Vísbending - 23.12.2005, Síða 25
veiddu hér í margar aldir þótt afraksturinn
væri ekki nægjanlegur til þess að stóru ríkin,
Bretland, Þýskaland eða Frakkland, slægju
eign sinni á þessa eyju hér í Norðurhöfum,
þótt stundum hafi legið nærri því.
Danir sýndu sjávarútvegi engan áhuga
og það er ekki fyrr en um aldamótin 1900
sem við sjálf aðhöfðumst eitthvað eftir að
hafa fengið meira frelsi frá Dönum. Danir
hafa þó alltaf verið mjög framarlega í
alþjóðlegri verslun og kunnað að grípa
tækifærin þegar þau hafa gefist. Það sýndi
þátttaka þeirra í þrælaversluninni á sínum
tíma og verslun þeirra í Austurlöndum
fjær. Sjávarútvegur á Islandi eða annar
atvinnurekstur hér var einfaldlega ekki
nógu arðbær til að Danir hefðu áhuga á
honum.
Þröngsýni í sjálfstæðisbaráttu
OG SÍÐAR
Það var nær engin verkkunnátta til á Islandi alla 18. og 19. öldina
þótt Islendingar jrekktu vel til hennar frá dvöl sinni erlendis.
Mikill uppgangur var á þessum tíma í Kaupmannhöfn, sem var
borg menntafólks okkar í margar aldir. Þar var hægt að sjá allt
sem einkenndi hið nýja samfélag en á Islandi voru ekki til þorp,
vegir, hjólbörur eða verkvit. Umgjörðin gaf
ekki ráðrúm fyrir slíka þróun en það voru
Danir sem breyttu þessari umgjörð.
Það er freistandi að setja fram þá skoðun
að sjálfstæðisbarátta Islendinga sem
snerist oft meira urn formið en umgjörð
til frjálsar athafnasemi hafi í reynd skipt
litlu máli. Við hefðum í síðasta lagi
fengið hina lífvænlegu umgjörð okkar í
upphafi 20. aldar, einfaldlega vegna þess
að stjórnmálaaðstæður í Danmörku voru
þannig.
Danir tóku brölt okkar ekki alvarlega,
sem sést best á því að þeir höfðu Jón
Sigurðsson forseta á launum megnið af
starfsævi hans en vitanlega hefðu þeir aldrei
gert slíkt hefðu þeir talið að starf hans eða
annarra íslendinga ógnaði hagsmunum
þeirra. Við vorum fórnarlömb áhugaleysis
af hálfu Dana en það er ekkert nýtt í sögunni að það sé hlutskipti
fámennra og óarðbærra nýlendna.
Við hófumst þó handa, að frumkvæði Dana, um svipað leyti
og aðrar Evrópuþjóðir í upphafi iðnbyltingarinnar á 18. öld með
Innréttingunum og fleiri umbótum, m.a. í heilbrigðiskerfinu.
Þetta koðnaði allt niður, að stórum hluta vegna andstöðu og
áhugaleysis innlendra valdamanna. Allt kapp var þá og síðar
lagt á það af hálfu innlendra valdamanna að koma í veg fyrir
þorpamyndun sem gat aðeins orðið við sjávarsíðuna í tengslum
Andstaðan við
ÞÉTTBÝLIÐ OG AÐRAR
ATVINNUGREINAR EN
LANDBÚNAÐ STJÓRN-
AÐI STJÓRNMÁLA-
EMRÆÐUNNI í ÁRA-
TUGI ÁN NOKKURRA
ERLENDRA AFSKBPTA
sg Tjarnargata 12 Grundarvegur 23 Sunnubraut 4 Víkurbraut 62 & Vogar
230 Keflavík 260 Njarðvík 250 Garði 240 Grindavík Iðndal 2
^ / Sími 421 6600 Sími 421 6680 Sími 422 7100 Sími 426 9000 Sími 424-6400 1
Sparisjóðurinn í Keflavík Fax 421 5899 Fax 421 5833 Fax 422 7931 Fax 426 8811 Fax 424-6401
-25-