Dagblaðið - 09.10.1981, Blaðsíða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981.
21
G
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
Opið mót EM-sveitar
Golfklúbbs Rvíkur
Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur, sem vann sér rétt
til þátttöku á Evrópumótinu i lok nóvember, efnir til
golfmóts að Grafarholti á laugardag til fjáröflunar
fyrir utanförina. Mótið er opið öllum og leiknar
12—18 holur eftir því hvernig viðrar. Ræst verður út
frá kl. 10 og frameftir degi. Um kvöldið verður
skemmtun og þar m.a. sýndar golfmyndir.
Ármenningar
borguðu KKÍ!
Ármann verður með á íslandsmótinu i körfu-
knattleik. Laust fyrir klukkan 17 í gær birtist Guð-
mundur Sigurðsson, formaður körfuknattleiksdeild-
ar Ármanns, á skrifstofu KKÍ með fullar hendur fjár
og gerði upp skuldir félagsins á síðustu stundu. KKÍ
hafði gefið Ármanni frest til kl. 17 í gær til að gera
hrejnt fyrir sinum dyrum, að öðrum kosti yrði félag-
ið útilokað frá þátttöku i íslandsmótinu í vetur.
Ármenningar drógu þó tvo flokka út úr íslands-
mótinu, 2. og 4. flokk. Meistaraflokkur og 3.
flokkur félagsins verða með en eins og kunnugt er
mætti 1. deildar lið félagsins ekki til leiks gegn
Keflavík um síðustu hélgi og allt benti til þess að
liðið sem lék í úrvalsdeildinni í fyrra og varð fslands-
meistari fyrir fimm árum, hætti þátttöku. Annað
virðist nú uppi á teningnum og nú er bara að bíða og
sjá hvort alvara er á bak við, hvort Ármann mætir
til leiks gegn Skallagrími 17. október. -VS.
ÍBK-Haukar- hörku-
leikur í 1. deild
Á morgun verður stórleikur í 1. deildarkeppni
karla í körfuknattleik. Keflavík og Haukar mætast í
fyrsta leik deildarinnar og er beðið eftir honum með
mikilli eftirvæntingu. Keflvíkingar hafa tvö síðustu
ár hafnað í 2. sæti 1. deildar og telja nú tima til
kominn að vinna sér sæti i úrvalsdeildinni. Þeir hafa
nýjan Bandarikjamann innanborðs, Tim Higgins
heitir hann, tæpir tveir metrar á hæð og mjög
sterkur leikmaður að sögn Keflvíkinga. Haukar sigr-
uðu i 2. deild i fyrra og leika nú í fyrsta skipti í 1.
deild. Þeim hefur verið spáð miklum frama enda eru
margir stórefnilegir leikmenn í liði þeirra. Þá leikur
„Spóinn”, Dakarsta Webster, sem áður lék með KR
og Skallagrími, nú með Haukum en hann er 2,11 m á
hæð. Það stefnir því allt i hörkuleik og að sögn Kefl-
víkinga verður enginn svikinn sem kemur í íþrótta-
húsið í Keflavík en þar hefst leikurinn kl. 14.
Ballesteros
sigraði Hale Irwin
Fyrsta umferðin í heimsmeistarakeppni i golfi
(World match play golf championship) var háð á
Wentworth-golfvellinum á Engiandi í gær. Úrslit
urðu þau að Severiano Ballesteros, Spáni, sigraði
Hale Irwin, USA, 6/4, Gary Player, Suður-Áfríku,
sigraði Isao Aoki, Japan, 5/4, Brian Barnes, Bret-
landi, sigraði Ray Floyd, USA, 3/2, Ben Crenshaw,
USA, sigraði Nick Faldo, Bretlandi, 5/3. Tólf kepp-
endur. I dag heldur mótið áfram. Þá leika saman
Ballesteros og Norman, Barnes og Langer, V-Þýzka-
landi, Player og Rogers meðal annars.
Jaf ntefli Hauka
og Aftureldingar
Þrír leikir voru háðir í íslandsmótinu i handknatt-
leik auk stórleiksins í 1. deild milli Víkings og Þrótt-
ar. Eftir hann léku kvennalið sömu félaga. Þar vann
Vikingur einnig, 27—14. í íþróttahúsinu í Hafnar-
firði voru tveir leikir. Haukar og Afturelding gerðu
jafntefli i 2. deild karla, 23—23, og i 2. deild kvenna
unnu Haukastúlkurnar lið Grindavíkur, 33—5.
ísland -Belgía
-ídagkl. 16,15
í dag fer fram fyrri leikur ísiands og Belgíu í
Evrópukeppni unglingalandsliða í knattspyrnu 16—
18 ára. Leikið verður á Laugardalsvelli og hefst
leikurinn kl. 16.15. Jóhannes Atlason unglinga-
landsliðsþjálfari hefur valið 16 manna hóp fyrir
leikinn og skipa hann eftirtaldir piltar: Markverðir:
Guðmundur Erlingsson, Þrótti R. og Stefán Arnars-
son, KR. Aðrir leikmenn: Björn Rafnsson, Snæfelli,
Davið Egilsson og Hannes Jóhannsson, KR, Einar
Björnsson, Kristinn Jónsson, Steinn Guðjónsson,
Valdimar Stefánsson og Þorsteinn Þorsteinsson,
Fram, Gísli Hjálmtýsson fyrirliði, Fylki, Halldór
Áskelsson, Þór Ak., Ingvar Guðmundsson, Kefla-
vík, Jón Halldór Garðarsson, FH, Kristján Jónsson
og Sverrir Pétursson, Þrótti R.
Dómari verður J.B. Worrail frá Englandi og rétt
er að vekja athygli á þvi aS aðgangseyrir verður
aðeins 10 kr.
Forráðamenn KA við rjómatertuna miklu, frá vinstri Kristján Valdimarsson, Hermann Sigtryggsson, Stefán Gunnlaugsson,
Gunnar Jóhannsson, Haukur Torfason, Jón Arnþórsson formaður KA og Stefán B. Árnason. DB-mynd GSv.
NÝR OG GLÆSILEGUR
GRASVÖLLUR HJÁ KA
—en vígsluhátíð hefur verið f restað til vors
Frá Guðmundi Svanssyni, Ákureyri:
Laugardaginn 3. október bauð
knattspyrnudeild KA öllum þeim er
lagt höfðu hönd á plóginn við upp-
byggingu nýs grasvallar til mikillar
veizlu. Þar var á boðstólum líkan af
nýja vellinum sem reyndist vera heljar-
mikil rjómaterta, gerð af bræðrunum
Birgi og Kjartani í bakaríi Kr. Jónsson.
Vegna ótíðar í haust var ekki unnt að
leika vígsluleik og hefur honum því
verið frestað til vors. Við vígsluathöfn-
ina stóð til að leika bæði í 5. flokki og
kvennaflokki.
Vinna viðgrasvöllinn hófst 1977 með
vinnu við jarðvegsskipti en hitalagnir,
sem eru undir grasinu, alls 1500 metra
langar, voru lagðar 1979—80. Jarð-
vegsvinnu lauk í júlí í ár og hafði þá
verið ekið í völlinn miklu magni af möl,
mold og sandi.
Þökulagning hófst í lok júlí og þurfti
um 18.000 fermetra af þökum í verkið.
Lagningunni lauk 20. september að
fullu en því mesta var lokið 20. ágúst.
Frá byrjun hafa verið unnar um 5000
stundir í sjálfboðavinnu við vallar-
gerðina og þegar mest var á lokasprett-
inum voru um 60 manns í lagningunni.
Duglegustu sjálfboðaliðarnir hafa
uninð 200—250 stundir í vellinum.
Starfsmaður vallarins er Haukur
Torfason. Hann hefur þegar slegið
grasið tvisvar og ræktunin virðist vera
á réttri leið. Fyrir veturinn á að setja
upp varanlega girðingu vestan við vall-
arsvæðið. Hún á að vera tveggja metra
há og um 225 metrar á lengd. Nauðsyn-
legt er að girða þar sem mikil umferð
gangandi og hjólandi er um svæðið.
Heildarkostnaður við völlinn er nú
orðinn um 1,1 milljón króna.
Vallarnefnd vill þakka allt hið
öeigingjarna starf sem lagt hefur verið
fram af sjálfboðaliðum, hinn ríflega
stuðning ýmissa einstaklinga, yngri og
eldri, og sérstaka rausn Bílaleigu Akur-
eyrar en sem kunnugt er hafa þeir
Ágústssynir verið miklir burðarásar í
KA, jafnt innan vallar sem utan.
Að sögn Stefáns Gunnlaugssonar í
vallarnefnd mun grasvöllurinn gjör-
breyta æfingaraðstöðu allra flokka
KA. Meistaraflokkur félagsins mun
áfram leika heimaleikina á aðalleik-
vangi Akureyrar en gert er ráð fyrir að
yngri flokkarnir leiki á nýja vellinum.
Þetta hefur tekizt og fyrir það
þökkum við.
-GSv.
HM unglinga í knattspyrnu í Astralíu:
Heimsmeistararnir
komust ekki í úrslit
England og Ástralía tryggðu sér sæti
I átta liða úrslitum í HM unglinga i
knattspyrnu sem nú stendur yfir I
Ástralíu. í gær skildu iiðin jöfn, 1—1,
og heimsmeistarar unglinga, Árgen-
tínumenn, eru þar með úr leik. Qatar
og Egyptaland eru meðal hinna átta
þjóða sem eftir eru í keppninni.
Úrslit leikja í gær urðu þessi:
B-riðill
Brasilía-Suður-Kórea 3—0
Rúmenía—Ítalía 1—0
Annar Kani
tilKR
„Við höfum fullan hug á að ná í er-
lendan leikmann sem getur leikið með
KR þar til Stewart Johnson hefur náð
sér af meiðslunum,” sagði Björgvin B.
Schram hjá körfuknattleiksdeild KR í
samtali við DB í gærkvöldi. „Samning-
ar standa nú yfir við tvo umboðsmenn
um þrjá leikmenn sem koma til
greina,” sagði Björgvin.
Art Housey, Carlos Zuniga og Julius
Howard heita þessir þrír heiðursmenn.
Housey og Zuniga voru báðir hjá at-
vinnumannaliðum í Bandaríkjunum en
var hafnað þar rétt áður en keppnis-
tímabilið hófst. Howard er öllu reynd-
ari leikmaður en að sögn Björgvins er
Housey efstur á listanum eins og er þar
sem hann er hávaxinn, rúmir 2 metrar,
og leikur stöðu miðherja, nokkuð sem
skortir tilfinnanlega hjá KR. -VS.
Brasilía
Rúmenía
Suður-Kórea
Ítalía
3
3
3
3
D-riðill
England 3 1
Ástralía 3 1
Argentína 3 1
Kamerún 3
England—Ástralía
Argentína—Kamerún
0 4—2 4
0 6—5 4
1 1 1 3—3 3
0 1 2 3—6 1
1 — 1
1—0
gær seldur til Leeds fyrir 400 þúsund
sterlingspund. Burns, sem er kunnasti
leikmaðurinn i ensku knattspyrnunni,
hefur verið hjá Forest í fjögur ár sem
varnarmaður. Var keyptur frá
Birmingham til Forest en með Birming-
ham var hann markheppinn miðherji.
Fyrr i vikunni fór Burns fram á að vera
settur á sölulista og varð stjóri Forest,
Brian Clough, við ósk hans.
-hsím.
Átta liða úrslitin verða leikin um
helgina og þar mætast eftirtalin lið:
Uruguay—Rúmenía
Vestur-Þýzkaland—Ástralía
Brasilia—Qatar
England—Egyptaland
Það er þvi ljóst að nýir heimsmeist-
arar unglinga verða krýndir í ár en
ógerlegt að spá nokkru um hverjir það
verða. DB veðjar á Brasilíu! -VS.
Kenny Burns.
Kenny Burns, skozki landsliðsmið-
vörðurinn hjá Nottingham Forest, var í
Burns til Leeds
„Mótið verður erfitt
fyrir okkur Víkinga”
- sagði Páll Björgvinsson, f yrirliði Víkings, eftir 18-16 sigur á
Þrótti fgærkvöld. „Liðin leggja sig tvöfalt fram gegn okkur”
„Þetta var frábær byrjun fyrir
okkur. Það var talsverð taugaspenna
framan af eins og gefur að skilja, þegar
við höfum leikið svona marga lelki án
taps á íslandsmótinu. Leikurinn var
mjög góður á köflum en mótið verður
erfitt fyrir okkur Víkinga i vetur. Liðin
leggja sig tvöfalt fram gegn okkur,”
sagði Páll Björgvinsson, fyrirliði
íslandsmeistara Víkings, eftir að lið
hans hafði sigrað bikarmeistara Þrótt
18—16 í hörkuleik á fjölum Laugar-
dalshallarinnar í gærkvöld. Það var
fyrsti leikurinn f 1. deild karla á þessu
keppnistímabili og ef handknattleikur-
inn verður svona spennandi í vetur mun
ekki skorta áhorfendur. Þeir voru
margir í gær.
Gífurleg spenna var lokakafla
leiksins. Víkingar höfðu unnið upp
tveggja marka forskot Þróttar og
komizt þremur mörkum yfir um
miðjan síðari hálfleikinn, 16—13.
Þróttur minnkaði muninn í eitt mark,
17—16, þegar sex mínútur voru eftir.
Allt á suðupunkti eftir það en ekki
nema eitt mark skorað. Guðmundur
Guðmundsson gulltryggði sigur
Víkings 29 sekúndum fyrir leikslok.
Þróttur hafði vissulega fengið tækifæri
til að jafna í 17—17. Fékk víti en
Kristján Sigmundoson, frábær mark-
vörður Víkings, varði frá Sigurði
Sveinssyni. Víkingar fengu knöttinn.
Baráttan gífurleg og Páll Björgvinsson
átti skot framhjá Þróttarmarkinu.
Sama skeði hinum megin, þegar Jens
Jensson reyndi að brjótast inn úr horn-
inu. Rúm mínúta eftir og Víkingar fóru
sér að engu óðslega þar til Guðmundur
hinn eldfljóti brauzt í gegn og skoraði.
Rólegt í f yrri
hálfleik
Leikurinn fór rólega af stað og allan
fyrri hálfleikinn voru Víkingar talsvert
frá sinu bezta — talsvert frá þeim leikj-
um, sem þeir hafa að undanförnu sýnt
í Reykjavíkurmótinu. Mótstaðan var
Einar með FH
Einar Bollason landsliðsþjálfari í
körfuknattleik hefur síður en svo lagt
skóna á hilluna. í vetur mun hann leika
með iiði FH i 2. deild ásamt fleiri kenn-
urum úr Flensborg og reynsla hans
kemur nýliðunum vafalítið i góðum
notum. -VS.
líka miklu meiri. Vörn Þróttar þétt
fyrir og í markinu var Sigurður
Ragnarsson mjög snjall. Ef Þróttur
nær þessum varnarleik og markvörzlu í
Evrópuleiknum á leiðin í 2. umferð að
vera greið. Víkingur skoraði fyrsta
markið. Þróttur jafnaði ekki fyrr en á
8. mín. 1 — 1. Síðan 2—2 en Víkingur
komst i 4—2 og lengi vel var oftast
tveggja marka munur Víkingum í hag,
7— 5, þegar sex mín. voru eftir af hálf-
leiknum. En þá hljóp allt í baklás hjá
Víkingsliðinu. Þróttur skoraði þrjú
síðustu mörkin í hálfleiknum. Komust í
8— 7 á 28. mín. í fyrsta skipti sem þeir
Páll Björgvinsson skorar fyrir Viking
úr hraðupphlaupi f gærkvöld. Átti stór-
leik með liði sinu. DB-mynd S.
voru yfir. Víkingur fékk víti en skot
Páls lenti í stöng.
í byrjun s.h. jafnaði Árni Indriðason
í 8—8 og Jens og Jón Viðar Sigurðsson
svöruðu fyrir Þrótt, 10—8. Víkingar
jöfnuðu fljótt 10—10. Þróttur komst
aftur yfir með marki Páls Ólafssonar.
Jafnt síðan 12—12 og Sigurður Sveins
kom Þrótti í 13—12 á 43.; mín. Það
var í síðasta sinn, sem Þróttur hafði
yfir. Víkingar skoruðu næstu fjögur
mörk. Komust í 16—13 og þá loks
virtist sigurinn blasa við íslandsmeist-
urunum. En Þróttur gaf ekki eftir.
Minnkaði muninn í 16—15. Þáskoraði
Sigurður Gunnarsson sitt annað glæsi-
mark fyrir Víking i leiknum og eftir
það var mikill darraðardans á fjölum
Laugardalshallarinnar eins og áður er
lýst.
Markvarzla Kristjáns og Sigurðar
var aðall þessa leiks og varnarleikurinn
yfirleitt mjög góður. Sóknarleikur
Víkings ekki beittur lengi vel og
munaði þar mestu að Þorbergur Aðal-
steinssonar náði sér.ekki á strik i sókn-
inni. Páll Björgvinsson hins vegar
óstöðvandi og skoraði nær öll mörk
Víkings i fyrri hálfleik. Sigurður
Gunnarsson er greinilega að ná sér á
strik og skoraði mjög þýðingarmikil
mörk fyrir Víking. Árni klettur í vörn-
inni, þeir gerast þar ekki betri hér.
Þróttar-liðið var nú mun jafnara en
oftast áður, ekki allt byggt á Sigga
Sveins og Páli Ólafssyni og í heild var
þessi leikur liðsins miklu betri en
Evrópuleikurinn við Kristiansand sl.
sunnudag. Liðsheildin mun betri en
áður. Siggi og Palli ógnuðu þó mest
eins og áður en Sigurður markvörður
var bezti maður liðsins.
Mörk Víkings skoruðu Páll Bj. 8 ,
Steinar Birgisson, Þorbergur, Sigurður
og Guðmundur tvö mörk hver, Árni og
Ólafur Jónsson eitt hvor. Siggi Sveins
var markhæstur leikmanna Þróttar
með 5/2, Páll Ól. 3, Gunnar Gunnars-
son 3/2, Jens og Jón Viðar tvö hvor og
Ólafur H. Jónsson eitt.
Dómarar Gunnlaugur Hjálmarsson
og Karl Þórðarson. Þróttur fékk 5 víta-
köst, fjögur nýtt, Vikingur eitt, sem
ekki nýttist. Tveimur leikmönnum
Þróttar vikið af velli, Gunnari og Páli.
Þremur úr Víking, Þorbergi, Ólafi og
Guðmundi. Brottrekstur Ólafs vakti
furðu. Ekkert flautað og Ólafur rekinn
út af fyrir að taka knöttinn upp og
reynamarkskot.
-hsím.
GÓD BYRJUN HJÁ KR
—f jögur stig úr tveimur Kanalausum leikjum
KR hefur nú náð sér í gott veganesti í
tveimur fyrstu leikjum úrvalsdeildar-
innar. Útlendingslausir sigruðu þeir ÍS í
gærkvöldi, 76—69 eftir framlengingu.
Þegar aðeins 15 sek. voru eftir af
venjulegum leiktíma var staðan 64—60
KR í vil og sigurinn blasti við. Gísli
Gíslason skoraði úr vítaskoti, 64—61,
Bjarni Gunnar náði knettinum strax
undir körfu KR og skoraði, brotið á
honum í skotinu. Bjarni fékk þvi eitt
vítaskot á siðustu sekúndunni og gamli
maðurinn brást ekki, jafnt 64—64 og
því framlengt.
Fyrri hálfleikur var lítið augnayndi.
Stúdentar náðu strax forystu og voru
komnir í 27—11 eftir 13. mín! Ellefu
stig KR á 13 mín. segir sína sögu,
aðeins Kristján og Ágúst hittu í
körfuna á meðan ÍS jók forystuna
jafnt og þétt. Þá kom trompið hjá
Stewart Johnson, þjálfara KR. Hann
tók Jón Sigurðsson út af og setti hinn
17 ára gamla Pál Kolbeinsson (Páls-
sonar) inn á. Þvílík breydng! KR tók
að saxa á forskotið og í hálfleik var
aðeins 4 stiga munur, 31—27, ÍS í hag.
En hálfleikurinn var afar slakur og það
var öllu skemmtilegra að fylgjast með
Val Brazy, Fram, leika sér með knött-
inn í hléinu.
KR jafnaði í fyrsta sinn i leiknum á
upphafsmínútum síðari hálfleiks, 31 —
31, með körfum Kristjáns og Birgis. ÍS
komst í 39—31 en KR minnkaði mun-
inn á ný. Jón Sig. kom inn á að nýju á
6. mín. hálfleiksins og á 10. mín.
skoraði hann sína fyrstu körfu. Hann
kom jafnframt KR yfir í fyrsta sinn
með þeim stigum, 44—43. Það sem
eftir var leiktímans mátti vart á milli sjá
hvort liðið hefði betur og lokamínút-
unum hefur þegar verið lýst.
Fyrsta mínúta framlengingarinnar
var afdrifarík fyrir ÍS. Gísli Gíslason
fór út af með 5 villur og Ágúst Líndal
skoraði 3 stig fyrir KR. Dennis
McGuire náði tvívegis að minnka mun-
inn niður í eitt stig en Garðar skoraði
tvær síðustu körfur KR, þá seinni 5
sek. fyrir leikslok. Það var ekki sízt
„endurfæðing” Jóns Sig. sem færði
KR sigur í leiknum. Hann skoraði 16
stig eftir að hann sneri til leiks á ný.
Páll Kolbeinsson var geysisterkur í
sókn og vörn, gífurlegt efni þar á ferð.
Kristján vex með hverjum leik, hirðir
mikið af fráköstum, en vítanýting hans
var slæm. Hinn T6 ára gamli ungliriga-
landsliðsmaður, Birgir Mikaelsson lék
mjög vel og skoraði þýðingarmikil stig.
Geir Þorsteinsson lék nú með KR að
nýju, kom lítið inn á og er greinilega í
lítilli æfingu.
Dennis McGuire hóf leikinn hálf
haltur en náði sér samt ágætlega á strik
í síðari hálfleik. Gísli var bezu maður
ÍS framan af ásamt Árna en síðan
dofnaði yfir honum. Bjarni Gunnar
stóð fyrir sínu og reynsla hans var
Stúdentum dýrmæt í lok hins venjulega
leiktima.
Stig KR: Kristján Rafnsson 21, Jón
Sigurðsson 16, Ágúst Líndal 14,
Garðar Jóhannsson 9, Birgir Mikaels-
son 8, Páll Kolbeinsson 4, Bjarni og
Eiríkur Jóhannessynir 2 hvor.
Stig ÍS: Dennis McGuire 31, Bjarni
Gunnar 15, Gunnar Thors 10, Gísli
Gíslason 9, Árni Guðmundsson 4.
Dómaramálin
verður að bæta
Enginn dómari mætti til leiks. Stefán
Kristjánsson kom til að horfa á og
fékkst til að dæma og náð var í Val
Brazy til að dæma á móti honum. Eftir
leikinn var Stefán mjög óánægður,
taldi frammistöðu KKÍ til skammar og
kvaðst ekki myndu dæma aftur á
vegum KKÍ. Það dróst því um hálftíma
að leikurinn gæti hafizt og slíkt má
ekki endurtaka sig. Vonandi er hér um
undantekningu að ræða, annað yrði
körfuknattleiknum ekki tíl framdrátt-
ar. Þeir Stefán og Val dæmdu mjög vel
framan af en í siðari hálfleik tókst þeim
ekki að halda nógu góðri stjórn á leikn-
um og mikill hití var í mönnum á tíma-
bili. Ekki er mikið hægt að sakast við
þá, þeir voru að gera góðverk, eins og
Stefán sagði. Leiðinlegt þegar menn
eru með skítkast út i menn sem bjarga
málum fyrir þá eins og Stefán og Val
gerðu. -VS.
Guðmundur Guðmundsson innsiglaði sigur Víkings nokkrum sekúndum fyrir leikslok en í atvikinu á myndinni að ofan tókst
honum ekki að skora hjá Sigurði Ragnarssyni, bezta manni Þróttar i leiknum. DB-mynd S.
„Allar líkur á að ég
taki tilboði Fortuna”
—segir Pétur Ormslev en f orráöamenn Fram lögðust gegn því
„Það eru allar líkur á að ég taki
tilboði Fortuna Diisseldorf þó forráða-
menn knattspyrnudeildar Fram séu á
móti því. Maður er að minnsta kosti
kominn út ef ég tek þessu — og ég held
ég þori ekki að sleppa þessu tækifæri.
Það skýrist nánar síðar i dag,” sagði
Pétur Ormslev, landsliðsmaður í
Fram, þegar DB ræddi við hann í gær.
„Það er hugsanlegt að ég fari til
Dússeldorf í fyrramálið, laugardags-
morgun — ég er að bíða núna eftir
símtali við Þýzkaland”, sagði Pétur nú
rétt fyrir hádegi.
Viðræður Péturs og umboðsmanns
hans, Willie Reinke, við forráðamenn
Fram í fyrrakvöld leiddu ekki til
neinnar niðurstöðu. Forráðmenn
Fram lögðust gegn drögunum að
samningi Péturs. Töldu að hann og þá
um leið Fram fengi ekki nóg í sinn
Pétur Ormslev.
hlut. Mun minna en til dæmis Atli
Eðvaldsson og Magnús Bergs fengu
þegar þeir gerðu samninga sína við
Borussia Dortmund. Einnig mun
minna en Janus Guðlaugsson fékk,
þegar hann gekk til liðs við Fortuna
Köln. Staðfestar tölur í sambandi við
samninga þessara manna liggja þó ekki
á lausu.
Þó að forráðamenn hafi lagzt gegn
samningnum eins og hann lá fyrir vilja
þeir þó á engan hátt hindra Pétur í að
gerast atvinnumaður hjá Fortuna.
Síður en svo — það er á valdi leik-
mannsins. DB hefur frétt á skotspón-
um að Fortuna hafi boðið Pétri 200
þúsund vestur-þýzk mörk fyrir
samning til tæpra tveggja ára. Siðan
verður hann svo á kaupi og alls kor.ar
bónusum. Þess má geta, að fyrir
nokkru var skýrt frá því i vestur-þýzka
stórblaðinu Bild að Pétur mundi ger-
ast atvinnumaður hjá Fortuna. Blaðið
nefndi þá töluna 100 þúsund mörk en
gatekki um samningstíma.
-hsim.
1. deildin ísænska handboltanum:
„ANDRÉS BEZTI
MAÐUR HJÁ GUIF’
-segirSydsvenska
Dagbladet
„íslendingurinn Andrés Kristjánsson
var ákaflega hreyfanlegur og átti mjög
góðan leik,” segir Sydsvenska Dag-
bladet i gær um leik Andrésar með
sænska 1. deildar handboltaliðinu Guif
gegn Ystad. Blaðið nefnir Andrés sem
bezta mann Guif auk þess sem hann var
markahæsti maður liðsins með sex
mörk.
Það dugði Guif þó ekki til sigurs því
Ystad sigraði með 26:21. Eftir tvær
umferðir i sænsku 1. deildinni eru
Kroppskultur, Frölunda og Drott efst
og jöfn með fjögur stig. Guif hefur
tapað báðum leikjum sínum. í annarri
deildinni átti annar íslendingur stórleik
— þaö var Árni Hermannsson sem var
markahæstur í liði Malmö FF. Hann
skoraöi niu mörk en engu að síður tap-
aði lið hans fyrir Olympia með 25:27.
-GAJ, Lundi.
Andrés Kristjánsson í leik með
Haukum gegn FH og það er enginn
annar en Þórarinn Ragnarsson á Mogg-
anum sem hann hefur komizt fram hjá.