovézku leyni-
þjónustunnar. Hefði hann fengið til
liðs við sig kommúnista úr hinum
vinstrisinnaða Framfaraflokki, með-
limi úr bræðralagi múhameðstrúar-
rnatlna, Marxista og fylgismenn
Nassers.
í annarri frétt skýrði biaðið frá því
að Sadat mundi væntanlega gera
nokkrar minni háttar breytingar á
stjórn sinni síðar í þessum mánuði.
Anwar Sadat, sem einnig er for-
sætisráðherra, myndaði núverandi
stjórn sína í maí sl.
Anwar Sadat, Egyptalandsforseti.