Dagblaðið - 06.10.1981, Side 20
20
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1981.
Tr .-. -. ~
Nýjar bœkur
lL Jj
■
BrianGarfield Sendiboði
Churchills
löunn
Sendiboði
Churchills
eftir Brian Garfield
Út er komin hjá IÐUNNI sagan Scndi-
boði Churchills eftir breska höfundinn
Brian Garfield, skráð i samvinnu við
„Kristófer Creighton”. — í formála
höfundar segir svo þessu til skýringar:
„Söguhetjan í þessari frásögn er raun-
verulegur maður. Hann er nú á sextugs-
aldri. Hann heitir ekki Kristófer
Creighton. Þessi bók byggir á hinni
stórfurðulegu ævi hans, en bókin er
skáldsaga og sem slik styðst hún við
skáldaleyfi. Ef til vill getur „Kristó-
fer” einn dæmt um að hve miklu leyti
og í hvaða atriðum frásögnin kemur
heim við sannleikann.”
Söguhetja bókarinnar kynnist
fimmtán ára piltur Winston Churchill,
r
Arnað
heilla
Þórdis Þórarinsd. og Gunnar Svein-
björnsson voru nýlega gefin saman í
hjónaband i Kópavogskirkju af séra
Lárusi Halldórssyni. Heimili ungu
hjónanna er að Vesturbergi 28.
Breiðholti. Ljósmyndina tók Sigurður
Þorgeirsson Klapparstíg 16, sími
14044.
Ingibjörg Baldursdóttir og Trygg'.
Axelsson voru nýlega gefin saman i^
hjónaband af séra Karli Sigurbjörns-
syni i Hallgrímskirkju. Heimili þeirra
er að Laugavegi 70, Reykjavík. Ljósm.
Sig. Þorgeirsson, sími 14044.
Erla Pétursdóttir og Gisli Petersen voru
nýlega gefin saman í hjónaband af sr.
Þóri Stephensen í Dómkirkjunni.
Heimili þeirra er að Melhaga 18,
Reykjavík. Ljósmyndina tók Sigurður
Þorgeirsson, sími 14044.
Birna Magnúsdóttir og Sveinn Valsson
voru nýlega gefin saman í hjónaband í
Kópavogskirkju af séra Árna Pálssyni.
Ljósmyndina tók Sigurður Þorgeirs-
son, sími 14044.
■ ■ ■ ■ ■ rrrTiTi ■ ■ ■ mirtfm
FILMUR OG VÉLAR S.F.
uuuu i ■ i imumuuumu
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
GÓÐ JÖRÐ
til sölu strax ef viðunandi tilboð fæst. Fé og hey
getur fylgt. Uppl. í síma 97-5688.
rosknum þingmanni sem ýmsir héldu
að væri úr leik í breskum stjórnmálum.
Þegar Churchill kemst svo til valda
nokkrum árum seinna gengur Kristófer
í þjónustu hans, hlýtur sérstaka þjálfun
og honum eru brátt falin ýmis verkefni
sem mikið er undir komið og leynt eiga
að fara. Fyrst er hann sendur til Belgíu
í njósnaför, örskömmu fyrir innrás
Þjóðverja i Niðurlönd, síðan til írlands
að fylgjast með kafbátaviðbúnaöi
Þjóðverja. Viðfangsefni Kristófers
verða æ hrikalegri. Meðal annars þarf
hann að tryggja að vitneskja um fyrir-
hugaða árás Japana á Pearl Harbour
komist ekki til Bandarikjamanna, því
að Bretum reið á að fá Bandarikja-
menn út í stríðið. Og áður en lýkur er
hann sendur á vald Gestapó til að villa
um fyrir Þjóðverjum varðandi innrás-
ina! Frakkland.
Sendiboða Churchills þýddi Álf-
heiður Kjartansdóttir. Bókin er 280
blaðsiður. Prentrún prentaði.
Veðurfræði
eftir Markús Á. Einarsson
Út er komin á vegum IÐUNNAR ný og
endurskoðuð útgáfa Veðurfræði eftir
Markús Á. Einarsson. Bókin er
kennslubók ætluð framhaldsskólum.
Er fjallað um almenn undirstöðuatriði
veðurfræðinnar „og reynt að gera það
á svo auðskilinn hátt að lesa megi bók-
ina án verulegrar eðlisfræðiþekking-
ar”, segir i formála hðfundar. Bókin
skiptíst í tíu kafla: Veðurfræði; Loft-
hjúpurinn; Geislun og orkuskipti;
Hitafar; Loftþrýstingur og vindar;
Raki, ský og úrkoma; Loftmassar; Skil
og lægðir; Veðurskeytí, veðurkort og
veðurspár; Veðurfar. í bókinni er
fjöldi skýringarmynda.
í þessari nýju útgáfu hefur síðustu
köflunum tveimur verið breytt talsvert.
Tekið er tillit til breytinga á skeytalykli
fyrir almenn veðurskeyti sem taka gildi
1. janúar 1982, auk þess sem bætt er
við efni um tæknileg hjálpartæki og
veðurlag á íslandi. í siðasta kafla er
aukið við efni um hitabreytingar á ís-
landi frá landnámi og um þættí sem
móta veðurfar landsins.
Veðurfræði er 108 blaðsíður, Oddi
prentaði.
Neyöarkall Lúlla
Út er komin unglingasagan Neyðarkall
Lúlla eftir breska höfundinn E.W.
Hildick. IÐUNN gefur bókina út. —
Hildick er kunnur unglingasagnahöf-
undur. Á íslensku hafa áður komið
eftir hann þrjár sögur, Fangarnir í
Klettavík, Kötturinn sem hvarf og
Liðið hans Lúlla. Fyrir síðastnefndu
söguna, sem er hin fyrsta í flokki sagna
um Lúlla mjólkurdreifingarstjóra,
hlaut höfundurinn barnabókaverðlaun
þau sem kennd eru við H.C. Andersen.
Um Neyðarkall Lúlla segir svo i
kynningu forlagsins: „Strákarnir sem
vinna hjá Lúlla, Timmi og Smitti,
verða að halda á spöðunum. En nú er
allt í einu eins og gæfan hafi snúið baki
við Lúlla. Það byrjar þannig að einn
viðskiptavinurinn finnur gullfisk í
flöskunni sinni. Og svo finnst fleira, og
fleira . . . Auðvitað fækkar viðskipta-
vinunum fljótt þegar svo er komið. Það
skyldi þó ekki vera að dreifingarstjóri
keppinautanna standi hér á bak við?
En ef svo er, hvernig á að sanna það?
Timmi og Smitti fara á stúfana og svo
sendir Lúlli út -neyðarkall því hér er
mikið í húfi. . .”
Neyðarkall er prýdd teikningum
eftir Iris Schweitzer. Álfheiður Kjart-
andóttir þýddi bókina sem er 138
blaðsíður. Prentrún prentaði.
Ottó
nashyrningur
Út er komin hjá IÐUNNI barnabókin
Ottó nashyrningur eftir danska höf-
undinn Ole Lund Kirkegaard. Hann
var kunnur barnabókahöfundur, gaf út
allmargar bækur sem hann mynd-
skreytti jafnan sjálfur. Kirkegaard lést
fyrir fáum árum. Eftir hann hafa áður
komið út á íslensku fjórar sögur: Fúsi
Ole Lund Kirkegaard
Ottó
froskagleypir, Gúmmí-Tarsan, Albert
og Hodja og töfrateppið. Ottó
nashyrningur segir frá því er Viggó og
Topper teikna mynd af nashyrningi á
vegg, myndin verður lifandi og nas-
hyrningurinn stígur út á mitt gólf. —
Valdís Óskarsdóttir þýddi söguna um
Ottó nashyrning. Hún er prýdd fjölda
mynda eins og aðrar sögur höfundar.
Bókin er 112 blaðsíður. Prisma prent-
aði.
Ástarsaga úr
fjöllunum
eftir Guðrúnu Helgadóttur
Út er komin hjá IÐUNNI ný bók eftir
Guðrúnu Helgadóttur, Ástarsaga úr
fjöllunum. Bókin er prýdd fjölda lit-
mynda sem Brian Pilkington hefur
gert. Hér er um að ræða ævintýri með
þjóðlegri hefð þar sem brugðið er á leik
með náttúruna og ástína.
Mjög hefur verið vandað til útgáfu
bókarinnar sem, eins og fyrr segir, er
prýdd fjölda mynda í fullum litum.
Prentmyndastofan hf. annaðist litaað-
greiningu en Blik hf. setti íslenska text-
ann. Bókin var prentuð í Belgíu síðast-
liðið vor og voru fyrstu eintökin kynnt
á alþjóðlegri barnabókasýningu í Bol-
ogna á Italíu og vaktí bókin mikla at-
hygli. Útlit er fyrir að bókin komi út á
nokkrum erlendum tungumálum á
næsta ári.
Brian Pilkington er fæddur í Liver-
pool árið 1950 og lauk prófi frá
Leicester Art College eftir fimm ára
nám. Hann hefur verið búsettur hér á
landi undanfarin 5 ár ásamt íslenskri
konu sinni og ungri dóttur. Hér á landi
hefur hann haldið tvær einkasýningar.
Afmæliskveðja
til prófessors
Halldórs
íslenska málfræðifélagið hefur gefið út
Afmæliskveðju til Halldórs Halldórs-
sonar prófessors, en hann varð sjötug-
ur á liðnu sumri. í ritinu eru 20
greinar eftir innlenda og erlenda
fræðimenn, sem flestar fjalla um mál-
vísindi og íslensk fræði. Ritið er þrjú
hundruð blaðsíður á lengd og mun
verða fáanlegt í bókaverslunum innan
skamms. Ritstjórar eru Guðrún Kvar-
an, Gunnlaugur Ingólfsson og Syavar
Sigmundsson.
Málfræðifélagið gengst einnig fyrir
útgáfu tímaritsins íslenskt mál og al-
menn málfræði, og er þriðja bindi þess
væntanlegt síðar á þessu ári eða í
byrjun þess næsta. Þar verða einnig
fræðilegar greinar um málfræði og is-
lenskt mál. Ritstjóri þess er Höskuldur
Þráinsson.
Láivik KrUt{á»t«oii
Vestræna
ritgerðir eftir
Lúðvik Kristjánsson
Út er komin á vegum Sögufélags ný
bók: VESTRÆNA — ritgerðir eftir
Lúðvík Kristjánsson. VESTRÆNA er
gefin út i tilefni sjötugsafmælis
Lúðvíks, sem var hinn 2. september sl.
Þann dag afhenti forseti Sögufélags,
Einar Laxness, honum fyrsta eintak
bókarinnar.
VESTRÆNA er 291 bls. að stærð og
er meginefni hennar átján ritgerðir eftir
Lúðvík. I ritinu er heillaóskalisti með
nöfnum á níunda hundrað einstaklinga
og stofnana, sem færa Lúðvík kveðjur
og þakkir fyrir góð kynni og merkan
ritferil. Auk þess ritar Einar Laxness
greinina ,,Á sjötugsafmæli Lúðvíks
Kristjánssonar” og í bókarlok er skrá
yfir ritstörf Lúðvíks. Útgáfuna hafa
annazt Bergsteinn Jónsson og Einar
Laxness. Gegnt titilsíðu er teikning af
Lúðvík, gerð af Guðmundi P. Ólafs-
syni og hefur hann einnig gert bókar-
kápu. Setning, prentun og bókband í
Prentsmiðjunni Hólum h.f.
Ritgerðirnar átján eftir Lúðvík
Kristjánsson bera þessi nöfn:
Konan, sem gaf mér reyrvisk
Af honum fóru engar sögur
Enn er Dritvíkurmöl fyrir dyrum fóslra
— Upprifjanir á níræðisafmæli Jóns i Einarslóni
,,Hún sveik aldrei saumstungan hennar Gróu”
Heimasæturnar i Akureyjum
Fylkingin vestra umhverfis Jón Sígurðsson
Bréf til Ingigerðar
Grænlenzki landnemaflotinn og breiðfirzki báturinn
Þorvaldur Jakobsson prestur I Sauðlauksdal
„Þá eru komnir þrir í hlut”
Sjóslysaárin miklu '*
Þegar flytja átti íslendinga til Vestur-Indía
Jóladýrðin i Gullbringusýslu árið 1755
„Stúlka” og höfundur hennar
Varðveizla Fjölnis á Snæfellsnesi og í Breiðafirði
Fjölnismenn og Þorsteinn J. Kúld
Dagbækur Finnboga Bernódussonar
Skáldið Longfellow og islenzk þjóðfrelsisbarátta