Dagblaðið - 06.10.1981, Page 28

Dagblaðið - 06.10.1981, Page 28
Ungi maðurinn, vottur Jehóva, látinn á Landspítalanum: ÞETTA ER ALGER SÓUN MANNSLÍFA — segírSigmundur Magnusson læknir, „ósátturviðþað aðfólkséaf trúarlegum misskilningi að fórna lífi sínu” „Ég er ákaflega ósáttur við að fólk sé af trúarlegum misskilningi að fóma lífi sínu,” sagði Sigmundur Magnússon' læknir seint í gærkvöldi. í gærmorgun lézt á Landspítalanum ungur maður, vottur Jehóva, sem neitað hafði að þiggja blóðgjef samfara lyfjameðferð við iílkynja blóðsjúkdómi, h'itblæði. Eins og Dagblaðið hefur greint frá var manninum lífsnauðsynleg lyfja- meðferð sem eyddi blóðkornum og blóðflögum. Samfara meðferðinni er mikilvægt að sjúklingnum sé gefið blóð og blóðhlutar. Af trúarástæðum neita vottar Jehóva blóðgjöf. Sjúklingurinn bað um meðferð án blóðgjafar. Læknar gerðu honum og; aðstandendum hans grein fyrir því að slík meðferð myndi að öllum líkindum stytta líf hans. Engin meðferð var þó dauðadómur þannig að læknar voru settir í erfiða stöðu enda nánast blind- götur í allar áttir þar sem blóðgjöf var hafnað. „Þetta er alger sóun á mannslífum,” sagði Sigmundur í gær. Sigmundur er sérfræðingur i lyflækningum og blóðsjúkdómum og annaðist hann unga manninn. „Mér er engin launung á því að ég er alls ekki sáttur við það að fólk fari svona. Mönnum er gefið frjálst að leika sér svona með lífið og stytta það, en t.d. á sama tíma er verið að skylda okkur til þess að spenna okkur niður i bílana. Hér er um mót- sögn að ræða.” Eins og fram hefur komið í DB geta læknar ekki gripið til meðferðar nema með samþykki sjúkl- ings, sé hann sjálfráða. -JH. Bankakerfið: YFIR HELMINGUR UT- LÁNA VERÐTRYGGDUR — miðað við núverandi verðbólgustig — og mikill hluti útlána rétt fyrir neðan verðbólgustigið Meira en 50 prósent af útlánum bankakerfisins eru nú verðtryggð, miðað við núverandi verðbólgustig. Það er þau ná verðbólgustigi, að sögn Bjarna Braga Jónssonar hagfræðings Seðlabankans. Mikill hluti annarra útlána bankakerfisins er nálægt verð- tryggingu. Bjarni Bragi reiknar með að verð- bólgustigið sé um þessar mundir tæp 40 prósent. Með verðtryggðu útlán- unum eru talin gengistryggð afurða- lán til útflutningsafurða, fylgi gengið verðbólgunni. Þau lán sem ekki ná verðbólgustigi eru helzt víxillán, yfirdráttarlán á hlaupareikningum og afurðalán sem ekki eru vegna útflutnings. Á víxlum er ávöxtun á ári um 39%, rétt undir verðtryggingu. Á yfirdráttarlánum er ársávöxtun 38,5%, einnig skammt fyrir neðan verðbólgustigið. Hins vegar eru vextir af ógengistryggðum afurðalánum aðeins 29% (forgangs- vextir) og ávöxtun á ári aðeins 32,3 prósent. Bjarni Bragi sagði að yfir 90 prósent af nýjum lánum í fjárfesting- arlánakerfinu væru nú verðtryggð. Verðtrygging gilti einnig yfirleitt í lif- eyrissjóðum. Þessi staða um verðtryggingu út- lána gæti að sjálfsögðu breytzt. Hún er miðuð við núverandi verðbólgustig eingöngu. -HH. Gaman gamanl Hver segir svo að það þurfi að vera sólskin og sumarylur svo ungviðið geti skemmt sér úti í náttúrunni? Ljósm. Hjörtur Guðnason. Flugneminn enn með- vitundarlaus Líðan flugnemans, sem slasaðist i flugslysi á Hellu í fyrradag, var i morgun óbreytt. Hann liggur enn meðvitundarlaus á gjörgæzludeild Borgarspítalans. Rannsókn slyssins er haldið áfram. Sjónarvottar voru yfirheyrðir í gær og eftir er að rannsaka flakið enn frekar en það var flutt til Reykja- vikurí fyrrakvöld. -KMU. Dósalokunarvél Siglósfldarfundin: Var send til landsins á röngu naf ni Dósalokunarvél Siglósildar er fundin. Fannst hún sl. föstudag, dag- inn eftir að Dagblaðið hafði skýrt frá þvi að hún hefði verið týnd i kerfinu i heilan mánuð. Dósalokunarvélin fannst í vöru- geymslu Eimskips, nánar tiltekið Borgarskála. Hafði hún veriðsend til landsins á röngu nafni. Var hún merkt Norðurstjörnunni í Hafnar- firði en ekki Siglósíld. Lokunarvélin var væntanleg til Siglufjarðar um það leyti sem fyrstu eintök Dagblaðsins komu á götur borgarinnar í hádeginu. Var hún sett á flutningabil í gær. Ekki mátti dragast mikið lengur að lokunarvélin fyndist. Að sögn Pálma Vilhjálmssonar framkvæmdastjóra er Siglósíld einmitt nú að hefja fram- leiðslu gaffalbita sem afhendast eiga Sovétmönnum i nóvember. Er gert ráð fyrir að á milli 60 og 70 manns verði í vinnu hjá verksmiðjunni þegar framleiðslan verður komin á fullt. -KMU. frjúlst, áháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 6. OKT. 1981. Hrapaði til banaíGrímsey Tuttugu og sjö ára gamall Grímsey- ingur, Þorleifur Ólason, lét lífið i smalamennsku sem hann tók þátt í á sunnudagsmorguninn. Slysið átti sér stað vestan til í svonefndum Eyjarfæti norðan til á eynni. Þorleifur heitinn hrasaði í kindaslóð en snjór var yfir öllu og klaki víða undir. Þorleifur hrapaði niður skriðu og fram af um 20 metra háum klettum. Varð fljótlega til hans komizt en þá reyndist hann örendur, hafði fengið mikið höfuðhögg. Þorleifur Ólason lét eftir sig konu og tvö ung börn. Aldraðir foreldrar hans búa og í Grímsey. Þorleifur var athafnamaður og stóð í byggingu fisk- verkunarhúss í félagi við bróður sinn. -A.St. Drukknaði í höf ninni á Eskif irði Elías Valur Benediktsson, 23 ára skipverji á Jóhönnu ÁR 206, fannst ládnn í höfninni á Eskifirði um kl. 21 í gærkvöldi. Elías Valur var frá Þorláks- höfn en átti lögheimili á Selfossi. Hann sást siðast eftir dansleik aðfaranótt sunnudags. Farið var að grennslast fyrir um manninn er hann kom ekki fram og leit hófst fyrir alvöru upp úr hádegi í gær. Kölluð var út björgunarsveit og fjörur gengnar fráEskifirði, út Reyðar- fjörð að Haganesi. Kafarar fundu lik mannsins nokkra metra undan trébryggju fyrir neðan verbúð Jóns Kjartanssonar hf. á Eski- firði. -JH/Emil, Eskifirði. IVIKU HVERRI Vinningur vikunnar: er Útsýnarferð til Vinningur í þessari viku er ÍJt- sýnarferð til St. Petersborg beach meö ferðaskrifstofunni Útsýn, Austurstrœti 17 Reykjavík. 1 vikunni verður birt, ú þessum stað I blaöinu, spuming tengd smú- auglýsingum Dagblaðsins. Nafh heppins úskrifanda verður síðan birt daginn eflir I smúauglýsingun- um og gefst honum tœkifœri til að svara spurningunni. Fylgizt vel með, úskrifendur. Fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegri utanlandsferð rikari. hressir betur.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.