Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1988, Side 4
Laxalögin frá 1886 ákveða þriggja mánaða veiðitíma fyrir
lax, og ráða sýslunefndir, hvenær hann er tekinn á hverjum
stað. Allstaðar er veiðitími framan af sumri, og er það til
ótvíræðra hagsmuna fyrir þá, sem veiði eiga neðar við árnar,
því að þá er þar fiskför mest. Hinir, sem upp með ánum
búa, hafa aftur litla veiði um veiðitímann, og er því almennt
talið, að ýmsum þeirra verði það á, að stunda veiði eftir
að veiðtíma er lokið.
í annan stað er svo mælt fyrir í laxalögunum 1886, að
lagnet eða fastar veiðivélar megi ekki ná lengra út en í miðja
á, og megi aldrei verða skemmra milli þeirra en 60 metrar
(30 faðmar). Með ákvæði þessu er að vísu fyrir því séð, að
ár séu ekki þvergirtar og laxför í þeim hindruð með öllu,
en það hlýtur hverjum manni að vera Ijóst, þeim, er athugar
þetta mál rækilega, að þess er engin von, að lax komist langt
upp eftir ám, ef þar er svo veiðivélum skipað, sem lög þessi
framast leyfa.
Þegar saga lax-og silungsveiði hér á landi er athuguð, kem-
ur í ljós, að nú á einni öld hefur orðið margfalt meiri þróun
í veiðitækni heldur en samanlagt á öldunum þar á undan,
allt frá því land byggðist. Afleiðing þeirrar öru þróunar er
sú, að sífellt verður að setja nánari reglur til friðunar fisk-
stofna fyrir ofveiði.
ÍTARLEG VEIÐILÖGGJÖF 1932
Arið 1929 skipaði atvinnumálaráðherra nefnd til að semja
frumvarp til laga um lax- og silungsveiði og áttu þessir menn
sæti í henni: Jörundur Brynjólfsson, alþingismaður, Ólafur
Lárusson, prófessor og Pálmi Hannesson, rektor. Nefndin
samdi frumvarp sem lagt var fyrir Alþingi 1930. Frumvarpið
var samþykkt 1932 með mörgum breytingum og viðbótum
og tóku lögin gildi l.janúar 1933.
Fjöldi nýjunga var í hinum nýju lögum og margt stór-
merkra ákvæða, svo sem um veiðirétt, bann við laxveiðum
í sjó, gerð og frágang veiðivéla, lengingu vikufriðunar, mann-
6