Dagblaðið - 06.10.1981, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
rz — - ■ ! «
* . DB á ne ytendamarkaði 't ' ANNA ÆgSl BJARNASON — '■ ■ ■ -i
Bflamir verða að komast í
Stefán Helgason og Sveinlaugur Hannesson voru ljónhressir þegar DB barði upp á hjá þeim fyrir helgina þar sem þeir voru
við vinnu sina f Nýbarðanum f Garðabæ. Þeir sögðust vera tveir að vinna þessa stundina en þegar mest er að gera fara starfs-
menn stundum upp f átta. — Mest er að gera þann daginn sem fyrsta alvörusnjókoman skellur á á höfuðborgarsvæðinu.
„Blessuð vertu,” sagði Stefán. „Þá er svo mikil ös hérna hjá okkur að þú kemst ekki einu sinni inn á bflastæðið hérna!”
DB-mynd Bjarnleifur.
vetrarbúning hvað úr
Á fimmtudaginn var voru íbúar
höfuðborgarinnar og næsta
nágrennis minntir á að vetur
konungur er alveg á næsta leiti.
íbúar annarra byggðarlaga landsins
voru þá fyrir löngu búnir að finna
fyrir vetrarveðri.
Það þarf að koma bílunum í
vetrarbúning, setja undir þá vetr-
arhjólbarða. Sumir eru svo lánsamir
að eiga góða vetrarhjólbarða frá því í
fyrra og geta því látið sér nægja að
láta umfelga og skipta um hjólbarð-
ana. Hinir sem eru ekki svo lánsamir
verða að ráðast i að kaupa
vctrarlijoiuaióa. Þaó gctui oióiódyrt
spaug, en svona til þess að fólk geti
eitthvað áttað sig á því hvað slíkur
vetrarbúningur kostar hringdum við í
nokkra hjólbarðasala, sem valdir
voru af handahófi úr símaskránni. —
Sjálfsagt eru fleiri aðilar í
höfuðborginni og nágrenni sem selja
vetrardekk, en ekki er hægt að hafa
samband við alla. Við könnunina
kom einnig í ljós að verð á
hjólbörðum er afar mismunandi, fer
það bæði eftir gerð og ekki sízt eftir
stærð hjólbarðanna. Má nefna sem
dæmi að hjólbarði af sömu stærð
getur kostað allt frá 860 kr. upp í
1080 kr. eftir vörumerki.
Viðmælendur neytendasíðunnar
töldu ekki að ýkja mikill gæðamunur
vséri milli þessara vörumerkja. Ekki
gátu þeir gefið skýringu á
verðmuninum.
Þá er einnig verðmunur á því
hvort um er að ræða svokölluð
radialdekk eða venjuleg dekk og eru
radialdekkin dýrari. Einn af
viðmælendum okkar taldi að þau
væru tvímælalaust betri í snjó. Hins
vegar bar mönnum ekki alveg saman
um hvort væri nauðsynlegt að hafa
hjólbarðana neglda eða ekki. Þó
hverju
voru fleiri sem hölluðust að því að
nota neglda hjólbarða þrátt fyrir
áróður gatnamálastjóra um aö gera
þaðekki.
„Annars dugir ekkert nema góðar
keðjur í miklum snjó,” sagði einn af
viðmælendum okkar. Og svo bætti
hann við: ,,En það er bara ekki hægt
að notast við keðjur innanbæjar, því
allar götur eru saltaðar eða ruddar
það vel að þær eru nær auðar og ekki
er hægt að aka á svotil auðum götum
ákeðjum.”
Mismunandi stærðir á
mismunandi verði
f ljós kom að ekki er hægt að gefa
upp eitt og ákveðið verð á
bíldekkjum, nema að tiltaka ákveðna
dekkjastærð. Verðið fer að sjálf-
sögðu bæði eftir stærð og jafnvel
gerð, eins og áður segir.
Þegar FÍB er að gera útreikninga
sína reikna þeir oft með fólksbíl eins
og t.d. Cortinu og tókum við einnig
upp það ráð.
Við spurðum einnig um verð á
dekkjum á Volkswagen „bjöliu”.
Verðið hjá fimm aðilum er í töflu hér
á siðunni.
Umfelgun kostar alls staðar það
sama, 256 kr. Þá er innifalið að taka
öll fjögur hjólin undan bílnum, um-
felga og koma hjólunum aftur undir
bílinn og stilla framhjólin. \ einum
staðnum, hjá Nýbarða, kosiaði um-
felgunin 264 kr., en það var vegna
stillingarinnar, sem er með öðrum
hætti hjá þeim en öðrum.
Þá er aðeins eftir að nefna hvað
kostar að setja nagla í dekkin. Hver
nagli kostar 90 aura og er misjafnt
hve marga nagla menn vilja hafa í
hverju dekki. Algengt er að negling
kosti um 80—90 kr. á dekk.
-A.Bj.
Keðjur geta enzt lengi með aðgát
„Fólk alveg ruddist hingað inn í „Annars vorum við búnir að selja parið. Á Volkswagen bjðllu kostar
verzlunina á fimmtudaginn var þegar mikið af keðjum, bæði vegagerðinni keðjuparið 532,80 kr.
fyrsta snjófölið féll í höfuðborginni og ýmsum öðrum bílstjórum,” sagði
og það var allt brjálað að gera í Stefán. Margir telja að góðar keðjur
snjókeðjunum,” sagði Stefán Þor- séu það eina sem dugi í miklum snjó. Lfkfl kððjlir
valdsson hjá Kristni Guðnasyni á .. r »«1!
Suðurlandsbrautinni er DB spurðist Keðjur hjá Kristni á 13 tommu ■*Jfl AflH
fyrir um snjókeðjur. dekk (Cortinudekk) kosta 575,20 kr. „Þetta forsjála fólk sem verður
Sennilega dugar vist ekkert I r/ ona færð nema góðar snjókeðjur. Það er þvi vissara að hafa þær i farangursgeymslu bflsins
þar til á þeim þarf að halda. Vonandi verður það sem allra seinast. — Helzt aldrei.
sér úti um hlutina i tíma er löngu
farið að kaupa sér keðjur,” sagði
Hannes Hafliðason í bíla-
vöruverzluninni hjá Agli Vilhjálms-
syni í samtali við DB. „Jú, ef menn
eru nógu duglegir að taka keðjurnar
undan bílnum þegar autt er og gæta
þess að aka ekki með keðjur á
auðum götum geta keðjurnar enzt
nokkuð lengi,” sagði Hannes.
Keðjur á 13 tommu dekk (minnstu
gerð) kosta um 600 kr. hjá Agli og á
VW-bjöllu (aðeins stærri) fara upp í
695 kr.
Svokallaðar skyndikeðjur hafa
fengizt hjá Agli en voru ekki til nú
sem stendur, en voru væntanlegar.
Þær hafa hins vegar ekki fengizt hjá
Kristni.
-A.Bj.
Hvað kosta vetrar- hjólbarðar?
Bífteg. Hjðl- barðinn Höfða- dekk Nýbarði Barðinn Sðlning
575 kanadlsk
Radial 829 860 751 1080 860 Micelin
Venjuleg 640 645 660 600 550 - 800
| Sóluð isl. ekki til 328 340 340 340
0 Sóluð
amerísk ekki til ekki til 436 ekki til ekki til
Radial JS 890 858 581 ekki til 858 Micelin
dp' Venjul. 650 715 510 ekki til 510 - 571
^ Sóluö fsi. ekki til 370 370 370 370
4
■%
DB-mynd.