Vísbending


Vísbending - 18.12.1998, Qupperneq 19

Vísbending - 18.12.1998, Qupperneq 19
ríska sjóhernum. Niðurstaða til- raunanna gaf til kynna að vél- ritun væri 20-40% hraðari með DSK lyklaröðun en með venju- legri qwerty uppsetningu. En DSK náði samt aldrei fótfestu á markaðinum. August þessi dó í sárustu fátækt og qwerty hefur haldið út til þessa dags og tefur nú áslátt fólks á tölvulyklaborð alls staðar um jarðarkringluna. Liggja allar leiðir til Rómar? lestir hagfræðingar gera ráð fyrir því að ef nokkrum skil- yrðum er fullnægt þá leiði frjáls markaðsviðskipti alltaf til hag- kvæmustu lausnar. Hægt er að orða þetta með því fornkveðna að allar leiðir liggi til Róm- ar. Dæmið af qwerty sýnir þó að sumir vegir geti legið frá Róm eða í mikla króka frá þeirri miklu borg. Allt veltur á því hvaða leið er valin, en óhagkvæmar lausnir geta haldið velli um ófyrirsjáanlegan tíma ef þær verða ofaná í byrjun. Þessa hugsun mótaði Paul í orð- inu vegartryggð (e.: Path De- pendency), þ.e. sagan fylgir yfirleitt þeim stíg sem troðinn var í fyrstu. Dæmi um vegar- tryggð er víða að finna, t.d. er hægt að spyrja af hverju Reykja- vík sé höfuðborg Islands. Er það vegna þess að sá staður sé sá besti fyrir höfuðborg landsins eða er ástæðan sú að Skúli Magnússon stofnaði þar nokkur fyrirtæki árið 1752 og myndaði fyrsta þéttbýlið á landinu? Ef markaðirnir sýna vegar- tryggð þá skipta áhrif brautryðj- enda gífurlega miklu máli. Stór- fyrirtækið Remington varð fyrst til þess að markaðssetja ritvélar með qwerty lyklaborði og náði markaðsyfirráðum. Vegna þessa reyndist ómögulegt að kynna til sögunnar DSK lyklaborð sem þó áttu að vera hagkvæmari. Ef lesendur skipta á nafni Microsoft fyrir Remington, þá er að áliti sumra komið annað qwerty dæmi þar sem mark- aðsvald er notað til þess að knýja fram drottnun á notkun hugbúnaðar. Bandaríska ríkið vill koma markaðinum upp úr þeim hjólförum sem Microsoft hefur markað og qwerty hefur verið notaður sem rökstuðning- ur fyrir málsókn á hendur tölvu- risanum. Kaupskapur á milli landa ins vegar hefur qwerty mun víðtækari merkingu og hér verðum við að leita í smiðju tveggja hagfræðinga sem báðir eru reyndar nafnar Paul David. Þeir eru David Ricardo og Paul Krugman. Ricardo var uppi á fyrri hluta síðustu aldar og var á sínum tíma einn af atkvæðamestu hag- fræðingum Bretaveldis. Ric- ardo skýrði kaupskap á milli landa út frá hugtakinu um hlut- fallslega yfirburði. Islendingar flytja út fisk vegna þess að þeir hafa hlutfallslega yfirburði í fiskveiðum en Spánverjar flytja út vín vegna þess að landið hentar til vínþrúguræktunar. Þetta eru viðskipti sem mismun- andi landkostir skapa en fjár- magnsuppbygging skiptir líka máli. Þróunarlönd hafa lítið fjármagn en gnótt vinnuafls og hafa því hlutfallslega yfirburði í vinnuaflsfrekum atvinnugrein- um. Iðnríkin hafa aftur á móti fjármagn í ríkum mæli og hafa hlutfallslega yfir- burði í fjár- magnsfrekum iðn- aði. Loks má benda á smekk sem afl- vaka viðskipta. Þótt íslensk brugghús gætu hæglega annað eftirspurn landsins fyrir bjór vilja landsmenn líka er- lendar tegundir og jafnvel gætu ein- hverjir útlendingar viljað bragða íslenskan mjöð. Þar með gæti varan bjór bæði verið keypt til landsins og seld frá því. Utanríkisviðskipti eru því alltaf til ábata því þau hjálpa þjóðum heimsins að sérhæfa sig í því sem þær gera best. Viðskiptakenning Ricardo er eitt af því fáa sem nútíma hag- fræðingar geta fyllilega verið sammála um en hún hrekkur of skammt. Árið 1990 voru 76% af heimsviðskiptum á milli þró- aðra ríkja sem hafa svipaða fjár- magnsuppbyggingu, landkosti og smekk. I sjálfu sér er kenning 19

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.