Vísbending - 23.12.2005, Blaðsíða 43
Útflutningurinn var fyrsta skref þeirra í fyrirtækjarekstri. Það
hefur alla tíð einkennt bræðurna hve áhugasamir þeir eru um að
læra. Menn muna eftir þeim úr verkefnum sem Útflutningsráð
stóð fyrir í byrjun tíunda áratugarins. Einn þátttakandi í þessu
verkefni sagði að áhugi þeirra og áræðni væri vísbending um að
„þeir myndu ná langt“. Engan grunaði þó hve langt og sennilega
allra síst þá sjálfa.
Það hefur fylgt þeim bræðrum í viðskiptum að menn hafa trúað
á þá. Forsvarsmenn Granda voru þeir fyrstu sem settu tíma og
peninga í framrás fyrirtækisins, fyrst í áföngum, en þegar „allt
stóðst sem þeir sögðu“ keypti Grandi um 40% hlut í Bakkavör
í hlutafjárútboði árið 1995. Því samstarfi lauk ekki fyrr en árið
2001 þegar Grandi seldi sinn hlut í fyrirtækinu enda var hlutverki
hans lokið í uppbyggingu félagsins. Bakkavör og Kaupþing
tóku höndum saman árið 1998 og hafa þau tryggðabönd haldist
síðan og hvorugt fyrirtækið hefði líklega náð jafnlangt og raun
ber vitni ef ekki hefði verið fyrir stuðning hins. Þegar tímaritið
Frjáls verslun útnefndi bræðurna í Bakkavör menn ársins 2001
þökkuðu þeir bæði Brynjólfi Bjarnasyni og Sigurði Einarssyni
fyrir stuðninginn við þróun félagsins. Brynjólfur er fyrrverandi
forstjóri Granda og sat í stjórn Bakkavarar allt frá því að Grandi
kom inn í félagið til ársins 2004. Hann stýrir nú Landssímanum
sem bræðurnir keyptu, ásamt öðrum, á árinu. Sigurður Einarsson
er starfandi stjómarformaður KB-banka. Bræðurnir hafa lært af
samstarfsmönnum sínum og hugsanlega útskrifast í því samstarfi
og þess vegna geta þeir haldið áfram ótrauðir.
Árið 2000 framleiddi Bakkavör sjávarafurðir og var komin á
góðan skrið í útrás, hafði keypt upp stórt fyrirtæki í Svíþjóð og
starfaði víðs vegar um Evrópu. Bræðurnir voru orðnir talsvert
sjóaðir í alþjóðavæðingunni, bæði í útflutningi og uppkaupum
á erlendum fyrirtækjum. Þá varð aftur á móti talsvert stflbrot í
fjárfestingum félagsins þegar þeir keyptu breska fyrirtækið Wine
& Dine síðla árs 2000. Ástæðan var að þrátt fyrir arðsaman rekstur
var innri vöxtur Bakkavararekki nema 3% á ári og það var Ijóst að
ef ætti að tryggja áframhaldandi vöxt yrði sá vöxtur að byggjast
á uppkaupum. „Við þurftum að setjast niður og spyrja okkur
grundvallarspuminga. Annaðhvort drögum við saman seglin og
hættum að leggja sömu áherslu á vaxtarstefnu og áður eða við
verðum að finna aðrar lciðir til þess að vaxa.“ Það var hins vegar
erfitt að finna fyrirtæki sem féllu inn í þann ramma sem Bakkavör
hafði sett sér varðandi uppkaup, þ.e. fyrirtækin sem voru í boði
Ný samstæða £m - fjárhagslegt yfirllt 20041 Bakkavör 2004 Geest 2004 Pro-forma 2004 Pro-forma 2004 ISK3
Sala2 149,6 830,6 980,2 122,5
%Vöxtur 18,0% 5,0% 6,7% 6,7%
EBITDA 24,8 74,6 99,4 11,6
%framlegð 16,6% 9,0% 9,5% 9,5%
EBIT 21,0 36,4 57,4 | 7,0
%framlegð 14,0% 4,1% 5,5% 5,5%
Handbært fé
frá rekstri 16,5 90,3 106,8 13,0
1. Samkvœmt ársreikningi Bakkavör Group og Geest PLC. Engin viöskipti voru á
milli félaganna fyrir samrunann.
2. Samanburdarhœfar uppgjörsaðferðir, breytingin hefur engin áhrif á
rekstrarafkomu.
3. Tölur i milljörðum króna.
vom ekki fýsileg hvað gæði snerti miðað við verð. Það voru „mjög
takmörkuð tækifæri“ í framleiðslu á sjávarafurðuin sem „varð
til þess að við vildum skoða út fyrir þann geira. Þá varð okkur
starsýnt á Wine & Dine en fyrirtækið hafði verið viðskiptavinur
okkar í tíu ár. Við þekktum það ágætlega og höfðurn oft dáðst
að því sem þeir voru að gera.“ Þetta var ört vaxandi fyrirtæki í
matvörugeiranum í Bretlandi. „Við ákváðum að hitta eigandann
og gera honum tilboð og við fengum það fyrirtæki á mjög
hagstæðu verði. Það var akkúrat fyrirtæki sem hentaði okkur
vel.“ Þar með var fyrsta skref Bakkavarar tekið inn á breska
markaðinn. „Síðan snerust hjólin hratt eftir það. Þá vorum við
komnir þangað með annan fótinn. Og við áttuðum okkur á að
þarna er mikið af tækifærum." Wine & Dine var keypt fyrir sjö
milljónir punda (900 milljónir króna). Einungis ári síðar, síðla
árs 2001, tók Bakkavör miklu stærra stökk inn á markaðinn með
102 milljóna punda (15,6 milljarða króna) yfirtöku á Katsouris
Fresh Foods (KFF). Það voru kaupin sem breyttu ekki einungis
fókus Bakkavarar heldur höfðu gríðarmikil áhrif á útrásarsögu
íslendinga, eins og Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB-banka,
benti á í viðtali við Vísbendingu. Þetta voru kaup sem heppnuðust
vel.
LflUSNIR SEM TRYGGJA ÁRANGUR: Gutenberg þjónar viðskiptavinum sinum i öllu er viðkemur prentun: ráðgjöf,
hönnun og umbroti, offseti og stafrænni prentun, bókbandi og dreifingu. Nær væri aö tala um miðlunarfyrirtæki þvi
Gutenberg hefur óhikað sótt inn á ný svið í takt við nýja tíma og býður margvíslega þjónustu umfram hið hefðbundna
prentverk. Dæmi um það eru ePóstur Gutenbergs og þjónusta tengd markpósti sem nýtur stöðugt meiri vinsælda.
Gutenberg
Gutenberg ehf.
Síðumúla 16
108 Reykjavík
Sími 545 4400
Fax 545 4401
www.gutenberg.is
-43-