Dagblaðið - 14.09.1981, Qupperneq 10
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
VIDEÖf
Video — Tæki — Fiimur
Leiga — Sala — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480.
Skólavörðustig 19 (Klapparstigsmegin).
__________KVIKMYNDIR
vantaS,r FRAMRÚÐU?
fTT*
Ath. hvort við getum aðstoðað.
ísetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN SSL..
Kaupmenn - verziunarstjórar
Nýtt IWO kæliborð til sölu, stærð 2 metr-
ar x 90 cm. Verð kr. 31.000. Góðir
greiðsluskilmálar.
Uppl. í símum 44630 og 77100.
Húsgagnaáklæði
Nýkomið Pía áklæðið vinsæla. Pia er eftirsótt á sófasett,
svefnsófa og svefnbekki. Margra ára reynsla.
Verðið mjög hagstætt, metrinn kr. 43,35.
B. G. Áklæði. '’ósfösnrfum-
Borgartúni 23. Opið frá kl. 1—6. Sími 15512.
&
\
&
\
'tn&'
Dans — ballett — dans
Innritun hefst
17. september
Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar
Dansstúdíóið Sóley Jóhannsdóttir
Dansskóli Sigvalda
Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar
Ballettskóli Eddu Scheving
Ballettskóli Sigríðar Ármanns
PANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
&
&
\
&
TR YGGING fyrlr réttri tilsögn í dansi
— DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981.
(emm Erlent Erlent
. — • • — -
Að loknu fyrsta þingi Einingar f Gdansk:
And-sósíalísk og and-
sovésk svallveizla
að mati Moskvu
— Sovétmenn vona að skortur á nauðsynjum í Póllandi
í vetur ríði Einingu að fullu
Hinar hörðu árásir stjórnvalda í
Moskvu á Einingu, óháðu verkalýðs-
samtökin í Póllandi, í síðustu viku
sýna það og sanna að þolinmíeði
Sovétmanna gagnvart þróun mála i
Póllandi er nú á þrotum. Fréttir fjöl-
miðla í Sovétríkjunum um nýafstaðið
þing Einingar í Gdansk bera þess
glögg merki að Sovétmenn líta á þær
ályktanir sem þar voru samþykktar
sem beina ögrun við Sovétríkin og
önnur ríki Austur-Evrópu, að sögn
vestrænna fréttaskýrenda í Moskvu.
Gagnrýni Sovétmanna á Einingu er
sú harðasta sem verkalýðssamtökin
hafa mátt þola frá Moskvu i það eina
ár sem þau hafa verið við lýði. í frétt
um þing Einingar, sem birtist í
sovézkum fjölmiðlum á föstudag, var
þinginu lýst sem and-sósíalískri og
and-sovézkri svallveizlu! Fréttaskýr-
endur telja þó að hið harðyrta orða-
lag frétta í Sovétríkjunum sé ekki
verst. Miklu verra sé að Sovétmenn
séu hættir að beina spjótum sínum að
ónafngreindum mönnum í forystu
Einingar, nú séu allir hinir 10 milljón
félagsmenn samtakanna settir undir
sama hatt og stimplaðir sem gagn-
byltingarsinnar. Þá var ekki lengur
að finna í fréttum Sovétmanna um
þingið stuðningsyfirlýsingar við leið-
toga pólska kommúnistaflokksins.
Þetta tvennt sýnir að mati frétta-
skýrenda að Sovétmenn hafa gefið
upp alla von um að Eining muni
beygja sig undir ægivald kommún-
istaflokksins. Því hafi Sovétmönnum
ekki lengur fundizt nauðsynlegt að
stappa stálinu í forystu kommúnista-
flokksins og hvetja leiðtoga hans til
að reyna að hefta starfsemi Einingar.
Innrás
of dýru verði keypt
Þrátt fyrir fréttaflutning Sovét-
manna af þinginu í Gdansk telja fáir
fréttaskýrendur að innrás inn í Pól-
land sé á næsta leiti. Þetta er athyglis-
vert mat, ekki sizt fyrir þá sök að nú
eru Sovétríkin með miklar heræfmg-
ar rétt austan við landamæri Pól-
lands og taka um 100 þúsund her-
menn og meira en 60 herskip þátt í
þeim. „Innrás væri of dýru verði
keypt og valdhafar í Moskvu hafa
enn ekki gefið upp alla von um að
snúa pólsku þjóðinni af rangri leið
með öðrum aðferðum,” lét einn
fréttaskýrandi hafa eftir sér.
í lýsingu Sovétmanna á þinginu í
Svainn
Agnarsson
Gdansk sagði m.a. að þingið væri
„samansafn af alls kyns gagnbylting-
arsinnum, þar á meðal útsendurum
vestrænna heimsvaldasinna, sem allir
eiga það sameiginlegt að hata sósíal-
isma og vera andsnúnir stjóm alþýð-
unnar í Varsjá.” Þá sagði að glögg-
lega hefði komið í ljós á þinginu að
Eining ætlaði ekki að einbeita sér að
verkalýðsmálum heldur hygðust
verkalýðssamtökin einnig ætla að ná
völdum í Póllandi.
Á þinginu í Gdansk var lýst yfir
stuðningi við stofnun óháðra verka-
lýðssamtaka í öðrum löndum Austur-
Evrópu og yfirvöld í Moskvutúlkuðu
þá ályktun sem beina hvatningu til
verkalýðs landanna að fylgja for-
dæmi Póllands. Þetta sýndi að Sovét-
menn teldu að Eining hefði gengið of
langt og ögraði nú ekki aðeins stjórn-
völdum í Póllandi heldur einnig í
öðrum ríkjum Austur-Evrópu.
Stjórnleysi
í Póllandi?
Ekkert bendir þó dl þess að ríkis-
stjórnir annarra landa austan tjalds
óttist stofnun óháðra verkalýðssam-
taka á borð við Einingu. Hins vegar
telja fréttaskýrendur að Moskvubúar
séu hræddir um að Eining nái að
grafa undan forræði Sovétmanna í
þessum löndum.
Almenningur í Sovétríkjunum veit
litið um raunverulega rás atburða í
Póllandi. Af fréttum fjölmiðla þar í
landi mætti ráða að algert stjórnleysi
ríkti í Póllandi og að stjórnvöld
væru ófær um að hamla gegn undir-
róðri hinna vestrænu gagn-byltingar-
sinna.
„Hinn venjulegi sovézki blaðales-
andi er auðvitað hissa á þessu og velt-
ir því fyrir sér hvað ríkisstjórn
Sovétríkjanna geti gert,” sagði
fréttaskýrandi 1 Moskvu.
Hinir eru svo til sem telja að
stjórnvöld i Moskvuóttistaðveralíkt
við pappírs-tígrisdýr ef þau grípi ekki
til róttækari aðgerða en að kalla
styggðarorð að Einingu.
Líklegt má telja að Sovétmenn
kalli bráðum ráðamenn landa Var-
sjár-bandalagsins saman til skrafs og
ráðagerða um ástandið í Póllandi. 1
framhaldi af slíkum fundi gætu
Sovétmenn sett Pólverjum úrslita-
kosti.
Hart í ári
hjá Pólverjum
Sovétmenn geta einnig beðið og
séð hvað setur, því víst er að hart
verður í ári hjá Pólverjum í vetur.
Matvæli og eldsneyti er senn á
þrotum í landinu og von Sovétmanna
er sú að sá skortur muni minnka
traust og fylgi Einingar meðal Pól-
verja. Ef til uppþota kæmi í Póllandi
vegna skorts á nauðsynjum gætu
Sovétmenn auðveldlega lagt til atlögu
og afsakað íhlutun sína með því að
þeir hefðu neyðzt til að gera innrás til
að halda uppi lögum og reglu í
landinu.
Sovétmenn vöruðu Einingu við í
síðustu viku og sögðu að þeir myndu
ekki hika við að beita valdi ef völd
kommúnista í Póllandi væru í hættu.
Þeir sögðu að milli alþýðunnar í Pól-
landi og Sovétríkjunum væru
bræðrabönd og að alþýða þessara
landa hefði sömu hagsmunamál og
sömu sósíalísku markmið. Þessi
tengsl yrðu ekki rofin.
Tvívegis á undanförnum 12 mán-
uðum hafa fréttaskýrendur talið að
innrás inn í Pólland væri yfirvofandi.
í bæði skiptin skjátlaðist þeim. Her-
æfmgar sem nú standa yfir rétt við
bæjardyr Pólverja voru að sögn
fréttaskýrenda skipulagðar með
löngum fyrirvara, en það var þó ekki
nein tilviljun að þær skyldu koma
upp á svipuðum tíma og fyrsta þing
Einingar var haldið. Æfingum sé þó
ekki beint gegn Einingu, heldur
miklu fremur hafi þær átt að minna
háttsetta kommúnista í landinu á að
Sovétmenn væru skammt undan og
reiðubúnir að koma þeim til að-
stoðar. Heræfingum lauk um helg-
ina, en hugsanlegt er að hermennirnir
verði hafðir við landamæri Póllands
þar til næsta þing Einingar hefst í
næstamánuði. -SA.
(Reuter)
Miklar heræOngar Sovétmanna stóðu yfir i siðustu viku, rétt við landamæri Póllands.