Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Síða 6

Vísbending - 23.12.2005, Síða 6
Höfundur: Benedikt Jóhannesson - Myndir: Geir Ólafsson. Samband þjóðarinnar við ráðamenn er ekki alltaf vinsamlegt. Stundum ber hún djúpa viröingu fyrir þeim en oft lýsir hún þeim sem óttalegum jólasveinum. Kannski ristir hvorug tilfínningin mjög djúpt en vonandi þó sú fyrri dýpra en hin síðari. En hvað ef þetta væri öfugt? Ef það væru alvörujólasveinarnir sem stjórnuðu landinu? Þegar líður að jólum hefur Vísbending stundum litið á ýmsa hluti frá óvenjulegu sjónarhorni. Vangaveltuniar hér á eftir eru hvorki fræðilegar né alvarlegar en þó er byggt á alþýðufróðleik um jólasveinana og skyldmenni þeirra, einkum heiti þeirra og venjur. I Ama Bjömssonar um Sögu daganna segir svo: „Sú tilgáta hefur verið viðmð, reyndar með miklum fyrirvara, að Grýla og fjölskylda gæti verið endurspeglun alþýðu á grimmum yfirvöldum. Grýla kemur fyrst verulega fram á sjónarsvið eftir að einveldi konungs verður algert á 17. öld. Jólasveinar gætu samsvarað sýslumönnum konungs sem heimtuðu skatt af fátækum. Þcir taka hinsvegar að mildast eftir að einveldi er afnumið á 19. öld. og á 20. öld verða þeir þjónar hinnar áhrifamiklu verslunarstéttar." Ýmsir kynnu að vilja taka undir þessa kenningu nú frentur en nokkm sinni, en hér er hún sett fram til þess að sýna að fræðimenn hafa raunvemlega velt slíku fyrir sér í alvöru. I því sem á eftir fylgir er í engu litið til líkinda með einstökum jólasveinum og ákveðnum ráðamönnum. hvorki fyrr né síðar. Sjái menn slíkt er um til viljun að ræða. Helstu heimildir em Þjóðsögw Jóns Amasonar og Saga daganna. Benedikt Jóhannesson. Fjölskyldan Um tíma var því haldið fram að öll völd hérlendis væm í höndum nokkurra áhrifamikilla fjölskyldna. Einkum vom það gamlir Alþýðubandalagsmenn sem töluðu um fjölskyldurnar fjórtán (eða fimmtán), líklega helst vegna stuðlasetningar. Aldrei varð það vel ljóst hverjar þessar fjölskyldur voru. Jólasveinamir eru taldir bræður en ekki er öllum ljóst hve margir eða hverjir þeir em. Fjölskylda jólasveinanna er ekki vel skilgreind heldur, en þó liggur nokkum veginn fyrir að Grýla er ættmóðirin. Óljósara er um faðemið en Leppalúði hefur þó alllengi verið talinn faðir þeirra. í samfélagi þar sem þessi fjölskylda hefði öll völd ættu þau hjón að gegna æðsta embætti, vera drottning og kóngur, eða nú á dögum forsetahjón. Islendingar hafa löngum gumað af því að hafa orðið fyrstir til þess að kjósa sér konu sem forseta. En hróður þeirra nær miklu lengra aftur ef litið er á Grýlu sem höfuð þessarar merku ættar. Og reyndar hefur engum komið til hugar að hugsa sér neinn annan sem tróni á toppi ættartrésins. Hlutskipti Leppalúða hefur orðið það sama og ntargra annarra eiginmanna frægraforustukvenna,til dæmis eiginmanna MargrétarThatcher eðaAngelu Merkel. Örlög þeirra em að standa álappalegir í skugga kvenna sem sópar að. Grýla er oft sögð ógnvænleg kona eins og margar þær konur sem karlar telja að ógni sér, en þó að hún hafi ekki beinlínis Séðs og heyrðs sjarma þá er hún engu að síður haldin nægilegum kvenþokka til þess aðhún hefurátteina þrjáektamaka,Bo/a, Gust og Leppalúða og með þeim tugi barna. Um hana er sagt: „Hökuskeggið hæmskotið og hendurnar þá, stórar eins og kálfskrof og kartnöglur á.“ LGrýlukvæði Stefáns Ólafssonar í Vallanesi, frá 17. öld]. Hún gæti reyndar líka ratað í Gestgjafann því að hún kunni talsvert fyrir sér í matargerðarlist „þegar hún fer að sjóða til jóla.“ Að vísu lagði hún sér einkum til munns óþekk börn og varnotuð til þess að hræða þau sem stigu út af dyggðum prýddum vegi.Ætla má að í takt við tíðarandann yrði hún nú umburðarlyndari gagnvart ýmsum yfirsjónum ef hún gegndi æðsta embætti. Ríkisstjórnin Jólasveinamir em oftast taldir þrettán en hér á landi em tólf ráðherrar. í sjálfu sér er það ekki sérstakt áhyggjuefni því að menn em ekki ráðherrar til lífstíðar og stundum er skipt um menn í ríkisstjórnum. Svo er það svo að miklu fleiri nöfn em til á jólasveinum en þrettán og því er ekki ástæða til þess að einskorða sig við þá allra þekktustu þó að auðvitað beinist athyglin fyrst og fremst að þeim. Áður en lengra er haldið er þó rétt að rekja í stuttu máli hvaða hæfileika jólasveinar þurfa að hafa til að verða ráðherrar. Allir þekkja línurnar: „Jólasveinar einn og átta ofan komu af fjöllunum." Þetta er einmitt eitt helsta einkenni á ráðhcrmm fyrr og síðar. Þegar eitthvað gerist koma þeir af fjöllum. „Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi." Þetta var til skamms tíma aðalástæða þess að menn gáfu sig að stjórnmálum, þeir vildu komast að kjötkötlunum, höndla gyllta stafi. „Upp á stól stendur mín kanna.“ Flestir stjórnmálamenn enda sem diplómatar og dreypa þá óspart af könmmni. ef marka má sögur. Jóhannes úr Kötlum yrkir líka: „Lævfsir á svipinn, |3eir leyndust hér og þar, til óknyttanna vísir, ef enginn nærri var.“ Forsætisráðhena er æðstur allra. Það er því eðlilegt að í það embætti veljist fyrsti jólasveinninn, Stekkjarstaur. Nafnið ber það með sér að hann sé hár og mikill og jafnvel fastur fyrir. Allt eru þetta eiginleikar sem gætu prýtt góðan forsætisráðherra. Utanríkisráðherra þarf að hafa gott nef fyrir lausnum á vandamálum og því eðlilegt að Gáttaþefur setjist í þann stól. Ekki væri heldur verra ef hann vissi lengra en nef hans nær því að þá væri hann með greindustu ráðheirum. Eins og kunnugt er búa allir jólasveinar á fjöllum og þekkja þvíeflaust vel náttúm landsins. Því gætu margir orðið samgönguráðherra sem hefur ferðalög á sinni könnu. Giljagaur er þó - 6 -

x

Vísbending

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.