Dagblaðið - 30.10.1981, Page 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1981.
I
Erleni
Erlent
Erlent
Erlent
S>
Skákmeistararnir safna kr&ftum
—Tilþr'if alítið jaf ntef li í 10. einvígisskákinni í Meranó í gær
Hún var með tilþrifaminnsta móti
10. einvígisskák Karpovs og Kortsnoj í
Meranó í gær. Eftir aðeins 15 leiki fuku
drottningarnar af borðinu, síðan
biskupar, þá riddarar og loks hrókar.
Eftir 24 leiki hafði hvor um sig einn
hrók og einn riddara og eftir 32 leiki
hættu þeir frekari vopnaviðskiptum.
„Þetta var örugglega daufasta skák
einvígisins til þessa,” sagði Bandarikja-
maðurinn Arnold Denker, sem út-
nefndur var heiðursstórmeistari í skák
á FlDE-þinginu í Atlanta (Denker er
fæddur 1914). Og landi hans Robert
Byrne sagðist heldur vilja horfa á
kúreka og indiána en svona logn-
mollu.
Frá skákfræðilegum sjónarhóli var
skákin þó allrar athygli verð. Eins og í
8. skákinni tefldi Karpov ítalska leikinn
til heiðurs Ítölunum og hvíldi spænska
leikinn enn um sinn. Út í þá sálma
hefur hann ekki lagt síðan í 6. skákinni,
einu sigurskák áskorandans í einvíginu
fram að þessu.
Karpov varð fyrri til að breyta út af,
en engu að síður hafði Kortsnoj ekki
ástæðu til að kvarta eftir byrjunarleik-
ina. Heimsmeistarinn gat að vísu státað
af örlitlum yfirburðum en ekki meiri en
svo að skákin var dæmd til að enda
með jafntefli. Eins og fyrr sagði áttu
mikil mannakaup sér stað í næstu leikj-
um og er sýnt þótti að hvorugur kæmist
áleiðis, sættust þeir félagar á jafntefli.
10. skákinni var frestað á mánudag
að beiðni áskorandans, sem sagður var
þreyttur. Fregnir frá Meranó hermdu
hins vegar að Karpov hefði virst mjög
afslappaður. Hann brá sér meðal
annars í skoðunarferð til Feneyja
ásamt fríðu föruneyti en Kortsnoj
lokaði sig inni við skákrannsóknir á
miðvikudag. Karpov og Kortsnoj tóku
Fjscher sér til fyrirmyndar við upphaf
10. skákarinnar i gær: Mættu báðir of
seint til leiks!
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Viktor Kortsnoj
ítalski leikurinn.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d3a6
Kortsnoj breytir leikjaröð sinni frá 8.
skákinni en þá lék hann 5. — d6 6.
hefur enski stórmeistarinn Miles teflt á
hvitt, með ágætum árangri.
6. 0—0 d6 7. Hel Ba7 8. Bb3 0—0 9.
Rbd2
Nú er fram komin sama staða qg í 8.
skákinni, nema í stað Hel lék Karpov
þá h3. í athugasemdum við skákina í
DB sagði: „E.t.v. er beittara að leika 9.
9. — Be6 10. Rfl
Karpov leyfði ekki uppskipti á
biskupum í 8. skákinni, lék 10. Bc2sem
veitir meiri von um yfirburði.
10. — Bxb3 11. Dxb3 Dc8
Loks hefur áskorandinn lært sína
lexíu og veikir ekki stöðu sína að
óþörfu með framrás b-peðsins.
abcdefgh
21. dxe5
Þessi leikur jafngildir jafnteflis-
boði, því mikil einföldun stöðunnar
fylgjr í kjölfarið. En átti hvitur eitthvert
betra framhald? Hugsanlegt er. 21. b3,
sem er lítill vandaður leikur í anda
Karpovs. Heldur öllu í horfinu, en
breytir varla úrslitunum. Hins vegar
má hvítur ekki fara of geyst í sakirnar.
Eftir t.d. 21. d5 exd5 22. cxd5 Re7 23.
c4 b5! 24. b3 Hb8 er hætt við að
svartur hrifsi til sin frumkvæðið.
21. — Rxe5 22. RxeS dxe5 23. Hxd7
Rxd7 24. Ke2 Ke7 25. RflbS 26. Rd2 c5
27. Hg3 Hg8 28. b3 Rb8 29. a4 Rc6 30.
axbS axbS 31. h4 KH 32. Hf3 +
Heimsmeistarakeppnin I Meranó: Karpov á leik, Kortsnoj er 1 þungum þönkum.
Rbd2 og nú a6 o.s.frv. Framrás a-
peðsins er til að tryggja biskupnum
öruggan samastað á a7. Nú getur hann
svarað 6. b4 með 6. — Ba7 en þannig
He 1, þvi hvítur þarf hvorki að óttast 9.
— Rg4 10. He2, né 9. — Bg4 10. h3
Bh5 11. Rfl ásamt Rg3 o.s.frv.”
Karpov er sama sinnis.
30.000 kennararatvinnulausir
í Danmörku er búizt við því að þar í
landi verði 30.000 grunnskólakennarar
atvinnulausir innan fárra ára. Úrbætur
í skólamálum sem kröfðust aukins
vinnuafls hafa haldið í við þessa þróun
en nú verður ekki lengur á móti staðið.
Lagt er til að þessari þróun verði
mætt með því að draga úr eftirvinnu og
endurskipuleggja kennaranámið
þannig að þeir sem útskrifast geti líka
tekið að sér einhverja aðra vinnu en
kennslu í grunnskóla.
Öryggismálaráðstefna Evrópu:
Madrid-ráðstefnan
kemur saman á ný
— mestur ágreiningur um upplýsingar um herbúnað
Samningamenn 35 ríkja komu saman
í Madrid í fyrradag er öryggismálaráð-
stefna-Evrópu hófst aftur eftir þriggja
mánaða sumarfrí, til að ná samkomu-
lagi um bætt samskipti austurs og
vesturs. Ráðstefnan hefur verið í gangi
með hléum í rúmt ár og taka þátt í
henni öll Evrópuríki, að Albaníu
undanskilinni, og auk þess Bandaríkin,
Kanada og Sovétríkin. Viðfangsefni
ráðstefnunnar spannar öll þau mál sem
ágreiningur er um milli austurs og
vesturs, þar með talin hernaðaröryggi,
mannréttindamál og efnahagssam-
vinna.
Setningarfundurinn hófst í gær
seinna en áætlað hafði verið vegna
ágreinings milli rikjanna um dagskrá
fundarins. Fundurinn sem fram fór
fyrir lokuðum dyrum hófst með ræðu
sovézka fulltrúans Leonid Ilyichov,
sem bandaríski fulltrúinn Max Kampel-
Erlendar
fréttir
man sagði að hefði valdið sér miklum
vonbrigðum. Aðrir vestrænir fulltrúar
sögðu þó að ræða Ilyichov hefði verið
hófsöm.
Eitt þeirra mála sem rædd hafa verið
á ráðstefnunni er hvort hægt sé að sam-
þykkja reglur um gagnkvæmar upplýs-
ingar varðandi herstyrk og vopna-
búnað á tilteknu svæði. Meðal annars
er rætt um að upplýsingar séu gefnar
um alla herflutninga og allar fyrirhug-
aðar heræfingar og að andstæðingnum
sé gefrnn kostur á að fylgjast með að
réttar upplýsingar séu gefnar.
Ágreiningurinn stendur aðallega um
hver mörk svæðisins eiga að vera, en
áður en hlé var gert á ráðstefnunni
stóðu Sovétmenn fast á því að allt
Atlantshaf og hluti af Bandaríkjunum
væru innan svæðisins, en vestrænu
ríkin vildu ekki ganga að því. Sovét-
menn eru nú taldir vilja slaka á þessari
kröfu.
John Wilberforce fulltrúi Bretlands
hefur sagt að æskilegast væri að sam-
komulag næðist fyrir miðjan desem-
ber. Hann sagði að þau mál sem ætti
eftir að ná samkomulagi um væru
meðal annars valdsvið fyrirhugaðrar
afvopnunarráðstefnu, um afnám
hindrana á trúariðkun, undirbúningur
að ráðstefnu um mannréttindamál,
bætt starfsskilyrði fyrir blaðamenn,
um bann við truflunum á útvarps-
sendingum og um hvar og hvenær
halda eigi næstu öryggismálaráðstefnu.
12. Rg3 He8 13. h3 Hb8 14. Be3 De6
15. Dxe6 fxc6
í þessu tilviki er tvípeðið ekki til
trafala. Svartur fær betra vald á mið-
borðinu heldur eneftir 15. — Hxe6.
16. Hacl Bxe3 17. Hxe3
En þetta krefst skýringar. Hvers
vegna drepur Karpov ekki aftur með
peði fyrst Kortsnoj gerði það i 15. leik?
í fyrsta lagi vill heimsmeistarinn sýna
að hann tekur áskorandann sér ekki ti!
fyrirmyndar og í öðru lagi samrýmist
það ekki áformum hans að drepa með
peði. Miðborðið er þegar nægilega vel
valdað svo hvítur geti lagt til atlögu
með d3—d4.
17. — Hbd8 18. d4 Hd7 19. Kfl Kf8
20. Hdl h6
Um leið og Karpov lék bauð hann
jafntefli, sem Kortsnoj þáði. Skákin
stóð í 4 klst og staðan á borðinu er
náttúrlega í algjöru jafnvægi. í ein-
víginu er aftur á móti lítið jafnræði:
Karpov hefur hlotið 4 vinninga, en
Kortsnoj 1 v. Jafnteflin eru 5 og eru
ekki talin með.
11. einvígisskákin verður tefld á
morgun og þá hefur Kortsnoj hvítt:
Ástæðan fyrir atvinnuleysinu er
mikil fækkun barna í Danmörku.
Nýjasta spáin segir að árið 1990 verði
nemendur i dönskum grunnskólum
560.000 en þeir eru nú 680.000.
Leonid Ilyicliov fulltrúi Sovétrikjanna
á ráðstefnunni.
BYGGINGAVÖRUR
FLISAR
HREINLÆTISTÆKI
BLÖNDUNARTÆKI
GÓLFDÚKAR
MÁLNINGARVÖRUR
VERKFÆRI
BAÐTEPPI
BAÐHENGI OG MOTTUR
HARÐVIÐUR
SPÓNN
SPÓNAPLÖTUR
VIÐARÞILJUR
EINANGRUN
ÞAKJÁRN
SAUMUR
FITTINGS
Ótrúlega hagstæðirgreiflsluskilmálar, allt niður í
til allt að mánaða.
AAQ/ útborgun og eftirstöðvar Q
Z\3 /0 til allt að w i
Við höfum flutt okkur
um set að Hringbraut 119
aðkeyrsla frá Framnesvegi eða inngangur úr fatadeild J.L. hússins.
Opið fimmtudaga til kl. 8, föstudaga til kl. 10, og
laugardaga til hádegis.
Opið í kvöld til kl. 10.
Ath. að við opnum kl. 8 á morgnana,, nema laugardaga kl. 9.
BYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT 119. SÍMI 10600/28600