Vísbending


Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 24

Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 24
Ágúst Einarsson Frelsi, saga og framfarer Mjög margt hefur breyst í umhverfi fyrirtækja og einstaklinga hérlendis og erlendis undanfarna áratugi. Margir líkja þessum breytingum við byltingu og þótt það orð sé oft ofnotað er þó ýmislegt til í því þegar þróun undanfarinna áratuga er skoðuð. Byltingar í samfélögum tengjast oft gerbreytingu á atvinnuháttum og sú síðasta stóra í þeim efnum varð á seinni hluta 18. aldar þegar gufuaflið var beislað í framleiðslu. Þá breyttist margt á skömmum tíma, borgir byggðust hratt upp, borgarastéttin tók völdin af konungum og aðalsmönnum og stjórnhættir ger- breyttust. Franska stjórnarbyltingin árið 1789 hafði mikil áhrif um allan heim og Bandaríki Norður-Ameríku urðu til árið 1776. Hröð þróun, sérstaklega vestrænna samfélaga, hefur einkennt efnahags- og atvinnumál allar götur síðan. Hagnýting rafmagnsins, sem cr cin helsta tækninýjung mannsins, hefur haft gífurleg áhrif, enda hafa lífskjör alls staðar stórbatnað síðustu öld. Það er því hægt að kalla breytingarnar sfðustu tvo áratugi í atvinnuháttum byltingu, með hinu nýja verkfæri, tölvunni. Upplýsingar og þekking em nú helstu framleiðsluþættir í hagkerflnu. Alþjóðavæðingin ræður viðskiptum og menningarlegum samskiptum. Fall múrsins markaði hrun kommúnismans í Evrópu og framfarir í lífvísindum eru ævintýralegar. Við sjáum þessar breytingar vel í okkar litla samfélagi. Arið 1910 bjuggu 66% þjóðarinnar í dreifbýli og þá var 45% vinnuaflsins bundið í landbúnaði. Árið 2004 bjuggu einungis 7% þjóðarinnar í dreifbýli og aðeins 3% vinnuaflsins var í landbúnaði. Árið 1980, eða fyrir 25 árum, skilaði sjávarútvegur 16% af landsframleiðslunni. Núna hefur þetta hlutfall minnkað um nær helming og er tæplega 9%. Flestir vinna við þjónustu og fjöl- þjóðleg starfsemi fyrirtækja er orðin mjög algeng hérlendis. Þetta er mjög ör þróun og er þeim mun merkilegri þvf að breytingin sem hófst í nágranrialöndunum upp úr miðri 18. öld byrjaði ekki hér fyrr en 150 árum seinna, eða í upphafi 20. aldar. En þá breyttust hér hlutir fljótt. Aðlögunarhæfni og SVEIGJANLEIKI Á fyrri hluta 20. aldar nýttust tveir merkilegir og mikilvægir eiginleikar íslendinga. Það er í fyrra lagi hraði okkar við að laga okkur að breyttum aðstæðum og í síðara lagi sveigjanleiki í starfsháttum. Það þarf hins vegar frjálsa umgjörð um þessa eiginleika og sú umgjörð var ekki til á öldum áður og reyndar ekki allar götur frá fjórtándu öld, eða skömmu eftir lok þjóðveldisins. Þjóðveldið einkenndist af frelsi en síðari tíma einokun, bæði vegna erlends konungsvalds og innlendra, þröngsýnna höfðingja, batt þjóðina í fjötra um aldir. Þegar fjötrarnir losnuðu með innlendri heimastjórn og frjálsræði í viðskiptum breyttist íslenskt samfélag ótrúlega fljótt og við náðum nágrannaþjóðunum tiltölulega fljótt og erum nú hvað lífskjör varðar meðal 10 efstu þjóða heims. Einmitt þessir eiginleikar, aðlögunarhæfni og sveigjanleiki, eru undirstaðan fyrir því hversu vel okkur gengur að fóta okkur í hinu nýja hagkerfi. Þetta er ástæðan fyrir árangri okkar sfðustu ár á erlendum mörkuðum og uppgangi nýrra atvinnuvega eins og fjármálaþjónustu og líftækni. Við lögum okkur fljótt að nýjum aðstæðum og sýnum sveigjanleika í starfsháttum. Þetta er ekki öllum gefið en nú háttar svo til að þessir eiginleikar gagnast mjög vel. Það er hægt að líkja þessu við þróunina í Bandaríkjunum á seinni hluta 19. aldar þegar það víðlenda og auðuga land byggðist upp á tiltölulega fáum áratugum. Vitaskuld á 300.000 manna þjóð ekki að ofmeta sjálfa sig og í heildartölum heimsins skiptum við engu máli. Það svið sem við þó komumst næst því að eiga markverða hlutdeild er í sjávarútvegi en fiskafli okkar nemur um 2% af heimsaflanum. I umræðu hérlendis er ekki gefinn nægjanlegur gaumur að umgjörðinni sem hagkerfið hrærist í. Aðlögunarhæfni og sveigjanleiki nýttust ekkert þegar allt var reyrt í fjötra ófrelsisins. Sagan sýnir okkur þetta ágætlega. Fiskur var veiddur við íslandsstrendur frá 14. öld en ekki af íslendingum. Útlendingar Einmitt þessir eiginleikar, aðlöglnarhæfni og sveigjanleiki, ERU UNDIRSTAÐAN FYRIR ÞVÍ HVERSU VEL OKKUR GENGUR AÐ FÓTA OKKUR f HINU NÝJA IIAGKERI I -24'

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.