Dagblaðið - 06.10.1981, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
interRent
car rental
Bílaleiga Akureyrar
Akureyrí: Tryggvabr 14 - S 21715. 23515
Reykjavík: Skeifan 9 - S 31615, 86915
Mesta úrvalið, besta þjónustan
Við útvegum yður afslátt
á bílaleigubílum erlendis
Margar
gerðir
Verð frá
251.50 ti!
620.50
okron
hf. Sfðumúla 31
Sími 39920.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hjúkrunarfræðinga vantar að Fjórðungssjúkrahúsinu
Neskaupstað.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í símum 7403 og
7466.
Fjórðungssjúkrahúsið Neskaupstað.
Cinbý/ishús
Til leigu óskast einbýlishús, gjarnan eldra hús, með 3—5
svefnherbergjum, helzt bílskúr en ekki skilyrði. Kaup á
húsinu koma einnig til greina. Má þarfnast lagfæringar.
Tilboð sendist DB merkt „Einbýlishús 343”.
Bankastræti 8 — Sími 27510
• Spilar hvaöa lagsem
er með aðeins einum fingri.
• Engin sérstök þjálfun
eða
Híippe Sturtuklefar og hurðir
B999*i’9AV°ruver*tao
Trj09v« HdnnesfoitAr
SIOUMÚLA 37-SIMAR 83290-83360
Loðnusjómenn beita sér
fyrir undirskriftasöfnun
—krefjast sérstakra löndunargengja og 2 f rídaga
mánaðarlega
Hópur loðnusjómanna hefur tekið
sig saman og gengst nú fyrir undir-
skriftasöfnun á flotanum fyrir
bættum kjörum. Safna þeir nú undir-
skriftum undir tvær kröfur sem þeir
vilja að settar verði á oddinn í kom-
andi kjarasamningum Sjómannasam-
bands íslands og útgerðarmanna.
Sú fyrri er þessi: Fiskkaupandi
setji löndunargengi til löndunar úr
loðnubátunum án þess að það hafi
áhrif á skiptapróscntu eða kaupmátt
loðnusjómanna að nokkru leyti.
Hin er svohljóðandi: Loðnusjó-
mönnum verrði tryggt 48 stunda sam-
fellt frí í heimahöfn skips mánaðar-
lega skv. almanaki, frá því að vertíð
hefst og þar til henni lýkur.
Þorlákur Kristinsson, háseti á
Víkurberginu frá Grindavík, er einn
forsprakka undirskriftasöfnunar-
innar. Hann sagði í samtali við frétta-
mann blaðsins í gær að þessar
tvær kröfur hefðu verið mikið
til umræðu meðal sjómanna á loðnu-
flotnum. „Við gerum okkur því
góðar vonir um um að fá góðar
undirtektir í þessari söfnun,” sagði
Þorlákur. „Það eru nær 600 sjó-
menn á flotanum núna og við telj-
um okkur geta náð til mikils fjölda
þeirra fyrir 29. október þegar söfnun-
inniáaðljúka.”
Þorlákur sagði sjómenn geta borið
sig eftir undirskriftalistum hjá skip-
verjum á Víkurberginu eða þá hjá
verkalýðsfélaginu Vöku á Siglufirði
og hjá Guðmundi Sæmundssyni
verkamanni á Akureyri.
Listunum verður siðan komið til
Sjómannasambandsins með þeirri
kröfu að kröfurnar tvær verði hafðar
með í komandi kjarasamningum.
-ÓV.
„GEYSILEGT ÚF HÉRNA,
GÓÐAR 0G JAFNAR TEKJUR”
— segir yf irhaf narvörðurinn á ísafirði
Hafi menn áhuga á að fræðast eitt-
hvað um fiskirí i einstökum sjávar-
plássum hefur löngum þótt ráðlegasl
að leita upplýsinga hjá þeim sem annast
hafnarvogina. Og það var einmitt það
sem blaðamenn DB gerðu er þeir voru á
ferð á Isafirði á dögunum.
„Við erum stórhuga, það er geysi-
legt líf hérna, góðar og jafnar tekjur
hjá bæjarfélaginu,” sagði Sturla
Halldórsson yfirhafnarvörður á ísa-
firði.
„Togararnir eru fjórir; nýja Guð-
björgin, Guðbjartur, Júlíus Geir-
mundsson og Páll Pálsson. Þeir hafa
allir veitt mjög vel og verið heiftarvinna
hjá sjómönnunum á þeim.
Það er þannig með þessa vestfirzku
sjómenn að þeir láta ekki ganga á eftir
sér að standa frívaktir. Ef eitthvað er
að gera þá vinna þeir þar til allt er
búið,” sagðsi Sturla sem sjálfur veit
hvað er að vera á sjó.
„Ég fór í fyrsta sinn til sjós átta ára
gamall með pabba. Við fórum inn í
Djúpog við fylltum bátinn.”
Að sögn Sturlu hafa þrir línubátar
verið gerðir út frá ísafirði að undan-
förnu. Hafa þeir fiskað vel, komið með
8—15 tonn eftirdaginn.
Hörpuskelin hefur ekki fengið frið i
sumar. Isfirzkir sjómenn hafa sótt
Sturla Halldórsson: „Þaö er þannig með
ganga á eftir sér við að standa frívaktir.”
hana inn á Jökulfirði, farið út snemma
á morgnana og komið aftur á kvöldin
og fiskað bara gott á því.
Rikir þá áhyggjuleysi og góðæri hjá
öllum á ísafirði? Ekki er það nú alveg.
„Það er slæmt hljóð i þeim sem gera
út á rækjuna og rækjukaupmönnum.
Þeir eru að gefast upp á þessu í stórum
stíl. Það er mikið af gömlum bátum í
þessu, eigendurnir hefðu viljað endur-
nýja en það er ekki hægt með þessari
þessa vestfirzku sjómenn að þeir láta ekki
DB-mynd: Sigurður Þorri.
afkomu.”
í fyrravetur stunduðu 36 bátar
rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi. Voru
þeir flestir af stærðinni 11 til 30 tonn og
veiddu að meðaltali 80—85 tonn á
vertíðinni. Óvíst er hvenær hefja má
veiðarnar. Fer það eftir mælingum
rannsóknarskipsins Drafnar á seiða-
göngum. Veiðarnar gætu þess vegna
hafizt næstu daga en líka ekki fyrr en
eftir margrar vikur.
-KMU.
Kristján Pétursson í svari til Hannesar Hafstein:
Ákvörðun um líkamsleit
„erfið og viðkvæm” og
framkvæmdin „ógeðfelld”
„Samkvæmt lagalegum starfskyld-
um tollgæzlumanna tel ég þeim
óheimilt að svara spurningum eins og
þeim, sem skrifstofustjóri utanrikis-
ráðuneytisins, Hannes Hafstein,
óskaði eftir að lagðar yrðu fyrir toll-
verði á Keflavíkurfiugvelli, nema
þess sé beiðzt af lögreglustjóranum á
Keflavíkurfiugvelli og vegna dóms-
eða lögreglurannsóknar meintra
brota tollgæzlumanna í starfi,”
segir Kristján Pétursson, tollgæzlu-
stjóri á Kefiavíkurfiugvelli, i svari við
grein Hannesar sem að nokkru var
getið í DB.
„Þar sem tollgæzlan fór í einu og
öllu að lögum í umræddu tilviki fæ
ég ekki skilið hvaða ástæður liggja til
grundvallar slíkum spurningum.”
Kveðst Kristján fús að veita for-
eldrum símleiðis upplýsingar varð-
andi líkamsleit sem hjá þeim hafi
verið gerð. Hafi viðkomandi hins
vegar verið viðriðinn eða sakaður um
fíkniefnabrot visi hann á lögreglu-
stjórann á Keflavíkurfiugvelli, fíkni-
efnadeild lögreglustjórans í Reykja-
vík og Ávana- og fikniefnadómstól-
inn.
Kristján segir ákvörðunartöku
tollgæzlumanna um líkamsleit ávallt
„erfiða og viðkvæma” og fram-
kvæmdina öllum „ógeðfellda”.
Kveður hann fólk í langfiestum til-
fellum saklaust. „Þær ástæður sem
lagðar eru til grundvallar líkamsleit
hjá tollgæzlunni hérlendis eru þær
sömu og á hinum Norðurlöndunum
og öðrum lýðræðisríkjum V-Evrópu.
Varla eru þau í hópi lögregluríkja að
mati greinarhöfundar,” segir
Kristján.
Hann kveður tollgæzlumenn hafa
ströng fyrirmæli um að sýna
„fyllstu kurteisi og nærgætni í
starfi”. Miðað við fjölda komugesta
telur hann tollgæzlumenn hafa „sýnt
og sannað starfshæfni sína enda
starfi hér sérstaklega samvizkusamur
og samstilltur hópur góðra manna”.
Segir Kristján í lokin að fyrirhugað sé
að efia fíkniefnaeftirlit og rannsóknir
á komandi mánuðum og skorar á alla
landsmenn að styrkja tollgæzlumenn
í þeirri viðleitni. -A.St.