Vísbending - 23.12.2005, Side 18
Harkan hún þenst við ofstopa aldanna,
hraðinn hann vex í loftleiðis grámyglu
dagarnir líða
framandi blæbrigði hljóðrituð,
en allt er svo gamalt í ísskápnum
ekkert nýtt undir sólinni.
Þeir segja að lífið sé lottó og lukka
og allt sé svo gott í dag,
þú heyrir bankana syngja
farsíma hringja
og myntirnir klingja
í vösum foringja,
en ert sjálfur í molum
kaldur í kolum, fullur af holum,
og segir: Hvað fæ ég nema vinning í vonleysi
og vænan skammt af engu í kaupbæti
því allt er svo gamalt í ísskápnum
ekkert nýtt undir sólinni.
Tímarit Iífsins komið á kasettu
og dópaðir draumar dansa
í dimmum skjölum, á diskettum.
Forðist mig!
Eg er fullur af fíkn og firringu.
Ég sé logandi glampa í augum
en á engar eldspýtur.
Ha, hver vill mig, blúsaðan bjána,
einsog dagblað í örfáum eintökum
Ég er öngstrætisófreskja
með innhverfa sálfræði
úthverfa málfræði
böggaða talþræði
og bý í landi þar sem lífíð er fáfræði
og allt er svo gamalt í ísskápnum
ekkert nýtt undir sólinni.
- 18 -