Dagblaðið - 10.10.1981, Qupperneq 24
Fríörik Sophusson sækist eftir varaformannsembætti íSjálfstæðisflokknum:
„Nýt stuðnings bæði meðal
yngri og eldri flokksmanna"
Friðrik Sophusson alþingismaður
lýsti því yfir á fundi stjórnarand-
stöðuþingmanna Sjálfstæðisflokks-
ins í gær að hann gæfi kost á sér í
varaformannskjör á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins síðar í þessum
mánuði. Tilkynning þessa efnishefur
legið í loftinu eins og fram kom í
Dagblaðinu í gær.
„Ég hef fundið fyrir því að undan-
förnu að ég á talsverðan stuðning,
bæði yngri og eldri sjálfstæðis-
manna,” sagði Friðrik í samtali við
DB að loknum fundinum í gær. Ekki
liggja fyrir framboð annarra en
Friðriks í varaformennskuna en auk
hans hefur Matthías Bjarnason al-
þingismaður einna helzt verið nefnd-
ur. Matthías var ekki á þingflokks-
fundinum í gær.
Friðrik Sophusson er tæplega 38
ára gamall. Hann er lögfræðingur frá
Háskóla íslands en á háskólaárum
sínum var hann formaður Vöku,
félags lýð.ræðissinnaðra stúdenta.
Árið 1969 var hann kosinn í mið-
stjórn Sjálfstæðisflokksins og for-
maður Sambands ungra sjálfstæðis-
manna var hann á árunum 1973—77.
Hann hefur setið á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 1978 og
m.a. verið í fjárveitinganefnd.
Vitað er, að Friðrik sækir fylgi sitt
til ungra sjálfstæðismanna og miðju-
manna í flokknum. Hann á vísan
stuðning formanna Heimdallar og
SUS, auk þeirra Þorsteins Pálssonar
og Jóns Magnússonar.
Friðrik var einn þeirra manna er
börðust fyrir opnu prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins á sínum tíma. Á full-
trúaráðsfundi sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík í fyrrakvöld greiddi hann
atkvæði gegn breytingartillögu
Jónasar Elíassonar prófessors um
takmarkað prófkjör. Sú tillaga náði
fram að ganga eins og fram kom í DB
igær.
Kona Friðriks er Helga Jóakims-
dóttir hárgreiðslumeistari.
-JH.
Kafað í Tjömina og
þreifað með ámm
— reiðhjólá vakar-
foarmiþótti að
vonum grunsam
legummerki
Það leit sannarlega illa út að sjá
reiðhjól á barmi vakar í ísi lagðri syðri
Tjörninni í Reykjavík, i króknum við
Skothúsveg. Kona sem þarna átti leið
um gerði lögreglunni viðvart og sömu-
leiðis maður sem ók eftir Skothúsvegi,
sá hjólið og dreng á bakkanum en litlu
síðar aðeins hjólið og vökina.
Lögreglumenn þustu á staðinn með
gúmbát og til var kvaddur Eiríkur Beck
lögreglumaður sem jafnframt er frosk-
kafari. Hann braut ís á stóru svæði og
kannaði botninn en fann ekkert grun-
samlegt. Þótti fullkannað að enginn
hefði fallið í vatnið.
Síðar kom í ljós að þessu reiðhjóli
hafði verið stolið nóttina áður og senni-
lega kastað þarna út á ísinn að lokinni
notkun. Telja menn líklegt að hjólið
hafi þá brotið vök í ísinn.
-A.St.
JAN MAYEN-SAMKOMULAGK)
UNDIRRITAD í MÁNUDINUM?
,,Ég er náttúrlega ánægður. Þetta
er búið að vera lengi á döfinni. Ég
átti von á þessu en vonir geta brugð-
izt,” sagði Ólafur Jóhannesson utan-
ríkisráðherra í tilefni yfirlýsingar sem
hinn nýi utanríkisráðherra Noregs,
Svenn Stray, gaf í gær um að hann
væri reiðubúinn til að undirrita sam-
komulagið sem íslendingar og Norð-
menn gerðu um landgrunnið við Jan
Mayen.
Ólafur Jóhannesson mun hitta
utanríkisráðherra Noregs að máli í
Osló 22. október nk. er hann fer
þangað með Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta íslands, i opinbera heimsókn.
Er búizt við því að frá samkomulag-
inu verði endanlega gengið á þeim
fundi.
Sem kunnugt er vildi stjórn norska
Jafnaðarmannaflokksins bíða fram
yfir kosningar með að undirrita sam-
komulagið ef ske kynni að ný stjórn
tæki við völdum sem hefði aðrar
skoðanir á samkomulaginu. Ný
stjórn hefur nú komizt til valda en
hún virðist hafa sömu afstöðu til
samkomulagsins og sú fyrri. jy
frjálst, óháð dagblað
LAUGARDAGUR10. OKT. 1981.
Átta hand-
teknir vegna
fíkniefnamáls
— málið mjög umfangs-
mikið en óljóst um
heildarmagn
Enn eitt stórmálið á sviði fíkniefna er
nú í rannsókn hjá fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík. Gísli Björnsson
deildarstjóri varðist allra frétta í gær-
kvöldi, kvað rannsókn á byrjunarstigi.
Að sögn Gísla voru sjö menn hand-
teknir i Reykjavik í fyrrinótt vegna
málsins og sá áttundi i gærdag. Sagði
Gísli að ekki yrði ákveðið fyrr en í dag
(laugardag) hverra gæzluvarðhaldsúr-
skurða yrði krafizt.
Gisli kvað enn óljóst hve mikið magn
kannabisefna væri um að ræða hér en
málið væri umfangsmeira, þ.e.a.s.
snerti fleiri en ýmis af síðustu stærri
málum sem fengizt hefur verið við.
—A.St.
Vallarsvæðið
minnkað
Samningsbundið varnarsvæði
NATO hefur verið minnkað. Hefur
verið ákveðið að tunga sú sem gengur
úr Keflavíkurflugvelli og klýfur byggð-
ina á bæjarmörkum Keflavíkur og
Njarðvíkur verði tekið úr umsjá varn-
arliðsins og afhent fyrri eigendum á ný,
að ósk utanríkisráðherra.
Á svæði þessu er ekkert nema olíu-
leiðsla og verður hún þakin. Vallargirð-
ingin, sem afmarkar svæðið, verður
færðofar.
Svæði þetta er innan bæjarmarka
Njarðvíkur en er í eigu einstaklinga.
-KMU.
Áskrifendur
DB athugið
Vinningur t þessari viku er Ot-
sýnarferð til St. Petersborg beach
með ferðaskrifstofunni Otsýn,
Austurstrœti 17, Reykjavtk, og
hefur hann verið dreginn út. Nœsti
vinningur verður kynntur í blaðinu
ú mánudaginn.
Nýir vinningar verða dregnir út
vikulega nœstu mánuði.
Feröaskrifstofan
kÚTSÝIMi
hressir betur.