Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Side 32

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Side 32
34 dæmi um það, hvernig stundum er reynt að rugla dóm- greind almennings með rökvillum, skal enn vikið að tveim- ur atriðum, sem þessir menn hampa mjög máli sínu til stuðnings. 6. Uppbæturnar og ameríska smjörið. Uppbætur á landbúnaðarvörur frá ríkinu, eru aðeins þær uppbætur, sem bændum eru greiddar á þann hluta fram- leiðslu þeirra, er flytja verður úr landi. Það sem réttlætir þessar greiðslur er: 1) Að bestu markaðirnir fyrir þessa vöru eru lokaðir vegna stríðsins og það verð, sem nú er fáanlegt fyrir þær erlendis, því óeðlilega lágt. 2) Það má telja líklegt, þegar eðlilegt viðskiftaástand verður ríkjandi þjóða milli, verði þessar vörur útflytjanlegar, án opinbers stuðnings og því réttmætt, meðan ófriðarástandið ríkir, að halda fram- leiðslu þeirra í horfinu með verðuppbótum frá ríkinu. Hefi eg hér að framan gert fulla grein fyrir þessu. Hins vegar eru það ekki uppbætur á landbúnaðarvörur, þótt ríkið greiði verð þessara vara niður á innlendum markaði, í þeim til- gangi að lækka vísitöluna. Þetta eru engar uppbætur til landbúnaðarins, heldur aðeins staðfesting þess, að kaup- gjaldið er orðið svo hátt, að við borð liggur, að aðal-útflutn- ingsvara okkar, fiskurinn, sé ekki lengur seljanlegur á því verði, að framleiðslan beri sig. Til þess að hindra það, að útflutningur sjávarafurða stöðvist, eða grípa verði til þess ráðs að greiða verðuppbætur á þær, þá hafa stjórnarvöldin valið þann kost, að greiða niður framleiðslukostnaðinn, þ. e. vísitöluna. Auðvitað hefði verið mest samræmi í því að greiða verðuppbætur á útfluttar sjávarafurðir eins og út- fluttar landbúnaðarafurðir og láta vísitöluna afskiftalausa, því þá hefðu launþegarnir, ef til vill, fyr áttað sig á því, að það eru takmörk fyrir því, hve langt er hægt að ganga í kaupkröfum, svo nokkur ávinningur sé, en ef þetta hefði verið gert, hefði verðbólgan haldið áfram að vaxa, þar til

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.