Dagblaðið - 30.10.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1981.
11
\
A ■
'<>>• y »*■
BllW
Guernica, myndin sem varð að tákni fyrir þá grimmd og þær hörmungar sem fylgja strfði.
jél -
3 '.m«i
Imm
Strax i sjöundu skissunni að Guernica
fékk hlæjandi hesturinn endanlegt
form sitt sem tákn fyrir fasismann.
Aðalinngangurinn snýr út að hinni
fögru breiðgötu Avenida Alfonso
XII, sem liggur meðfram Retirogarð-
inum. Gamla innganginum, sem vísar
að höllinni, hefur verið haldið við og
liggur hann að þeim hluta safnsins
sem hýsir söguleg málverk.
Erfitt einkalíf
Guernica leggur undir sig aila
neðstu hæð safnsins. í miðsalnum
hangir sjálft meistaraverkið í glerbúri
sínu. Inni er dempuð lýsing þar sem
kastljósi er beint að Guernica og
veikara ljósi að loftmálverkum Luca
Giordanos frá 17. öld. Salurinn
rúmar um 180 manns en hliðarsalirn-
ir, sem geyma 45 skissur Picassós að
Guernica, lOOmanns. Þærrekjaþró-
unarsögu myndarinnar og eru flestar
blýantsteikningar og Gouchaemynd-
ir, unnar á tímabilinu 1. maí til 4.
júní 1937. Við þær bætast um 20 aðr-
ar myndir sem einnig tengjast Guer-
nica. Átta myndir þáverandi.vinkonu
hans, Doru Maar, skýra þróun verks-
ins líka nánar.
1937 var Picassó 55 ára gamall og
maður skyldi ætla að hann hafi þá
í skissu frá 8. maí stillir Picassó hestinum upp sem andstæðu við konu og börn
sém siðar þróast i konuna með látna barnið f iokagerð Guernica.
staðið á hátindi listamannsferils sins.
En í raun var hann ekki mikilvirkur á
þessu tímabili. Hann málaði sama
sem ekkert frá því í maí 1935 og fram
í febrúar 1936, en skrifaði i stað þess
ljóð á spænsku. Á þessum tíma átti
hann við vandamál að stríða í einka-
lífinu. M.a. má þar telja skilnað hans
og eiginkonu hans, Olgu Koklovu, og
erfiðleika í sambandi við ástkonu
hans, Marie-Thérese (Walter). 1935
ól hún honum dóttur sem skírð var
Maya. 1936 kom þriðja konan svo
inn í líf hans, Dora Maar. Hún var
frá Argentínu, ákaflega hrífandi
kona.
Krossriddarinn Francó
og árásin á Guernica
1937 bjó Picassó í vinnustofu við
Rue des Grands Augustins í París og
þar vann hann af miklum ákafa að
þeim u.þ.b. 40 skissum sem fylgdu
Guernica til Madrid. Nokkrum
dögum eftir að hann hafði fengið
pöntun í myndina bjó hann til sex
ætimyndir. Þar á meðal er Draumur
Francós og Lygin þar sem Francó sést
í gervi hlægilegs krossriddara á grind-
horuðum hesti, tákni fasismans. Á
einni ætimyndinni skirrist Picasso
ekki við að sýna Francó með gríðar-
legan lim sem styður við „krossfarar-
fána” hans.
Þessi sería sýnir þó mismunandi
mikla andagift. Það er ekki fyrr en 1.
maí að Picassó tekur að vinna að
myndinni af sínum yfirþyrmandi
sköpunarkrafti. Kvöldið áður hafði
hann lesið grein í franska blaðinu Ce
Soir sem lýsti sprengjuárásinni á
Guernica. Henni fylgdi átakanleg
ljósmynd sem sýndi eyðileggingu
borgarinnar.
Gerði tilraunir
með liti
Nú tekur tími þrotlausrar vinnu við
og Picassó prófar einar 15 stíltegund-
ir áður en hann lýkur við myndina í
júni 1937. 1. maí lýkur hann við sex
blýants- og gouchaeskissur. Fimm
eru teiknaðar á bláan pappír, senni-
lega á það að tákna djúpa sorg lista-
mannsins. Hann skapar þrjár af þeim
verum sem síðar einkenna myndina:
Nautið, hestinn og konuna með olíu-
lampann. Smám saman bætast svo
fleiri verur við: konan með látna
barnið, konur sem varpa sér út um
glugga og svo hæðin þakin líkum.
Þeir sem líta Guernica augum eiga
bágt með að ímynda sér hana
öðruvísi en í sínum svarthvítgráu
tónum sem lýsa svo frábærlega
ömurleika og tilgangsleysi stríðsins.
En í skissum sínum hefur Picassó gert
tilraunir með bláa og bleika tóna.
Þeir hverfa þó fljótlega við frekari
þróun verksins. Kannski gat Picassó
aldrei gleymt hinni áhrifaríku svart-
hvítu ljósmynd í Ce Soir: Myndinni
sem sýndi hvernig lítið, friðsamt þorp
var skyndilega lagt í rúst einn venju-
legan markaðsdag í apríl 1937.
(POLITIKEN)
boðaliða” til Irkútsk og annarra iðn-
miðstöðva í Sovétríkjunum væri
hreint innanríkismál Breta og því
algjörlega óviðkomandi Sameinuðu
þjóðunum. Atkvæði féllu þannig að
45 voru með tillögunni, 19 á móti og
25 sátu hjá. — (Menn höfðu orð á,
en töldu þó hreina tilviljun,
að orðalag ályktunartillögu þessarar
var næstum samhljóða tillögu sem
borin var fram af írlandi og Malaja-
ríkinu um það bil sem þjóðarmorðið
var framið í Tíbet 1959: Aðeins einn,
— og sennilega sárgramur franskur
blaðamaður, veitti því athygli, að
Sameinaða konungsríkið, eins og
Bretland var nefnt þá, hafði setið hjá
þegar ályktunin um Tfbet var borin
undir atkvæði, af lögfræðilegum á-
stæðum).
Þetta haust var votviðrasamt og
veturinn kaldur á Bretlandi. Fyrsti
veturinn undir sovézkri stjórn.
Innsœi?
Framangreint er ófullkominn og
sundurlaus úrdráttur úr bók rit-
höfundarins Constantine Fitz
Gibbon, Það gerist aldrei hér? —
Margir aðrir rithöfundar hafa haslað
sér völl á sviði stjórnmálaskáldsagna.
Margir þeirra hafa farið nærri
raunveruleikanum og orðið ótrúlega
sannspáir.
Þeir hafa margir orðið svo
sannspáir að með ólíkindum má
telja. Þeir hafa einnig, sumir a.m.k.,
séð pólitíska atburði fyrir í mun
víðara samhengi en virtustu stjórn-
málamenn. Raunar hafa stjórnmála-
menn ekki komizt með tærnar þar
sem sumir þessara rithöfunda hafa
hælana, að því er varðar
framtíðarspár í þróun heims-
málanna.
En hvað er það sem gerir sumum
mönnum auðveldara en öðrum að sjá
fram í tímann um gang heimsmála,
oft svo áratugum skiptir? Er sumum
þessara manna gefið eitthvert
ákveðið innsæi sem opnar þeim
framtíðina upp á gátt?
Nú væri auðveldara að slá því
föstu að stjórnmálamenn, sem hafa
samskipti hverjir við aðra á
innlendum vettvangi sem erlendum,
hefðu beztu tækifærin til þess að
meta þau veðrabrigði sem í
uppsiglingu eru og draga fastmótaðar
ályktanir af. Þó er þetta ekki alltaf
þannig í raunveruleikanum.
Oft er það líka svo að stjórnmála-
menn eru ekki allténd áhugasamastir
um stjórnmál eða svokallaða pólitík,
þótt þeir hafi ílenzt á þeirri hillunni.
Einnig eiga starf og hæfi ekki alltaf
samleið og tómstundaathafnir verða
oft starfsstundum drýgri til afkasta,
með þeim afleiðingum að lífsstarf
verður raunverulega tómstundaiðjan,
en hin launaða vinna er byrði ein.
Slíkt á auðvitað við umimargastjórn-
málamenn sem og aðra þegna.
Margir rithöfundar, einkum
skáldsagna, hafa lagt sig eftir stjórn-
málum sem áhugastarfi. Þeir eiga,
gagnstætt stjórnmálamönnum, sem
eru tiltölulega einangraðir í þröngum
hópi samstarfsmanna, greiðan aðgang
að almenningi í starfi og leik, þar sem
þeir heyra og finna fyrir þeirri ólgu
sem hrærist í hinu daglega lífi og
beinist oftar en ekki að einum far-
vegi, farvegi stjórnmálanna.
Það er því engin tilviljun að
höfundum stjórnmálaskáldsagna
hefur tekizt dável að spá um
framvindu mála á stjórnmálasviðinu,
ekki sízt um samskipti stórveldanna
við Vestur-Evrópu.
Hvers krefst
Evrópa?
Það hefur verið mikið að gera hjá
andsprengjumönnum í Evrópu
síðustu helgar. Sex hundruð þúsund
manns munu hafa tekið fram
gönguskóna og þrammað um götur
helztu stórborga Evrópu til að mót-
mæla þeim varnarstyrk sem vestrænu
bandalagsþjóðirnar innan Atlants-
hafsbandalagsins hafa sameinazt um
að hafa til þess að lengja líftíma sinn
utan Gulak-búðanna.
Svo mjög sem íslendingar frá-
biðja sér að taka þátt í vörnum
lands síns sjálfir og fordæma vopn og
vopnaburð — í orði — þá eru
sennilegar engir eins áfjáðir í fréttir
af stríðsreksti og vopnaskaki og þeir.
Alls staðar þar sem fjallað er um
hermál eru íslendingar komnir til
þátttöku. í Osló og Stokkhólmi, þar
sem hæst bar kröfuna um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum, voru íslenzkir náms-
menn auðvitað til taks.
„Við viljum vera með,” hrópuðu
þeir. „ísland er hluti Norðurlanda,”
stóð á fjölritum, sem þeir réttu
Kjallarinn
Geir Andersen
göngumönnum. En íslendingarnir
fengu ekki að vera með. Svo er fyrir
að þakka „gestrisni” og vanmati
Norðurlandaþjóða á íslendingum
gegnum árin.
Og bættur sé skaðinn. Það er þá
einhver von til þess að and-
sprengjumenn á Norðurlöndum láti
það vera að draga íslendinga með í
þá helför sem nú er stefnt að á
Norðurlöndum og víðar i Evrópu
með því að krefjast fullkomins
varnarleysis fyrir álfuna.
En það eru ekki allir jafn blindir á
þá hættu, sem Evrópu stafar af
„friðargöngum” nemenda á ríkis-
framfæri og nýmóðins guðfræðing-
um á Reynivallavísu.
Þannig skilur Papandreou hinn
gríski mjög vel að sitthvað ér stefna í
kosningabaráttu og stefna ríkis-
stjórnar og er talið fullvíst af sér-
fræðingum um stjórnmál að hann
muni ekki ýkja hrifínn af
göngugörpum stórborganna.
Lítið munu andsprengjumenn
franskættaðir hafa að sækja til
þjóðhöfðingja síns hins nýja, Mitter-
rands, eftir að hann komst til valda.
Hann neitar að lemja á NATO, þrátt
fyrir vonir göngumanna þar um, og
ekki vill hann verða við hóflausum
kaupkröfum verkalýðsfélaga þar
i landi. Hann gengur raunar svo
langt í hægri stefnunni að hann
vill rjúfa vítahring sjálfvirkra
launahækkana sem hafa magnað
verðbólgu þar í landi eins og annars
staðar.
Frakkar hafa ávallt verið nokkrir
raunsæismenn, þegar heimsmálin eru
annars vegar, og oft ratast satt á
munn. Margir fremstu stjórnmála-
fræðingar i Frakklandi láta að því
liggja að Frakkar megi allt eins búa
sig undir þá stöðu að landið verði
eins-flokks sósíalistaríki, gjaldþrota
og áhrifalaust um framtíðsína.
Þetta er m.a. álit Jacques Chirac
borgarstjóra Parísar. Hann gengur
svo langt að spá því að Bandarikja-
menn og Rússar muni bráðlega
samþykkja skiptingu heimsins i ný
áhrifasvæði og án samráðs við
Frakka og aðra Evrópubúa, og
kveður tímabært að huga að óháðum
evrópskum vörnum.
f þessum spám er fólgið mikið
raunsæi. Hér kveður við annan tón
en hjá þeim leiðtogum Evrópuríkja
sumra um Bandaríkin. Þeir segja eins
og eiginkonurnar sem segja við menn
sína: „Ég vil fá skilnað og mikið
meðlag og svo getum við verið góðir
vinir.”
Það er erfitt fyrir Bandaríkja-
menn að fóta sig að óskum og
kröfum Evrópumanna til lengdar.
Hitt mun þó sannast mála að Banda-
ríkin munu senn þreytast á hinum
„einlægu” óskum friðar-
göngumanna um fjöldasjálfsmorð
sem óhjákvæmilega mun eiga sér stað
ef svo fer að Bandaríkjamenn hættu
að taka á sig þær kvaðir sem því
fylgir að bera hitann og þungann af
vörnum hins frjálsa hluta Evrópu.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
stórveldin tvö geti orðið sammála um
breytingu á áhrifasvæðum, ef báðum
þykir slíkt henta, eins og dæmin hafa
sannað, bæði frá Evrópu og annars
staðar.
Ekkert er líklegra nú en slík staða
sé að koma upp að Bandaríkin muni
láta það ráðast hvort verði ofan á, að
Evrópa láti að vilja Sovétmanna eða
haldi stöðu sinni sem bandamenn
Vesturveldanna áfram.
ísland á fárra kosta völ.
Samstaða með Bandaríkjunum getur
ein hlíft íslandi. Andsprengjumenn í
Evrópu eiga i öllu falli enga kröfur á
hendur íslendingum um þátttöku í
gönguferðum um stórborgir Evrópu
eða Norðurlanda.
Geir R. Andersen.
Frá friðargöngu f Svfþjóð um sfðustu helgi.