Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 57

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1943, Page 57
Hvað kostar bygging áburðargeymslu? Eitt af aðal undirstöðuatriðum búrekstursins er, að til sé nægur og hentugur áburður til að viðhalda og auka rækt- unina. Það er fluttur inn í landið áburður fyrir tugi þúsunda króna árlega. Áburður sá, er við verðum að kaupa erlendis frá, verður afar dýr, ekki síst nú á þessum ófriðartímum, sem eðlilegt er, þar sem flutningskostnaður hlýtur að verða geysi mikill á hinni löngu leið alt frá öðrum heimsálfum. Er því tímabært að til framkvæmda komi, að bygð verði áburðar- verksmiðja hér á landi, til eflingar og öryggis landbúnað- inum í heild. Hver jarðræktarmaður veit af sinni eigin reynslu, að þó loftáburður eða ólífræni áburðurinn sé nauðsynlegur og mjög handhægur áburður, þá er hann bestur til þess fyrst og fremst að nota með húsdýra- eða lífrænum áburði. Þá eykur hann mest uppskerumagnið t. d. með því að bera köfnunarefnisáburð á gömul, ræktuð tún o. s. frv. Á nýrækt er loftáburður, þó hann sé samansettur af öll- um hinum þrem aðalplöntunæringsefnum: köfnunarefni, fosforsýru og kalí, mjög ónógur. Þó sérstaklega, ef um frjó- efnasnauðan jarðveg er að ræða, svo sem flagmóa, leirbland- inn jarðveg og raunar alt óræktarland. Aukin ræktun og arðvænlegt viðhald á ræktun yfirleitt, krefst því ekki aðeins meiri loftáburðar, heldur einnig meira og minna af lífrænum áburði. Til þess að fá sem mestan og bestan lífrænan áburð, þarf

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.