Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Side 12

Vísbending - 23.12.2005, Side 12
VISBENDING liöfðu þó sömu sýnina og markmiðin. Þetta voru, auk Harðar, Þorkell Sigurlaugsson, sem stýrði áætlanacleild og síðar þróunarsviði félagsins, Þórður Magnússon, framkvœmdastjóri fjármálasviðs, og Þrírður Sverrisson, framkvœmdastjóri flutningasviðs. Síðar bœttust í hrípinn Hjörleifur Jakobsson, Erlendur Hjaltason, Höskuldur Olafsson og Friðrik Jóhannsson, sem stýrði Burðarási. Að róa í sömu átt „Þetta var samstæður hópur sem reri í sömu áttina. Þegar við vorum ekki sammála töluðum við okkur í gegnum hlutina. Enginn fór í fússi af því að hann sigraði ekki í deilum. Öll sjónarmið komu fram en það tók á að fara í gegnum þau. Auðvitað var tekist á um einstök mál en alltaf var komist að niðurstöðu. Það var styrkur hópsins að hver hafði sína skoðun og það var tekið tillit til hennar. Ef samstaða náðist ekki var mitt hlutverk að taka af skarið og það þurfti ég stundum að gera. Þessi hópur hefur sjálfsagt verið talinn lifa mikið á pappír, skrifa mörg minnisblöð, en síðan tók tölvupósturinn við. Kannski vorum við að mörgu leyti akademískir stjómendur. Við þurftum þó ekki mjög langan tíma til að taka ákvarðanir. Við vomm meðvitaðir um að þetta mátti ekki taka of mikinn tíma.“ Mennt er máttur „Eg lagði áherslu á menntun, að nýir stjómendur hefðu góða háskólamenntun. Það var einungis einn viðskiptafræðingur hjá Eimskip þegar ég kom þangað, Þorkell Sigurlaugsson. Ég upplifði það þegar ég kom heim frá framhaldsnámi 1968 að það væri undantekning ef menn með viðskiptafræðimenntun væru áhrifamenn í viðskiptalífmu. Á sama tíma var algengt að ráða viðskiptafræðinga í opinberan rekstur. Sjálfur byrjaði ég í fjármálaráðuneytinu, í Fjárlaga- og hagsýslustofnun. I Eimskipafélaginu var mikið af spennandi verkefnum, mikið af breytingum sem vel menntaðir starfsmenn höfðu gagn og gaman af að taka þátt í.“ Skipulag mótast af persónum „Við fórum í gegnum nokkrar skipulagsbreytingar með reglubundnu millibili þegar við töldum að nauðsyn krefði. Við lærðum það að ráða ekki eingöngu viðskiptafræðinga heldur einnig verkfræðinga og fólk úr fleiri greinum til að fá blandaða þekkingu. Það var oft mikið kapphlaup um að komast í stöður hjá fyrirtækinu. Margir voru með takmarkaða starfsreynslu en fengu að spreyta sig sem millistjórnendur og náðu góðum árangri. Sumum lá mikið á að komast á toppinn en auðvitað voru takmarkaðir möguleikar á að komast í æðstu stöður innan fyrirtækisins. Þeir sem höfðu ekki þolinmæði til að komast á toppinn leituðu annað. Þetta fólk má núna víða fínna í áhrifastöðum í atvinnulífinu. Það er niðurstaða mín að skipulagsbreytingar mótist af þeim efnivið stjómenda sem úr er að spila á hverjum tíma en ekki einhliða af teoríum úr skipulagsfræðum.“ Með ráðum og dáð „Með reglulegum hætti fórum við ígegnum starfsemi og viðfangsefni fyrirtækisins, það gerðum við vegna breytinga í umhverfmu, markmiðsins að ná bctri árangri og til að draga fram nýja og öflugri stjómendur. Við náðum ágætum árangri mcð því að vinna með erlcndum stjómunarráðgjöfum. Þeim vinnubrögðum hafði ég kynnst hjá Flugleiðum. I Eimskip gerðum við þetta strax árið 1979. Þá fengum við norskt ráðgjafarfyrirtæki og unnum með því fyrstu hagræðingar- og skipulagsbreytingamar. Okkur fannst fljótt að við væmm útskrifaðir úr norskum þekkingaiheimi í þessu efni. í næsta áfanga unnum við með bandaríska ráðgjafarfyrirtækinu Booz Allen Hamilton. Við unnum meðal annars með því árið 1984 úttekt á gámaflutningum og mikla úttekt á fýsileika gámaflutninga á Norður-Atlantshafinu. Árið 1986 ákváðum við með skipulagðari hætti en áður að taka til endurskoðunar hlutverk og markmið Eimskipafélagsins. Þetta gerðum við einnig í samstaifi við þessa ráðgjafa og það var óskaplega skemmtilegt að vinna með þeim. Það er mjög þýðingarmikið í vinnu með ráðgjöfum að hafa sem skýrasta hugmynd um hvað það er sem ráðgjafarfyrirtækið á að vinna fyrir mann. Það er líka mjög skýrt í mínum huga að það þarf að velja „réttu" ráðgjafana til samstarfs, það er ekki nóg að velja bara ráðgjafarfyrirtæki sem hefur þekkt nafn. “ Hvatakerfi Eimskipafélagið var eitt af fyrstu hlutafélögum landsins til að taka upp kerjisbundin hvatakerfi við að umbuna starfsmönnum. Slik umbunarkerfi, sérstaklega kaupréttarsamningar, hafa verið mjög umdeild í samfélaginu. Stöðugt fleiri fyrirtœki hafa hins vegar tekið upp slíkt kerfi og virðist vera meiri sátt um þessa leið til aö umbuna stjómendum en áður. Hluthafar og hagsmunaaðilar „Við litum alltaf á Eimskipafélagið sem part af íslensku samfélagi. Áherslan var á ísland. Við vildum taka þátt í uppbyggingunni hér. Þar fýrir utan töldum við okkur tilbúna til að fjárfesta í flutningastarfsemi erlendis til að standa betur að vígi en ella. Við liföum í allt öðmm hcimi en menn lifa í dag. Aðaláherslan hlaut hins vegar að vera á að skila arði. Arðsemin varð aðalatriðið. Við urðunt að hafa alþjóðleg samkeppnis- og arðsemissjónarmið að leiðarljósi, ellegar kæmu einhverjir aðrir og tækju yfir verkefni okkar.“ Innleiðing á nýju hvatakerfi „Ein af nýjum hugmyndum til að ná meiri hagnaði var að æðstu stjómendur fyrirtækisins hefðu fjárhagslega hagsmuni af því að bæta afkomuna. Þetta var ný hugmyndafræði sem hafði skilað ágætum árangri, aðallega í Bandaríkjunum. Við ákváðum að gera tilraun til að koma slíkum hvatakerfum á, koma á nýjum kultúr í þóknunum til stjómenda. Nýjungar vekja alltaf spumingar og uppi vom efasemdir um þær. Spurt var: „Emð þið ekki með föst laun til að skila þessum arði?“ Stjóm fyrirtækisins samþykkti að koma á slíku hvatakeifi, tengdu afkomu. Það tók hins vegar tíma að koma þessu á. Umhverfið var ekki tilbúið til að taka við miklum breytingum í þessu sambandi. Menn vildu fá skýrt fram að umbun væri tengd ótvíræðum árangri í rekstri. Þetta var á síðustu ámm mínum hjá fyrirtækinu. Við vomm ekki komnir það langt þegar ég fór að þetta væri farið að skila árangri.“ Spurning um drifkraft „Ég fékk síðar tækifæri sem stjómarmaður í Flugleiðum til að móta og búa til hvatakerfi fyrir helstu stjómendur fyrirtækisins. Þar sá ég dæmið ganga upp og skila árangri. Hvatakeifi, eins og kaupréttarsamningar, eru komin til að vera. Það skiptir hins vegar máli að þetta sé innan skynsamlegra marka. Örlög fyrirtækja ráðast af því hverjir stjórna. Ég tel t.d. að KB-banki sé mjög gott dæmi um að það skiptir máli hverjir stjóma. Mín mynd er sú að Sigurður Einarsson og hans samstarfsmenn hafi búið til KB-banka á örfáum ámm. í dag er hann afdráttarlaust stærsti banki landsins og einn stærsti banki -12-

x

Vísbending

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.