Dagblaðið - 06.10.1981, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 06.10.1981, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981. 13 \ Frá ASÍ-þingi. Reglur sambandsins segja til um hvernlg velja skuli fulltrúa á þlng innan verkalýöshreyfingarinnar. Greinarhöfundur er ekki viss um að þær ríglur séu ýkja lýðræðislegar. DB-mynd. fullbúna lista. Að sögn var það gert til að „vinna tíma” á trúnaðar- mannaráðsfundinum síðar sama kvöld. Og hvernig voru listarnir svo skipaðir? Jú, skv. „venjum og hefð” i félaginu var öll stjórnin efst á báðum listunum, auk hennar for- menn deilda og síðan fólk úr trúnaðarmannaráði og aðrir trúnaðarmenn til uppfyllingar. Gengið var út frá þvi að þeir sem orönir væru fastagestir á svona þingum ættu að ganga fyrir um sæti á listunum. Þegar reynt var að brydda upp á umræðum um þetta val á listana var það afgreitt með því að þetta yrði að vera svona, fólk mundi „móðgast ef gengið yrði fram hjá því”, eins og það var orðað. Reynt var að stinga upp á því að fólki yrði dreift á þessi tvö þing, þannig að sama fólkið færi ekki á þau bæði. Það var kýlt niður með því að fólkið á listunum væri jú það fólk sem mest þyrfti á því að halda að fylgjast með gangi mála og því sem væri að gerast, bæði innan AN og VMSÍ. Því væri eðlilegt að það færi á bæði þingin, ef það gæti. Engum datt i hug að almennir félagar hefðu nokkra þörf fyrir að komast inn í málin. Engum datt í hug að það gæti hugsanlega eflt þátttöku almennra félaga í starfi félagsins að þeim væri gefinn kostur á setu á svona þingum. Nei, slíkt fer ekki um huga lýðræðis- sinnanna í forystu verkalýðshreyfing- arinnar. Þetta er blóðugt. Ég veit um fullt af almennum félögum, sem hefðu haft áhuga á að fara á annaðhvort þessara þinga, en áttu aldrei séns á að komast á þessa lista formannsins og hefðanna. Niðurstaða: Listar formannsins voru samþykktir sem tillaga stjórnar til trúnaðarmannaráðs. Á trúnaðar- mannaráðsfundinum voru jjeir svo keyrðir i gegn með hraði. Og þar var heldur ekki hlustað á nein andmæli. Vont var gert verra Hvað annað var svo sem hægt að gera? Það eru reglur ASÍ sem fyrir- skipa svona listakosningar. Verða þær ekki alltaf lýðræðislegar hvernig svo sem þær eru framkvæmdar? Það finnst förmanninum mínum ekki. Honum og fleiri formönnum finnst þessi tilhögun vera hámark iýðræðisins. Og líklega eru svona vinnubrögð eins og ég var að lýsa til þess ætluö af þeim að gera lýðræðið ennþá fullkomnara. En við erum víst ekki sammála. Að minu viti mætti þó gera eitthvað skárra úr þessum slæmu reglum, rétt eins og hægt er að fram- kvæma góðar reglur þannig að illa komi út. Það hefði t.d. verið ólikt lýðræðislegra að gefa þessari uppstillingu góðan tima (það var nokkurn veginn vitað strax í vor hvenær þessi þing yrðu). Þá hefði verið hægt að fela hinum einstöku félögum í trúnaðarmannaráði að ræða málin á sínum vinnustöðum og með sínu fólki og gera tillögur sam- kvæmt því. Þessum tillögum hefði svo mátt safna í einn haug og vinna svo úr þeim í trúnaðarmannaráðinu. Kannski hefði niöurstaðan ekki orðið svo ósvipuð, þvf að vissulega er þetta ágætis fólk sem er á þessum listum. En þetta hefði þá ekki lengur verið einkamál eins manns, heldur mál trúnaðarmannaráðsins. Eins og að þessum listum var staðið í félaginu mínu eru það skrök að þetta séu list- ar stjórnar og trúnaðarmannaráðs. Þetta eru listar fotmannsins og óheil- brigðra hefða og venja. Þar með er ekki sagt að listarnir séu vondir en aðferðin við að setja þá saman er ómöguleg. Hún gæti boðið upp á ýmsa misbeitingu. IMœsta skipu- lagsbreyting? Sé þannig unnið í trúnaðarmanna- ráðum verkalýðsfélaga og reyndar stjómum líka — og ég staðhæfi að svo sé víðar en í mínu félagi — sé ég ekki annað en að næsta skipulagsbreyting á ASÍ sé að leggja niður stjórnir og trúnaðarmannaráð félaganna og flytja formlegt vald þeirra yfir á for- menn og starfsmenn félaganna, sem oft eru jú sömu aðilarnir. Þeir eru jú alltaf að kvarta yfir fundafargani og óbærilegu álagi, blessaðir foringj- arnir. Haídiði aö það væri ekki Kjallarinn Guðmundur Sæmundsson munur að geta tekið allar svona ákvarðanir i vinnutlmanum? Bannað að undirbúa sigl Nú, jæja. Ég lenti sem sé á báðum listunum í krafti hefðarinnar, því að ég var í vetur pikkaður upp í stjórn. Heldur hefði ég nú viljað að einhverjar mannlegar verur — og fleiri en ein — hefðu valið mig til þess. En nóg um það. Ég ætla að fara á þessi þing, því að ég held að foringjunum gæti verið gagnlegt að heyra eitthvað af því sem almennir félagar hafa beðið mig að skila til þeirra. Og þá á ég kannski fyrst og fremst við VMSÍ-þingið. í sakleysi mínu bað ég um að fá þau plögg sem lægju fyrir þingunum. „Þau eru engin,” sagði formaðurinn. „Þarna verður algjört lýðræði. Ekkert verið að mata fólk fyrirfram.” Smekklega til orða tekið eða hvað? Auðvitað koma foringjarnir til þings albrynjaðir upp- lýsingum og ályktunartillögum! En það er auðvitað rétt hjá þeim að það verður miklu átakaminna fyrir þá að koma sinni eigin stefnu i gegn ef þeir aæta þess aö gefa fólki engan tima til rð hugsa málin, ef þeir veita fólki -■ngar upplýsingar, sem það hugsanlega gæti byggt á til að taka slna eigin sjálf stæðu af stöðu. „En dagskrá?” spurði ég. „Fær maður ekki að vita hvaða mál verða á dagskrá?” Jú, AN var búið að senda eitthvað slíkt út en annars yrði dag- skráin á þessum þingum eins og venjulega. Eins og venjulega! Það er von að mennirnir tali svona þegar allt miðast við að einungis fastagestir sitji þessi þing. Þetta finnst þeim lýðræði, verka- lýðsforingjunum okkar. Það liggur við að það fari um mig hrollur. Að minnsta kosti fæ ég gæsahúð. En þú, almenni félagi í verkalýðshreyfing- unni, — hvernig liður þér? 25. sept. 1981 Guðmundur Sæmundsson verkamaður, Akureyri. Verkafólk getur varist verðbólgu meö einhliða baráttu gegn verðhækkunum. En það sem er árangursrikast eru betri verðbætur. Önnur megin krafan i samningun- um núna hlýtur að verða visitölukerfi sambærilegt við það sem um samdist 1977. Visitölukerfið sem þá samdist um bætti launafólki upp verðhækkanir sem urðu strax eftir að verðbætur voru reiknaðar. Þetta er afar mikilvægt til að koma í veg fyrir þann leik sem ríkisstjórnin leikur nú æ ofan í æ að skella öllum verðhækkunum á rétt eftir verðbóta- útreikning. Tvœr stefnur Það eru tvær stefnur sem nú er tekist á um í verkalýðshreyfingunni. Önnur er stefna ríkisstjórnar og at- vinnurekenda, að í stað kauphækka- na nú komi loforð fyrir því, að kaupmátturinn rýrni ekki á samningstímanum, jafnvel að hann aukist ef þjóðartekjur aukast. Þetta þýðir að menn sætti sig við þau samningsrof og kauprán sem átt hafasérstað. Margir verkalýðsleiðtogar virðast hallir undir þessa llnu, en hálf hræddir við viðbrögð fólksins á vinnustöðunum. Því tala þeir nú sem loðnast og vonast til að allir foringjar geti fallist á sömu hundsbæturnar umbjóðcndum sínum til handa, svo eða falli allir meðsatna Frá Reykjavikurhöfn. — Greinarhöfundur stingur upp á að laun verkamanna hskki um tvö þúsund krónur f nsstu samningum. lækkanir á lægstu tekjur. Þessu visum við á bug. Auðvitað berjumst við fyrir því, að laun neðan við framfærslukostnað verði alls ekki skattlögð, slikt er auðvitað svivirðilegt. En loforð um skatta- lækkanir geta aldrei komið í stað grunnkaupshækkanna. í fyrsta lagi er litt á slík loforð að treysta. 1 öðru lagi er ekki liklegt að skattaniðurfelling fáist á þær tekjur sem flestir telja sig verða að fá nú til að endar nái saman, sem margir ná með miklu aukaálagi. Aumingja atvinnuvegirnir Áróðurinn sem verkafólk er beitt nú til að draga úr kröfum þess og sundra þvi er eins og vanalega „hin slæma staða atvinnuveganna”. Fólk sem er með miklu lægri dag- laun en framfærslukostnaði nemur á að slá af kröfum sínum vegna bur- geisanna sem fleyta rjómann, vegna sjúkleika kerfis sem þjónar hags- munum allt annarra en verka- fólksins. Nei, i arðránsþjóðfélagi gildir aðeins ein regla, verkafólk byggir kröfur slnar aðeins á eigin stéttar- styrk og engu öðru. Það er hreinast lífsháski fyrir hreyfmguna að halda að sér höndum til að „atvinnuvegirnir fái tækifæri til að byggja sig upp og geti þannig bætt kjörin seinna” Við getum skoðaö land eftir land þar sem slík launastefna hefur orðið ofan á. Hún hefur þýtt kjararýrnun og leitt til stóraukinna árása atvinnurekenda á verkalýðshagsmuni á öllum sviðum. Betri verðbœtur Annað vopn sem nú er beitt gegn verkafólki og kannski enn skæðara er verðbólgan. Láglaunafólkiö á að hjálpa til að lækna verðbólguna sem auðvaldskerfiö okkar hefur skapað. Auðvitað er hægt að draga eitthvað úr verðbólgunni með því að lækka kaupmáttinn. Auðvitað getur maður bætt hag rikissjóðs með því að greiða sektir fyrir ranglega dæmda sök. Þetta er sambærilegt. Verðbólga er afurð kerfis sem er verkafólki fjandsamlegt. meira”. Hin stefnan er sú að nú skuli blásið til baráttu og heildarstyrk hreyfingarinnar beitt til að brjótast út úr þeim vítahring undansiáttar og endurtekinna samningsrofa og kauprána, sem einkennt hafa undan- farinár. Þetta er stefna einstakra vinstri andstöðumanna í hreyfingunni og á vissulega stuðning fjölmargs verka- fólks, sem vill hætta loddaraleiknum og niðurlægingunni. Það sem á vantar er að óánægjuraddir þessa fólks verði að einu samtaka hrópi eða kröfu. Það er ekki vafi á þvl aö slikt mundi hafa mikil áhrif á stefnumótun heildar- hreyfingarinnar. Ragnar Stefánsson.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.