Dagblaðið - 14.09.1981, Page 19

Dagblaðið - 14.09.1981, Page 19
DAGBLAÐIÐ.MÁNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1981. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR14. SEETBMBER198L íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Islandsmeistarar Vikings 1981. Erri röö frá vinstn: Þór Símon Ragnarsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, Sigurjón Eliasson, Gunnlaugur Kristfinnsson, Gunnar Gunnarsson og Heimir Karlsson, einnig íslandsmeistarar i handknattleik og llcímir i innanhússknattspyrnunni, Magnús Þorvaldsson, Hörður Sigurðsson, Helgi Helgason, 57 ára bið Víkinga lauk á Laugardalsvelli í gær: Ómar Torfason, Hafþór Helgason, Hafliði Pétursson liðsstjóri og Ásgeir Ármannsson stjórnarmaður. Fremri röð: Jón Ólafsson. liðsstjóri Jóhann Þorvarðarson, Þórður Marelsson, Ragnar Gislason, Jóhannes Bárðarson, Lárus Guðmundsson.Sverrir Herbertsson, Diðrik Ólafsson, Óskar Tómasson og Aðalsteinn Aðalsteinsson. DB-mynd Bjarnleifur. VIKINGURISLANDSMEISTARI —Sigraði KR 2-0 í síðasta leik íslandsmótsins á Laugardalsvelli í gær. Sverrir Herbertsson, fyrrum KR-ingur, skoraði fyrra mark Víkings og gaf á Lárus Guðmundsson, sem skoraði síðara markið. Lárus var þar með markakóngur í 1. deild ásamt Sigurlási Þorleifssyni. Mikið sigurár Víkings Víkingur varð i gær íslandsmeistari í knattspyrnu í þriðja sinn, þegar lið félagsins sigraði KR 2—0 i lokaleik 1. deildar á Laugardalsvelli. Langþráður sigur fjöl- margra í höfn því 57 ár eru síðan Víkingur varð íslandsmeistari siðast, eða árið 1924. Áður 1920. Aðeins einn af meisturum Vík- ings frá '24 er enn á lífi, Gunnar Bjarnason, fyrrum skólastjóri Vélskólans. Hann er crlendis og gat því ekki verið viðstaddur í gær, átti að vera meðal heiðursgesta félagsins. Eftir lcikinn afhenti Ellert B. Schram sigurvegurunum verðlaun sín og auk þess leikmönnum Fram, sem urðu í öðru sæti á mótinu. Víkingur keppir I Evrópu- bikarnum, keppni meistaraliða næsta keppnistímabil, Fram í UEFA-keppninni. Vestmannaeyingar í bikarkeppni bikarhafa. Árið 1981 er mesta sigurár í sögu Víkings. Auk íslandsmeistaratitilsins í gær er Vík- ingur íslandsmcistari innanhúss í knatt- spyrnu og íslandsmeistari í handknattleik. Áðeins eitt félag hefur unnið þá þrennu áður, Valur.Þá er Víkingur Íslandsmeistari i blaki kvenna í ár. Leið Víkings sð íslandsmeistaratitilinum í sumar hefur verið löng og erfið. Liðið byrj- aði mjög vel í mótinu. Tapaði aðeins þremur stigum í fyrri umferðinni, hlaut 15 og hafði náð góðri forustu. En í tíunda leik liðsins slasaðist fyrirliðinn, Diðrik Ólafsson mark- vörður. Vikingur missti niður forskot sitt — liðið, sem aðeins hafði fengið á sig sex mörk í 10 fyrstu leikjum mótsins, fékk á sig 16 i sex þeim næstu. Þá var útlitið engan veginn gott hjá Víkingum. En Diðrik kom í markið aftur á réttum tíma. Lék tvo síðustu leikina og liðið náði aftur fyrra öryggi. Sigrar í tveimur síðustu leikjunum nægðu til sigurs i mótinu og betur þó. Víkingur hlaut 25 stig — Fram í öðru sæti með 23 stig. íslandsmótið var mjög jafnt og skemmti- legt lengstum. Um tíma undir lokin höfðu sex af tíu liðum i deildinni möguleika á íslandsmeistaratitilinum. Flestir leikirnir í lokaumferðunum fjórum voru úrslitaleikir. Síðan fjölgað var í tíu lið í 1. deild 1977 hefur mótið aðeins einu sinni unnizt á lægri stigatölu en nú. 1979, þegar Vestmanna- eyingar hlutu 24 stig. Aðsókn að 1. deildar- keppninni hefur verið mjög góð. Á leikinn í gær greiddu 2985 áhorfendur aðgangseyri. Met í sumar í 1. deild. Víkingur er með lang- hæst meðaltal áhorfenda á leikjum sínum í Reykjavík — og auk þess var mest aðsókn að leikjum liðsins í Kópavogi, Akureyri gegn KA, og i Vestmannaeyjum. Víkingar nutu þess að vera lengstum i efsta sætinu og áttu stóran hóp fylkismanna. Taugaspenna ígær. Gegn KR í gær lék Víkingur undan sunnan golunni í fyrri hálfleik. Verulegrar taugaspennu gætti í leik flestra leikmanna liðsins framan af. Þeim tókst illa að ná saman en eftir því, sem á hálfleikinn leið náði Víkingur undirtökunum í leiknum án þess þó að koma knettinum í mark mótherj- anna. Útlitið var því ekki sérlega glæsilegt í hálfleik. Víkingar höfðu þó fengið tækifæri. Sigurður Pétursson bjargaði á marklínu „Mjög ánægður með árangur sumarsins” — sagði Yuri Sedov, þjálfari Víkings ,,Þaö var mikil taugaspenna meðal leik- manna minna framan af. skiljanlegt því leikurinn var svo þýðingarmikill fyrir þá. í síðari hálfleik, einkum cftir að fyrsta markið hafði verið skorað, léku þeir eins og þeim er eðlilegt. Þetta var alls ekki slæmur leikur. Víkingsliðið var betra liðið í leiknum og verðskuldaði sigurinn,” sagði Yuri Sedov, hinn sovézki þjálfari Víkings, eftir að Islandsmeistaratitillinn var í höfn í gær. „Það hefur verið mikil spenna i leikjum Víkings í sumar. Liðið komst nær strax á toppinn og var þar siðan. Það skapar aukið álag á leikmenn en ég er mjög ánægður með árangur sumarsins,” sagði Sedov enn- fremur. Yuri Sedov er frábær þjálfari, var þjálfari sovézka landsliðsins fyrir nokkrum árum. Mikil heppni Víkings að fá slíkan mann til starfa. Hann verður áfram hjá fé- laginu. „Þetta var gott mót fyrir okkur Víkinga og við áttum sigurinn í þvi fyllilega skilinn. Við unnum flesta ieiki af öllum liðum. Höfðum góöa forustu eftir fyrri hluta mótsins. Síðan kom slæmur kafli en hann vannst upp meö góðum leikjum að undan- förnu,” sagði Diðrik Ólafsson, mark- vörður og fyrirliöi Víkings. „Ég bjóst ekki við því i vor að við yröum íslandsmeistarar en reiknaði með einu af efstu sætunum. Mótið var jafnt og spenna mikil í lokaumferðunum og það var afrek hjá strákunum hvað þeim tókst vel upp i þessari miklu taugaspennu,” sagði Diðrik, sem lék sinn fyrsta leik i meistaraflokki Víkings 1968. Aðalmarkvörður Víkings siðustu 11 árin og landsiiðsmaður. „Þó íslandsmeistaratitillinn sé i höfn er mikið framundan. UEFA-leikurinn við Bordeaux á fimmtudag á Laugardalsvelli. Morguninn eftir höldum við i 10 daga keppnisferð til Sovétrikjanna, þar sem við leikum við sterk 1. deildarlið. Siðan haldið til Frakklands í siðari leikinn i UEFA- keppninni. Ég get ekki svarað því núna hvort þetta verður siðasta keppnistimabilið hjá mér,” sagði Diðrik og bætti þvi við að Yuri Sedov væri bezti þjálfari sem hann hefði æft hjá. Mikið fjör var í búningsherbergi Vikings eftir leikinn. Björn Fr. Björnsson, fyrrum Yuri Sedov, þjálfari Vfklngs, eftir sigurinn • 8ær - DB-mynd Bjarnleifur. alþingismaður og sýslumaður Rangæinga, sem var einn af beztu leikmönnum Vikings fyrir 50 árum, óskaði leikmönnum til ham- ingju og sagði: „Þessu er ég búinn að biða eftir f 57 ár.” Agnar Ludvigsson, heiðurs- gestur Vfkings, þakkaöi leikmönnum fyrir sigurinn og þar mátti greina fjölmarga eldri Vikinga. Gleðin skein úr hverju and- liti, langþráður sigur var í höfn. -hsim. mjög vel snilldarskalla frá Ómari Torfasyni eftir hornspyrnu Sver.ris Herbertssonar. Vel gert hjá báðum. Lárus Guðmundsson átti hörkuskot rétt yfir. Sverrir komst í gegn en Stefán Jóhannsson varði snilldarlega — og aftur í lok hálfleiksins með úthlaupi. KR- ingar áttu varla umtalsvert tækifæri í hálf- leiknum. Rétt eftir að Atli Þór Héðinsson hafði fengið fyrsta tækifærið i s.h. — spyrnti framhjá Víkingsmarkinu — skoruðu Vík- ingar sitt fyrra mark. Lárus lék upp vinstra megin, komst framhjá tveimur KR-ingum og gaf fyrir mark KR. Gunnar Gunnarsson skallaði áfram til Sverris, sem kastaði sér fram og skallaði knöttinn í markið. Fallegt mark og fallega að því staðið. Þetta var á 52. mín. og tíu mín. síðar gulltryggðu Víkingar sigur sinn. Sverrir tók aukaspyrnu mjög vel. Spyrnti til Lárusar inn á markteigshornið og landsliðsmiðherjinn sneiddi knöttinn á frá- bæran hátt í markið. 2—0. Lítið skeði það sem eftir var. KR-ingar sóttu aðeins undir lokin. Atli Þór átti skalla rétt yfir Víkings- markið. Sigur Víkings var sanngjarn, betra liðið vann. Víkingsliðið jafnt, Lárus og Jóhannes Bárðarson beztir. Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem kom í stað Heimis Karlssonar, mikið efni. Sverrir mjög þýðingarmikill fyrir Víkingsliðið í leiknum. Stefán markvörður var beztur KR-inga en fáir skáru sig þar úr. Baráttan ekki aðall liðsins að þessu sinni. -hsim. Sverrir Herbertsson skallar knöttínn I mark KR — fyrsta mark Vlkings staöreynd. DB-mynd Bjarnleifur. Keflvíkingar sigurveg- arar f 2. deildinni — en töpuðu lokaleiknum gegn ísfirðingum ísftrzku „harðfiskarnir” efldust að Lárus Guðmundsson hefur sent knöttínn I mark KR - - annað mark Vfkings. DB-mynd Bjarnleifur. 2. deild, Keflavíkurvöllur, ÍBK:ÍBÍ 2:4 (2:1) Það voru bros gegnum tár á andlit- um leikmanna ÍBK þegar þeir veittu viðtöku bikar og verðlaunapeningum úr hendi Árna Þorgrímssonar, stjórn- armanns KSÍ, sem sigurlaun í 2. deild- inni aö loknum leik þeirra við ÍBÍ I Keflavík á laugardaginn, þvi þrátt fyrir efsta sætið i deildinni töpuðu heima- menn viðureigninni fyrir gestunum að vestan. Skoruðu aðeins tvö mörk, en þurftu fjórum sinnum að sækja knött- inn i eigið mark. ísfirðingar fóru því með sigur af hólmi f báðum leikjum lið- anna á keppnistímabiiinu. Samt sem áður hafði IBK vinninginn, þegar stigin eru talin, 27, en ÍBÍ einu færra eða 26. Bæði liðin munu leika i I. deild að ári og ef dæma skal eftir þessum leik koma þau til með að velgja mörgum undir uggum í I. deildinni, sé rétt á spilunum haldið. Djarfur sóknarleikur, mikill hraði, skemmtilegt spil á köfl- um, þrátt fyrir regn og hálan völl i seinni hálfleik. í annan tima hefur ÍBK liðið ekki byrjað betur. Lánið lék við þá strax á fyrstu mínútunni þegar Guðmundur Þorkelsson, bakvörður IBÍ, skaut i marksúluna utanverða af stuttu færi. Óli Þór Magnússon, var nokkrum mín. síðar öllu nákvæmari. Hann fléttaði sig með gönguhraða i gegnum ÍBÍ-vörnina og skoraði sitt 12. mark á leiktímabil- inu og komst þar með í efstu röð skor- enda en mörk hans urðu ekki fleiri í leiknum. Steinar Jóhannsson brá svo ekki út af vananum og skoraði annað mark ÍBK um miðjan hálfleikinn. Renndi knettinum yfir marklínuna eftir að Skúli Rósantsson hafði með harð- fylgi sínu brotizt meðfram enda- mörkum og „lagt” knöttinn inn í markteiginn. ísfirðingarnir voru þennan hluta leiksins eins og þorskar á þurru landi í sóknartilraunum sínum. Tóku Keflvík- inga ekki með neinum silkihönzkum í vöminni enda bókaði frábær dómari leiksins, Magnús V. Pétursson, þrjá Is- firðinga á stuttum tíma. Sóknarþungi ÍBK hélzt fram undir hlé og þriðja mark heimamanna lá í loftinu þegar ÍBÍ sneri vörn i sókn. örnólfur Odds- son fékk knöttinn þvert fyrir markið og notaði höfuðið til að koma knettinum í netið, framhjá hikandi markverði ÍBK, 2:1, — og nú fór að heyrast heldur betur í hinum stóra hópi brottfluttra Vestfirðinga sem voru, að því er heyrðist, mun fleiri en Suðurnesjamenn sem fylgdu ÍBK-liðinu. ísfirðingar notuðu svo sannarlega höfuðið það sem eftir var leiksins og kom örnólfur þar mest við sögu með því að skora þriðja og fjórða mark ÍBÍ, þar af annað með kollinum. Jöfnunar- markið skoraði hins vegar Kristinn Kristjánsson, með fallegum skalla. Það var líka meira en spenntar taugar ÍBK- leikmanna þoldu. Eftir það var leikur þeirra ekki í molum, heldur í mylsnu. ÍR vann Þrótt Tvær fyrstu umferðirnar á Reykja- víkurmótinu í handknattleik voru háðar um helgina. Á laugardag vann Víkingur Fylki 21—18, Valur vann Fram 25—20 og KR vann Ármann 29— 22. í gærkvöld vann Valur Víking 18— 17, Fylkir vann Fram 29—27 og ÍR vann Þrótt 25—21. McEnroe sigraði John McEnroe var sigurvegari þriðja árið i röð á opna bandaríska meistara- mótinu i tennis. Sigraði Björn Borg í úrslitum í gærkvöld, 4—6, 6—2, 6—4 og 6—3. Heimsmet Rono Henry Rono, Kenýa, setti nýtt heims- met i 5000 m hlaupi á móti i Bergen i gær. Hljóp vegalengdina á 13:06,2 mín. Hann átti sjálfur eldra heims- metið, 13:08,4 sett 1978. sig sæla að mörkin urðu ekki fimm eða sama skapi og máttu heimamenn prisa | sex áður en yfir lauk. -emm. NJARÐVÍKINGAR í AÐRA DEILD 3. deild, Njarðvíkurvöllur, UMFN:Einherji 2:1 (1:1) Njarðvíkingar urðu meistarar í 3. deildinni með því að sigra Einherja frá Vopnafirði i fremur jöfnum leik suður í Njarðvik á laugardaginn með tveimur mörkum gegn einu. Bæði höfðu liðin tryggt sér sæti í 2. deild að ári með sigri í sitt hvorum úrslitariðlinum. Siðan 3. deildin var stofnuð hefur hvorugt liðið unnið sér sess i 2. deildinni þótt stund- um hafi ekki vantað nema herzlumun- inn, sérstaklega hjá UMFN. Njarðvíkingar tóku forustuna þegar Haukur Jóhannsson skoraði úr víta- spyrnu sem Helgi Kristjánsson, góður dómari leiksins, dæmdi eftir að Jón Halldórsson hafði verið felldur innan vítateigs. Einherjarnir létu samt engan bilbug á sér finna og Ólafur Ármanns- son, hinn hávaxni, jafnaði með koll- spyrnu úr horni skömmu síðar. Eftir mjög sterkan varnarleik og tíð- indalítið við mörkin slapp Jón Hall- dórsson inn fyrir Einherjavörnina og skoraði sigurmarkið. Þann stundar- fjórðung sem eftir var reyndu Einherj- arnir að jafna en tókst ekki að koma knettinum inn fyrir marklínuna, nema einu sinni en þá fylgdi markvörðurinn, því miður fyrir þá, með og markið var ógilt. Árni Þorgrímsson afhenti UMFN síðan bikar sem sigurlaun og bæði liðin fengu verðlaunapeninga fyrir frammi- stöðuna. emm. Lárus Guðmundsson, markakóngurinn I 1. deild ásamt Sigurlási Þorleifssyni, ásamt föður sinum, Guðmundi Lárus- syni, eftir leikinn I gær. Guðmundur er einn mesti hlaupari sem ísland hefur átt. DB-mynd Bjarnleifur. Lokastaðan í 1. deild Úrslit í síðustu umferð 1. deildar ís- landsmótsins i knattspyrnu um helgina: Þór-Valur 1—2 Akranes-FH 3—1 Breiðablik-ÍBV 1—0 Fram-KA 2—0 Víkingur-KR 2—0 Lokastaðan i 1. deild: Vikingur 18 11 3 4 30—23 25 Fram Akranes Breiðablik Valur ÍBV KA KR Þór FH 18 18 18 18 18 18 18 18 18 7 9 2 24- 8 6 4 29- 7 8 3 27- 6 7 7 9 9 30- 29- 22- 13- 18- Markahæstu menn: Lárus Guðmundson, Víkingi Sigurlás Þorieifsson, ÍBV Þorsteinn Sigurðsson, Val Pálmi Jónsson, FH Sigurjón Kristjánsson, UBK Ásbjörn Björnsson, KA Guðbjörn Tryggvason, Akranesi Gunnar Jónsson, Akranesi Guðjón Guðmundsson, Þór Kári Þorleifsson, ÍBV Ómar Jóhannsson, ÍBV -17 23 -17 22 -20 22 -24 20 -21 19 -18 18 -25 12 -35 12 -42 7 12 12 9 7 7 6 6 6 6 6 6 VIKINGUR B0RDEAUX eftir 3 daga EVROPUKEPPNIBIKARHAFA 1981-1982 FRAM - DUNDALK Laugardalsvðllur miðvikudaginn 16. september kl. 17.30 FRAM til PARIS VC& w\ V°° Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.