Dagblaðið - 30.10.1981, Page 23
31
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1981.
KVÖLDGESTIR—útvarp íkvöld kl. 23,00-01,00:
Notaleg miðnæturstund með Jónasi Jónassyni
„Mig hefur lengi langað að fara
dálítið inn í nóttina,” sagði Jónas
Jónasson, sem í kvöld byrjar með
nýjan þátt af óvenjulegu tagi. Eftir
að hafa farið með varðskipi fyrir
Austurlandi og gert þætti af þorpum
þar og síðan gert aðra reisu á Kirkju-
bæjarklaustur er Jónas setztur í næt-
urstúdíó við Skúlagötuna og kallar
þangað til sín góða gesti.
,,Það er mikið talað um það núna
að fólk sé hætt að heimsækjast því
það er svo upptekið við að glápa á
sjónvarp og videó — og þótt gesti
beri að garði er ekkert talað við þá
fyrr en dagskráin er búin og þeir
farnir að fara í kápurnar,” segir
Jónas. „Mig langar að færa þér sem
situr og hlustar á útvarpið þitt þegar
líður á nótt góða gesti í stofuna þína.
Gesti sem ekki hella yfir þig vanda-
málum heldur koma til að mala um
allt og ekkert og hlusta á notalega
tónlist.”
Jónas byrjar kl. 23 að leika nokkr-
ar plötur og segja hlustendum hvern-
ig veðrið er og hvernig hann „fílar
stemmninguna”. Eftir stundarkorn
koma gestirnir, sem í kvöld verða
séra Auður Eir og sellóleikarinn
Gunnar Kvaran. Gunnar kemur með
hljóðfærið með sér og spilar tvö lög.
Væntanlega kemur Gísli Magnússon
rétt augnablik og spilar með honum á
píanóið.
„Þau Auður Eir og Gunnar segja
mér ýmislegt um stórar stundir i ævi
sinni og hvernig lífið hefur spunnizt
áfram. Þau eru bæði yndislegar
manneskjur og notalegt að fá þau í
stofu til sín,” segir Jónas.
Það er nýjung að útvarpið standi
fram yfir miðnætti á föstudögum og
það verður gaman að fylgjast með
hvernig Jónasi tekst að vera ,,út-
varpsgestgjafi”. Oft er langmest
vinna bak við þá þætti sem virðast
fyrirhafnarlausastir og léttastir og
Jónas leggur sig nú allan fram til að
veita hlustendum ljúfa miðnætur-
stund.
-IHH.
Gunnar Kvaran kemur með sellóið
sitt og spilar tvö lög með undirleik
Gísla Magnússonar. Svo spjallar
hann um allt og ekkert.
HENTUGAR FYRIR STOFUR,
BORÐSTOFUR OG SKÁLA.
EINNIG NÝKOMIÐ ÚRVAL AF
LOFTLÖMPUM í SVEFNHERBERGI.
SENDUM í PÓSTKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÓS & ORKA
Suðurlcindsbraut 12
sími 84488
FISS 0G FUSS — útvarpsleikrit kl. 11,20 ífyrramálið:
KYNDUG SKÖTUHJÚ — RUGLU-
K0LLAR 0G SPEKINGAR
í fyrramálið hefst leikrit fyrir börn
og unglinga í þremur þáttum — eftir
Valdísi Öskarsdóttur. Það segir frá
kyndugum skötuhjúum, sem ýmist eru
ruglukollar eða spekingar.
Leikritið byggist mikið á orðaleikj-
um og smáfyndni og er að sögn hið
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Á döfinni.
20.45 Skonrokk. Umsjón: Þorgeir
Ástvaldsson.
21.15 Fréttaspegill. Þáttur um inn-
lend og erlend málefni. Fjallaö
veröur um landsfund Sjálfstæðis-
flokksins, sem nú stendur yfir í
Reykjavik. Meðal annars verður
rætt við frambjóðendur tii forustu-
starfa og aðra landsfundarfulltrúa
um ástand mála í flokknum.
Umsjón Guðjón Einarsson,
honum til aðstoðar Ingi Hrafn
Jónsson.
21.45 Laun heímsins. (For Services
Rendered). Breskt sjónvarpsleikrit
frá Granada eftir W. Somerset
Maugham. Leikstjóri: Jeremy
Summers. Aðalhlutverk: Leslie
Sands, Jean Anderson, Harold
Innocent og Barbara Fennis. Leik-
ritiö gerist i kreppunni og fjallar
um Ardsley-fjölskylduna, sem
reynir að sætta sig við bág kjðr að
lokinni fyrri heimsstyrjöldinni.
Persónumar i verkinu eru illa á sig
komnar, bæði líkamiega og sálar-
Ifga. Þýðandi: Ragna Ragnars,
23.45 Dagskrárlok.
skemmtilegasta. Fiss og Fuss vilja búa
við öryggi — en svo springa kannske
öryggin og allt fer í vitleysu. Hvergi er
Ijósglætu að sjá. Eitt þeirra villist
kannske meira en hitt. . . og þó.
Þegar leikurinn hefst vakna þau við
vekjaraklukku — og eru stödd i vit-
lausum draumi.
Hvaðgerir maður þá?
Kristín Bjamadóttir og Borgar Garð-
arsson leika skötuhjúin, en fleiri leikar-
ar koma við sögu. Leikstjóri er Brynja
Benediktsdóttir.
-IHH.
Kristfn Bjarnadóttir og Borgar Garðarsson leika skötuhjúin Fiss og Fuss sem vakna f
vitlausum draumi.
0PIÐ Á LAUGARDÖGUM
NÝJAR SENDINGAR
AF L0FT- 0G VEGGLÖMPUM
LAUN HEIMSINS—sjónvarpsleikrit kl. 21,45:
Háðsk sfyrjaldarádeila frá
brezka þjóðleikhúsinu
Jean Anderson leikur móðurina f Ardsley-fjölskyldunni. Þessi fjölskylda er grátt
leikin af fyrri heimsstyrjöldinni, sem háð var undir slagorðum um að skapa frið í
heiminum 1 eitt skipti fyrir öll.
Leikritið „Laun heimsins” eftir W.
Somerset Maugham gerist í enskum
smábæárið 1932. Þar býr Ardsley-fjöl-
skyldan og í fyrstu virðist hún una sér
vel við að leika tennis og drekka te. En
brátt kemur í ljós að þessu fólki líður i
raun illa.*Skuggi heimsstyrjaldarinnar
1914—1918 grúfir yfir henni, þótt
hálfur annar áratugur sé umliðinn.
Sonurinn, Sydney, hefur misst sjón-
ina á vígstöðvunum og formælir nú
stjórnmálamönnunum sem sendu hann
I stríðið í nafni föðurlandsástar.
Eva, systir hans, helgar krafta sína
því að hjúkra honum. Þannig reynir
hún að sefa harm sinn því unnusti
hennar féll í striðinu.
Hinar systurnar tvær linna sér ekki
eiginmenn við hæfi. Fjölskyldan er af
millistétt, og þegar Ethel giftist bónda
þá finnst henni hún taka stórlega niður
fyrir sig. Yngsta systirin, Lois, sér hins
vegar þann grænstan að hlaupast burt
með eldri manni. Hún hikar þó við því
þótt hann sé efnaður þá er hann kvænt-
ur maður og hún elskar hann ekki.
Leikritið er hvöss ádeila á styrjaldir
en Maugham starfaði bæði sem sjúkra-
bílstjóri og læknir í fyrra stríðinu.
Það má búast við mjög góðum leik,
því sjónvarpsmyndin er gerð í sam-
vinnu við Þjóðleikhús Breta. Val leik- mjög vel og leikstjóri er Jeremy Summ-
ara i hlutverk þykir hafa heppnazt ers. -IHH.
VIDEO
Video — Tæki— Fiimur
Leiga — Sala — Skipti
Kvikmyndamarkaðurinn — ami 15480.
Skólavörðustíg 19 (Klapparstígsmegin).
KVIKMYNDIR
'IL
L;