Dagblaðið - 06.10.1981, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
t
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
i
Fargjaldastríð
íalgleymingi
Bandaríska flugfélagið Pan
American tilkynnti í gærkvöldi að það
myndi lækka fargjöld sin á leiðinni
milli New York og London um 50% frá
1. nóvember nk. Talsmaður flugfélags-
ins sagði, að fargjaldið myndi þá verða
261 Bandaríkjadalur eða 57 dölum
lægra en Laker hefur boðið fram að
þessu. Svipuð lækkun mun verða á far-
gjöldum til London frá San Francisco,
Washington og Houston. Bandaríska
flugmálaráðið á eftir að staðfesta
lækkunina og er búizt við að Laker og
British Airways leggi hart að ráðinu
að hafnahenni.
Sameinuðu þjóðirnar:
íranirneita
loftárásinni
Utanríkisráðherra írans, Mir Hoss-
ein Mousavi Khameni, sagði í ræðu á
allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
gær að íranir hefðu engan þátt átt í
loftárásinni á olíuhreinsunarstöðina í
Kuwait í síðustu viku. Sagði hann að
írakar og Bandaríkjamenn væru aðeins
með þessum ásökunum að reyna að
greiða fyrir sölu AWACS radarflugvél-
anna til „skjólstæðinga” sinn á Mið-
Austurlöndum. Það væri undarlegt,
sagði hann, ef radarflugvélarnar hefðu
getað staðið írana að verki, að þær
hefðu þá ekki getað orðið varar við
ísraelsku orrustuþoturnar sem
sprengdu upp kjainorkuverið í írak.
Khameni átaldi einnig Bandaríkja-
menn fyrir að hafa neitað tveimur full-
trúum írana á allsherjarþinginu um
vegabréfsáritun og fyrir að hafa hótað
að gera íranskar flugvélar sem lentu í
Bandaríkjunum upptækar í skuldir.
Enn fækkar í röðum Verkamannaflokksins en
BREZKIR JAFNAÐAR-
MENN SIGURVISSIR
— andvígir tillögum um kjarnorkuafvopnun Bretlands
Hinn nýstofnaði brezki jafnaðar-
mannaflokkur heldur nú ráðstefnu í
Bradford á Norður-Englandi, sem
mun ljúka í London síðar í þessari
viku. Roy Jenkins, sem stofnaði
flokkinn ásamt þremur öðrum fyrr-
verandi ráðherrum úr röðum Verka-
mannaflokksins, sagði í ræðu í gær að
líkur væru á að flokkurinn gæti
myndað næstu rikisstjórn. Flokkur-
inn hefur nú átján þingmenn og sagt er
að meðlimir hans séu um 60 þúsund.
David Owen fyrrum utanríkisráð-
herra lýsti því yfir á ráðstefnunni að
vilji jafnaðarmanna til friðar og af-
vopnunar væri ekki minni en meðal
annarra flokka en þeir væru hins
vegar ekki reiðubúnir til aðgerða sem
myndu veikja Atlantshafsbanda-
lagið. Var þessari yfirlýsingu fagnað
ákaflega. Fékk hún enn frekari
stuðning við það að Richard Mitchell
lýsti því yfir að hann hefði gengið úr
röðum þingmanna Verkamanna-
flokksins og yfir í hinn nýja flokk.
Ástæðuna fyrir þessu sagði hann þá
stefnu Verkamannaflokksins að leita
eftir einhliða kjarnorkuafvopnun og
að vilja að Bretland gangi úr Efna-
hagsbandalagi Evrópu.
David Steel, leiðtogi Frjálslynda
flokksins, sem gert hefur kosninga-
bandalag við jafnaðarmenn til næstu
almennra kosninga, sagði frétta-
mönnum að saman myndu flokkarnir
reyna að mynda ríkisstjórn til að
koma fram fimm ára áætlun sinni um
efnahagslegar umbætur og stjórnar-
skrárbreytingar. Að öllu óbreyttu
verða næstu þingkosningar í Bret-
landi árið 1984.
Roy
Jenkins.
Heimsmeistaraeinvígið íMeranó á ítalíu:
JAFNTEFU í
ÞRIÐJU SKÁKINNI
— Kortsnoj setti upp speglasólgleraugun og var aldrei
i taphættu
Viktor Kortsnoj tókst loks að
stöðva sigurgöngu heimsmeistarans
Karpovs í Meranó í gær, er þriðju
skák þeirra lauk með jafntefli efdr
fremur þófkennda skák. Sama
byrjun varð uppi á teningnum og í 1.
skákinni, Tartakower afbrigðið i
drottningarbragði, og varð Karpov
fyrri til að breyta út af. Kortsnoj virt-
ist fá ívið þægilegri stöðu eftir byrj-
pnina, en varnir heimsmeistarans
voru traustar fyrir. Eftir 31 leik var
ljóst að skákin sigldi hraðbyri í jafn-
teflishöfn, því hvorugur keppenda
gat aðhafst, neitt án þess að taka
verulega áhættu.
Flestir áttu von á því að áskorand-
inn tæki sér frí i gær til þess að safna
kröftum eftir mótlætið i tveimur
fyrstu skákum einvígisins, en þeir
reyndust hafa á röngu að standa.
Kortsnoj mætti vígreifur til leiks, lík-
lega vegna þess að Karpov er hjátrú-
arfullur maður og fellur illa að tefla á
mánudögum. Það segir Kortsnoj
a.m.k. í bókinni „Fjandskák”.
Að hætti Fischers mætti Kortsnoj
nokkrum mínútum of seint í skákina,
hvort sem það var af ásettu ráði eða
ekki. Áður en hann lék 1. leikinn
setti hann upp spegilsólgleraugun
frægu, til þess að verjast stingandi
augnaráði heimsmeistarans. E.t.v. er
það kaldhæðni örlaganna að Korts-
noj skyldi einmitt nú sjá sólina i
fyrsta skipti í einvíginu.
HVÍTT: Viktor Kortsnoj
SVART: Anatoly Karpov
Drottningarbragð
1. c4 e6 2. Rc3 d5 3. d4 Be7 E. Rf3
Rf6 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 b6 8.
Hcl Bb7 9. Be2 dxc4
Karpov er fyrri til að breyta út af 1.
skákinni, enda lumar Kortsnoj ef-
laust á einhverju ljúfmeti. Hér er þó
engin nýjung á ferðinni, heldur leikur
sem þekktur hefur verið allt frá
dögum Tartakowers, upphafsmanns
afbrigðisins. í 1. skákinni lék Karpov
9. — Rbd7.
10. Bxc4 Rbd7 11.0-0 c5 12. De2
I 1. einvígisskák þeirra félaga í
Baguio fyrir þremur árum lék Korts-
noj 12. dxc5 og skákin koðnaði niður
í jafntefli á methraða. Áskorandinn
er þekktur fyrir allt annað en að láta
bugast af mótlæti og er í baráttu-
skapi.
12. —a6!
Nú kemur í ljós nauðsyn þess að
þekkja skákir gömlu meistaranna.
Alexander Aljekín stakk upp á
þessum leik í skýringum við skák sína
við Bogoljubov á skákmóti í Bad
Neuheim 1937, í stað 12. —Re4, sem
Bogoljubov lék. Reyndar fetaði
Fischer í fótspor Bogoljubov 1 skák
við Petrosjan á Áskorendamótinu í
Júgóslavíu 1959; en fékk einnig erf-
iða stöðu. Textaleikurinn hindrar
Bc4 — a6, því eftir uppskipti á bisk-
upum situr svartur uppi með veik-
leika á hvítu reitunum á drottningar-
væng. Hugmynd Aljekíns er að svara
13. Hfdl með 13. —b5! og svartur
nær mótspili.
13. a4 Re4 14. Rxe4
Eftir 14. Bg3 gæti komið 14. —
Rxg3 15. hxg3 cxd4 16. exd4 Rf6 17.
Hfdl Bb4. 18. Re5 De7 og svartur má
vel við una.
14. — Bxe415. Bg3 Dc8!
16. dxc5
Freistandi er 16. b4! ? en eftir 16.
— Db7 17. dxc5 bxc5 18. b5 axb5 19.
Bxb5 (eða 19. axb5) Rb6 hefur svartur
ágæta möguleika. Lakara er hins
vegar 16. — cxb4?! 17. Bxe6! (ekki
17. Bd5? exd5! 18. Hxc8 Hfxc8 og
svartur stendur betur) 17. — fxe6 18.
Hxc8 Hfxc8 19. Db2o.s.frv.
Staða svörtu drottningarinnar and-
spænis hróknum sýnist hæpin, en þó
á Kortsnoj engin betri tök á að not-
færa sér hana heldur en með hinum
gerða leik. Nú sundrast peðastaða
Karpovs drottningarmegin, því hann
getur ekki tekið á c5 með manni
vegna b4 leiksins. Kortsnoj fær aftur
á móti bakstætt peð á b-línunni sem
nú opnast, svo möguleikarnir ættu að
vega nokkuð jafnt.
16. — bxc5 17. Rd2 Bc6 18. b3 Hd8
19. Bd3 Db7 20. f3 Rf6 21. Hfdl Rd5
22. e4 Rb4 23. Bbl Be8!
Undirbýr að laga stöðu riddarans
með — Rc6 — d4.
24. e5
Eftir 24. Bf2 Hac8 25. e5, gæti
engu að síður komið 25. —Rc6. T.d.
26. Bxc5? Bxc5 27. Hxc5 Rd4 28. Dc4
Hxc5 29. Dxc5 Rxb3! og vinnur.
24. — Rc6 25. Bf2 Rd4 26. Bxd4
Hxd4 27. Be4 Bc6 28. Bxc6 Dxc6 29.
Rc4 Had8 30. Hxd4 cxd4 31. Dd3
Bb4
Frípeðið er tryggilega skorðað og
sömuleiðis peðameirihluti hvits á
drottningarvæng. Hvorugur getur
bætt stöðu sína.
32. g3 Hb8 33. Kg2 Bc3 34. Hbl Dd5
35. h4 h5 36. Kf2 Bb4 37. Kg2 Be7
38. Hdl Db7 39. Hbl Dd5 40. Hb2
Bb4 41. Hbl Jafntefli.
Lokastaðan:
Yasser Arafat.
Arafat á ferð
Yasser Arafat, leiðtogi frelsishreyf-
ingar Palestínuaraba (PLO), mun
koma til Peking á morgun í opinbera
heimsókn í boði kínversku ríkisstjórn-
arinnar. Talsmaður PLO sagði að Ara-
fat myndi ræða ið formann kínverska
kommúnistaflokksins, Hu Yaobang,
varaformanninnDeng Xiaopin, Zhao
Ziyang forsætisráðherra og Huang
Hua varaforsætis- og utanrikisráð-
herra.
Umræður þeirra munu einkum
snúast um ástandið í Mið-Austur-
löndum og einnig gæti verið að rætt yrði
um vopnasölu Kínverja til PLO.
Vextir lækka íBandaríkjunum
Helztu bankar Bandaríkjanna lækk- kynnti ríkisstjórnin að Seðlabankinn
uðu í gær útlánsvexti sína um hálft myndi slaka á hinni ströngu aðhalds-
prósent, úr 19,5% í 19%. Samtímis til- stefnu sinni.
Millipils, buxur
og tilhcyrandi
skyrtubolir úr satíni.
Litir: Stjörnuhvitt.
hunangsbrúnt,
biúlilla.
PÓSTSENDUM