Dagblaðið - 10.10.1981, Síða 10

Dagblaðið - 10.10.1981, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981. BIAÐIÐ Útgefandi: Dagblaflið Kf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónos Kristjónsson. Aflstoflarritstjóri: Haukur Helgason. FióttastjóH: Ómar Valdimarsson. Skrifstofustjóri ritstjómar Jóhannes Reykdal. íþróttir Hallur Símonarson. Aðstoflarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit Ásgrimur Pálsson. Hönnun: Hiimar Karisson. Blaflamonn: Anna Bjamason, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefáns- dóttir, EHn Albortsdóttir, Franzisca Gunnarsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir, Jóhanna Þráinsdóttir, Kristján Már Unnarsson, Lilja K. Möller, Ólafur E. Friflriksson, Sigurður Sverrisson, Víflir Sigurflsson. Ljósmyndir Bjamleifur Bjamlotfsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurflsson, og Sveinn Þormóflsson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Auglýsingastjóri: Ingótfur P. Steins- son. Dreifingarstjóri: Valgerflur H. Sveinsdóttir. Ritstjóm: Síflumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aflalsimi blaflsins er 27022 (10 línur). Setning og umbrot Dagblaðifl hf., Síðumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., Síflumúla 12. Prentun: Árvakur hf., SkeHunni 10 Áskriftarverfl á mánufli kr. 85,00. Verð f lausasölu kr. 6,00. Hvaöa Sjálfstæöisflokkur ? Fylgi hefur stöðugt safnazt um Sjálf- stæðisflokkinn síðan kosið var til þings fyrir tæpum tveimur árum. Skoðana- könnun Dagblaðsins nokkrum mán- uðum eftir kosningarnar sýndi, að rúm 43 prósent þeirra, sem tóku afstöðu, töldu sig sjálfstæðismenn. Þetta hlutfall hækkaði síðan í 46 prósent og hélzt þannig í þremur skoðana- könnunum Dagblaðsins. Nú hefur það enn aukizt hlut- fallslega, svo að hreinn meirihluti þeirra, sem tóku af- stöðu í síðustu skoðanakönnun, segist styðja Sjálf- stæðisflokkinn. Enhvaða Sjálfstæðisflokk? í skoðanakönnunum skipa sér um Sjálfstæðisflokk- inn jafnt stjórnarsinnar sem stjórnarandstæðingar, Geirsmenn, Gunnarsmenn, Albertsmenn og aðrir. At- burðir síðustu daga undirstrika enn, að mikið djúp er staðfest milli armanna í Sjálfstæðisflokknum. Deil- urnar virðast munu harðna í stað þess að þær lægi. Þess vegna verður ekkert um það fullyrt, að Sjálf- stæðisflokkurinn geti fengið hreinan meirihluta í þing- kosningum. Skoðanakannanirnar sýna, að sívaxandi hluti þeirra, sem á annað borð taka afstöðu, telur sig ,,sjálfstæðismenn” með hinum margvíslegu formerkj- um. Þarna er mislitur og sundraður hópur saman kominn. Þetta kemur glöggt í ljós af ummælum, sem margir láta fylgja svörum sínum við spurningunni: Hvaða stjórnmálaflokk styður þú um þessar mundir? Margir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins leggja áherzlu á, að þeir vilji hafa flokkinn óskiptan, en margir eru þeir einnig, sem undirstrika stuðning sinn við armana. Meðan einn stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins lýsir andstöðu sinni við forsætisráðherra og stefnu hans, segir annar frá andstöðu sinni við formann Sjálf- stæðisflokksins og stjórnarandstöðu hans. Óákveðnum hefur fjölgað, síðan Dagblaðið gerði skoðanakönnun í maí síðastliðnum. Þeir eru nú tals- vert meira en þriðjungur. Þetta talar sínu máli um stöðuna í stjórnmálunum. Geysistór hluti landsmanna getur á þessari stundu ekki gert upp hug sinn um stuðning við neinn af stjórnmálaflokkunum. Þessi mikli fjöldi óákveðinna eykur enn óvissuna. Skoðanakönnunin sýnir einnig tap hjá Alþýðu- bandalagi og Alþýðuflokki samanborið við könnunina í maí. Alþýðuflokkurinn virðist nú hafa misst helminginn af þeim stuðningi, sem hann hafði í síðustu kosning- um. í þingkosningunum 1979 naut Alþýðuflokkurinn mjög góðs af „leiftursókn” Sjálfstæðisflokksins, sem hrakti stóran kjósendahóp í fangið á Alþýðuflokknum síðustu vikur kosningabaráttunnar. Síðan hefur flest gengið á móti alþýðuflokksmönnum, meðal annars sundrung í flokknum. í skoðanakönnunum Dagblaðs- ins hafði Alþýðuflokkurinn lengi 10—11 prósent. Nú fer fylgið niður fyrir 9 prósent, enda hefur sundrungin í flokknum magnazt og vakið mikla athygli þjóðar- innar síðustu mánuði. Skoðanakönnunin sýnir, að fylgi leitar frá Alþýðu- bandalaginu yfir í raðir óákveðinna. Við þá tilfærslu hækkar að sjálfsögðu hlutfall sjálfstæðismanna meðal hinna, sem ekki eru óákveðnir. Þetta sýnir leiða kjósenda Alþýðubandalagsins. Sá flokkur hefur að undanförnu í vaxandi mæli komið fram sem kerfisflokkur, en ekki flokkur launþega. Alþýðubandalagsmenn birtast gjarnan í líki hinna íhaldssömu, sem standa gegn kjarabótum. Þeir koma fram sem flokkur ríkiseinokunar í útvarpsrekstri, meðan mikill hluti landsmanna er að tengjast kerfi myndbanda. Þeir láta á sér bera sem bitlingaflokkur í stöðuveitingum. Kjósendur þeirra þreytast. ... —r..... Svíar f engu „f aðir vorið” í nýrri útgáf u: ELUUFEYRISÞEG- INN VARD Á UNDAN ÞÝDINGARNEFNDINNI —Tvær nýjar biblíuþýðingar komu út í Svíþjóð með nokkurra daga milíibili Aðeins rúmum hálfum mánuði eftir að hin nýja íslenzka biblíuútgáfa kom á markað á íslandi var gefin út í Svíþjóð ný biblía og ekki aðeins ein heldur tvær. Aðeins með nokkurra daga millibili sáu tvær nýþýðingar dagsins ljós hér í Svíþjóð. 1 báðum tilfellum var þó aðeins um að ræða nýjar þýðingar á Nýja testamendnu. Gamla testamentið er því enn i sömu mynd og það var gefið út árið 1917. Fjölmiðlar áhugasamir Það hefur vakið athygli mína hversu rækilega hefur verið frá þessu skýrt í fjölmiðlum hér þar sem Svíar hafa verið við flest annað fremur kenndir en mikinn trúaráhuga á síð- ustu árum. Hin mikla biblíuumræða í fjölmiðlum hér að undanförnu er af ýmsum talin vísbending um að á þessu sé nú að verða breyting. Bo Giertz með Nýja testamentið sitt. Hann var sjötíu ára gamall þegar hann hófst handa við þýöinguna og lauk henni á aðeins sjö árum. Búskaparhreytur að haustdögum Ef litið er til almennrar þjóðmála- amræðu liðinna ára má segja að fleira hafi þar verið af marklausu fjasi byggðu á lítilli þekkingu en vit- rænum umræðum um viðfangsefni. Út yfir taka oft lesendabréf ýmiss konar sem mjög hafa færzt í vöxt í dagblöðum og eru að miklum meiri hluta svo ómerkileg lesning að furðu sætir hjá svo gáfaðri þjóð og vel menntaðri (eða viljum við ekki kall- ast það?) En fleiri hafa þar lagt orð i belg, sem betur ættu að vita, allt til kjall- aragreina og leiðara þar sem úir og grúir af órökstuddum fullyrðingum og sleggjudómum sem þó virðast síast inn í fólk undir formerkinu: Ætli eitthvað sé nú ekki til í þessu? Og víst er svo oft þó 90% séu helber uppspuni eða þaðan af verra. Einstaka stjórnmálamenn hafa jafn- vel slegið í gegn með slikum 90% blekkingum huldum í hrikalegum kjafthætti með siðgæðis- og sann- leiksstimpli í bak og fyrir — vel að merkja eigin stimpli — Nöfn eru hér óþörf. Víst er það svo að erfítt er að rata hinn gullna meðalveg sanngirni og réttsýni og vej. veit ég að mörgum fmnst sem undirritaður tilheyri þeim hópi sem þar verður æði oft illilegur fótaskortur. Ekki skal því neitað heldur og engin tilraun gerð til neins þvottar i þeim efnum. Landbúnaðar- málin En einn málaflokkur er það þó, sem ég hefi oft undrazt af hve miklum ókunnugleika, ósanngirni og blindu hefur verið um fjallað af alltof mörgum, og það eru Iandbúnaðar- mál okkar. Ef draga ættí saman og finna niðurstöður af því versta, sem þar hefur komið fram, þá væri hún eitthvað á þessa leið: Landbúnaður er af hinu illa, óþörf iðja með öllu, bændur eyðsluklær og ómagar, framleiðsla þeirra engum bjóðandi, verðmætin minni en engin, atvinnu- tækifæri í kringum greinina hvergi sjáanleg og svo mætti áfram halda. Það væri að æra óstöðugan að elt- ast hér við enda hafa bændur og búa- lið blessunarlega látið þetta sem vind um eyru þjóta en þess í stað haldið áfram að erja jörðina og færa okkur þannig einhver beztu matvæli sem kostur er, dýrmæt hráefni til vinnslu, þar sem þúsundir hafa af Kjallarinn Helgi Seljan framfæri og skila ótöldum millj- örðum í þjóðarbúið, jafnt til innan- landsneyzlu sem útflutnings. Og þegar að þessum staðreyndum fengnum upphefst spurningakórinn: Er þá ekkert sem betur mætti fara í greininni? Er þá ekki útflutnings-

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.