Dagblaðið - 10.10.1981, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1981.
Viðburðarík torfærukeppni á Akureyri:
Buðu upp á óvenjulegar
og erfiðar brautir
ökuþórarnir Sigurður Baldvinsson
og Bergþór Guðjónsson deildu meö
sér sigrinum í torfærukeppni á Akur-
eyri. Hún var haldin á sunnudaginn
var og þótti takast ágætlega í flesta
staði. Með árangri sínum tryggði
Bergþór sér þar með íslandsmeistara-
titilinn í torfæru.
Alls tóku sex manns þátt í keppn-
inni. Þeir þurftu að aka sjö brautir
sem voru vel lagðar og skemmtilegar.
Þar af var ein tímabraut. Hún gaf
flest stig þannig að ökumennirnir
urðu að leggja sig alla fram á henni.
Þeir óku tímabrautina tvisvar og var
betri tíminn látinn gilda.
Á ýmsu gekk hjá þátttakendunum.
Á fyrstu brautinni sporðreistist jeppi
Bergþórs. Hann fékk aðstoð við að
velta honum á réttan kjöl að nýju og
hélt að því búnu áfram keppni eins og
ekkert hefði í skorizt. Þetta var eina
stóra óhappið sem Bergþór varð fyrir
í allri keppninni. Hann ók mjög vel
og var áberandi yfirvegaðasti öku-
maðurinn af þeim sex sem reyndu
meðsér.
Sigurður Baldvinsson var nasrri þvf lentur fram yfir sig á timabrautinni.
Honum tókst þó að halda jeppa sinum á hjólunum.
X. / 3?
*
v."
Sigurvegaramir mefl bikarinn sem þeir hlutu afl launum. Þeir œtla að
skiptast á afl geyma hann, hálft árifl hvor.
Af öðrum skakkaföllum má nefna
að á þriðju brautinni, þrælbrattri
brekku, losnaði spindill í jeppa
Halldórs Jóhannessonar með þeim
afleiðingum að hann missti hægra
framhjólið undan. Talsvert illa gekk
að ná bílnum af brautinni. Jarðýta
sem átti að draga hann burt gróf sig
niður og festist. Allt fór þó vel að
lokum.
Þá braut Ólafur Gröndal framöxul
á fjórðu braut sem var ákaflega þýfð.
Það óhapp háði honum talsvert það
sem eftir var keppni. Á tímabrautinni
fékk hann síðan viftuspaða í vatns-
kassann og var þar með úr leik. Þetta
var fyrsta torfærukeppnin sem
Ólafur tók þátt í.
Ýmislegt fleira gekk á á tímabraut-
inni. Til dæmis varð Guðmundur
Gunnarsson að hlaupa í mark í fyrri
umferðinni. í sömu umferð var jeppi
Sigurðar Baldvinssonar næstum því
farinn fram yfir sig.
Sjöunda og síðasta brautin var
talsvert upp á við og ofan í stóran
drullupoll. Engum tókst að komast
alla leið yfir pollinn. Afturhjólin á
bíl Bergþórs voru þó aðeins eftir er
hann gafst upp.
f heildina séð þótti torfærukeppnin
á Akureyri takast vel. Hún hófst á
nákvæmlega réttum tíma, sem mun
vera nær einsdæmi í þessari bíla-
íþrótt. Nokkurt pat var þó á
mönnum þegar þeir áttu að draga
jeppana upp úr drullupollinum á sjö-
undu braut. Einnig tafði það nokkuð
keppnina þegar reynt var að draga
jeppa Halldórs á þriðju braut.
-ÁB/ÁT
Þafl gekk á ýmsu i torfœruaksturskeppninni á Akureyri. Hár dundar Guð-
mundur Gunnarsson sár vifl afl koma bíl sinum upp úr pollinum stóra.
Ólafi Gröndal, sem ók Jeopster '69, vegnafli ekki vel í keppninni. Fyrst
braut hann framöxul og siflar fór viftuspafli í gegnum vatnskassa hans.
Á fyrstu braut keppninnar sporðreistist Willys-jeppi Bergþórs Gufljónssonar...
... og fór á hvolf. Bergþór haffli snör handtök vifl afl koma honum á réttan kjöl og hélt siflan áfram keppni.
DB-myndir Árni Bjarnason.
Úrslitin í torfœrukeppninni á Akureyri urflu sem hér segir:
Sæti Keppandi Tegund Stig
1.-2. Bergþór Guðjónsson Willys '46 (m. Volvo Turbo vél) 1640
1.-2. Sigurður Baldursson Willys '55 (m. 283 Chevy vél) 1640
3. Guðmundur Gunnarsson Willys þ64 (m. 340 Chrysler vél) 1450
4. Sigursteinn Þórsson Willys '71 (m. 401 AMC vél) 1390
5. Halldór Jóhannesson Willys '72 (m. 401 AMC vél) 795
6. Ólafur Gröndal Jeepster '69 (m. 350 Buick vél) 685
Allir keppendurnir voru frá Akureyri utan Bergþór sem er úr Rangárvallasýslu.